01.11.1963
Neðri deild: 9. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í C-deild Alþingistíðinda. (1816)

56. mál, launamál o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Með frv. því, sem hér liggur fyrir um launamál o.fl., hefur núv. ríkisstj. stigið fjandsamlegasta skref, sem hún hefur stigið til þessa, í samskiptum sínum við láglaunafólk í landinu. Og ætla ég þó, að ríkisstj. verði ekki ásökuð um það, að hún hafi ekki á undanförnum árum gert sitt hvað í samskiptum sínum við láglaunafólk, sem varðað hefur verulega tekjur þess og kjör. Það er öllum kunnugt, að núv. hæstv. ríkisstj. hefur á s.l. 4 árum samþykkt gengislækkun tvívegis. Þessar gengislækkanir hafa beinlínis miðað að því að skerða launakjör launþega í landinu. Hún hefur á þeim tíma stórmagnað dýrtíðina með beinum stjórnarráðstöfunum. Hún hefur í öðrum tilfellum heimilað takmarkalausa álagningu, afnumið allt eftirlit á álagningu, og hún hefur samþykkt gífurlega háa vexti, sem óhjákvæmilega hafa leitt til aukinnar dýrtíðar í landinu. Allt hefur þetta varðað mjög samskiptin við launastéttirnar í landinu, enda sýna opinberar skýrslur, að á stjórnartíma núv. ríkisstj. hefur kaupmáttur launa verkafólks í landinu rýrnað til mikilla muna, og nú í dag standa málin þannig, að kaupmáttur tímakaupsins hefur ekki verið lægri á Íslandi en hann er nú í dag á s.l. 17 árum. Og þetta hefur gerzt á þeim tíma, sem afkoma þjóðarinnar í heild hefur farið batnandi, framleiðslan hefur aukizt og heildarafkoman hefði átt að fara batnandi.

En með því frv., sem hér liggur nú fyrir um launamál o.fl., ræðst nú ríkisstj. að grundvallarréttindum launafólks í landinu, vill svipta launþega þeim rétti, sem þeir hafa haft til þess að semja um kaup sitt og kjör. Samkv. þessu frv. er einnig lagt til að fella niður a.m.k. um sinn verkfallsréttinn. En einmitt þessi réttindi hafa verið grundvallarréttindin, sem launþegar hafa orðið að styðjast við í baráttu sinni á undanförnum árum við það að koma fram bættum kjörum eða verjast áföllum, þegar ríkisstj. hefur reynt að ganga á kjörin. Nú er sem sagt lagt til að svipta í burtu þessum grundvallarréttindum. Þetta frv, gerir beinlínis ráð fyrir því að löghelga, a.m.k. nú um skeið, misrétti á milli launþeganna í landinu.

Ríkisstj. er vel kunnugt um það, að á þessu ári hafa ýmsir starfshópar í landinu fengið verulegar launabætur. Hún telur sjálf, að opinberir starfsmenn hafi fengið meðaltalskauphækkun á árinu, sem nemur 45%, og ríkisstj. hefur fylgzt gerla með því, að bankastarfsmenn í landinu hafa tekið sér samsvarandi kanphækkun með beinu samþykki ríkisstj. Ríkisstj. hefur líka fylgzt með því, að blaðamenn hafa háð verkfall og knúið fram tilsvarandi kauphækkun sér til handa. Og ríkisstj. hefur líka fylgzt með því, að bæjarstarfsmenn. t.d. hér í Reykjavík, hafa tekið sér fyllilega jafnmikla kauphækkun og opinberir starfsmenn hafa fengið. Þó að þetta liggi fyrir, leggur hæstv. ríkisstj. hér fram frv. á Alþingi um það að banna öðrum starfsstéttum í landinu að semja við sína vinnuveitendur um breytt kaup þeim til handa. M.ö.o.: það er beinlínis gert ráð fyrir því með þessum lögum að löghelga misrétti. Svo langt á þetta ,að ganga, að menn í alveg sams konar starfsstéttum eiga að búa við misrétti á þessu tímabili. Starfsmenn t.d. Reykjavíkurborgar hafa fengið sínar launabætur, en starfsmönnum í ýmsum öðrum bæjarfélögum er bannað samkv. þessum lögum að taka sér tilsvarandi launabætur. Þeir skulu bíða. Þannig á beinlínis að lögbinda misrétti.

Það er svo dæmi út af fyrir sig í þessum vinnubrögðum, hvernig hæstv. ríkisstj. og þeir, sem hana styðja fastast, hafa unnið að því á undanförnum dögum, meðan þeir voru að undirbúa þetta frv., að koma þessu misrétti öllu fyrir. Þegar þeir höfðu ákveðið að leggja fram þetta frv. og löggilda á þennan hátt misréttið, ruku ráðh. af stað sjálfir og ýmsir stuðningsmenn ríkisstj. til þess að pota ýmsum sínum gæðingum inn fyrir þröskuldinn, koma þeim inn fyrir, þannig að þeir gætu notið kauphækkunarinnar þennan tíma, á sama tíma sem þeir vissu, að það stóð til að binda aðra úti. Þannig var það núna fyrir nokkrum dögum, að a.m.k. þrír ráðh. stóðu fyrir því að kalla saman bankaráðin í landinu á skyndifundi til þess þar að ákveða mikla launahækkun til bankastjóranna, til þess að reyna að smeygja þeim inn fyrir, svo að þeir yrðu ekki úti.

Ýmsir stuðningsmenn ríkisstj. hafa haldið þannig á málunum, að þeir ruku til, þegar þeir vissu, hvað til stóð, og hafa símað út til vissra bæjarfélaga í landinu, hvað væri að ske, og þar voru haldnir skyndifundir, jafnvel næturfundir, til þess að samþykkja í skyndi kauphækkun til bæjarstarfsmanna þar, svo að þeim yrði komið inn fyrir, á sama tíma sem þeir vissu mætavel, að það átti að fara að lögbinda bann á aðra og banna þeim, öðrum bæjarstarfsmönnum í öðrum bæjarfélögum, að njóta sama réttar. Það hefur svo sem verið skipulega unnið að því, að svo skyldi verða frá málunum gengið, að misréttið skyldi gilda.

Það er eiginlega furðulegt, að ríkisstj. skuli ekki hafa sagt sér það sjálf, að vinnubrögð eins og þessi og eins og þetta mál allt ber að geta ekki staðizt í framkvæmd. Það er alveg útilokað, að slík vinnubrögð verði virt af þeim aðilum, sem þessi lagaákvæði eiga að bitna á. Vitanlega verður gengið fram hjá slíkum lagaákvæðum sem þessum. Þau eru líka svo ósanngjörn, að ég hygg, að atvinnurekendur, sem við fyrstu sýn kynnu kannske að halda, að þeir ættu hagsmuna að gæta að standa gegn vissum launabreytingum, vildu jafnvel reyna að brjóta lögin, ef þeir aðeins gætu fengið trúnað sinna verkamanna, að ekki yrði sagt frá lögbrotunum. Það var t.d. skýrt frá því í útvarpsfréttum í dag, að í gærkvöld hafi nokkur verkakvennafélög hér við Faxaflóa samið um tiltekna kauphækkun við síldarvinnustörf til samræmis við það, sem áður var búið að semja um fyrir nákvæmlega hliðstæð störf á Norður- og Austurlandi. En þessi samningur var gerður hálfum degi eftir, að þetta frv. var lagt hér fram á Alþ., og samkvæmt ákvæðum þess er þessi samningur ógildur. Það varðar við lög af hálfu atvinnurekenda að borga út þetta kaup. Þeim er óheimilt að borga þetta, þó að þeir hafi samþykkt þetta... En dettur nú nokkrum manni í hug, að nokkur síld verði söltuð hér á næstu mánuðum við Faxaflóa upp á lakari kjör en gilt hafa í öðrum landsfjórðungum að undanförnu? Ég veit, að atvinnurekendurnir, sem hér eiga hlut að máli, eru nokkuð hræddir. Verða þeir látnir sæta sektum samkv. ákvæðum laganna, ef þeir borga? Kjaftar einhver frá, hvernig á málum hefur verið haldið? Þeir vilja borga, á því er enginn vafi. En þeim er auðvitað nokkur vandi á höndum. En þannig er þetta frv., sem hér liggur fyrir, það beinlínis byggist á því, að það eigi að löggilda misréttið, óréttlætið.

