17.10.1963
Neðri deild: 3. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (1794)
17. mál, áfengislög
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Áður en þetta frv. um breytingar á áfengislögunum fer til n., vildi ég gjarnan vekja athygli á tveimur atriðum, — nýjum atriðum, sem ég mundi telja æskilegt að fengju nokkra athugun í nefnd.
Ég hygg, að það frv., sem hér liggur fyrir, en í því felast ekki neinar stórbreytingar, það sé heldur til bóta frá því, sem nú er, og get því mælt með því. Hins vegar tek ég undir það, sem kom fram í ræðu hæstv. dómsmrh., að það gæti verið nokkurt vafamál, hvaða aldurstakmark á að setja í lög eins og þessi. Ég sé, að í frv, er haldið því aldurstakmarki, sem er í núgildandi áfengisl., og það má vel vera, að það sé rétt. En í þessu sambandi er þó vert að athuga það, að þróunin stefnir heldur í þá átt að lækka aldurstakmörk og veita ungum mönnum aukin réttindi, án þess að ég sé sérstaklega að nefna það í sambandi við þetta mál. Ég býst t.d. við því, að að því muni koma fyrr en seinna í sambandi við kosningar til Alþingis og bæjar- og sveitarstjórna, að aldurmarkið verði heldur fært niður. Ég segi þetta samt ekki vegna þess, að ég sé beinlínis að leggja til, að aldursmarkinu verði breytt í því frv., sem hér liggur fyrir.
Eins og kom fram í ræðu hæstv. ráðh., er þetta frv., sem hér liggur fyrir, þannig til komið, að eftir þá atburði, sem gerðust í Þjórsárdal á s.l. vori, var skipuð nefnd af hæstv. menntmrh. til þess að gera skýrslu um þessa atburði og þær ályktanir, sem af þeim mætti draga. Þessi skýrsla liggur nú fyrir, og eitt af þeim atriðum, sem n. bendir á til úrlausnar, felst í því frv., sem hér liggur fyrir. Það getur að sjálfsögðu verið gott að herða á ýmsum bönnum og eftirliti, og skal ég ekki draga úr því, heldur tel það að mörgu leyti nauðsynlegt.
Það atriði í till. n., sem ég vil leggja megináherzlu á eða tel, að leggja beri megináherzlu á, felst í því, sem n. leggur til um það, að aukin sé bindindisfræðsla og æskulýðsstarfsemi, sem vinnur gegn áfengisnautn. Ég hygg, að það sé vænlegast til árangurs í þessum efnum, að slík starfsemi verði efld. Þegar núv. áfengislöggjöf var sett, varð því miður þetta atriði svo að segja alveg út undan. Það er að vísu sérstakur kafli í lögunum um áfengisvarnir, en hins vegar er ekki séð fyrir neinu teljandi fjármagni til þess að gera þennan kafla laganna raunhæfan. Í frv. að áfengislögunum frá 1954 er gert ráð fyrir því, að sérstökum hluta af áfengiságóðanum verði varið til þessarar starfsemi, og þannig var þetta frv. lagt fyrir Alþingi á sínum tíma af hæstv. núv. dómsmrh. En illu heilli var þetta ákvæði um að tryggja áfengisvörnunum og bindindisfræðslunni sérstakt fjármagn fellt niður úr frv. í meðferð þingsins. Ég vil í tilefni af því benda hæstv. n., sem kemur til með að fjalla um þetta mál, á hað að taka til athugunar, að þetta ákvæði verði tekið upp í lögin, eins og það var í frv. til áfengislaga á þingi 1953. Þetta ákvæði, sem þá var lagt til af þeirri nefnd, sem undirbjó lögin, að yrði tekið upp, var svo hljóðandi„ með leyfi hæstv. forseta, og var þá í 31. gr. í frv.:
„Stofna skal áfengisvarnasjóð. Er hlutverk hans að standa straum af kostnaði við áfengisvarnir, bindindisfræðslu og bindindisútbreiðslu. Skulu í hana renna árlega 3% af hagnaði Áfengisverzlunar ríkisins. Áfengisvarnaráð fer með stjórn og reikningshald sjóðsins. Nánari fyrirmæli um áfengisvarnasjóð skulu sett í reglugerð.
