10.02.1964
Neðri deild: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (1799)
17. mál, áfengislög
Fram. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Ég hef skilað sérstöku nál. um þetta frv. á þskj. 286. Ástæðan til þess er sú, að hv. meiri hl. allshn. vildi ekki fallast á till. um breytingar, sem ég vil gera á frv.
Meiri hl. n. flytur brtt. á þskj. 283, sem frsm. þess meiri hl. hefur nú gert grein fyrir. 1. brtt. meiri hl., við 1. gr. frv., er um það, að bannað skuli að veita áfengi yngri mönnum en 18 ára, en í frv. er aldursmarkið sett 21 ár. Í samræmi við þetta flytur meiri hl. einnig brtt. við 2. gr. frv. um, að bannið við að flytja ölvuð ungmenni í bifreiðum skuli miðast við 18 ára aldur í stað 21. Ég tel því aðeins mögulegt að fallast á þessar brtt., að jafnframt verði gerðar nýjar ráðstafanir, sem stuðlað geti að því að koma í veg fyrir áfengisneyzlu unglinga innan 18 ára aldurs. Kæmi þar m.a. til álita að banna því unga fólki aðgang að veitingahúsum á þeim tímum, sem vín er veitt þar, eða a.m.k. að kvöldlagi. Ég geri mér vonir um, að þetta mál verði rætt nánar í nefnd milli 2. og 3. umr., eins og hv. frsm. meiri hl. lét orð liggja að.
Ég flyt tvær brtt. við frv., og eru þær prentaðar með nál. mínu á þskj. 286. Fyrri brtt. mín snertir 9. gr. l. Ég legg þar til, að áfengisverzluninni verði bannað að veita nokkurn afslátt á verði áfengis frá hinu ákveðna útsöluverði. Frá þessu ákvæði verði þó gerðar þær undantekningar, að heimilt skuli sem áður að selja erlendum sendiráðum áfengi með lægra verði, og enn fremur, að heimilt skuli að selja Eimskipafélagi Íslands, Skipaútgerð ríkisins og fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli áfengi með afslætti, enda sé það áfengi eingöngu selt farþegum í utanlandsferðum, en komi ekki til neyzlu innanlands.
Um alllangt skeið hefur sá ósiður legið hér í landi, að einstakir menn hafa fengið áfengi hjá vínverzlun ríkisins með sérstöku verði, sem er mjög lágt í samanburði við það, sem aðrir viðskiptamenn verzlunarinnar hafa þurft að borga. Þessi viðskiptaregla hefur ekki byggzt á neinum lögum og því framkvæmd í heimildarleysi. Oft hefur verið reynt með tillöguflutningi á Alþingi að fá þennan ósið lagðan niður, en hefur ekki tekizt til þessa. Ég minnist þess, að árið 1948 bar ég fram till. á þingi um afnám þessarar venju. Á næsta þingi, 1947, var einnig flutt till. um þetta, og þá vorum við flm. 6 úr öllum þingflokkum. Síðan 1947 hafa a.m.k. 6 sinnum verið bornar fram till. á þingi um þetta efni. Rétt þykir nú að gera enn eina tilraun til lagfæringar í þessu máli. Þingkosningar eru nýlega um garð gengnar. Nokkur breyting varð þá á skipan þingsins, og hugsanlegt er, að með nýjum mönnum hafi komið ný viðhorf í málinu.
Á þingi 1947 bar Jónas Jónsson, þáv. þm. Suður-Þingeyinga, fram fsp. til fjmrh. um það, hverjir nytu þeirra fríðinda að fá áfengi með niðursettu verði, og fékk svar við þeirri fsp. svo sem sjá má í þingtíðindum frá þeim tíma. Árið 1952 báru tveir þm. Alþfl., þeir Gylfi Þ. Gíslason og Hannibal Valdimarsson, fram fsp. um sama efni og fengu henni svarað. Við tveir af nm. allshn., hv. 4. þm. Sunnl. og ég, sendum fsp. til áfengisverzlunarinnar um það, hverjir nytu nú þessara fríðinda og hvað þeir hefðu keypt mikið áfengi með lága verðinu síðustu tvö árin. Aðrir nm. vildu ekki standa að þeirri fsp. Svar hefur nýlega borizt, og er það birt með nál. mínu. Þar kemur fram, að þessir aðilar njóta nú hlunnindanna: forseti Íslands, handhafar forsetavalds, þ.e.a.s. þann tíma, sem þeir hafa það vald í sínum höndum, ríkisstj., ráðh., ráðuneyti, Alþingi, forseti Sþ., Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins, forstjóri Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins, Eimskipafélag Íslands, Ríkisskip, fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli. Þá hafa deildarforsetar Alþingis heimild til að kaupa áfengi á kostnaðarverði fyrir allt að 2000 kr. og varaforsetar Alþingis fyrir allt að 1000 kr. á hverju þingi. Í bréfinu er frá því skýrt, að það áfengi, sem Eimskipafélag Íslands og Ríkisskip kaupa, sé einungis selt í siglingum milli landa og komi því ekki til neyzlu innanlands, og enn fremur, að fríhöfnin selji aðeins farþegum flugvéla við brottför þeirra úr landinu og komi því ekki heldur til neyzlu innanlands það áfengi, er hún fær hjá vínverzluninni og selur.
