01.11.1963
Neðri deild: 9. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í C-deild Alþingistíðinda. (1819)

56. mál, launamál o.fl.

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Út af því, sem hæstv. dómsmrh. sagði hér í sinni ræðu í sambandi við lögin um festingu verðlags og kaupgjalds árið 1956, vil ég segja þetta:

1) Það var ekki skertur verkfallsréttur með þeim lögum og ekki heldur samningaréttur. 2) Grunnkaupið var ekki hundið með löggjöfinni, aðeins vísitalan. 3) Það var haft samráð við stéttarfélögin nm löggjöfina. 4) Engar stórfelldar kauphækkanir höfðu þá átt sér stað, sem leiddu til mikils launamismunar. 6) Stjórnin var að koma til valda. 7) Allt verðlag var bundið þennan tíma. — Þetta vil ég biðja hæstv. ráðh. að athuga, áður en hann reynir að gera hliðstæðan samanburð á þessu frv. og þeirri löggjöf.

Í sambandi við það, sem ráðh. sagði um gerðardómslögin frá 1942, vil ég benda á það, að með þeim lögum var kaupgjald ekki bundið, því að það var hægt með gerðardómnum að hækka kaup. Það var úrskurður hans, sem átti þar að koma til. Í öðru lagi, að vísitalan hélt sínu gildi. Aldrei fyrr en með þessu frv. hæstv. núv. ríkisstj. er gert hvort tveggja í senn að binda kaupið og banna verkföll.

Eitt var merkilegt í ræðu hæstv. ráðh. Ástandið núna var ekkert betra og ekki heldur verra, segir ráðh., en það hefði verið hjá öðrum ríkisstj., þ. á m. vinstri stjórninni. Hvað haldið þið, að hæstv. ríkisstj. hefði sagt hér á sínum fyrstu valdadögum, á haustinu 1959 og í byrjun árs 1960, ef við hefðum sagt henni, að hún kæmi eftir 4 ár og segði: Það er ekkert verra hjá okkur en var hjá vinstri stjórninni? — Mikil firra hefði það þótt. Svo var hæstv. ráðh. að gera að gamni sínu með það, að hv. 5. þm. Vestf. mundi sækja í ráðherrastól, og það var gamanmál hjá hæstv. ráðh., að aðrir menn en hann sæktu í stólinn. Það er skilningur hæstv. núv. ráðh., að þeir séu einir kjörnir til að sitja í ráðherrastólum, sem þar sitja núna. En um hvað er stjórnmálabaráttan háð? Hún er háð um það að fá að ráða niðurstöðu, m.a. að leiða mál til lykta og koma í veg fyrir, að önnur nái fram að ganga, eins og t.d. það mál, sem nú á hér að ganga fram. En til þess að það megi verða, þurfa stjórnmálamenn að hafa meiri hl. á Alþingi og sitja í ráðherrastólum, og það er ekkert hlátursmál eða gamanmál hér á hv. Alþingi, þó að stjórnmálamenn ráði málum þjóðarinnar. Og hæstv. ráðh og þeir aðrir, sem í núv. ríkisstj. sitja, verða að sætta sig við það, að þjóðin álitur, að fleiri menn geti í ráðherrastólum setið en þeir, og hefur gildar ástæður til þess. Svo ekki meira um ræðu þessa hæstv. ráðh.

Þegar gengið var til kosninganna 1959, voru núv. stjórnarliðar búnir að sitja að völdum í eitt ár. Þá sögðu þeir þjóðinni í þeim kosningum, að verðbólgan væri stöðvuð, góð afkoma væri hjá útflutningssjóði og öruggur fjárhagur ríkissjóðs, og bættu því við, að ef þeir fengju að ráða áfram, mundu vandamál framtíðarinnar verða leyst með sama hugarfari og á sama hátt og gert hafði verið árið 1959, þ.e. alger verðstöðvun. En hvað gerðist svo? Þremur og hálfum mánuði seinna lögðu þeir stjórnarliðar fram hér á hv. Alþingi frv. um efnahagsmál. Hver voru rökin fyrir því frv.? Þau voru, að við hefðum lifað um efni fram, halli væri geysilegur á útflutningssjóði, tæpur fjárhagur ríkissjóðs. Nýrri dýrtíðarsveiflu var svo skellt yfir þjóðina á grundvelli kosningaloforða, sem gefin voru fyrir nokkrum mánuðum um verðstöðvun. Það var staðreynd þá, að þingmeirihl. hafði tekizt að vinna kosningar á blekkingum.

S.l. vor fóru aftur fram kosningar. Hvað var þjóðinni þá sagt? Við höfum snúið frá brúninni til verðstöðvunar. Það er traustur efnahagsgrundvöllur, aldrei traustari en nú. Alhliða framkvæmdir og uppbygging er að hefjast samkv. fyrir fram gerðri framkvæmdaáætlun, og framkvæmdaláni er nýlega búið að úthluta. Bætt lífskjör fram undan, vegna þess að viðreisnin hefur heppnazt og segir til sín. En hvað er nú að gerast hér á hv. Alþingi? Hvað sagði hæstv. forsrh. í dag, þegar hann lagði fyrir hér frv. um launamál o.fl.? Hann sagði, alveg eins og sagt var 1959: Við höfum lifað um efni fram. Gjaldeyriseignin fer ört minakandi. Sparifé er hætt að safnast. Eyðsla er ríkjandi. Framkvæmdir eru of miklar. Kaupgjald og verðlag eru í algerri ringulreið, atvinnuvegirnir í strandi. Sem sagt, það var framhald á nýársræðunni, þegar hann sagði: Allt unnið fyrir gýg, beinn voði fyrir dyrum. — Og nokkru seinna kom hér hæstv. viðskmrh. Hann endurtók ræðuna, sem hann flutti hér á hv. Alþingi um efnahagsmálin 1960 og svo aftur hér á Alþingi eftir gengisfallið 1961, með þeirri breytingu, að þá var gengisfall bjargráð allra bjargráða, en nú hentaði það ekki. Ræðan var svo upplestur um þetta: Gjaldeyririnn er að þrjóta, atvinnuleysi er fram undan, algert hrun hjá íslenzku þjóðinni, ef okkar ráð að ekki fram að ganga. — En hæstv. ráðh. gleymdu því, að þeir voru að lýsa sinni eigin stjórn. Hæstv, ráðh. Gylfi Þ. Gíslason, bæði 1959 og eins núna, var að lýsa sinni eigin stjórn og hennar aðgerðum, og hæstv, ráðh. Gylfi Þ. Gíslason var svo sannfærandi í kvöld, að maður gat næstum því látið sér til hugar koma, að hann væri, til þess að forðast hrunið hjá íslenzku þjóðinni, búinn að ráða sig á hafskip stórveldanna. En þegar hann settist aftur í ráðherrastólinn og lét fara þægilega um sig, þá varð mér ljóst, að hann ætlaði sér að halda áfram á kænu smáríkisins, a.m.k. færi hann ekki á trollskipið nema hafa hnýtt fleytuna aftan í.