Á síðasta þingi flutti ég sérstakt frv., þar sem þessi gamla till. var tekin upp, og hef aftur flutt hað á þessu þingi. En mér finnst vel vera hægt að leysa þetta mál þannig, fyrst komin er fram sérstök breyting á áfengislögunum, að þetta ákvæði verði beinlínis tekið upp í þau og þar með tryggt nokkurt fjármagn til þessarar starfsemi. En það getur hver og einn gert sér ljóst, að það er tilgangslaust að vera að tala um bindindisfræðslu og sérstaka æskulýðsstarfsemi til þess að vinna gegn áfengisneyzlu, nema því aðeins að séð sé fyrir hæfilegu fjármagni til slíkrar starfsemi. Þess vegna vildi ég biðja þá nefnd, sem fær þetta mál til athugunar, að taka það jafnframt til athugunar, hvort ekki væri rétt að taka þetta ákvæði upp að nýju og fella það inn í kafla áfengislaganna um áfengisvarnir, eins og það var upphaflega í því frv. að áfengisl., sem lagt var fyrir Alþingi 1953.
Annað atriði, sem ég vildi biðja n. að taka til athugunar, snertir 9. gr. áfengislaganna. 9. gr. áfengislaganna hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Áfengisverzlun ríkisins annast sölu áfengis þess, sem ríkið flytur inn samkv. 3. gr. Ríkisstj. ákveður álagningu með hliðsjón af áfengisstyrkleika og innkaupsverði. Óheimilt er að gefa veitingamönnum afslátt frá hinu ákveðna útsöluverði til almennings.
Þetta seinasta ákvæði 9. gr., að óheimilt sé að gefa veitingamönnum afslátt frá hinu ákveðna útsöluverði til almennings, virðist hafa verið metið þannig af hæstv. ríkisstj., bæði núv. ríkisstj. og nokkrum, sem hafa setið á undan henni, að það væri eiginlega heimilt eða ríkisstj. og forráðamönnum áfengisverzlunar væri heimilt að gefa afslátt til kaupenda svo að segja allra annarra en veitingamanna. Og þess vegna hefur sá siður skapazt, að allmargir aðilar fá nú afslátt frá útsöluverði á áfengi. Það hefur komizt í hefð að binda þetta að ýmsu leyti við hinar hærri stöður í þjóðfélaginu, ef svo mætti segja, þannig að t.d. ráðh. og þingforsetar og fleiri slíkir hafa fengið þennan afslátt. Ég mundi telja það æskilegt, að 9. gr. yrði gerð alveg skýr í þeim efnum, að það væri ekki aðeins synjað um afslátt til veitingamanna, heldur allra, sem áfengi kaupa, þannig að allir sitji þar við sama borð. og þess vegna ættu þessi niðurlagsákvæði 9. gr. að hljóða eitthvað á þessa leið: „Óheimilt er að gefa afslátt frá hinu ákveðna útsöluverði til almennings.
Ég held, að það hljóti hverjum og einum að vera ljóst, sem telur, að áfengi sé eitthvað skaðlegt, að það sé ekki til þess að skapa holla siðvenju í þessu efni að telja það einhver sérstök hlunnindi, að menn fái afslátt af áfengi, og sízt af öllu að binda það við hinar hæstu tignarstöður í þjóðfélaginu. Ég held þess vegna, að það sé þáttur í því að skapa heilbrigðar venjur í þessum efnum að fella þetta afsláttarleyfi alveg niður. Ég vil taka það alveg skýrt fram, til þess að valda ekki neinum misskilningi, að í sambandi við þetta er ég ekki að deila neitt sérstaklega á hæstv. núv. ríkisstj., því að hún hefur ekki skapað þá venju, sem ríkir í þessum efnum, þó að hún hins vegar sé jafnsek fyrirrennurum sínum. Og ég vil líka segja það, að mér finnst nú ástand þjóðmálanna vera þannig, að hæstv. ríkisstj. sé ekki það traust í sessi, að það megi reikna með því, að þessi réttindi verði endanlega bundin við hana, svo að það sé ekki sérstaklega verið neitt að taka frá henni, þó að þau yrðu felld niður. Það gæti kannske alveg eins verið, að þau væru raunverulega tekin frá einhverjum öðrum. En af þessum ástæðum, sem ég hef greint, að það eru yfirleitt allir kannske jafnsekir um, að þessi hefð hefur komizt á, þá ætti líka að vera auðveldara að ná samkomulagi um að afnema það.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð mín fleiri að sinni, en ég vænti þess, að hv. n., sem fær þetta mál til athugunar, athugi jafnframt þessi tvö atriði, sem ég hef minnzt á, í fyrsta lagi, að það verði tryggt nokkurt fjármagn til áfengisvarna, og í öðru lagi, að helmild til að veita afslátt frá útsöluverði á áfengi verði alveg felld niður.