08.05.1964
Sameinað þing: 74. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (1728)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 6, maí 1964.

Halldór Ásgrímsson, 2. þm. Austf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Vegna anna heima fyrir næstu vikur leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austfjarðakjördæmi, Vilhjálmur Hjálmarsson bóndi, taki á meðan sæti: mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar:

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Vilhjálms Hjálmarssonar liggur fyrir, og vildi ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]