14.05.1964
Sameinað þing: 80. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (1786)
Þinglausnir
Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson):
Hæstv. forseti og forsrh., hv. alþingismenn. Ég hef í dag gefið út svofellt forsetabréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Alþingi, 84. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Ég mun því slíta Alþingi í dag, fimmtudaginn 14. maí 1964.
Gjört í Reykjavík, 14. maí 1964.
Ásgeir Ásgeirsson.
Bjarni Benediktsson.
Forsetabréf um þinglausnir.“
Samkv. þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.
Ég óska þingmönnum veifarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið þingmenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.
Þingheimur stóð upp, og forsrh., Bjarni Benediktsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“
Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.