Frv., eins og það liggur hér fyrir, er á margan hátt einstakt í sinni röð, eins og þegar hefur verið bent á í þessum umræðum. Það nýmæli er tekið upp í þessu frv., sem maður hefur aldrei séð í frv. fyrr á Alþ., að það er ætlazt til þess, að þau lög, sem sett verða samkv. þessu frv., eigi að gilda frá þeim degi, að frv. var lagt fram á Alþ. Ég er alveg viss um, að þetta ákvæði fær ekki staðizt fyrir dómstólum. En það er kannske í samræmi við anda laganna að öðru leyti að hafa þetta sérákvæði og tilgang allan, því að hana er sýnilega sá að koma mönnum meira og minna á óvart í þessum efnum og knýja þá til þess að búa við misrétti.

Ég veit, að hæstv. ríkisstj. reynir að afsaka flutning þessa máls með því, að hér er aðeins um tveggja mánaða frest að ræða og hún sé að óska eftir fresti. En það er auðvitað alger fjarstæða að halda slíku fram. Það getur ríkisstj. ekki gert á frambærilegan hátt. Hún hefur fengið þá fresti í þessu máli, að hún getur ekki nú borið við tímaskorti. Hún vissi það mætavel, að þeir samningar, sem gerðir voru 17. júní í sumar, giltu aðeins til 15. okt., þá runnu allir samningar út. Nú í dag er af hálfu flestra verkalýðsfélaga í landinu engir kaupgjaldssamningar til. Þegar samningarnir voru gerðir á s.l. sumri, varð hæstv. ríkisstj. að viðurkenna það, að þá hafi verið samið um mjög hóflegar kauphækkanir og að forustumenn verkalýðssamtakanna hafi þar sýnt mikinn skilning að taka þátt í sérstakri rannsóknarnefnd til þess að athuga um möguleika á frekari kauphækkunum síðar. Ríkisstj. vissi því gjörla um það, að þann 15. okt. varð að vera búið að leysa þessi mál að nýju, ef ekki átti illa að fara. En nú er októbermánuður liðinn, hað er ekki aðeins komið fram til 15. okt., eins og markið hafði verið sett, októbermánuður er liðinn, og verkalýðssamtökin buðu ríkisstj. það, nokkrum dögum áður en hún lagði fram þetta frv., að þau skyldu veita henni enn frest í hálfan mánuð, ef hún vildi snúa sér að því að semja um vandamálin. En ríkisstj. þáði ekki þann frest, hún valdi fremur þessa leið.

Það er vitanlega alveg útilokað fyrir hæstv. ráðherra að halda fram, að þeir hafi ekki verið búnir að átta sig á því, hvað var að gerast í efnahagsmáluan landsins og hvernig þessi mál stóðu. Hafði hæstv. ríkisstj. ekki gert sér grein fyrir kauphækkunum opinberra starfsmanna? Jú, hún hafði gert sér grein fyrir því. Gat hún búizt við því, að láglaunafólk í landinu mundi ekki óska eftir kauphækkunum í framhaldi af þeim kröfum, sem áður höfðu komið fram, þegar slíkar kauphækkanir höfðu verið samþykktar? Getur það verið, að ríkisstj. hafi lokað svo öllum sínum skilningarvitum, að hún hafi ekki gert sér þetta ljóst? Nei, það er útilokað, og hún hefur líka vitað fullvel um það, hver var staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hún hafði þar hjá sér allar skýrslur á borðinu, það kom henni ekkert á óvart.

Nei, tilgangur þessa frv. er því ekki sá, að ríkisstj. fái frest í tvo mánuði til þess að hugsa sig um, hvað hún eigi að gera í efnahagsmálum landsins. Tilgangurinn er sá að ætla að leysa þann vanda, sem fyrir er, eftir leiðum þessa frv. Það er tilgangurinn. Það er verið að reyna á það, hvort hægt sé að víkja frá þeim rétti, sem í gildi hefur verið hjá launþegasamtökum í landinu, að mega semja um kaupið, að mega heyja verkfall eftir þar til settum reglum. Hér er því um prinsipspursmál að ræða. Ætlar Alþ. að ganga inn á þá braut, að leyfilegt sé talið, þegar verkfall hefur verið boðað og þegar kaupgjaldssamningar standa yfir, að það sé hægt að breyta út af gildandi lögum og reglum um það, hvernig vinna á að gerð nýrra kaupgjaldssamninga og hvað sé leyfilegt í átökum á milli vinnuveitenda og verkamanna? En þetta er allt ákveðið nú í lögum, hvernig þetta skuli fara fram. Er það meining Alþ. að víkja út af þessum reglum á þann hátt, að það megi fresta verkföllum, fresta samningagerð með nýjum lögum um tiltekinn tíma? Ef þetta er gert, þá er raunverulega verið að eyðileggja þann rétt, sem launþegasamtökin í landinu hafa búið við að undanförnu.

Ég skal aðeins nefna dæmi máli mínu til skýringar. Það vita allir, sem eitthvað hafa um þessi mál hugsað, að réttur stéttarfélaganna, ef samningar takast ekki við atvinnurekendur á tilsettum tíma, til þess að lýsa þá yfir vinnustöðvun með viku fyrirvara og heyja verkfall eftir þar til settum reglum, þessi réttur er framkvæmdur auðvitað á þann hátt, að sá aðili, sem telur sig vera knúinn til þess að beita verkfalli, velur sér tíma til þess að framkvæma verkfallið á með tilliti til þess, sem honum er nauðsynlegt. Hugsum okkur t.d. síldveiðisjómenn, sem vildu fá breytt sínum síldveiðikjörum og teldu sig knúna til þess að leggja út í verkfall, auðvitað nokkru fyrir síldarvertíð, áður en hún hefst, ef ríkisstj. gæti þá komið og sagt: Ja, nú setjum við bara lög um það, að þetta verkfall getur ekki farið fram fyrr en eftir tvo eða þrjá mánuði, eða sem sagt eftir síldarvertið. — Á þennan einfalda hátt er vitanlega hægt að gera verkfallsréttinn að engu. Það er hægt að eyðileggja alla aðstöðu stéttarfélaganna til þess að heyja baráttu fyrir sínum launakröfum eftir þeim reglum, sem gilt hafa í okkar landi um margra ára skeið. Og eins og hægt væri á þennan hátt að kippa í burtu verkfallsréttinum eða samningarétti nm tveggja mánaða tímabil, eins væri vitanlega alveg eins hægt að kippa honum í burt um fjögurra mánaða tímabil, sex mánaða tímabil. Sé farið inn á þessa braut, sé prinsipið skapað, þá má búast við framhaldi á þessum leik.

