14.05.1964
Sameinað þing: 80. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2253 í B-deild Alþingistíðinda. (1784)
Þinglausnir
Eysteinn Jónsson:
Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir árnaðaróskir hans í garð okkar þm., og ég vil flytja honum — og ég veit, að ég geri það í nafni okkar allra sérstakar þakkir fyrir ágæta samvinnu hans við okkur á forsetastóll. Ég vil leyfa mér að færa honum og hans fólki beztu árnaðaróskir og láta í ljós þá von, að við eigum eftir að hitta hann hér á næsta hausti heilan á húfi, þegar tekið verður aftur til þinghalds á ný.
Ég vil biðja þingheim að samþykkja þessar árnaðaróskir og þetta þakklæti í garð hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.)