18.11.1963
Sameinað þing: 17. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2219 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (SF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 16. nóv. 1963.

Guðmundur Í. Guðmundsson, 4. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Friðjón Skarphéðinsson bæjarfógeti, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti efri deildar. Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf varamanns liggur fyrir, og vildi ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]