27.01.1964
Neðri deild: 45. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)

Fiskverð

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það er að vísu venja, að ríkisstj. sé látin vita, ef beina á til hennar meiri háttar fsp. og aths. utan dagskrár. Svo hefur ekki verið gert í þetta skipti, en segja má, að það skipti ekki máli, því að allt þetta efni er að sjálfsögðu til athugunar, bæði sjálfstætt og í sambandi við það frv., sem fyrir liggur. Og ég tel það víst, að það muni koma til nokkurrar ákvörðunar, eins og ég segi, í sambandi við frv., enda hefur ríkisstj. látið fara fram athuganir á málinu og athugað það sjálf með sínum ráðunautum undanfarna daga.