Ár hvert eru greiddar úr ríkissjóði verulegar upphæðir vegna kostnaðar við gestamóttökur og veizluhöld. Hjá þessu verður tæplega komizt. Sú venja hefur skapazt að halda veizlur fyrir þátttakendur í fundum ýmissa félaga og einnig fyrir ráðstefnur, sem hér eru haldnar með þátttöku útlendinga. Þar fyrir utan koma útlendingar oft hingað til lands, sem rétt þykir að hið opinbera sýni nokkurn sóma. Auðvitað verður ríkið að bera kostnað af þessu og gerir það, en ekki einstakir menn, hvorki forseti landsins, ráðh. né aðrir. Skynsamlegast væri að minni hyggju að hætta alveg að veita vin í opinberum veizlum. Slíkt gæti verið hollt til eftirbreytni fyrir aðrar stofnanir og einstaklinga og þannig orðið til að bæta samkvæmislífið. Till. um þetta mál hafa oft verið fluttar á Alþ., án þess að hljóta samþykki. En jafnvel þó að haldið verði áfram enn um sinn að veita áfengi í veizlum og gestaboðum ríkisins, er engin ástæða til að reikna það vin frá áfengisverzluninni með sérstaklega lágu verði. Ríkið hefur engan hagnað af slíku. Þetta vín ætti að reikna með hinu ákveðna útsöluverði. Veizlukostnaður ríkisins verður þá í meira samræmi við það, sem aðrir verja til slíkra hluta, en á móti kemur atakinn hagnaður af vínverzluninni, og útkoman verður sú sama fyrir það opinbera. Þeirri reglu, sem gilt hefur, að reikna vínið, sem notað er í opinberum veizlum, með sérstaklega lágu verði, hefur sá ókostur fylgt, að eftir þeirri leiðslu hefur einnig runnið vín með sama lága verðinu til nokkurra einstakra manna til persónulegra nota fyrir þá. Þetta er óhæfa, sem þarf að uppræta. Það verður gert með því að selja öllum áfengi með sama verði, ríkinu eins og öðrum, eins og lagt er til í till. minni, enda enginn skaði fyrir ríkissjóð, þó að svo sé gert.
Á næstliðnu ári fengu ráðh. nokkrar launahækkanir, eins og aðrir ríkisstarfsmenn, með úrskurði kjaradóms. Þeir eru nú þannig settir í þeim efnum, að þeir geta vel borgað úr eigin vasa mat og drykk handa sér og sínum og eiga að gera það án þess að fá fjárstyrk frá einni ríkisverzlun. Vínverzlunin á ekki heldur að hlynna sérstaklega að forsetum Alþ., þó að einhver hugvitsmaður hafi fundið það upp fyrir allmörgum árum. Ekki nota forsetarnir áfengi við fundarstjórastörfin á Alþ., enda ekki til þess ætlazt.
Um þessar mundir er mikið rætt og ritað um margs konar ósiðsemi í þjóðfélaginu og að margir gangi á snið við lögin. Því miður er of mikið um þetta. En ekki er það til að kenna fólki þrifalega umgengni á þjóðarheimilinu, ef ýmsir hinna æðstu manna, sem ættu að vera til fyrirmyndar, ganga sjálfir sóðalega um í ríkisstofnunum, eins og þeir hafa gert í áfengisverzluninni um alllangt skeið. Þeir sömu menn, sem fá áfengi með lága verðinu, fá einnig tóbak hjá einkasölunni með sérstaklega lágu verði til sinna nota. Þetta þarf líka að hverfa úr sögunni. Ég hef þó ekki flutt brtt. um það, þar sem frv., sem hér liggur fyrir, er aðeins um breytingu á áfengislögunum. En eftir að brtt. mín hefði hlotið samþykki, má gera ráð fyrir, að fríðindin í tóbakskaupum yrðu einnig fljótlega afnumin.
Síðari brtt. mín er um stofnun áfengisvarnasjóðs. Hlutverk hans á að vera að styðja áfengisvarnir og fræðslu um skaðsemi áfengis og einnig að efla bindindisstarfsemi með fjárframlögum. Þess er brýn þörf að vinna gegn áfengisneyzlunni og þó sérstaklega að hlynna að samtökum ungra manna, sem vinna gegn áfengisnautn og beina för unga fólksins inn á hollari brautir. Réttmætt er, að ríkið leggi fram meira fé en nú er gert til slíkra þjóðfélagslegra umbóta. Till. um stofnun áfengisvarnasjóðs hafa áður legið fyrir þinginu. Árið 1946 bar núv. hæstv. forsrh., Bjarni Benediktsson, fram frv. á Alþ. um heimild fyrir ríkisstj. til að verja fé til eflingar bindindisstarfsemi. Hann lagði til, að heimilt skyldi að verja tveimur hundraðshlutum af árlegum hagnaði áfengisverzlunar ríkisins til þessara mála. Frv. hans varð ekki útrætt. Nefndin, sem undirbjó frv. til þeirra áfengislaga, sem nú gilda, lagði til, að í lögin yrði sett ákvæði um framlag af áfengisgróðanum til áfengisvarnasjóðs. En þetta var fellt úr frv. í þinginu. Fyrir þessu þingi liggur frv. um áfengisvarnasjóð, flutt af hv. 5. þm. Reykv. og hv. 3. þm. Vestf. Það frv. lá einnig fyrir síðasta þingi. Ég tel réttara að setja í lög, að ríkið greiði ákveðna upphæð árlega í áfengisvarnasjóð, en að miða tekjur hans við ágóða af vínsölunni. Till. mín er því um það, að ríkið leggi í þennan sjóð 5 millj. kr. ár hvert. Þetta er ekki mikið framlag á mælikvarða nútímans, þó gæti það orðið að verulegu gagni.