14.04.1964
Sameinað þing: 62. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (1714)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (SI):
Borizt hefur svofellt bréf frá forseta Ed.:
„Emil Jónsson, formaður þingflokks Alþfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið: „Samkvæmt beiðni Guðmundar Í. Guðmundssonar, 4. landsk. þm., sem nú dvelur erlendis í opinberum erindum, leyfi ég mér, með skírskotun til 138: gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 3. varamaður landsk. þm. Alþfl., Pétur Pétursson forstjóri, sæti á Alþingi í fjarveru hans.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.“
Jafnframt liggur hér fyrir símskeyti frá 1. varamanni Alþfl.:
„Sökum annríkis hef ég ekki tök á að taka varamannssæti á Alþingi að þessu sinni. Friðjón Skarphéðinsson.“
Enn fremur liggur fyrir kjörbréf Péturs Péturssonar, og er þessum gögnum öllum vísað til kjörbréfanefndar og fundi frestað, meðan athugun fer fram. — [Fundarhlé.]