20.12.1963
Neðri deild: 38. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2248 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)
Þinghlé
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti: Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans í garð okkar þm., og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn okkar allra, er ég, flyt honum góðar jólaóskir og óskir um gleðilegt og farsælt nýtt ár og þökk fyrir samstarfið á liðna árinu. Ég vil biðja þingheim að taka undir þessa ósk til hæstv. forseta með því að risa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]