01.11.1963
Neðri deild: 9. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (1820)
56. mál, launamál o.fl.
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Í framræðu þeirri, sem ég flutti hér í dag, þegar ég reifaði þetta mál, hef ég í aðalefnum fært fram mín rök gegn þeim ræðum, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa nú flutt síðan. Ég rakti þá sögu efnahagsmálanna á undanförnum árum og sýndi fram á, að eins og viðhorfið er í dag, þá mundi auðið, ef þjóðin vildi um það sameinast, að bæta mikið kjör hinna lægat launuðu, án þess að til gengisfalls þyrfti að koma. Hins vegar taldi ég þá og tel enn, að ef allir halda fast við þær kröfur, sem þeir nú hafa borið fram, muni örugglega af því leiða, að verðgildi krónunnar breytist.
Síðan ég flutti þessa ræðu og sumpart eftir að flestir andstæðinganna voru búnir að tala, flutti hæstv. dómsmrh. sína merku ræðu, og ég hefði í rann og veru getað látið mér nægja að visa til hennar, því að hann sýndi þar með greinilegum dæmum, að fullyrðingar stjórnarandstæðinga fá ekki staðizt. Hann sýndi fram á, að það, sem nú er við að etja, er að meira og minna leyti það sama, sem aðrar stjórnir hafa þurft að berjast við, og hann sýndi einnig fram á, að þau úrræði, sem hér er bent á, eru einnig að verulegu leyti þau sömu og aðrar stjórnir hafa bent á og gripið til. Það er þess vegna nokkuð undarlegt, þegar síðasti hv. ræðumaður virtist ekkert hafa lært af þessari ræðu og taldi einhverja dæmalausa goðgá, að nú ætti að binda kanp verkamanna um 2 mánaða skeið og að nú ætti einnig að skerða kjör hinna lægst launuðu, vitandi þó, að hans eigin flokkur gerði þetta mjög myndarlega með gengislækkuninni 1939, með gengisfellingunni 1950, með ráðstöfunum 1958 og með margvislegum öðrum úrræðum, sem sá flokkur hefur staðið að og beitt sér fyrir á undanförnum árum. Ég held, að flestir þessara manna hljóti að vita betur en ræður þeirra bera vott um, því að afar margt af því, sem þeir eru að segja, brýtur svo algerlega í bága við framkomu þeirra sjálfra og þeirra eigin flokks á undanförnum árum. Þeir hljóta að vita betur, en mæla þá gegn hug sínum.
Ég sagði áðan, að ég teldi mér ekki nauðsynlegt að halda langa ræðu, en þykir þó rétt, að nokkrar aths. komi fram af minni hendi sem flm. þessa frv.
Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, taldi, að frv. væri stríðsyfirlýsing, en nú þyrfti einmitt að semja, sagði þessi friðsami gæðamaður. En ég spyr: Skilur hann ekki, að það þarf einnig að reyna að tryggja, að ekkert það hendi á næstu dögum og vikum, sem í raun og veru girði fyrir, að auðið verði að ráða fram úr þessum málum, þannig að einmitt þeir lægst launuðu beri ekki skarðastan hlut frá borði að lokum? Sá hann ekki, að yfir gaf vofað, að ýmsar aðrar stéttir fengin stórfelldar kauphækkanir, sem settu þær enn betur hvað launakjör snertir miðað við hina lægst launuðu heldur en áður var, en það hlaut að torvelda alla möguleika til þess að rétta hlut hinna lægst launuðu gegn þeim, sem betur eru launaðir? Þetta gat vel skeð, og það var líklegt, að það mundi ske á þessu tímabili. Þess vegna var um ekkert annað að ræða en einmitt að reyna að tryggja friðinn á meðan með þessu frv.