Nei, það er rétt að gera sér fulla grein fyrir því í þessum efnum, að hér er farið út á mjög hættulega braut með því, að ríkisvaldið grípur þannig inn í og breytir þeim grundvallarreglum, sem gilt hafa um samskipti launþega og atvinnurekenda og settar hafa verið í lögum. Um leið og það grípur þannig inn í og afnemur réttindin, er það að knýja launþegana í landinu til að taka upp aðrar vinnuaðferðir, fara ekki eftir hinum hefðbundnu reglum, sem settar hafa verið í lögum. Auðvitað eiga launþegarnir ýmsar aðrar aðferðir til að koma fram sínum málum heldur en fara eftir þeim reglum. sem lagðar hafa verið í vinnulöggjöfinni. Það er hægt í framkvæmdinni að gera verkfall, án þess að það sé tilkynnt formlega með viku fyrirvara. Vitanlega er það hægt. Það er m.a. hægt að gera verkfall á þann hátt, sem gert hefur líklega verið á þessum degi hér í Reykjavík, eftir því sem mér skilst, að verkamennirnir t.d. við Reykjavíkurhöfn gangi bara allir heim og segi: Ég er hættur. — Það er engin vinnuskylda á verkamönnum, það er ekki enn þá búið að binda það í lög hér, að þeir séu skyldugir til þess að mæta á vinnustöðum og vinna. Þeir eru enn þá frjálsir að því að segja við atvinnurekendur: Við vinnum ekki, og við hættum strax í dag. — En ég hefði haldið, að það hefði ekki verið vilji atvinnurekenda í landinu almennt og kannske ekki ríkisstj. heldur, að sá háttur yrði tekinn upp í þessum efnum, að engar fastar reglur ættu að gilda í þessum málum. En einmitt með því að grípa þannig inn í sem hér er gert, með því að svipta í burtu þeim rétti, sem hafði verið löghelgaður í þessum efnum, þá er verið að knýja verkalýðssamtökin í landinu til þess að leysa sín vandamál eftir öðrum leiðum.

Ég sagði hér áður, að frv. þetta væri mjög sérkennilegt í ýmsum efnum. Eitt er nú það í þessu frv., að svo langt er gengið, að það er ekki aðeins verið að banna vinnustöðvanir með þeim skýringum, að slíkt geti kostað þjóðarbúið mikið, að vinna og framleiðsla stöðvist, nei, heldur eru ákvæði frv. þannig, að vinnuveitendum er beinlínis bannað að standa við samninga, sem þeir eru búnir að gera. Atvinnurekendunum er ekki heimilt að borga það kaup, sem þeir telja sig geta borgað og hafa samið um. Ríkisstj. hleypur þar til og segir: Hér veit ég betur en vinnuveitandinn. — Hann fær ekki heimild til þess að gera þennan samning eða standa við hann. Þetta er alveg furðulegt ákvæði í frv. til l. og það hjá ríkisstj., sem áður hefur lýst því yfir, að hennar meginstefna sé, að verkamenn og atvinnurekendur eigi að semja óhindrað af ríkisvaldinn um kjör sín á milli. Sem sagt, í þeim tilfellum, þar sem fullt samkomulag getur verið á milli vinnuveitenda og verkamanna, þá mega þeir ekki gera samninga, þá er þeim bannað það.

Ákvæði þessa frv. eru ólík varðandi kaupgjaldið og svo aftur um verðlagið í landinu. Það leikur því enginn vafi á því, að það er óheimilt samkv. þessu frv., eina og það er orðað, að hækka allar launagreiðslur, í hvaða formi sem er, hvort sem það eru uppmælingar, tímakaup eða í hvaða formi sem er, það er óheimilt. En það er ekki óheimilt að hækka vöruverð. Það er fyllilega gert ráð fyrir því í frv., að vöruverð og þjónusta geti hækkað. Það er að vísu sagt, að það megi ekki hækka verð á ýmsu, sem þar er upp talið, nema með leyfi réttra yfirvalda. Það hefur verið í lögum í mörgum tilfellum, það hefur ekki verið leyfilegt að hækka verð á fjöldamörgum vörum nema með leyfi réttra yfirvalda. Að vísu hafa verið til vörur, sem menn hafa mátt verðleggja eftir vild, en þrátt fyrir allt hefur þetta verið miklu algengari regla, að ákveðin yfirvöld ættu að kveða þar á um. Og samkvæmt skýringum, sem fylgja frv., þá er beinlínis gert ráð fyrir því, að þær vörur og sú þjónusta eigi að hækka í verði, þar sem hægt er að sýna fram á, að einhver tilkostnaður hafi verið á fallinn áður, en ekki kominn inn í verðlagið. Ekki áttu þeir aðilar, sem hagsmuni sína áttu tengda við verðlagið, að taka mikið á sig samkv. ákvæðum þessa frv. Það varð að sjá um það, að þeir liðu ekki mikið. En þó að launþegar í landinu, sem beðið hafa allan tímann, á meðan verðhækkanirnar voru að ganga yfir, yrðu að taka á sig nýjar verðhækkanir, þá urðu þeir auðvitað bara að þola það, af því að það þurfti að bjarga þjóðinni, en hinir þoldu ekki að taka neitt á sig.

Ég sé t.d. ekki annað en það sé fyllilega heimilt og í rauninni eðlilegt samkv. því, sem túlkað er í grg, þessa frv., að á næstunni geti rafmagn hækkað og hitaveitukostnaður hækkað og mörg önnur slík þjónusta, sem alveg er vitað um, að umr. hafa staðið um að þyrfti að hækka, af því að þar hefur fallið á ýmiss konar aukinn kostnaður á undanförnum mánuðum. Það stendur allt opið, að slíkt geti hækkað, en hitt skal vera alveg rammneglt, að kaup í engu formi megi hækka. Svo er gert ráð fyrir í þessu frv., svona að forminu til, að það eigi aðeins að gilda til 31. des. n.k. Já, ég verð nú að segja, að mér finnst þessi dagsetning harla einkennileg, 31. des. Það eru mörg ár síðan Alþingi hefur setið að störfum um það leyti. Venjan er sú, að það sé búið að senda þm. heim nokkru fyrir jól og þeir séu ekki komnir hingað til starfa aftur fyrr en í lok janúar eða þar um bil. En það er líka þekkt fyrirbæri, að ríkisstj. hefur notað sér þennan tíma, á meðan þingið hefur verið í burtu, og gefið út brbl. Ég sé ekki annað en allar líkur samkv. þessu bendi til þess, að ríkisstj. hugsi sér það í framhaldi af þessu frv., að þegar hún er laus við þingið heim í jólaleyfi, þá geti hún leyst allan vandann með brbl. í janúarbyrjun.

