18.11.1963
Sameinað þing: 17. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2219 í B-deild Alþingistíðinda. (1679)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og athugað kjörbréf Friðjóns Skarphéðinssonar bæjarfógeta, útgefið af landskjörstjórn 24, júní s.l. og hefur einróma samþykkt að taka kosningu Friðjóns Skarphéðinssonar gilda og mæla með samþykkt kjörbréfs.