Þessi hv. þm. sagði, að ríkisstj. hefði aldrei sagt þjóðinni hið sanna og aldrei það, sem fyrir lá. Hún hefði þvert á móti reynt að villa henni sýn fyrir kosningar, jafnvel gripið til þess lágkúrulega úrræðis að flýta kosningum nm 2–3 vikur til að leyna ástandinu. Sannleikurinn í málinu er sá, að ríkisstj. hefur alltaf sagt þjóðinni það, að ef ekki sé hægt að hafa hemil á kaupgjaldinu, þá sé unnið fyrir gýg, þá muni víxlhækkanir kanpgjalds og verðlags gleypa allt það bezta, sem annars hefur áunnizt. Þetta hefur verið margsagt af okkar hendi, ekki aðeins fyrir kosningarnar, heldur raunar lengst af, meðan stjórnin hefur setið við völd. Og ég minni þar seinast á það, sem hæstv. dómsmrh., formaður Sjálfstfl., sagði í áramótahugleiðingum sínum um síðustu áramót, og það, sem ég sagði sjálfur í minni nýársræðu nm síðustu áramót og oftast hefur verið nm talað og á mig deilt út af í blaði þessa hv. þm., Tímanum, er ég sagði, að verðbólgan gæti eyðilagt alla ávexti viðreisnarinnar, án þess að víð gætum vörnum við komið. Og það er einnig rétt, að minnzt sé þess, að fæst af því, sem ná blasir við, var komið svo skírt í ljós fyrir síðustu kosningar, að við hefðum þá ástæðu til að óttast mjög um ástandið. Fæstar þær myndir, sem nú blasa við, voru þá það skýrar, að við kæmum sjálfir auga á þær, enda mundi þá hafa verið meira úr því gert af öðrum en raun bar vitni um.
Þessi hv, þm. sagðist skora á ríkisstj. að lýsa því yfir alveg skýrt og skorinort nú þegar, að eftir 31. des. skyldu allir samningar frjálsir. Mér finnst nú litið vit í því af mér, ef ég færi að gefa slíkar yfirlýsingar, meðan á rannsókn málsins stendur. Hver veit, nema ég gæti þá lent í því sama og hann lenti í með mér 1942, þegar við settum gerðardómslögin, sem þá vorn kölluð þrælalögin? Og hver veit, nema ég gæti þá lent í því sama og hann lenti í 1966, þegar hann og sú stjórn, sem hann átti sæti í þá, undir forustu hv. 1. þm. Vestf. lækkaði laun verkamanna og festi þau svo í 4 mánuðir Nei, sá, sem á þennan feril að baki og þá reynslu, sem þessi hv. þm., Eysteinn Jónsson, á í þessum málum, veit, að það er ákaflega óvarlegt að vera með margvíslegar fullyrðingar á þessu stigi málsins. Það þarf að skoðast allt og rannsakast.
Hann sagði, að ég hefði talað um, að skyndilega hefðu orðið breytingar í efnahagslífi þjóðarinnar, og kvaðst vera meira en hissa á, að ég skyldi leyfa mér að viðhafa slíkt orðalag. Verkamenn hefðu fengið 6% kauphækkun í byrjun þessa árs og seinna í sambandi við 17. júní samkomulagið hefðu þeir fengið 71/2%, og nú væri ég að tala um, að þetta væru einhverjar skyndilegar breytingar. En er þá engin breyting á orðin? Jú, sannarlega. Í vor fagnaði ég 17. júní sættinni, þótt mér væri ljóst, að teflt væri á tæpasta vað. Ég fagnaði því, að stöðvun síldveiðanna var afstýrt, og enn meir fagnaði ég þó því, að verkamenn og atvinnurekendur vildu setjast við sama borð og reyna með friðsamlegum samningum og rannsókn mála að leysa þessi vandamál. því fagnaði ég raunar mest af öllu. En er það einhver goðgá, að ég telji það skyndilega breytingu, þegar mennirnir, sem töldu sér borgið með b% í ársbyrjun og 71/2% 17. júní, nú allt í einu krefjast 40% og upp í 70% hækkunar? Heldur virkilega þessi hv. þm., að mennirnir, sem 17. júní gerðu þetta samkomulag, hafi þá verið að hugsa um að krefjast 40% kauphækkana, að ég ekki segi 70%? Þetta dettur honum ekki í hug.
