30.04.1964
Sameinað þing: 71. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2185 í B-deild Alþingistíðinda. (1641)

Útvarp úr forystugreinum dagblaða

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki bæta miklu við þær umr., sem farið hafa fram hér utan dagskrár. En ríkisútvarpið hefur nú í seinni tíð, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um, tekið upp að eigin frumkvæði tvenns konar afskipti af stjórnmálum. Áður var það svo, að ég ætla, að stjórnmálaflokkarnir sóttu á um það að fá að koma á framfæri í útvarpinu ýmsu efni, aðallega ræðum fyrir kosningar og útvarpað frá Alþingi, og hefur það tíðkazt lengi. En ég hygg, að útvarpið hafi ekki áður að eigin frumkvæði hafið afskipti af pólitík eða stjórnmálum. Þessi tvenns konar afskipti, sem ríkisútvarpið þannig hefur tekið upp af stjórnmálum, eru í fyrsta lagi flutningur svokallaðra frétta af umr. á Alþingi og hins vegar lestur forustugreina dagblaðanna í Reykjavík, sem er nýmæli nú í vetur.

Ég tel, að með þessari nýbreytni og ekkert síður með því, sem fyrr hófst, þ.e.a.s. að segja frá umr. hér á Alþingi, hafi útvarpið tekið sér á herðar mikinn vanda, sem ákaflega erfitt sé að leysa. Það er ákaflega erfitt að eiga í stuttu máli á hlutlausan hátt að túlka margra klukkustunda umr. um stjórnmál, en þetta er í raun og veru það, sem ríkisútvarpið ætlar fréttamönnum sínum að gera, að túlka í örstuttu máli langar umr. um stjórnmál, sem fram fara á Alþingi. Ég hygg, að þetta útvarpsefni sé út af fyrir síg fremur vel séð meðal hlustenda, eins og hvers konar nýbreytni, hve lengi sem það verður. En hitt er það, að hlustendur, sem ekki eru hér í sölunum, þar sem umr. fara fram, hafa enga aðstöðu til þess að meta það, hvort sú frásögn eða sú túlkun á umr., sem kemur fram, sé við hæfi, og þm. hafa raunar líka litla aðstöðu til þess að meta það sjálfir. En ég vil nota tækifærið til þess að láta það í ljós, úr því að farið er að ræða þessi mál, að ég tel þennan fréttaflutning af umr. í þinginu, þessa túlkun, sem útvarpið hefur tekið að sér á ræðum þm., orka mjög tvímælis. Árangurinn orkar mjög tvímælis, og segi ég það ekki til lasts þeim mönnum, sem við það hafa fengizt, því að að minni hyggju er mjög erfitt að leysa þennan vanda.

Þá eru hin síðari afskipti útvarpsins af stjórnmálum, sem hér hafa aðallega verið gerð að umræðuefni, að láta lesa í morgunútvarpið útdrátt úr forustugreinum dagblaðanna í Reykjavík, sem í reyndinni virðist vera þannig, að mér hefur virzt, þegar ég hef hlýtt á þessa útdrætti, að það hafi verið meginefni greinanna, sem þarna hefur verið rakið, en annars hef ég ekki fylgzt svo stöðugt með því, að ég vilji um það dæma. En hinu hef ég löngu tekið eftir, og ýmsir hafa rætt það við mig, bæði hér í borginni og víðar um landið, að þeim þætti einkennilegt, að lesnar væru upp tvær forustugreinar frá einum flokknum, en ekki nema ein frá hínum, og menn hafa orðað það svo í mín eyru, að þarna væri útvarpið að fá Sjálfstfl. tvöfaldan ræðutíma um stjórnmál. Ég hygg því, að hv. 1. þm. Norðurl. v. sé ekki einn um það að hafa tekið eftir þessu, ýmsir hafa haft orð á þessu við mig.

Hv. 2. þm. Vestf. gat þess áðan, að það mundi tíðkast erlendis að lesa forustugreinar úr blöðum. En ég vil leyfa mér að benda honum á það og öðrum hv. þm., að blaðaútgáfu viðast hvar erlendis er töluvert öðruvísi háttað en hér. Þar eru t.d. svokölluð óháð dagblöð, sem eru ekki í tengslum við flokkana, blöð, sem skrifa það sem kallað er óháð um stjórnmálin. Hér á landi eru slík blöð ekki til. Öll stjórnmálablöð eru á vegum flokkanna hér á landi. Ég held, að það orki ekki tvímælis, að útí í hínum stóra heimi eru viða svokölluð óháð blöð, þ.e.a.s. blöð, sem eru ekki í tengslum við stjórnmálaflokkana.

Þetta vil ég nú leyfa mér að benda á. En annars vil ég segja það, að ef á að halda því áfram að lesa forustugreinar úr blöðum, sé ég satt að segja ekki, hvers vegna Reykjavíkurblöðin eiga að hafa einkarétt á því, að efni þeirra sé kynnt fyrir landslýðnum. Ég sé það ekki. Ég sé ekki annað en að ef á að fara að lesa úr blöðum, eigi alveg eins að lesa úr blöðum, sem gefin eru út á Akureyri eða í Neskaupstað eða Vestmannaeyjum eða Ísafirði o.s.frv., þó að þau séu ekki dagblöð. Það má vera, að hv. útvarpsráðsmönnum hafi ekki hugkvæmzt þetta, að blöðin úti á landsbyggðinni hefðu þarna einhvern rétt, og ef svo er, þá vil ég hér með leyfa mér að benda þeim á það.