14.05.1964
Sameinað þing: 80. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2252 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)
Þinglausnir
forseti (BF):
Þetta var yfirlit í tölum um störf þingsins að þessu sinni. Það er ekki aðalatriði, hvort afgreidd mál eru fleiri eða færri nú en áður, heldur hitt, hvernig til hefur tekizt að setja réttlát lög, sem verði virt í framkvæmd, þannig að þau nái tilgangi sínum.
Þá er einnig vert að hafa það í huga, sem forseti Íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, minnti nýlega á í ávarpi til þings Slysavarnafélags Íslands, að ekki verða öll vandamál leyst af stjórnvöldum eingöngu, heldur þarf fleira til að koma.
Störf Alþingis að þessu sinni verða nú lögð undir dóm reynslunnar, en það er ósk mín, að gæfa og farsæld megi af þeim hljótast.
Þar sem þetta er síðasti fundur á þessu þingi, leyfi ég mér að þakka hæstv. ríkisstj. og öllumi hv. þm. ágætt samstarf á þingtímanum. Ég þakka það traust, sem mér var sýnt með því að trúa mér fyrir forsetastörfum. Einnig þakka ég þingheimi það umburðarlyndi og þá hjálpsemi, sem ég hef orðið aðnjótandi við störf mín í þessu sæti.
Sérstakar þakkir færi ég varaforsetum, sem jafnan hafa fúslega veitt mér hina ágætustu aðstoð. Ég þakka skrifurum þingsins eljusemi og kostgæfni í störfum, og skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis þakka ég fyrir mikið og gott starf og fyrir ánægjulega samvinnu.
Öllum hv. þm. bið ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og óska þeim og fjölskyldum þeirra gæfu og gengis. Einnig flyt ég skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis beztu heillaóskir.
Fyrir hönd Alþingis bið ég öllum Íslendingum árs og friðar.