Ég veit, að e.t.v. segir hæstv. ríkisstj., að það banni ekkert það, að ríkisstj. verði til með þessar till. fyrr og verði búin að því eitthvað fyrr, t.d. áður en þingið fer í jólaleyfi. En hver býst við því, að hún noti ekki allan þennan frest, sem hún er að herja út með þessum hætti? Ekki kemur mér það til hugar. Ég er sannfærður um það, að þessi frestur verður notaður til enda, og síðan er alveg augljóst mál, að við á að taka setning brbl. sambandi við þetta mál hafa komið fram margar næsta einkennilegar skýringar frá hálfu ríkisstj. Hæstv. ríkisstj. talar t.d. mikið um, að það verði að stöðva víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, og hún segir enn fremur: Frekari hækkanir kanpgjalds og verðlags verður að stöðva. — Hvað þýðir þetta, þegar ríkisstj. tekur þannig til orða, að frekari hækkanir kanpgjalda og verðlaga verður að stöðva Vitanlega hlýtur meiningin að vera sú, að úr því sem nú er komið eigi að framkvæma stöðvunina, eða m.ö.o., það eigi að halda áfram einnig eftir þann tíma, sem hún vill nú láta í skína að sé aðeins biðtími, núna fram að áramótum, einnig eftir þann tíma eigi að vera sama ástand og nú er, þ.e. stöðva allar frekari kauphækkanir en nú eru orðnar, eða m.ö.o. skilja þá eftir, sem eftir eru nú.

Ég hef, þegar þessi mál hafa verið rædd, æðioft bent hæstv. ríkisstj. á, að það er með öllu þýðingarlaust að reyna að framkvæma þá stefnu að leyfa fyrst miklar almennar verðhækkanir eða haga sér með stjórnaraðgerðum þannig, að vöruverð almennt í landinu hækki, og ætla síðan á eftir að standa gegn afleiðingunni af þessu, sem er kanphækkun. Menn blekktu lengi sjálfa sig á því að halda því fram, að vísitölutengingin á milli kaupgjalds og verðlags, sem í gildi var hér um nokkurra ára skeið, væri orsök þeirra erfiðleika, sem þá var við að glíma, þ.e.a.s. sífellt hækkandi verðlags og hækkandi kaups. Menn héldu ýmsir, að þegar búið væri að slíta þetta samband í sundur, þá væri allur vandinn leystur, og það er mjög greinilegt, að hæstv. ríkisstj. hefur litið svona á. Fyrst byrjaði hún á því að slíta í sundur þetta samband, og svo gerði hún ráðstafanir, sem hlutu að leiða til hækkandi verðlags í landinu. Verðlagið hækkaði, en vísitalan var ekki í beinu sambandi, þannig að kaupið kæmi alveg reglulega á eftir, eins og áður var. En hitt lögmálið var í gildi og verður í gildi áfram, að launþegasamtökin hljóta að reyna að rétta með vissu millibili hag meðlima sinna til samræmis við áður hækkað verðlag. Og það er þetta, sem hefur verið að gerast. Ríkisstj. hefur séð verðlagið hækka, en hún hefur neitað að viðurkenna afleiðinguna af hækkandi verðlagi, sem var sú, að kaupið kæmi til hækkunar á eftir. Þær víxlhækkanir, sem hæstv. ríkisstj. er að kvarta undan nú, eru til komnar á þennan hátt. Hún hefur sjálf staðið fyrir hækkun verðlagsins, og kaupið sækir á eftir samkv. hinu algilda lögmáli. Það, sem ríkisstj. þarf því að gera í þessum efnum og átta sig á, er, að leið hennar, sem hún hefur verið að feta, er með öllu vonlaus. Hún á að hætta að fara þessa leið, hún á að reyna að stöðva verðlagið í landinu, færa verðlagið niður. Þá gæti hún á eftir vænzt þess, að launþegasamtökin í landinn sættu sig við tiltölulega litla kauphækkun hverju sinni. Hitt er vitanlega að fara aftan að siðunum, að standa fyrir hækkuðu verðlagi og ætla svo að neita afleiðingunum á eftir með því að binda kaup. Það fær ekki staðizt. Þessi mikli misskilningur hjá hæstv. ríkisstj. kemur fram á flestum sviðum.

Ég vil taka hér eitt dæmi til þess að sýna fram á það, hvernig þetta raunverulega gengur fyrir sig hjá hæstv. ríkisstj. Ríkisstj. hafði séð, eins og allir aðrir, hvernig verðlagsmálin höfðu þróazt á þessu ári fram á haustið. Hún vissi mætavel, að verðlagið í landinu hafði hækkað miklu meira en hið almenna kaup. En þrátt fyrir það virðist ríkisstj, vera svo sljó í þessum efnum, að hún ákveður t.d. að hætta að greiða niður ýmsar almennar vörutegundir, sem greiddar höfðu verið niður um langan tíma, og hún tilkynnir í því fjárlagafrv., sem hún leggur fyrir Alþingi, að hún ætli að minnka niðurgreiðslurnar á vöruverði um 92 millj. kr. Auðvitað hefur ríkisstj. vitað það, að verðið á þessum vörum, sem átti að minnka niðurgreiðslurnar á, hlaut að fara upp. Það hlaut að auka á dýrtíðina í landinu. Ríkisstj. var ekki að leggja þetta til til að minnka niðurgreiðslurnar, vegna þess að ríkissjóður þyrfti á þessu að halda. Afkoma ríkissjóðs var góð. Tekjur höfðu þar farið langt fram úr áætlun. Og til viðbótar við það, að það var svo drjúgur tekjuafgangur hjá ríkinu árið 1962, að þá var hægt að leggja álitlega upphæð inn á sparibók, þá voru allar líkur til þess, að á þessu ári yrði tekjuafgangurinn miklu meiri en árið á undan. En þrátt fyrir þessa afkomu ríkissjóðs var sem sagt ríkisstj. á því, að rétt væri að hætta þessum niðurgreiðslum upp á 92 millj. kr., hækka verðlagið í landinu. Og vegna hvers? Af því að hún hafði gert sér grein fyrir því, að verðlagið stóð ekki í neinum beinum föstum tengslum við kaupgjaldið, þó að vísitala verðlagsins færi upp, þá átti kaupgjaldið ekki að fá að fara upp á eftir. En hún gleymdi bara að gera sér grein fyrir því, að um leið og verðlagið hækkaði á þennan hátt, hlutu kröfur um hækkað kaupgjald að koma á eftir.

Nei, það var sannarlega ekki rétti tíminn nú á s.l. hausti að taka ákvörðun um það að hækka verð með minnkuðum niðurgreiðslum. Það var alveg á sama hátt, að það var ekki réttur tími nú á s.l. hausti af ríkisstj. að heimila skipafélögunum, sem annars bjuggu við góða afkomu, skipafélögum þeim, sem flytja vörur til landsins, að hækka flutningsgjöld sín eftir því, sem stjórnendur skipafélaganna töldu sér hagstæðast. Slík heimild auðvitað verkar þannig, að vöruverð fer hækkandi og vandinn, sem við er að glíma, eykst.

Í þessum efnum á auðvitað ríkisstj. auðvelda leið til. Hún getur gert ráðstafanir til þess að lækka verðlag til þess að draga úr kostnaði. Hún gæti t.d. lækkað vextina í landinu. Um það er ekkert að villast, það getur hún gert. Og með því gæti hún unnið að lækkandi verðlagi í mörgum greinum. Ríkisstj. hefði líka fyllilega efni á því að afnema söluskattinn, 3% söluskattinn, sem nú er í gildi. Afkoma ríkissjóðs er þannig, að hann getur það. Það mundi þýða a.m.k. 3% lækkun á verðlaginu í landinu. En það sem sagt virðist nú ekki hafa verið stefna hæstv. ríkisstj. að vinna að því að halda verðlaginu í skefjum í landinu, heldur hitt, að halda launum láglaunafólksins í landinu föstum.