Það er enn þá staðreynd, að núv. stjórnarflokkar hafa unnið kosningar á tómum blekkingum. Á þetta vildi ég minna hér, til þess að það henti ekki í þriðja sinn, að þessir sömu stjórnmálaflokkar gætu unnið kosningar á tómum blekkingum, og það er furðulegt, að þeir skuli hér nú á hv. Alþingi, þegar ekki er liðinn lengri tími frá kosningum, koma og biðja stjórnarandstöðuna að leggja sér nú lið og taka á vandanum, sem sé að vísu ekkert meiri hjá þeim en hjá öllum stjórnum, eftir allt skrumið, allar yfirlýsingarnar um, að nú skyldi ekkert bila. Og hvað sýnir svo þetta frv., sem þessi hæstv. ríkisstj. hefur lagt fram? Það sýnir tvennt: í fyrsta lagi úrræðaleysi. Af hverju úrræðaleysi? Hafði hæstv. ríkisstj, ekki nógan tíma til þess að sinna þessum málum, sem áttu þó að vera öll í lagi að hennar eigin frásögn? Stjórnin bað um frest í vor og fékk hann hinn 17. júní. Þennan frest átti að nota til 15. okt., til þess að undirbúa þær ráðstafanir, sem stjórnin taldi sig geta gert til þess að leysa vandamál þjóðarinnar. Og stéttarfélögin í landinu veittu stjórninni þennan frest, og gott aflaár varð svo í sumar, svo að fresturinn notaðist vel. En hvað gerist svo? Hverju svarar hæstv. ríkisstj, stéttarfélögunum, sem hún samdi við í vor um frestinn? Hún svarar með því að segja: Hingað og ekki lengra. Dyrnar eru lokaðar fyrir ykkur. — Og var ekki ástæða til að halda, að hæstv. ríkisstj. hefði úrræðin til? Þegar sú breyting var gerð í sumar, sem mun hafa verið síðast í ágúst eða september, að Seðlabankinn hækkaði vexti upp í það, sem kallað vorn refsivextir, upp í 10%, þá sagði annað stjórnarblaðið, Alþýðublaðið, frá því, að þetta væri byrjunin á þeim ráðstöfunum, sem hæstv. ríkisstj. ætlaði sér að gera til bjargar í vandanum, sem fram undan væri. Það var því fullkomin ástæða til að ætla, að hæstv. ríkisstj. væri þá þegar, og ekkert eðlilegra en hún væri þá þegar farin að vinna að því að leysa málin.

Þegar hv. Alþingi kom saman til fundar hinn 10, okt., átti dagblaðið Vísir tal við hæstv. forsrh. Þar taldi hann sig, hæstv. ráðh., hafa ráð undir rifi hverju. Það skorti víst ekki, að þeir gætu ráðið fram úr því, og áður höfðu þeir lýst því yfir, að þeim væri það ljóst, að þeir ættu að leysa vandann. Var því ástæða til að ætla, að hæstv. ríkisstj. væri tilbúin með lausnina. Og ekki nóg með það, heldur lýsti fjmrh. því yfir í fjárlagaræðu sinni, að þeir byggju yfir miklum ráðum, og svo var hæstv. ríkisstj. boðið að draga málið enn á langinn, a.m.k. 10 eða 14 daga, til þess að leysa málin í sátt og samlyndi. En hæstv. ríkisstj. kaus nú annað heldur en það, eins og þetta frv. ber vitni um. En það hefur sem sagt sýnt sig, að þar var um algert úrræðaleysi að ræða, nema þetta frv. séu þau einu ráð, sem hæstv. ríkisstj. hefur yfir að ráða, — og það skyldi nú aldrei vera svo.

Annað sýnir þetta frv. greinilega, svo að ekki verður um villzt, og það er algert hrun viðreisnarinnar. Það átti þó að vera svo vel um hnútana búið, að það átti ekkert að bila. Þegar hæstv. ráðh. töluðu hér fyrir efnahagsmálaráðstöfunum sínum 1960, sögðu þeir: Ástæðan til þess, að allar efnahagsmálaráðstafanir hafa bilað að undanförnu, er þessi: Það hefur ekki verið gengið nógu vel frá málum í heild. Það hafa ekki verið gerðar samræmdar ráðstafanir í gengisbreytingu, í peningamálum, í bankamálum og öðrum slíkum málum. Allt þetta þarf að hnýta saman, til þess að efnahagsráðstafanirnar komi að þeim notum, sem til er ætlazt. Það skorti þetta og það skorti hitt í þær efnahagsmálaráðstafanir, sem gerðar hafa verið hér á undanförnum árum, en nú skortir ekki neitt. Og svo var því lýst yfir af hæstv. forsrh., að allan vandann, ekki minna en allan vandann yrði að leysa strax. Og svo kemur hæstv. ríkisstj. nú og lýsir því yfir, að viðreisnin sé hrunin.

