17.02.1964
Sameinað þing: 42. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (SÁ):
Það hefur borizt bréf frá hæstv. forseta Ed., svo hljóðandi:
„Reykjavík, 14. febr. 1964.
Ásgeir Bjarnason, 1. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Daníel Ágústínusson fyrrv. bæjarstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Ó. Ólafsson,
forseti efri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Það þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi hv. 1. varaþm. Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Daníels Ágástínussonar. Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréfið, og á meðan verður fundi frestað. — [Fundarhlé.]