30.04.1964
Sameinað þing: 71. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2181 í B-deild Alþingistíðinda. (1637)
Útvarp úr forystugreinum dagblaða
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Hvað mundi verða sagt við því, ef sá háttur væri upp tekinn, þegar útvarpað er umr. héðan frá Alþingi, að einn flokkur fengi helmingi lengri ræðutíma en hinir flokkarnir? Ég sé ekki betur en það væri þó alveg eins frambærilegt, ef einhver gerði þá kröfu, eins og að halda því fram, að einn flokkurinn eigi að hafa tvöfaldan rétt á móti hinum við þennan upplestur úr stjórnmálagreinum dagblaðanna. Mér sýnist það alveg það sama. Við vitum, að þessar stjórnmálagreinar eru hápólitískar yfirleitt. Í þeim túlka flokkarnir skoðun sína og stefnu, og ég fæ ekki með nokkru móti séð, að það samrýmist hlutleysisreglum útvarpsins að hafa þennan hátt á, sem veríð hefur, og það eru mér vonbrigði, að hæstv. ráðh. skuli taka undir þetta mál mitt á þann hátt, sem hann gerði, að hann telur enga ástæðu til að hlutast til um breytingar á þessu. Ég vildi nú vænta þess, að þegar hann skoðar málið betur, komist hann að annarri niðurstöðu í þessu efni. Ég vildi nú vænta þess. Ég sé ekki, að mögulegt sé við þetta að una.