Hvað hefur bilað? Var ekki vel frá hnútunum gengið? Hefur eitthvað raknað upp? Og hæstv. ríkisstj. sagðist mundu gera róttækar ráðstafanir til þess að draga úr áhrifum gengisbreytingarinnar á verðlag og kjaraskerðingin, róttækar ráðstafanir gegn verðþenslu, og atvinnurekendur og verkalýðurinn skyldu semja um sín kjör. Hæstv. ríkisstj. ætlaði sem sagt ekki að vera að hafa afskipti af þeim málum og þannig koma sér í meiri vanda en ástæða væri til. Hver er svo ástæðan fyrir því, að viðreisnin hefur bilað, viðreisnin, sem var reiknuð svo vel út af öllum sérfræðingunum, viðreisnin, sem stofnsett var með góðum og gegnum rökum að þeirra dómi, að nú væri vel frá öllu gengið og það væri búið að hagnýta sér öll þau mistök, sem áður hefðu átt sér stað í efnahagsmálum, þeir hefðu nú reynsluna, og nú átti ekkert að koma fyrir, svo að efnahagskerfið gæti gengið úr lagi? En hvað fól svo viðreisnin í sér? Hún var í fyrsta lagi stórfelld gengisbreyting. En það var ekki nóg með það. Á þeim tímum, sem núv. valdasamsteypa hefur farið með völdin í landinu, hafa fjárlögin hækkað á milli 16 og 17 hundruð millj. Haldið þið, hv. alþm., að þetta segi ekki til sín? En það eru ekki allar álögur núverandi ríkisstj. þar með taldar. Tekjur pósts og síma hafa hækkað um 200 millj. rúmar á þessu sama tímabili. Rafveitugjöld hafa hækkað nm 70–80%, flutningsgjöld um álíka upphæð, 70–80%, daggjöld á ríkisspítölunum um 60–70%, og meiri hækkun stendur þó til. Skattar hafa verið á lagðir í alls konar mynd. Vextir hafa verið stórkostlega hækkaðir og lánstími styttur. Sérstakur skattur er lagður á bændur, annar er lagður á iðnaðarvarninginn í landinu, þriðji tekinn í gegnum ríkisábyrgðasjóðinn. Þar vissi ég til, að af einu láni, sem ein höfn á Vesturlandi var að taka um daginn, var skatturinn, sem fór í ríkisábyrgðasjóðinn, eins og meðalfjárveiting er á fjárlögum til hafnanna. Það safnast, þegar saman kemur. Og þetta og fleira hefur gert það að verkum, að hér hefur verið óðaverðbólga og dýrtíð, vaxandi ár frá ári, frá því að viðreisnin hófst.

Það voru leidd rök að því, þegar verið var að koma viðreisninni á, að til þessa hlyti að leiða. Það var ekki hægt að taka svo gífurlegar álögur af þjóðinni, án þess að það kæmi fram í hækkuðu verðlagi. Enda hefur árangur. inn af þessari stjórnarstefnu sagt til sín. Vísitala af vöru og þjónustu hefur hækkað um 63%, jafngildi 126 stiga eftir gömlu vísitölunni. Og framfærsluvísitalan eftir þeim kúnstum, sem hún er nú reiknuð út, hefur hækkað um 44 stig. Meðalíbúð kostar núna, samkv. upplýsingum frá Efnahagsstofnuninni, sem ég fékk í dag, 640 þús. kr. Hækkunin, sem hefur orðið á daggjöldum á elliheimilum, gleypir allar tryggingabæturnar, sem gamla fólkið fær, og dugir ekki til. Allt það, sem gamla fólkið fær úr Tryggingastofnuninni, fer í það að greiða hækkunina frá 1959 til 1963 og dugir ekki til. Og svo hælir hæstv. ríkisstj. sér af því, að hún hafi búið vel að gamla fólkinu. Mikil ósköp held ég, að það sé mikil ánægja fyrir það að fá að greiða þessa peninga inn á elliheimilin.

Og svo er það með vísitölufjölskylduna. Það hefur verið bent á það hér í dag, að útgjöld hennar eiga samkv. Hagtíðindum að vera 102300 kr. tæpar, þegar fjölskyldubæturnar eru reiknaðar með. En ef þessi fjölskylda ætti svo að greiða húsaleigu, eitthvað í samræmi við það, sem nú gerist, þá yrðu húsaleigngjöld um 2600 kr. á mánuði og heildarátgjöldin þá orðin 121 þús. Og hverjar eru svo tekjurnar? Það hefur verið bent á það hér. Það eru 87 200 kr., sem verkamaður fær fyrir 8 stunda vinnudag. Nú segja e.t.v. hv. þm.: Hví að vitna í verkamanninn? Þá segi ég bara: Verkamaðurinn verður að lifa eins og hinir, þó að launin séu lág, og þess vegna tek ég hann sem dæmi. til viðbótar eru svo fjölskyldubæturnar, sem ern 6800 kr., tekjur samtals 74 þús. fyrir 8 stunda vinnudag. Til þess að þessi verkamaður geti náð þeim tekjum, sem þarf, verður hann að lengja vinnudaginn. Og ef hann vinnur eftirvinnu, tvo tíma alla virka daga ársins, þá fær hann þar 28 800 kr. Þá er hann ekki búinn að ná þeim tekjum, sem vísitalan telur að þurfi að hafa til þess að lifa á, þegar hún reiknar honum lágu húsaleiguna. Þá er hann ekki búinn að fá þær tekjur, sem hann þarf til þess að borga nauðsynjar sínar og lágu húsaleiguna. En til þess að geta búið í húsnæðinu, sem kostar 2500 kr., það er innan við 5% af verði íbúðar nú í dag með viðreisnarverðinu, þá verður hann að bæta við sig í næturvinnu milli 300 og 400 klst. Og þá tekst honum að ná endum saman. Svo segir hæstv. ríkisstj., að kjörin hafi batnað í landinn, þegar það er þó staðreynd, að verkamaður þurfti ekki að vinna nema 17 klst. í næturvinnu til þessa að ná þeim tekjum, sem vísitalan ætlaði honum 1968. Ef það er að bæta kjör manna að þurfa að vinna 360–380 klst. í staðinn fyrir 17, þá er ég hættur að skilja, hvað eru kjarabætur. En kannske er það svona, sem hæstv. ríkisstj. hugsar sér bæturnar.