Hæstv. ríkisstj. segir nú þessa dagana, að krónan sé ekki fallin. Það má nú öllu nafn gefa auðvitað. Verðgildi krónunnar hefur í tíð núv. ríkisstj. gerbreytzt. Um það er ekkert að villast. Ef hagstofan segir okkar það, að í tíð núv. ríkisstj. hafi meðaltalsverð á matvörum í landinu hækkað um 76%, þá hefur auðvitað verðgildi krónunnar stórkostlega rýrnað. Um það er ekkert að villast, að krónan hefur verið að falla jafnt og þétt að undanförnu að verðgildi til, og hún heldur áfram að falla að verðgildi, ef ríkisstj. skiptir ekki um stefnu í þessum efnum í meginatriðum. Mér sýnist, að þetta frv. sýni það og sanni, svo að ekki verður um villzt, að ríkisstj. er gersamlega ráðþrota í þeim vanda, þar sem hún stendur nú. Hún veit í rauninni ekki sitt rjúkandi ráð. Hún veit ekkert, hvað hún á að gera. Fyrir nokkru boðaði hæstv. fjmrh. í fjárlagaræðu hér á Alþingi, að ráðstafana ríkisstj. til lausnar þessum efnahagsmálavanda væri að vænta alveg næstu daga, og svipaða yfirlýsingu gáfu aðrir ráðh. við önnur tækifæri. Og satt að segja hélt maður, að ríkisstj. væri búin að gauka saman einhverjum till., sem mundu koma hér fram og væru a.m.k. frá hennar hálfu lausn á vandanum. En svo kemur ríkisstj. nú eftir allan þennan tíma og leggur fram frv., sem hún segir sjálf að sé aðeins frestur, hún þurfi að fá frest í tvo mánuði til þess að hugleiða málið. Þetta sannar, svo að ekki verður um villzt, að ríkisstj. hefur enga stefnu í dag. Hún veit ekkert, hvað hún á að gera. Hún er að þreifa fyrir sér, hvort hún t.d. geti komizt upp með það að binda allt kaupgjald með lögum við það, sem er í dag, hún er að athuga, hvort það muni ganga. Færi svo, að launþegasamtökin í landinu beygðu sig algerlega fyrir þessari lagasetningu, þá er auðvitað alveg gefið mál, þá geta allir séð, hvert verður framhaldið. Þá verða brbl., sem gefin verða út í jan., ákaflega einföld, því að þau verða aðeins um það að framlengja þessa stöðvun á kaupgjaldinu.

En fari nú svo, sem allar líkur benda til, að það fari fáir eftir þessum lögum í framkvæmd, atvinnurekendur haldi áfram að semja og þeir haldi áfram að greiða kaup, sem er meira í samræmi við þarfir dagsins í dag, og að þessi lög verði raunveralega eins og hvert annað pappírsgagn, þá er ég fyrir mitt leyti ekki heldur í neinum vafa um það, hvað er efst í huga ríkisstj. að gera. Þá kemur hún um áramótin og segir: Ja, þjóðin hefur ekki viljað fara eftir því, sem ég hef lagt til, eftir mínum ágætu ráðum, og þá er ekkert annað að gera heldur en samþykkja eina gengislækkunina enn. — Það er nefnilega búið að ákveða það, að önnur hvor þessi leið skuli farin, hvernig svo sem allt veltist. Annaðhvort skal binda kaupið með hliðstæðri lagasetningu og þessari eða, ef það gengur ekki, þá skal gengislækkuninni dembt yfir og öðrum kennt um.

Það væri auðvitað freistandi að víkja nokkuð hér í sambandi við umr. nm þetta mál að stöðunni í efnahagsmálunum almennt og því, sem fram hefur komið frá hæstv. ríkisstj. í beim efnum. Ég skal nú gera það hér í stuttu máli. Ég vil þá fyrst rifja upp, að ríkisstj. sagði í júnímánuði s.l. sumar, að allt væri hér í efnahagsmálum okkar í bezta gengi. Þá munum við, að mikið var af því gortað, að gjaldeyrisvarasjóður landsins væri kominn í 1200 millj. kr. Þá var mikið um það talað, að sparifjáraukningin í landinu færi sífellt vaxandi. Og þá var ekkert úr því dregið, að hinn mikli árangar viðreisnarinnar leiddi nú til þess, að hægt væri að bæta kjör opinberra starfsmanna og annarra starfsstétta í landinu. Þá var bent á mikla framleiðslu, og ekki var gleymt að benda á frjálsa verzlun og frelsið í öllum framkvæmdum og að mikið fé væri nú lagt til íbúðarhúsabygginga. Þá var sem sagt allt í stakasta lagi. En svo liðu aðeins örfáir mánuðir, 4 mánuðir eða svo, og þá fóru stjórnarblöðin að skýra frá því, að mikill háski væri á ferðum. Seðlabankinn gaf út aðvörun og tók upp á því að refsa viðskiptabönkunum með 18% vaxtakjörum til þess að knýja þá til þess að lána út minna fé en þeir höfðu gert. Og svo fóru að koma tilkynningar um það, að gjaldeyrisvarasjóðurinn fari nú minnkandi, fyrirsjáanlegur væri stórfelldur halli í vöruskiptum landsins, og tilkynningar fóru að koma um það, að bæði fjárfesting og neyzla hefði farið langt fram úr öllum áætlunum.

Nú er það svo, að þetta lá fyrir í júnímánuði næstum allt. Það var hægt að segja frá þessu, ef menn vildu segja satt, einnig í júnímánuði, því að frá júní og fram í september urðu ekki í þessum efnum neinar verulegar breytingar. Það var sem sagt að koma í ljós á þessu ári miklu betur en áður, að sjálfvirka kerfið ríkisstj. í efnahagsmálum fékk ekki staðizt. Ríkisstj., sem sagðist hafa tekið upp ákveðna og stranga stefnu varðandi peningamálin í landinu og varðandi stefnuna í fjármálum, varð sem sagt að viðurkenna það, að þetta sjálfvirka kerfi hennar væri ekki í lagi. Það var sem sagt opið eftir sem áður, að innflutningurinn á vörum til landsins gæti orðið allt of mikill, að fjárfestingin gæti orðið allt of mikil og að fjárfestingin færi einnig í ýmsar þær greinar, sem væri þjóðinni óhagstætt þrátt fyrir sjálfvirku reglurnar, sem hafði verið látið svo mikið af áður. Það var sagt, að sparifjárbindingin mikla væri alveg óhjákvæmileg, til þess að þjóðin gæti eignazt gjaldeyrisvarasjóðinn, og meira að segja eru sumir ráðh. að halda því fram enn, að það sé nauðsynlegt að auka á sparifjárbindinguna í Seðlabankanum vegna stöðu bankans. En reynslan sýndi aftur á móti, að þessi auknu fjáryfirráð Seðlabankans, þessi aukni inndráttur á fé hafði beinlínis leitt til þess, að meira og meira af sparifé landsmanna var látið ganga til verzlunarinnar, svo að hægt væri að halda uppi þessari frjálsu verzlun.

