30.04.1964
Sameinað þing: 71. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2183 í B-deild Alþingistíðinda. (1639)

Útvarp úr forystugreinum dagblaða

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að taka þátt í þessum umr., en gat ekki stillt mig um að fá að segja hér örfá orð út af því, sem hæstv. dómsmrh, lagði til málanna. Hann er ákaflega ánægður með ástandið, eins og það er í þessu efni, og þykir þetta sjálfsagt og eðlilegt. En það hefði verið fróðlegt, ef það hefði verið hægt að prófa, hvernig hæstv. ráðh. hefði litið á þetta, ef Framsfl. hefði gefið út tvö dagblöð í Reykjavík, en Sjálfstfl. eitt, hvernig þetta hefði þá snúið við hæstv. dómsmrh. Ég er hræddur um, að það hefði verið ofur lítið öðruvísi hljóð í honum þá. Ég held hann ætti ekki að vera að gera sig broslegan á þennan hátt, eins og hann gerði með því að vera að tala um víðsýni sumra í þessu sambandi og þröngsýni þeirra, sem fyndu eitthvað að þessu fyrirkomulagi.

En fyrst ég er kominn hérna, langar mig aðeins til þess að benda hæstv. menntmrh. á annað. Hann benti á það sjálfur, að það mundi leiða út í hið mesta öngþveiti, ef farið væri að mismuna flokkunum í sambandi við útvarp frá Alþingi. Það væri sjálfsagt, að það væri jafn ræðutími, hvort sem flokkurinn væri stór eða smár. Ég er alveg sammála hæstv. ráðh. um þetta. En hann dró af þessu að mínu viti alveg rangar ályktanir. Af þessu átti hann auðvitað að draga þá ályktun, að það ætti að vera sami háttur á, þegar lesin væru sjónarmið flokkanna úr blöðunum, því að það, sem verið er að gera, þegar verið er að lesa leiðarana úr blöðunum, er ekki það að auglýsa blöðin, heldur sjónarmið þeirra, sem gefa blöðin út. Útvarpinu þykir henta, að þau komi fram. Það eru þau pólitísku sjónarmið, sem eru í leiðurunum. Þess vegna er tekið úr leiðurunum, en ekki einhverjum öðrum greinum blaðanna.

Ég álít, að skemmtilegt sé fyrir marga og þægilegt að fá þessi sjónarmið fram á þessa lund. En ég álít, að leikurinn sé ójafn, og er sammála hv. 1. þm. Norðurl. v. um, að leikurinn sé ójafn og að það setti að stilla þannig til í þessu, að þau pólitísku sjónarmið, sem menn vita að blöðin aðhyllast og túlka, búi við jafnræði. Mér finnst það líka vera alveg í beinu samræmi við það, sem hæstv. menntmrh, hélt sjálfur fram varðandi það, út í hvaða ógöngur farið væri, ef farið væri að mismuna flokkunum í útvarpi frá Alþingi. En ráðh. vill miða þetta eingöngu við blöðin og segir, að þetta sé hugsað til þess að koma sjónarmiðum blaðanna fram. Við vitum, að blöðin flytja mál fyrir flokkana og í tengslum við þá, og þess vegna er ég sammála um, að þetta sé ekki æskilegur háttur.