Og hvað er nú svo um þetta að segja? Er nokkuð við því að segja, að verkamaðurinn vinni svona langan vinnudag? Ég vil eyða nokkrum orðum að því. Í fyrsta lagi vil ég benda á það, að með því að vinna svo langan vinnudag, dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár, þá verður um algera vinnuþrælkun að ræða. Þess vegna getur sá maður, sem þannig vinnur, ekki átt tómstundir. En það er ekki nóg með það, ég hef reynslu fyrir því og ég er svo sannfærður um það, að þessi langi vinnudagur hefur alveg stórkostleg áhrif í okkar atvinnurekstri. Það skilar enginn verkamaður fullkomnum afköstum með því að vinna svo langan vinnudag, dag eftir dag. Það er alveg útilokað. Ég þekki það mikið inn á þessi mál, að það þarf enginn að segja mér. Og hvað er svo að gerast, einmitt með þessum langa vinandegi? Það, sem er að gerast, er það, að vinnuafköstin eru aldrei full, og svo verður atvinnuveitandinn að kaupa vinnu verkamannsins á hærra kaupi, einmitt fyrir það, að afköstin á 8 stunda vinnudeginum verða óeðlilega lítil. Þessi vinnuþrælkun er farin að hafa stórkostleg áhrif í okkar atvinnulífi. Þetta er einn sá liður, sem þyrfti að athuga í sambandi við afkomu atvinnuveganna, betur en gert er.

Í sambandi við þetta mál vil ég minna á það, að hér á hv. Alþ., í des. 1981, var flutt till. nm 8 stunda vinnudag verkafólks. Þessi till. fékk sérstaklega góðar undirtektir hér á hv. Alþ. Og hún naut þess, þó að hún væri flutt af stjórnarandstöðunni, — hv. þm. Björn Jónsson var fyrsti flm, hennar, — að hæstv. dómsmrh., Bjarni Benediktsson, reis úr sæti sínu og fagnaði þessari till., taldi það mjög ánægjulegt, að þessi till. væri fram komin og stefndi mjög í rétta átt. Og í sambandi við þá umr., sem fram fór hér á hv. Alþ. um þessa till., fórust hæstv. ráðherra, Bjarna Benediktssyni, orð á þessa leið m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Það er einnig athyglisvert, að ráðunautur launþegasamtakanna, sem kom hingað á s.l. ári frá einu Norðurlandanna, benti á, að aðalkjaramunurinn milli íslenzks verkafólks og verkafólks annars staðar á Norðurlöndum væri ekki varðandi heildarlaun, heldur í því, að íslendingar þyrftu að vinna lengur fyrir þeim heildarlaunum, sem þeir fengju, heldur en annars staðar væri. Það er vist, að úr því að aðrar þjóðir hafa getað náð svo góðum árangri í þessum efnum sem raun ber vitni um, þá eiga Íslendingar einnig að geta gert það.“

Þetta voru ummæli þessa hæstv. ráðherra. Er þetta samhljóða því að ætla að lögleiða hér á hv. Alþ. laun, sem gera það að verkum, að hver einasti verkamaður verður að vinna eftirvinnu upp á hvern einasta dag, eins og hún er, og klukkutíma og rúmlega það í næturvinnu, til þess að ná þeim tekjum, sem vísitölufjölskyldan er talin þurfa?

En það er með þessa till. um 8 stunda vinnudaginn. Hún fór hér hraðbyri gegnum hv. Alþ. Hún var meira að segja afgreidd fyrir jól og var þó ekki flutt fyrr en í desember. Og strax upp úr áramótum var nefndin kölluð saman, því að engan tíma mátti missa til þess að vinna að lausn þessa máls. Nokkrir fundir voru haldnir í nefndinni árið 1962, og í fyrrahaust voru haldnir nokkrir fundir, merkilegum gögnum var safnað, og lögð voru drög að því, hvernig nefndin skyldi vinna að vandamálinu, sem hún var að fást við. í því sambandi átti formaður nefndarinnar, hv. þm. Pétur Sigurðsson, að ræða við hæstv. ríkisstj. í sambandi við fjármál og fleira, sem þyrfti að koma til. En svo gerðist það, að n. var ekki kölluð saman, ekki síðan á haustnóttum 1962, og hefur ekki verið kölluð saman enn þá. Hina vegar gerðist það, að hv. Alþfl.- menn tóku að flytja hér í þingsályktunartillöguformi á hv. Alþingi í fyrra nokkuð af þeim málum, sem nefndin hafði dregið í sitt bú. Við stjórnarandstæðingar lítum svo á, að við hefðum ekki rétt til þess að fara að flytja till. út af efni, sem safnað var í n. En það hefur e.t.v. gilt önnur regla fyrir þá, sem stjórnina studdu.

Eins og áður sagði, hefur nefndin á þessu herrans ári, 1963, aldrei verið kölluð saman. Og ég spurði form. hennar um það, hvað liði störfum n. Hann sagðist biða eftir svari ríkisstj. og biður enn. Ég held, að það hefði verið nær fyrir hæstv.- ríkisstj. að eyða í það tíma sínum að koma af stað störfum nefndarinnar til lausnar því máli en vera að semja það frv., sem hér liggur fyrir.

Það eru fleiri vitni, sem ég hef hér til að vitna í um 8 stunda vinnudaginn og nauðsyn hans, heldur en hæstv, dómsmrh. Þessi önnur vitni, sem ég hef hér, hafa það til síns ágætis að vera ágætir stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. T.d. sagði hv. 5. þm. Vesturl., ritstjóri Alþýðublaðsins, í leiðara í Alþýðublaðinu í des. í fyrra, þegar hann ræddi um hinn langa vinnudag, hann sagði þetta m.a., með leyfi hæstv. forseta: „Þessi þróun er geigvænleg. Því eru takmörk sett, hvað lengi verkamaður getur unnið án þess að skaða heilsu sína, eyðileggja getu sína til þess að geta haft nokkra teljandi ánægju af lífinu og jafnvel skemma sitt eigið heimilislíf. Hann dettur út af örmagna við heimkomuna að kvöldi. Margar stéttir hafa hvergi nærri viðunandi kaup fyrir eðlilegan vinnudag og verða að leggja á sig mikla eftirvinnu.“

Þetta sagði hv. 5. þm. Vesturl., Benedikt Gröndal, um eftirvinnuna og næturvinnuna. Og hver trúir svo því, að þessi hv. þm. taki þátt í því að samþykkja hér á hv. Alþ. frv. til l., sem tryggir það, að hver einasti verkamaður verði að vinna alla eftirvinnu og næturvinnu að anki? Ég trúi því a.m.k. ekki fyrr en ég reyni.