Skýrslur bankakerfisins sýna það, að árið 1961 fékk verzlunin í landinu — og það var fyrst og fremst innflutningsverzlunin — meira af sparifjáraukningunni til sín heldur en landbúnaður og sjávarútvegur og iðnaður til samans, og nákvæmlega sams konar þróun varð á árinu 1962, þá varð þróunin aftur sú, að verzlunin fékk meira til sín af sparifjáraukningunni í landinu heldur en hinir þrír aðalatvinnuvegirnir til samans. Útlánin til verzlunarinnar jukust meira en til allra hinna. Og á 7 fyrstu mánuðum þessa árs, 1985, varð þróunin enn sú sama. Á sjö fyrstu mánuðum ársins varð þróunin þessi, að af útlánaaukningunni hjá bönkunum jókst úlánaaukning h,lá verzluninni nm 294 millj., en hjá landbúnaði nm 38.9 millj. og hjá sjávarútvegi, sem þó hrúgaði upp birgðum í landinu, um 199 millj. Verslunin gleypti sem sagt langmest af fénu til sín, eins og hún hafði gert á undanförnum árum. Verzlunin var því ekki aðeins að soga til sín sparifé þjóðarinnar í ríkara mæli með hverju ári, sem leið, heldur hafði hún einnig fengið leyfi stjórnarvaldanna til þess að taka lán erlendis með öðrum kjörum en aðrir fengu rétt til. Verzlunin fékk leyfi til þess að taka erlend lán með lægri vaxtakjörum en giltu í landinu sjálfu, til þess að hún gæti flutt inn vörur í ríkara mæli en verið hafði. Þetta var allt saman gert til þess, að hægt væri um hríð að halda uppi hinni svonefndu frjálsu verzlun. Svo auðvitað var ekki hægt að fela þetta öllu lengur. Það fór að koma að skuldadögum. Og þá var það, sem ríkisstj. fór að verða hrædd við þessa þróun og gera sínar gagnráðstafanir.

Nei, reynalan hefur auðvitað sýnt það, svo að ekki verður um villzt, að það stjórnleysi, sem ríkt hefur í innflutningsmálum landsins, fær ekki staðizt. Stjórnleysið, sem ríkt hefur í fjárfestingarmálum í landinn, fær ekki heldur staðizt. Það er alveg óhjákvæmilegt að taka upp fasta og ákveðna stjórn í þessum efnum, gera sér fyrir fram grein fyrir því, hvað er nauðsynlegt og hvað þarf að gera og hvað það er, sem verður að bíða. En hæstv. ríkisstj. vill a.m.k. enn ekki viðurkenna þessar staðreyndir. Hún játar að vísu, að innflutningurinn hafi orðið allt of mikill og fjárfestingin hafi orðið allt of mikil en enn þá segir hæstv. viðskmrh. hér í þessum umr., að ástæðurnar til þess, að fjárfesting einstaklinga hafi orðið allt of mikil nú á þessu ári, og ástæðurnar til þess, að neyzla þjóðarinnar hafi orðið of mikil, séu þær, að of miklar kaupgjaldshækkanir hafi átt sér stað. Það er sem sagt þessi venjulega uppsetning, afskaplega einföld uppsetning, þegar þjóðin kaupir of mikið af vörum til landsins eða þegar ráðizt er í of miklar framkvæmdir, þá hefur þjóðin of mikið kaup, eins og það er orðað, og nú er ekkert annað að gera en lækka kaupið til þess að draga úr þessum kaupmætti.

En það er eins og menn gleymi því, að það eru til aðrir aðilar, sem ekki eru á neinu venjulegu umsömdu eða skráðu kaupi, sem líka hafi kaupmátt. Það er talað um mikla hættu af því, ef sjómenn á einu síldveiðiskipi fái of mikið kaup í hendur, vegna þess að þeirra aflahlutur hefur reynzt góður. En hvernig lítur það dæmi raunverulega út í framkvæmd? Við skulum hugsa okkur venjulegan síldarbát með 10 manna áhöfn, og við skulum hugsa akkur það, að hver skipverji þar fái 20 eða 30 þús. kr. meira en venjulegt er. Út til þessarar skipshafnar gæti því farið kaupmáttur upp á 200–300 þús. kr. Vissulega heimtar þessi aukni kaupmáttur vörur í landinu, það er rétt. En um hitt er ekki talað, að fitgerðin sjálf getur labbað með frá borði miklu hærri upphæð en þetta, ef vel gengur. Og hvað verður um það fé? Þurfa ekki að vera neinar vörur í landinu til þess að mæta eftirspurn þess? En svipaða sögu er að segja um annan atvinnurekstur í landinu. Þegar iðnaðurinn græðir stórkostlega, eins og hann hefur gert í ýmsum greinum á undanförnum árum, þegar verzlunin í landinu græðir stórkostlega, eins og innflutningsverzlunin hefur gert, þá vitanlega hafa þessir aðilar rétt til þess að ráðstafa þessu fé, og þeirra fé verður einmitt meira eftir því sem hið almenna kaup er fært niður, og það getur því farið þannig fyrir hagfræðingunum, sem á þennan hátt hugsa, að leiðin til þess að minnka kaupmáttinn sé að lækka launin, að þeir standi ekki vitund nær sínu marki varðandi kaupmáttinn hjá þjóðinni sem heild eftir sínar ráðstafanir.

Nei, þessi mál snúa þannig við, að um það er ekkert að villast, að hinn almenni launþegi í landinu hefur farið halloka á undanförnum árum í þeirri þróun, sem orðið hefur í kaupgjalds- og kjaramálum og verðlagsmálum. Verðlagið í landinu hefur hækkað miklu meira en kaup hins almenna launþega hefur hækkað. því er það engin leið út úr vandanum, sem nú er við að glíma, að ætla enn einu sinni að lækka kaup þeirra, hinna almennu launþega. Það á þvert á móti að viðurkenna staðreyndir og leyfa þeim láglaunuðu í landinu að fá kauphækkun, sem fyllilega svarar til þeirrar verðhækkunar, sem átt hefur sér stað, og til þeirra annarra kauphækkana, sem fram hafa farið í landinu.

Ég held, að það, sem hefur verið að gerast í efnahagsmálum þjóðarinnar að undanförnu, sé þess eðlis, að enginn ætti að þurfa að efast um það lengur, að sú stefna, sem farin hefur verið á undanförnum árum í efnahagsmálum, er röng. Hún fær ekki staðizt. Hún leiðir til sífellt meiri og meiri vanda. Og leiðir ríkisstj. til þess að fást við vandann, sem byggðar eru á því að leysa vandann í sífellu á kostnað launastéttanna, þær leiðir leysa ekkert vandamál. Það er því mín skoðun, að um leið og skipt er um stefnu, sem er vitanlega orðið óhjákvæmilegt að gera í efnahagsmálunum, þá þurfi stjórnarvöld landsins að gera sér grein fyrir því, að fyrsta atriðið í hinni nýju stefnu á að vera það, að ríkisstj. landsins reyni að komast að samkomulagi við launastéttirnar í landinu um, hvað hægt sé að gera, og auðvitað á þeim grundvelli, að kjör þeirra, sem hafa verið skert á undanförnum árum, verði nú bætt. Ég held, að þetta sé grundvallaratriðið, sem taka þurfi upp, fyrir nýrri stefnu. En þetta grundvallaratriði brýtur einmitt það frv., sem hér er lagt fram.

