01.04.1964
Sameinað þing: 57. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2227 í B-deild Alþingistíðinda. (1708)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 31. marz 1964.

Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir í embætti mínu leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Óskar Jónsson fulltrúi, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn hefur áður farið fram á kjörbréfi 1. varamanns Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Óskars Jónssonar, og tekur hann nú sæti ú Alþingi sem 4. þm. Sunnl.

Þá hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 31. marz 1964.

Þorvaldar G. Kristjánsson, framkvæmdastjóri

Sjálfstfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Sigurðar Ágústssonar, 2. þm. Vesturl., sem nú er sjúkur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki é meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Ásgeirs Péturssonar sýslumanns liggur fyrir, og verður nú gert fundarhlé, meðan kjörbréfanefnd tekur kjörbréfið til rannsóknar. — (Fundarhlé.]