12.02.1964
Sameinað þing: 40. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (1693)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Einar Ingimundarson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar til að athuga kjörbréf Kristjáns Jónssonar í Hólmavík, sem nú er orðinn 1. varaþm. Sjálfstfl, í Vestf., en þess hefur verið óskað, að hann taki nú sæti ú Alþingi í fjarveru Sigurðar Bjarnasonar, hv. 2. þm. Vestf. Kjörbréfanefnd finnur ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur því einróma til, að það verði samþykkt og kosning Kristjáns Jónsonar, Hólmavík, tekin gild.