Það er greinilegt, að þegar ríkisstj. velur þá leið, sem felst í þessu frv., þá velur hún einmitt þá leiðina, sem launþegasamtökin í landinu telja sér fjandsamlegasta af öllu. Ríkisstj. hlýtur að fá öll launþegasamtök í landinu á móti sér, þegar hún velur þessa leiti. Þetta er því ekki nein samkomulagsleið. Þetta er árekstraleiðin, sú sama, sem farin hefur verið að undanförnu. Og það er vitanlega alger misskilningur hjá hæstv. forsrh., ef hann heldur, að það sé framkvæmanlegt, sem hann sagði hér í umr. í dag um þetta mál, að nú, þegar búið er að lögfesta þetta frv., þá geti hafizt eðlilegar umr. innan og utan þings, m.a. við launþegasamtökin, um það, hvernig eigi að taka á þessu vandamáli. Hann er þvert á móti með því að kasta þessu frv. fram og ætla að framkvæma málið á þann hátt, sem hér er lagt til, að girða fyrir allt eðlilegt samkomulag á milli ríkisstj. og launþeganna í landinu. Hann er að spilla samkomulagsmöguleikunum. Og það vitanlega rekur hann út í það á eftir að reyna áframhaldandi leiðir til lausnar á vandanum, sem verða fjandsamlegar alþýðusamtökunum í landinu og fá vitanlega sömu útreiðina, eins og þetta hefur allt fengið.

En því er auðvitað svarað, að það sé ekki hægt, úr því sem nú er komið, þá sé ekki hægt að hækka laun t.d. verkafólks, vegna þess að útflutningsframleiðslan þoli ekki frekari kauphækkun en orðið er. Hæstv. ríkisstj. veit mætavel, að þetta er ekki rétt. Hún á tiltölulega mjög auðvelda leið til þess að bæta hag útflutningsframleiðslunnar. Á það höfum við Alþb.- menn bent hér þing eftir þing. Það er hægt að gera ráðstafanir til hagsbóta fyrir útflutningsframleiðsluna, sem gerðu henni kleift að standa undir mun hærra kaupgjaldi en hún getur staðið undir í dag. Það er rétt, að það er hægt að létta af útflutningsgjaldinu, sem nú hvílir á sjávarafurðunum öllum. Það er hægt að létta þessu útflutningsgjaldi af að langmestu leyti. Þetta útflutningsgjald er nú 7.4%. Ég var nýlega á fundi, þar sem hraðfrystihúseigendur ræddu um sín mál. Þar kom fram í ræðu hjá einum af aðalforsvarsmönaum hraðfrystihúsanna, að hann metur þetta útflutningsgjald þannig, að það samsvari 30% launhækkunum, þessi skattur, sem hvílir á útflutningsframleiðslunni, jafngildi raunverulega 30% af öllum vinnulaunagreiðslum hjá meðalfrystihúsi. Það er mín skoðun, að það samvari heldur meira, að það séu full 35%, en það skiptir ekki máli. Það er miðað við þá reikninga, sem lagðir hafa verið til grundvallar. En þessi aðaltalsmaður frystihúsanna benti á, að þetta gjald, sem útflutningurinn verði núna að bera, jafngildi svona miklu kaupi. Það er enginn vafi á því, að það er hægt að létta þessu gjaldi af útflutningnum að verulegu leyti.

Nú er sagt, að allmikið af þessu gjaldi renni í sérstakan sjóð til þess að standa undir vátryggingarkostnaði fiskiskipa. Það er rétt, það gerir það. En það væri auðvelt fyrir ríkið að taka að sér vátryggingu fiskiskipaflotans með miklum mun lægra iðgjaldi en nú er lagt til grundvallar. í þeim efnum gætum við farið svipaðar leiðir og Norðmenn hafa farið og hér hafa verið stundum ræddar á Alþingi áður, og okkur ætti ekki að vera vorkunn í því að ná því marki, að vátryggingarkostnaður okkar yrði ekki miklu meiri en þeirra.

Það er líka hægt að létta verulega undir með útflutningsframleiðslunni með því að lækka vexti. Vextirnir hvíla núna á útflutningsframleiðslunni í mörgum greinum. Þeir vitanlega hvíla á afurðaframleiðslunni sjálfri í formi afurðalána, og vextirnir hvíla líka á hinum nýju og dýru skipum, því að stofnlánavextirnir hafa í tíð núverandi ríkisstj. verið stórhækkaðir. Og það væri auðvelt mál að lækka þessi útgjöld hjá útflutningsframleiðslunni mjög verulega, án þess þó að vextirnir væru færðir lengra niður en við þekkjum dæmi til um hér í nágrannalöndununum.

Það væri einnig hægt að létta undir með útflutningsframleiðslunni með því að afnema hreinlega tolla á ýmsum vörum, sem útflutningurinn byggir á eða þarf að nota. Það er ástæðulaust með öllu, að ríkissjóður sé að afla sér sérstakra tekna á þann hátt að tolla í rauninni sjáifa útflutningsframleiðsluna. Það er því hægt að gera ráðstafanir til þess að gera útflutningsframleiðslunni kleift að standa undir talsverðri kauphækkun.

Auk þess er svo auðvitað hægt líka að gera ýmsar aðrar ráðstafanir, sem mundu jafngilda beinni kauphækkun fyrir almennt verkafólk í landinu.

Þá er óhjákvæmilegt, að ríkisstj. taki upp nýja stefnu í innflutnings- og fjárfestingarmálum, stefnu, sem miðar að því, sem við Alþb.- menn höfum gert hér um till. ár eftir ár, þ.e. að taka upp stjórn á okkar þjóðarbúskap, meiri eða minni áætlunarbúskap, þar sem t.d. fjárfestingin í landinu væri framkvæmd eftir fyrir fram gerðri áætlun í öllum aðalatriðum. Það á vitanlega að hætta slíkri gjaldeyrissónn eins og átt hefur sér stað á þessu ári í sambandi við innflutning á bílum. Það nær vitanlega engri átt að eyða jafnmiklum gjaldeyri og nú hefur verið gert á þessu ári í slíkan innflutning.

Þá er eitt atriði enn, sem alveg er nauðsynlegt að upp sé tekið í nýrri efnahagsmálastefnu, þegar glímt er við þessi vandamál, en það er að breyta stefnunni í húsnæðismálum þannig, að gert sé ráð fyrir, að hægt sé að fá lán til íbúðarhúsabygginga með hóflegum vaxtakjörum, svipuðum þeim og þekkjast í nágrannalöndum okkar, t.d. með 2–3% vöxtum og þar sem lánin séu veitt til nokkuð langs tíma. til t.d. 50, 60 eða 70 ára. Sá háttur að veita lán til íbúðarhúsabygginga, eins og hér hefur verið gert, með 8–9% vaxtakjörum og til 15–20 ára, slík stefna leiðir það af sér, að útgjöld almennings verða svo mikil í húsnæðiskostnað, að óhjákvæmilega verður um að ræða kröfur um hækkað kaup til þess að geta staðið undir þessum útgjaldalið. Á þetta höfum við Alþb.- menn bent hér þing eftir þing og flutt um það till. Og auk þessa á svo ríkissjóður beinlínis að lina nokkuð á sinni skattheimtu í því formi, sem hún hefur verið nú, til þess að reyna að stuðla að því, að verðlag í landinu þurfi ekki að hækka eða geti jafnvel lækkað. Þannig ætti t.d. að leggja niður hinn almenna söluskatt og lækka tolla á ýmsum nauðsynjavarningi. Afkoma ríkissjóðs leyfir þetta. En auk þess er svo einfalt fyrir ríkið að afla sér tekna eftir öðrum leiðum, sem ekki mundu hafa sömu áhrif á verðlagsmálin í landinu almennt.

