12.02.1964
Sameinað þing: 40. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (1692)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík; 12. febr. 1964.

Ólafur Jóhannesson, 3. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að fyrsti varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn á kjörbréfi Jóns Kjartanssonar hefur áður farið fram, og tekur hann því nú sæti á þingi sem 3. þm. Norðurl. v., og býð ég hann velkominn til starfa á þinginu.

Þá hefur enn fremur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 12. febr. 1964. Sigurður Ingimundarson, 1. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, sætí á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur svo hljóðandi símskeyti frá 1. varamanni:

„Get ekki tekið sæti á Alþingi í fjarveru Sigurðar Ingimundarsonar vegna skorts á starfsfólki við embætti mitt.

Friðjón Skarphéðinsson.“

Kjörbréf Unnars Stefánssonar hefur áður verið rannsakað, og tekur hann því nú sæti á þinginu sem 1. landsk. þm., og býð ég hann velkominn til starfa.

Þá hefur enn fremur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 12. febr. 1964. Sigurður Bjarnason, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér ú þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Kristján Jónsson kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis:“ — [Fundarhlé.]