24.10.1963
Neðri deild: 5. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)
Olíugeymar í Hvalfirði
Eysteinn Jónsson:
Ég verð að segja, að miðað við annað, sem hæstv. utanrrh. segir, tek ég mátulega hátíðlega yfirlýsingar hans um það hér, að aldrei sé neitt tekið á infrastructure-áætlanir nema það, sem viðkomandi ríki hafi samþykkt fyrir fram, og ég hugsa, að enginn virði mér það til vorkunnar. En varðandi þetta sérstaka efni og þetta atriði liggur það fyrir, að fyrrv. utanrrh., dr. Kristinn Guðmundsson, hefur lýst því yfir, að hann hafi ekki samþykkt neinar hernaðarframkvæmdir í Hvalfirði, og við, sem vorum með honum í ríkisstj. og höfum unnið með honum, vitum, að hann hlýtur að segja það satt, því að hann hefði alls ekki gert það upp á sitt eindæmi. En samt sem áður kvað vera einhver liður í þessum infrastructure-áætlunum um Hvalfjörð. Það liggur þess vegna alveg ljóst fyrir, að það er ekki þar með samþykki íslenzku ríkisstj. eða með samþykki Íslands, og hefur þá þessi regla í NATO þar af leiðandi verið brotin, ef hún er þá til.