En þeir hafa í Alþýðublaðinu sagt fleira um 8 stunda vinnudaginn heldur en þetta og það með réttu. Aðalritstjóri Alþýðublaðsins og ábyrgðarmaður þá, Gísli J. Ástþórsson, sagði í bréfi, sem hann sendi Helga vini sínum Sæmundssyni; fyrrv. ritstjóra Alþýðublaðsins, hinn 31. marz s.l., þetta m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Taktu eftir, Helgi minn, að hinn 1. maí n.k. verður farið með spjöld um bæinn og krafizt 8 stunda vinnudags, og taktu enn fremur eftir því, að allir aðilar munu loka augnnum fyrir þeirri staðreynd, að 8 stunda vinnudagur á íslandi er óhugsandi í dag, því að óbreyttur borgari, sem vinnur 8 stunda vinnudag, yrði hungurmorða.“

Það eru ekki stjórnarandstæðingar, sem segja þetta um hæstv. ríkisstj. og stjórnarstefnuna. Það eru ekki stjórnarandstæðingar, sem eru hér að lýsa áhrifum viðreisnarinnar. Það er annað aðalstjórnarblaðið, sem er undir forsæti eins af þm. stjórnarflokkanna. Þeir koma hér og segja: Það er verið að eyðileggja heimilislífið, menn eru að verða hungurmorða vegna stjórnarstefnunnar á Íslandi. — Samt halda þeir rólega áfram að styðja þessa stefnu. Það er kynlegt, þegar þetta er haft í huga, að þeir, sem þannig hafa áttað sig á hlutunum, geti hugsað sér það að binda í löggjöf kaupgjald, sem gerir það að verkum, að þessu fólki er einn kostur nauðugur að vinna alla eftirvinnuna og næturvinnuna að auki. Það er í ósamræmi við það, þegar mennirnir lýstu áhuga sínum fyrir 8 stunda vinudegi. Þeir þyrftu sannarlega að fara að endurskoða þessa afstöðu sína. Þetta var um laun þeirra, sem lægstu launin hafa, og áhrif viðreisnarstefnunnar á þeirra mál.

Ég mun þessu næst víkja nokkuð að kjaradóminum, sem hæstv. dómsmrh. vék hér nokkuð að áðan og var ekki alls kostar ánægður með. Hver var ástæðan fyrir kjaradóminum? Ástæðan var sú, að stjórnarstefnan hafði verkað þannig á kjör fólksina, sem vann hjá ríkinu, alveg eins og annarra, að það gat ekki unað við þau kjör. Það var með öllu óhugsandi, að það gæti búið áfram við þau launakjör, sem því voru þar skömmtuð. Og bezta sönnunin fyrir því, að ríkisstj. viðurkenndi þetta, voru þær kauphækkanir, sem hæstv. menntmrh. ákvað kennarastéttinni á s.l. ári. Þar var uppbót og aftur uppbót, greiðsla fyrir eftirvinnu og aukavinnu og alls konar vinnu, vinnu, sem ekki var einu sinni unnin, og það var svo frá þessum málum gengið, að það hefur verið deila um það, hver átti að greiða. Það hefur verið lagt á sveitarfélögin að annast þessar greiðslur. Þau hafa gert það í trausti þess, að ríkissjóður endurgreiddi. En af hverju var hæstv. ráðh. að gera þetta? Það var af því, að stjórnarstefnan var einnig búin að setja þessi mál í strand. Einkafyrirtækin í landinu voru að kaupa upp beztu starfskraftana hjá ríkinu, vegna þess að það hefur verið þannig að þeim búið; að þau gátu boðið góða borgun og boðið ríkinu birginn. Þess vegna var gengið inn á þá leið að setja málið í kjaradóm. Hverjir voru í kjaradómi? Það voru valinkunnir sæmdarmenn, menn, sem þekktu til viðskiptalífsins í landinu, og m.a. annar aðalráðunautur hæstv. ríkisstj., sem sat í kjaradómi. Og hver er svo niðurstaðan í kjaradóminum? Það er 45% meðalkauphækkun. Hvað segir það? Það er mat kjaradóms á viðreisnarverðlaginu í landinu. Þess vegna urðu launin svo há, vegna þess að viðreisnarstefnan var búin að skapa svo mikla dýrtíð í landinu, að það var ekki hægt að komast af með minni laun. Þetta er staðreynd. Kjaradómurinn kom vegna þess, að ríkisstj. var komin í alger þrot með launamál ríkisstarfsmanna, og kjaradómurinn er rétt niðurstaða af mati dómsins á verðlagi viðreisnarstjórnarinnar.

Hæstv. dómsmrh. sagði, að kjaradómurinn og verðlag á landbúnaðarvörum hefðu eiginlega sett allt úr lagi. Hvað var það, sem þar var að gerast? Það er þetta: Kjaradómurinn var mat á verðlaginu, sem orðið er í landinu, og verðlagið, sem bændurnir fengu í haust, er ekki meira en það, að það er ekki hægt að afskrifa eina dáttarvél með viðreisnarverðinu samkvæmt því. Halda hv. þm., að það sé ofrausn við landbúnaðinn, þegar ekki er hægt að afskrifa eina dráttarvél með viðreisnarverði með því verðlagi, sem bændur fengu fyrir sínar búvörur í haust? Þannig er viðreisnin búin að leika atvinnuvegina í landinu.

