31.10.1963
Sameinað þing: 9. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2217 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (BF):
Borizt hefur svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 30. okt. 1963.
Matthías Á. Mathiesen, 3. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Axel Jónsson fulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Benedikt Gröndal,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingís.“
Kjörbréf varamanns liggur fyrir, og vildi ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Gert verður hlé á fundinum á meðan. [Fundarhlé.]