Annars er það gleðiefni, hvað þessi gamli vinur minn, hv. 1. þm. Austf., er orðinn mikill mannkærleikamaður, afskaplega góður drengur. Hann engist sundur og saman af sorg yfir því, að verzlunarmennirnir hafa ekki fengið sitt og verkamennirnir hafa ekki fengið sitt og þeir skuldugu verði að bera þungan bagga, þeir unga geti ekki byggt sér íbúðir og þeir gömlu eigi ekki fyrir útförinni, og yfirleitt logar ástin til allra og kærleikurinn umlykur alla frá gerðardómsþrælalagamanninum frá 1942. Þetta kalla ég skyndibreytingu, og þessi maður hefur áreiðanlega hugsað allt öðruvísi, þegar hann var að hátta í gær og þegar hann var að klæða sig í morgun, heldur en hann talaði hérna í dag. Það er meiri skyndibreytingin á þessum gamla vini mínum.
Þessi hv. þm. lét sem hann tryði því, að hægt væri að verða við þeim kröfum, sem nú ern uppi, án þess að krónan félli. Til þess, sagði hann, þarf nú fyrst og fremst og aðallega að hekka vextina, og hann hafði hér mjög háðuleg orð um, að hagfræðingar væru með eitthvert bull nm vexti. Hann hefur nú raunar sagt, um leið og hann krefst vaxtahækkananna og telur það allsherjarárbætur, og sér þá ekkert eftir af hagsmunum sparifjáreigendanna, að það fái engir lán nema þeir ríku. Vaxtalækkunin er þá væntanlega gerð til þess að efla hagsmuni þeirra fyrst og fremst, því að ekki hafa aðrir gagn af vaxtalækkununum en þeir, sem lánin fá. En annars er þetta alveg það sama, sem þessi hv. þm. og aðrir stjórnarandstæðingar sögðu 1981. Þá voru kaupgjaldshækkanir frá 13–19%. Segjum, að meðaltalshækkunin hafi verið 15%, eitthvað um það bil var hún. En það var staðreynd, að þessi 15% lögðu nýjar byrðar á atvinnulífið, sem námu 550–600 millj. kr. Nú aftur á móti er krafizt 40–70% kanphækkana. Segjum nú, að það væri hægt að sættast á 30% kauphækkun. Hvað mundi það leggja á atvinnureksturinn í landinu? Þáð mundi auka þungann eða byrðina, sem atvinnureksturinn þarf að standa undir, um 1100–1200 millj. kr. En hvað er það svo mikið, sem atvinnureksturinn borgar í sína vexti? Ég get ekki svarað því á þessari stundu, en hitt get ég frætt menn nm, að á árinn 1980 námu allir vextir af útlánum allra banka og allra sparisjóða í landinn ekki 1200 millj. kr., heldur 400 millj. kr. Þessi hv. þm. og stjórnarandstaðan yfirleitt hefur þó aldrei krafizt þess, að vextir væru með öllu felldir niður af útlánum. Þeir hafa ekki krafizt annars eða meira en þess, að þeir væru lækkaðir um 20% eða 26%. En hvað voru þá 20% af öllum vöxtum allra banka og allra sparisjóða í landinu? Það voru 80 millj. Með 80 millj. var þá ætlað, að atvinnureksturinn gæti staðið undir 550–600 millj. á árinu 1961, og þá svona 1100–1200 millj. á þessu eða næsta ári, ef yrði orðið við þessum kröfum. Þetta hljóta allir að sjá, að er sagt af vanþekkingu eða gegn betri vitund.