Það var eðlilegt, þegar niðurstaða kjaradóms lá fyrir, sem var hlutlaust mat á því verðlagi og því kaupgjaldi, sem þyrfti að vera í þessu landi, að þá miðuðu aðrar stéttir sitt kaup við það, enda var það vitað mál með marga starfshópa, að þeir biðu bókstaflega eftir því, að kjaradómurinn segði sitt orð um kaupgjald. Og þegar vinnusamningarnir voru gerðir í vor, voru þeir m.a. við það miðaðir, að 15. okt. lægi niðurstaða kjaradóms fyrir. Og eins og áður hefur verið fram tekið hér, hafa margir vinnusamningar, sem síðan hafa verið gerðir, verið miðaðir við kjaradóminn. Má þar nefna blaðamennina, borgarstarfsmennina í Reykjavík og starfsmenn ýmissa bæjarfélaga. Það var að vísu ekki nema hluti af þeim búinn að koma kaupgjaldsmálum sínum í lag, vegna þess að það hefur ekki verið tími til þess að vinna að þeim á skikkanlegan máta. Bankastarfsmenn og fleiri slíkir starfshópar hafa fengið sín kjör samkv. kjaradóminum, og það var vitað mál og hefur ekki verið neitt lananngarmál, að verzlunarfólkið í landinu beið eftir kjaradóminum, og því var beinlínis sagt af forráðamönnum sínum í vor, að þegar kjaradómur hefði kveðið upp sinn dóm, kæmu þeirra mál á eftir. Minna en 30% kauphækkun fáið þið ekki. Þetta sögðu forráðamenn verzlunarmannafélaganna í landinu fólki sínu. Og allt verzlunarfólkið í landinu hefur beðið með sín kaup- og kjaramál eftir kjaradóminum og verið að vinna að þeim málum sínum síðan, og því hefur aldrei komið til hugar, að það yrði lagður neinn steinn í götu þess að fá sín kjaramál leyst á svipuðum grundvelli, enda ekki eðlilegt, þar sem hér er um hliðstæða starfsmenn að ræða og hjá ríki og borg. Það er líka vitanlegt, að launakjörum verzlunarfólks hefur verið mjög ábótavant og það er að sumu leyti enn verr sett en þeir lægst launuðu verkamenn, vegna þess að það hefur ekki haft eins góða möguleika til eftir- og næturvinnu og verkamennirnir hafa þó haft, sem hefur bjargað þeirra málum að því leyti sem þeim er bjargað.

Það er að koma aftan að þessu fólki, að þegar það er nú komið að dyrunum með sín kjaramál, þá skuli þeim vera lokað. Og svo er ekki nóg með það, heldur hefur þessu fólki verið haldið hér uppi á samningafundum og meira að segja nóttina áður en þetta frv. var lagt hér fram. Atvinnurekendurnir vissu ósköp vel, hvað var að gerast. Þeir voru þess vegna ekki til viðtals. En hinir héldu, að þeir væru að vinna að heiðarlegum samningum um kaup sitt og kjör, en þá voru valdhafarnir að brugga þeim sín launráð.

Það var skilningur almennings í landinu, að eftir að kjaradómur hefði kveðið upp sinn dóm, þá hlytu öll laun í landinu að laga sig eftir því, mismunandi, eins og eðlilegt er, því að eðlilegur launamismunur verður alltaf að vera. En hér var um að ræða sveiflu í kaupgjaldsmálum, sem ekki var hægt að komast fram hjá. Þess vegna var það, að yfirleitt var unnið að kjarasamningum núna í rólegheitum og með festu. Það var gert ráð fyrir því, að það væri verið að vinna að því að laga þessa kjarasamninga eftir kjaradómi, og gert ráð fyrir því, að það væri verið að undirbyggja kjaramál, sem staðið gætu til frambúðar.

Nú mun hæstv. ríkisstj. e.t.v. svara því, að hún hafi ekki getað treyst því, að kjaramál stæðu til langs tíma, stjórnarandstaðan mundi sjá fyrir því, að svo yrði ekki. Í sambandi við þetta vil ég víkja að reynslunni í þessum efnum. Haustið 1958 kom þessi valdasamsteypa til valda. Hennar fyrsta verk var að lækka kaupið í landinu, lækka um þá kanphækkun, sem fyrrv. stjórnarandstæðingar, hv. sjálfstæðismenn, höfðu barizt fyrir að koma á sumarið 1958. Það var hins vegar fyrsta verk þeirra, er þeir fóru að ráða í landinu, að lækka þetta kaup, og það var sagt: fórn í bili, svo lagast þetta allt af sjálfu sér, og við treystum fólki til þess. — Og hvað gerði fólkið? Það var rólegt þrátt fyrir kauplækkunina. Næsta skref valdhafanna var gengisfallið í ársbyrjun 1960. Hvað gerði fólkið þá? Hvað gerði stjórnarandstaðan? Hún beið róleg, og hún ræddi við ríkisstj. Það var rætt við ríkisstj. og henni boðið upp á það að leita eftir leiðum til lækkunar á verðlagi í landinu. Allt frá því haustið 1958 þangað til í maí 1961 voru hér engar kauphækkanir. Er því nokkur ástæða til þess, að hæstv. ríkisstj. kvarti undan því, að ráðstafanir hennar hafi ekki fengið frið? En hvert var svo framhaldið7 Framhaldiið var kjarasamningarnir, sem SÍS gekkst fyrir að gerðir yrðu samarið 1961. Hvað fólu þeir kjarasamningar í sér? Þeir fólu það í sér, að þeir giltu þangað til í júlí 1963, eða út allt kjörtímabilið. Hæstv. ríkisstj. var boðið upp á að fá algeran vinnufrið allt kjörtímabilið út. En hvað gerðist þá? Hæstv. ríkisstj. vildi ekki slíka samninga, slíkan frið. Hún lækkaði gengið þegar í stað, og ákvæði voru í samningunum um, að ef vísitalan færi upp í visst vísitölustig eða gengisbreyting ætti sér stað, þá væru samningarnir uppsegjanlegir. Og hver er svo árangarinn af þessu frumhlaupi hæstv. ríkisstj.? Árangurinn er upplausn í efnahagsmálum, sem við erum að fást við í dag, enda hefur hæstv, ríkisstj. ekki ráðið við neitt í efnahagsmálum þrátt fyrir góðærið, síðan þetta gerðist.

