12.11.1963
Neðri deild: 14. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (1788)

51. mál, aðstoð til vatnsveitna

Flm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Við fjórir þm. þessarar hv. d. leyfum okkur að flytja frv. hér á þskj. 52 til I. um breyt. á I. nr. 93 frá 1947, um aðstoð af hálfu ríkisins við vatnsveitur.

Í l. frá 1947 er kveðið á um fjárhagslega aðstoð ríkissjóðs við sveitarfélög, sem koma sér upp vatnsveitum. Fyrst og fremst er heimilt að veita styrk úr ríkissjóði, sem nema má allt að helmingi kostnaðar, og er þá miðað við kostnað af stofnæðum svokölluðum, vatnsgeymum, dælum og í fjórða lagi jarðborunum. Þessi löggjöf hefur á liðnum tíma reynzt hin nýtasta um margt og gert ýmsum sveitarfélögum kleift að leggja í tiltölulega dýrar vatnsveitugerðir, sem að öðrum kosti hefði eigi verið lagt í eða framkvæmdir þá tafizt úr hófi fram.

En að fenginni reynslu við framkvæmd þessarar löggjafar hefur þó komið í ljós, að okkur flm. og mörgum öðrum er það mjög í mun, að lögunum verði breytt til annars horfs um nokkur atriði, og ætla ég að rekja þau nokkru nánar hér, en þau eru í þrennu lagi.

Styrkurinn úr ríkissjóði getur stundum orðið æði takmarkaður og langt fram yfir það, sem ætla má að löggjafinn hafi upprunalega ætlað sér, þ.e. í þeim tilvikum, þegar svokölluð stofnæð er einungis lítill hluti af öllu vatnsveitukerfinu. Þá koma aftur á móti, þegar þannig stendur á, til svokallaðar aðaldreifiæðar og koma snemma og verða þá í raun og veru höfuðhluti dreifilínukerfisins. Miðast þá styrkurinn, eins og nú er, við stofnæðina sjálfa, en stofnæð er sá hluti vatnsæðar, sem liggur frá vatnsbóli eða upptökum vatns að fyrstu greiningu. Þannig er stofnæð skilgreind af hálfu þeirra aðila, sem vatnsveitustyrkjum hafa úthlutað.

Það skal út af fyrir sig ekki dregið í efa, að þessi skilgreining sé rétt, en það er auðsætt, þegar svo stendur á um stofnæð, að styrkurinn verður ekki að því gagni, sem löggjafinn hefur upphaflega ætlað sér, og okkur flm. þykir rétt að gera í þessu frv. till. um nokkra breytingu þar á.

Þessi aðstaða, þar sem skammar eru stofnæðar, getur víða komið upp og hefur víða komið upp, sérstaklega þó í dreifbýli, þar sem dreifikerfið er stærsti hlutinn. Við slíkar aðstæður getur framkvæmd vatnsveitugerðar, sem annars er nauðsynleg, stöðvazt eða orðið ónóg, nema ríflegri styrkur komi til. En í l. skortir heimild í þessu efni og þá þegar þörfin er hvað brýnust.

Til þess að gera hér nokkra úrbót, þá leggjum við flm. til í frv., að styrkurinn úr ríkissjóði nái einnig til svokallaðra aðaldreifiæða.

Þetta er varðandi styrkinn skv. löggjöfinni og breytingu þar á í þessu frv.

Þá er í öðru lagi till. af okkar hálfu um það, að ákvæði verði sett inn í lögin frá 1947 um ríkissjóðsábyrgðina, þannig að ábyrgð sú, sem ríkissjóði er heimilt að veita í þessum efnum, þ.e.a.s. til sveitarstjórna vegna vatnsveitugerðar, sé sjálfskuldarábyrgð. Nýlega samþ. lög um ríkisábyrgðir gera ráð fyrir því, að ábyrgð ríkissjóðs sé jafnan einföld, nema sérstaklega sé getið hins. Og víst er það, að vatnsveitugerðir eru mikils verðar framkvæmdir í þágu almennings. Þykir því okkur flm. ærin ástæða til þess, að ábyrgð ríkissjóðs verði í þessum efnum öllu ríkari en annars.

Í þriðja lagi leggjum við til, að ábyrgðar- og styrksfjárhæðin verði hækkuð sameiginlega upp í allt að 90% af öllum vatnsveitukostnaðinum.

Þá hef ég í stuttu máli greint frá þeim breyt., sem felast í þessu frv. og við flm. teljum að séu mjög eðlilegar og í raun og veru sjálfsagðar og allra sízt þess eðlis, að nokkrum verulegum ágreiningi eigi að geta valdið hér í þinginu.

Óska ég, að frv. verði vísað til heilbr: og félmn. að lokinni þessari umr.