06.04.1964
Sameinað þing: 58. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2227 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (SI):
Borizt hafa bréf frá deildarforsetum um varaþm. í fyrsta lagi frá forseta Nd., sem segir, að Birgir Finnsson hafi skrifað sér svo hljóðandi bréf:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
„Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.“
Jafnframt fylgir skeyti frá 1. varaþm. Alþfl.: „Sökum embættisanna hef ég ekki tök á að taka varamannssæti á Alþingi að þessu sinni.
Friðjón Skarphéðinsson.“ Kjörbréf Unnars Stefánssonar, 2. landsk. varaþm. Alþfl., hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann því velkominn til starfa á Alþingi.
Þá er í öðru lagi bréf frá forseta Nd., sem segir, að Halldór E. Sigurðson hafi skrifað svo hljóðandi bréf:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, Gunnar Guðbjartsson bóndi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
„Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Kjörbréf Gunnars Guðbjartssonar, 2. varamanns Framsfl. í Vesturlandskjördæmi, hefur borizt. Bréfum þessum og kjörbréfi vísa ég til kjörbréfanefndar.
Það er hér skeyti frá 1. varaþm. Framsfl. varðandi bréfið:
„Sökum annríkis get ég ekki mætt á Alþingi í forföllum Halldórs E. Sigurðssonar n.k. mánudag.
Daníel Ágústínusson.“
Þá er í þriðja lagi bréf frá forseta Ed., sem segir, að Sigurður Ó. Ólafsson hafi skrifað sér svo hljóðandi bréf:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. og 2. varamanns taki 3. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Steinþór Gestsson bóndi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
„Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Hér kemur bréf frá 1. varamanni Sjálfstfl.:
„Vegna anna í starfi mínu hef ég ekki tök á að taka sæti Sigurðar Ólafssonar, 5. þm. Sunnl., á Alþingi í fjarveru hans.“
2. varaþm. flokksins í kjördæminu er erlendis.
Kjörbréf 3. varamanns flokksins hefur borizt, kjörbréf Steinþórs Gestssonar. Bréfum þessum og kjörbréfi vísa ég til kjörbréfanefndar.
Í fjórða lagi hefur borizt bréf frá forseta Nd., svo hljóðandi:
„Jónas Pétursson, 3. þm. Austf., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurlandskjördæmi, Sverrir Hermannsson viðskiptafræðingur, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Kjörbréf varamannsins hefur borizt. Bréfi þessu og kjörbréfi vísa ég til kjörbréfanefndar.
Þá hefur í fimmta lagi borizt bréf frá forseta Nd., svo hljóðandi:
„Jón Skaftason, 4. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Valtýr Guðjónsson forstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Kjörbréf varamanns hefur borizt. Bréfinu og kjörbréfinu er vísað til kjörbréfanefndar.
Loks er svo bréf frá forseta Nd., svo hljóðandi:
„Einar Olgeirsson, 3. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistareyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Reykv., Bergur Sigurbjörnsson viðskiptafræðingur, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Kjörbréf varamanns hefur borizt og er hér með bréfinu og kjörbréfinu vísað til kjörbréfanefndar.
Þá er fundi frestað um stund, á meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfin. — [Fundarhlé.]