Það var því fullkomin ástæða til að ætla, að það hefði verið hægt að gera núna vinnusamninga til langs tíma, er búið var að leiðrétta mismuninn, sem nú var orðinn í kjaramálunum, ef hæstv. ríkisstj. vildi una því. Það er ljóst, að allar aðgerðir í efnahagsmálum nú eru vonlausar, fyrr en leiðréttur hefur verið sá mismunur, sem nú er á launakjörum í landinu. Það þarf enginn að búast við því, að þegar hliðstæðir starfshópar eru búnir að fá launabætur vegna þess, að þeir hafa haft góð fréttasambönd hjá ríkisstj., eða vegna þess, að þeir hafa verið fyrri til, þá uni þeir, sem eftir eru, því, að launum þeirra verði ekki breytt, vegna þess að hæstv. ríkisstj. þóknast annað. Það var ríkisstj., sem átti að beita sér fyrir friðsamlegu samstarfi við stéttarfélögin til að undirbúa samninga um kaup og kjör, en það er undirstöðuatriði fyrir framleiðslu og atvinnuvegi landsins, að vinnufriður haldist. En það verður ekki, ef þannig verður á málum haldið, eins og nú er gert, að loka dyrunum fyrir hluta af launþegum, eins og nú á að gera, svara með gengisfalli, eins og gert var 1961, og slá yfirleitt á framrétta hönd stéttarfélaganna, eins og hæstv. ríkisstj. hefur gert.

Þá er komið að því atriði í málflutningi hæstv. ríkisstj., að hún telur, að afkoma atvinnuveganna sé á þann veg, að þeir þoli ekki hærra kaup. Það hefur verið bent á það hér í þessum umr., að það er jafnan svo, að atvinnuvegirnir virðast þola allt nema hærra kaup þeirra, sem lægst eru launaðir. Það er hið eina, sem á er bent, þegar talað er um vandræði atvinnuveganna. Þá er það alltaf kaup og aftur kaup. Ég hef bent á það hér að framan, að einmitt sú stefna í kanpgjaldsmálum, að ómögulegt er fyrir venjulegan verkamann að vinna fyrir sér með venjulegum vinnudegi, leiðir til þess, að eftir- og næturvinna verður meiri en ella mundi verða. Þetta gerir allan atvinnurekstur miklu dýrari, og það er vonlaust, að eðlileg vinnuafköst fáist með slíku fyrirkomulagi. Það er líka hægt að benda á það, að betra skipulagi í atvinnurekstrinum mætti víða koma við, ef að því væri unnið. Ódýrara fjármagn hefur líka sín áhrif á atvinnureksturinn, ekki síður en vinnulaunin. Betri fyrirgreiðsla í bönkum, eins og afurðalán, hefur líka áhrif til þess að draga verðlag niður. Minni álögur af hálfu ríkisins verka í sömu átt. En þær álögur, sem hæstv. núverandi ríkisstj. hefur staðið fyrir, hafa allar gengið í þá átt að gera atvinnureksturinn dýrari en ella.

Það er ljóst, að hæstv. ríkisstj. hefur á sínu stjórnartímabili átt kost á því að ná hagkvæmum samningum og vinna að skynsamlegri lausn í kjaramálum, ef hún sjálf hefði kosið að stefna að því. En hvers vegna heldur þá hæstv. ríkisstj. áfram þeirri kjaraskerðingarstefnu, sem hún hefur fylgt frá upphafi og fylgir enn? Það er af því, að hæstv. ríkisstj. sér aldrei nema eitt úrræði. Það er nákvæmlega það sama að ske nú og hæstv. forsrh. lýsti yfir 1960, hann sagði: Valið er ekkert, það er engin lausn til nema þessi, sem við bendum á. — Og hæstv. ríkisstj. heldur áfram að reyna að leysa málið, sem hún kallar, eftir þeirri einu leið, kjaraskerðingarleiðinni, sem hún hefur fylgt frá upphafi. Hvað halda hv. Alþfl.- menn nm fylgi verkamannaflokkanna á Norðurlöndum og í Bretlandi, ef þeir fylgdu þeirri stefnu í efnahagsmálum sín um að boða taumlausa fjárfestingu, kaupbindingu og afnám samningsréttar verkafólks, til þess að þessi taumlausa fjárfesting gæti átt sér stað, og í þriðja lagi væri svo bætt við okurvöxtum, einnig af íbúðarlánum og öðrum nauðsynlegum fjárfestingarlánum? Haldið þið, að það væri álitlegt fyrir brezka verkamannaflokkinn að fara út í kosningar nú í samkeppni við íhaldið í Bretlandi, ef hann fylgdi þessari stefnu? Nei. Það mundi ekki heldur vera álitlegt á Norðurlöndum fyrir verkamannaflokkana þar. En Alþfl, á Íslandi er að vísu ekki lengur orðinn verkamannaflokkur, þess vegna getur hann leyft sér að fylgja slíkri stefnu.