Það er löngu kunnugt mál, að nú sleppa undan skattlagningu mjög stórar fjárfúlgur á hverju ári, einmitt af tekjum þeirra aðila í landinu, sem hafa hæstu tekjurnar. Það vita allir, að þær reglur, sem í gildi ern nm skattaframtöl hjá öllum þeim, sem hafa einhvern rekstur með höndum, þær reglur eru þess eðlis, að tekjurnar geta varla skilað sér allar á framtölunum, og það er a.m.k. í sárafáum tilfellum, að framteljendur eru svo heiðarlegir, að þeir telji þær nákvæmlega rétt fram. Það er sem sagt heimilað nú að telja til útgjalda í rekstrinum ýmsa þá hluti, sem vafasamt er að leyfa til frádráttar, og ekkert eftirlit er heldur haft með, hvort útgjaldaliðirnir eru réttir, eins og þeir koma fram á framtölunum. Ef ríkið herti nokkuð á sínu skattaeftirliti, þá er ég ekki í nokkrum vafa um það, að ríkið gæti aflað sér tekna mjög auðveldlega í staðinn fyrir það, sem ríkissjóður tapaði með því að fella niður söluskattinn, og fyrir það, sem ríkissjóður kynni að tapa með því að lækka tollana á ýmsum nauðsynjavörum.

Þá væri heldur ekkert úr vegi, að ríkissjóður hirti til sín verzlunarhagnaðinn af t.d. verzlun með alls konar lúxusvörur.

Ég held, að ef farið væri inn á þessa braut í meginatriðum varðandi lausn efnahagsmálanna og reynt væri að vinna á þessum megingrundvelli, að ríkisvaldið leitaði eftir samkomulagi og samningum við launþegasamtökin í landinu, þá held ég, að hægt væri að kippa mörgu því í lag, sem nú fer aflaga. En ég hef enga trú á því, að ríkisstjórninni takist fremur nú en áður að leysa þennan vanda, sem að steðjar, á kostnað launþeganna í landinu einhliða.

Ég held, að það geti ekki öðruvísi farið en svo, að verkafólk mæti þessari lagasetningu þannig, að það brjóti lögin á einn eða annan hátt á bak aftur, á einn eða annan hátt verði stigið yfir lögin. Þegar atvinnurekendur fara að standa frammi fyrir þeirri staðreynd, að ýmsir starfsmannahópar vinna ekki fyrir gamla kanpið, heimta, það kaup greitt, sem þeir hafa sett upp kröfur um, þá held ég, að jöfnum höndum byrji atvinnurekendur að borga hið nýja kaup eða þá að þeir stöðva allan rekstur, og það væri auðvitað verst fyrir þjóðarbúið, en þau lög, sem sett verða skv. þessu frv., hafa þá ekki neitt gildi. Ríkisstj. hlýtur að vita það mætavel, að ástandið á vinnumarkaðnum er þannig nú, að í fjöldamörgum greinum er ekki farið eftir gildandi kjarasamningum, þar er um miklar yfirborganir að ræða. Atvinnureksturinn hefur beinlínis viðurkennt það í framkvæmd, að kaupið sé skráð of lágt, og er þegar farið að borga umframgreiðslur. Þetta held ég, að haldist áfram þrátt fyrir þessa lagasetningu. Það er hins vegar talsverð hætta á því, ef á að bíða með raunhæfar aðgerðir í þessum málum um tveggja mánaða tíma, að sumar greinar útflutningsframleiðslunnar kunni að komast í vanda. Mér er það alveg ljóst, að sumar greinar útflutningsframleiðslunnar geta átt erfitt með að öllu óbreyttu að greiða t.d. 40 kr. um klukkutímann fyrir venjulega dagvinnu verkamanns. Það getur því farið svo, að vissar greinar útflutningsframleiðslunnar stöðvist. En hitt er víst, að t.d. byggingarvinna hér í Reykjavík heldur áfram að borga það, sem hún hefur borgað að undanförnu, 40–60 kr. um tímann. Og hitt er mér líka ljóst, að síldarsaltendurnir á Austurlandi, sem hafa í allt haust borgað 96–40 kr. fyrir dagvinnutímann, halda áfram að gera það, hvað sem stendur í þessum lögum. Þeir fáu vinnuhópar, sem enn eru knúnir til þess að vera á hina óraunhæfa gamla kaupi, knýja fram umframgreiðslur eða þá þeir hverfa af vinnustöðvunum og vinnustöðvun verður með þessum hætti í framkvæmd. Eftir situr svo hæstv. ríkisstj. með lögin sín og getur skoðað þau, en þau, sem sagt hafa í rauninni ekki náð neinum tilgangi frá hennar hálfu.

Ég vil svo segja að lokum þetta: Ég vil skora á hæstv. ríkisstj. að taka til endurskoðunar flutning þessa frv., íhuga málið að nýju, eftir að hún hefur nú heyrt og fær eflaust að reyna á næstu dögum, hvaða undirtektir þetta frv. fær. Ég vil skora á hana að taka upp önnur vinnubrögð en mörkuð eru með þessu frv., beygja sig fyrir staðreyndum, sýna nú hyggindi og taka upp samningaþráðinn, þar sem hann var slitinn.

Við Alþb.- menn mótmælum slíkri lagasetningu sem hér er gert ráð fyrir skv. þessu frv. Við teljum hana rangláta og hættulega, og við bendum á, að það eru engar líkur til þess, að slík lög fái staðizt í framkvæmd. Við höfum gert kröfu um það, að útvarpsumr. fari fram um þá vantrauststill., á meðan afgreiðsla þessa máls stendur hér yfir í þinginu. Umr. um vantraustið hljóta að verða um efnahagsmálastefnu ríkisstj. sem heild og þá alveg sérstaklega það, sem hún er að gera í efnahagsmálunum með flutningi þessa frv. Við álítum, að ríkisstj. eigi að mæta til umr. um þessi mál, eins og nú er komið, og standa fyrir máli sínu þar frammi fyrir allri þjóðinni. Það er enginn vafi á því, að um allt land er nú mikið talað um þessi mál og þetta frv., sem hér er flutt, og sú lagasetning, sem á eftir á að koma, varðar vitanlega mikið hagsmuni fólks um allt land.

Ég vonast til þess, að hæstv. ríkisstj. skorist ekki undan því að ræða þessi mál í heild frammi fyrir þjóðinni nú, einmitt á meðan málið liggur hér fyrir Alþingi eða áður en frv. verður lögfest. En geti ríkisstj. ekki fallizt á það að hraða á þann hátt umr. um vantraustið, þá munum við krefjast þess, að útvarpsumr. verði hafðar um afgreiðslu þessa máls, en til þess eigum við einnig rétt. Hitt sýnist mér eðlilegt, að samkomulag geti orðið um það, að efnar útvarpsumr. fari fram, sem verða þá jafnframt umr. í alþjóðaráheyrn um þetta mál og um efnahagsmálastefnu ríkisstj. í heild.

Ég lýk svo þessum orðum mínum með því að endurtaka áskorun mína til ríkisstj. að athuga nú betur sinn gang í þessum efnum og flana ekki út í það foræði, sem hún stefnir á með því að ætla að gera þetta frv. að lögum.