Það verður að teljast til tíðinda, að Alþfl. fór í blaði sínu og einnig hér á hv. Alþ. að gefa sérstaka yfirlýsingu í sambandi við þetta mál. Það hefur verið venja þeirra hv. Alþfl.- manna að láta sér nægja yfirlýsingar Sjálfstfl. í einstökum málum. Ástæðan til þess, að þessi breyting varð á, mun vera sú, að á miðstjórnarfundi þeirra nú í vikunni reis upp Alþfl.-maður af eldri gerðinni og sagði: Nei, nú getur Alþfl. ekki fylgt með. Ég tek ekki þátt í því að binda kaupið fyrir verkamennina sama daginn og ég hef fengið kauphækkun sjálfur. — Samt gerist það, að Alþfl. ætlar að ganga í vatnið og taka þátt í að binda kaupið fyrir þá lægst launuðu, þrátt fyrir þessi varúðarorð. En til öryggis eða af einhverjum öðrum ástæðum fer hann að lýsa því yfir í blaði sínu, að átta menn hafi setið hjá og einn hafi greitt atkvæði á móti, og svo hafi þeir gefið út sérstaka yfirlýsingu, og þessi yfirlýsing á nú að tryggja framhaldið. En hvað felst í yfirlýsingunni? Það. er afskaplega auðvelt að lesa það út úr yfirlýsingu Alþfl., að þetta sé sú stefna, sem hæstv. ríkisstj. ætli sér að fara, það sé kaupbinding, sem eigi að koma, og annað ekki. Það á að setja einhver lágmarkslaun. Eru þau nú ekki nógu lág, ætla þeir að fara að lækka þau meir? Og svo kemur rúsínan, og það er þetta, að það á að bæta þetta eftir öðrum leiðum, t.d. með skattalækkun og útsvarslækkun. Nú skal það tekið fram, að það er mjög brýn nauðsyn að breyta útsvarslögunum frá því, sem nú er, þau eru orðin í algeru ósamræmi við það verðgildi peninganna, sem nú er, og mætti með breytingu á þeim laga nokkuð fyrir stórar barnafjölskyldur. Yfirleitt er það þannig með þau, að sveitarfélögin nota ekki nema hluta af skalanum, og hlutfallsleg lækkun verður auðvitað alltaf mest á hæstu útsvörunum. Þess vegna væri þarna leið til þess að hagræða einhverju fyrir þá, sem minna mega sín.

En svo er það með skattalækkunina. Hvernig var það með lækkun þeirra 1960? Þá átti skattalækkunin aðallega að vera gerð fyrir þá, sem minnstar höfðu tekjurnar. Verkamaður með 75 þús. kr. tekjur og fjögurra manna fjölskyldu, hans skattur lækkaði um 2400 kr., en maðurinn með 200 þús. kr. tekjur og sömu fjölskyldu, hans skattur lækkaði um 33 þús. kr. Ég er ekki alveg viss um, að það verði gert í þágu þeirra lægstlaunuðu, ef framkvæmdin verður á svipaðan máta og þarna átti sér stað. En þá koma þeir vinir vorir, hv. Alþfl.- menn, og segja: Ja, það er auðvitað ekki hægt að lækka meira en þetta, því að þeir hafa ekki meiri tekjur til þess að bera hærri skatt, og það er á vissan hátt rétt. En það kemur þeim að sáralitlu haldi, þeim lægst launuðu, þó að hinir fái verulega skattalækkun. Yfirlýsingar þeirra Alþfl.-manna um þetta eru vafalaust góðra gjalda verðar, og í því sambandi vil ég minna á yfirlýsingu, — ég vona, að hv. 5. þm. Vesturl. (BGr) sé hér nærri, svo að hann megi mál mitt heyra, — þá yfirlýsingu, sem hann gaf í vor. Þegar við lásum fyrir honum þau ummæli, sem ég las hér áðan um 8 stunda vinnudaginn og allt það, þá sagði hann í sinni síðustu ræðu, sem útvarpað var frá fundi á Akranesi: Ég stend við öll mín stóru orð. Nú segi ég: Nú hefur hv. 5. þm. Vesturl. tækifæri til þess að standa við stóru orðin um, að eftirvinnan og næturvinnan sé lítt þolandi. Ef hann stendur við stóru orðin með því að samþykkja þetta frv. hér, þá er lítið leggjandi upp úr hans fyrirheitum, þá er skilningur hans orðinn skrýtinn, eftir að hann hefur lýst svo afdráttarlaust þeim skaðsemdum, sem fylgja löngum vinnudegi. En ég treysti því hins vegar, að hann standi við stóru orðin, eins og venjulegt fólk skilur og það var skilið, að hann ynni að því, að þessu yrði breytt, en það gerir hann ekki með því að samþykkja þetta frv.

Ástæðan til þess, að hæstv. ríkisstj. kemur með þetta frv., er ekkert annað en gróft áframhald á þeirri stefnu, kjaraskerðingarstefnunni, sem hún hefur fylgt frá upphafi. Hennar fyrsta boðorð var frelsi handa þeim í athöfnum, sem yfir fjármagni ráða. Og svo er þetta undirstrikað með ályktun Vinnuveitendasambandsins, þar sem þeir segja: Látið ríkisframkvæmdirnar víkja fyrir okkar framkvæmdum, haldið þið kaupinn niðri, og þá skulum við koma okkar í verk. — Þetta var yfirlýst stefna hæstv. ríkisstj., og hún heldur þessu áfram. Hún léttir sköttunum af hátekjumönnunum fyrst og fremst, og hún heldur þessu áfram með því að gera launamismuninn sem mestan.

Þetta frv., sem hér liggur frammi, er því staðfesting á því, að hæstv. ríkisstj. fylgir áfram kjaraskerðingarstefnunni, sem hún tók sér í upphafi. Það er til þess að koma þeirri stefnu sinni áfram í framkvæmd, sem ríkisstj. kemur í veg fyrir, að eðlileg leiðrétting til jöfnunar á launum eigi sér stað í landinu.

Ég mun nú fara að stytta mál mitt, enda nokkuð á tímann liðið. En ég vil að lokum undirstrika það, að í ræðu minni hér að framan hef ég sýnt fram á það með rökum, að hæstv. ríkisstj. er búin að vinna tvennar kosningar, eða stjórnarliðar að vinna tvennar kosningar með blekkingum. Viðreisnarstefnan er hrunin, og ráðh. keppast nm að lýsa því yfir. Stefna ríkisstj. hefur frá upphafi leitt til þeirrar óðaverðbólgu, sem er verið að fást við í dag. Með öllu er óhugaandi, að láglaunafólk geti unað við það kaupgjald, sem það hefur nú. Of mikill og óréttlátur launamismunur er nú í landinn, sem verður að jafna. Þetta frv, er, eins og ég áðan sagði, gróft áframhald af stefnu hæstv. ríkisstj. Hún sýnir með því, að hún hefur engu gleymt og ekkert lært og það er einskis að vænta af henni nema þess, sem áður er fram komið.