Nú á, segir hv. þm., að snúa sér að því, eins og hann sagði, að stórhækka kaupið, og fyrir utan að lækka vextina var hans úrræði það að borga útflutningsgjaldið, sem er 7.4%, eins og hann gat um. En hvað nemur nú þetta útflutningsgjald miklu? Á árinu í fyrra nam þetta gjald, sem nú á að létta af útveginum, 239.3 millj. kr. Þetta rennur að sönnu allt til útvegsins aftur, beint og óbeint, en sleppum því, En hver á þá að greiða þetta, sem á að létta af útveginum? Hver á að greiða það? Það á áð greiðast af almannafé, segir þessi hv. þm. Hér er alveg sama stefnan á ferðinni og þegar gjaldþrota sjóðir Búnaðarbankans voru réttir við. Þá máttu bændur ekkert borga sjálfir. Þegar átti að efla iðnaðarsjóðina, þá mátti iðnaðurinn ekkert borga sjálfur. Nei, nei. Þetta átti allt að borgast af almannafé. Það er rétt eins og þetta almannafé streymi um óragáttir af himnum ofan. Grímulaust er staðreyndin sú, að þessi hv. þm. heimtar, að almenningur greiði þannig með auknum sköttum mörg hundruð millj, kr. fyrir þessa atvinnuvegi. Það er það, sem hann kallar að greiða af almannafé.
Hv. þm. sagði, að þjóðin stæði nú á vegamótum, nú væri um tvær stefnur að ræða. Það er rétt, segjum það. Stefna stjórnarinnar er að reyna að forða krónunni frá falli, en tryggja um leið hagsmuni þeirra lægst launuðu í þjóðfélaginu. Þetta er stefna stjórnarinnar. Hver er svo stefna Framsfl.? Já, hún er raunar ein í dag og önnur á morgun. Hún er alltaf ein, þegar hann er í stjórn, og önnur, þegar hann er í stjórnarandstöðu. Hún er að því leyti alltaf ein að undanförnu, að Framsfl. er alltaf á móti öllu, sem stjórnin er með. Það er leiðarvísirinn. En annars virðist stefna þessa kærleiksríka bróður míns vera sú að gera allt fyrir alla og þannig auðvitað ekkert fyrir neinn í reyndinni.
Þá spurði þessi hv. þm., hvort hægt væri að lýsa yfir meira gjaldþroti en ég hefði gert varðandi stjórnarstefnuna. Hver er það, sem þetta segir? Þessi hv. þm. er líklega búinn að gleyma því, að hér var einu sinni stjórn, sem hét vinstri stjórn. Hann átti raunar sæti í henni, en það er ekkert nýmæli fyrir hann að eiga sæti í stjórn, hann er búinn að verá með svo mörgum á skútunni. En man hann þá ekki, að þessi stjórn sagði, að hún mundi með breyttri stefnu og án þess, að það kostaði nokkurn mann nokkurn skapaðan hlut, laga allt, sem aflaga fór? Hún ætlaði áð afnema allar uppbætur, hún ætlaði að lækka skattana, hún ætlaði að kveða niður dýrtíðina. Já, og. svo ætlaði hún, held ég, líka að sitja í 20 ár. En hvernig fór það?
Hvernig fór það, þegar sú stjórn fór frá? Hún hafði ekki lækkað skattana, hún hafði lagt 1200 millj. kr. nýja skatta á þjóðina. Dýrtíðin hafði ekki lækkað, hún hafði hækkað um 25%. Uppbæturnar voru aldrei hærri en þegar hún fór frá. Og þannig var með öll fyrirheitin, sem hún gaf. Þeir brugðust jafnvel því að vera í 20 ár, sem þeir höfðu þó ætlað sér og voru búnir að búa sig undir, sbr. manninn, sem var að tala um þægilega stólinn áðan. Hann kann illa við sig annars staðar en í ráðherrastól. Hann átti von á að vera þar, þar til líkkistan tæki við honum.
Ég verð að segja, að það er dálítið kátbroslegt, þegar þessir menn, sem eiga þessa fortíð, látast nú alveg vera dolfallnir, slegnir yfir því, að það skuli vera komið svona fyrir viðreisnarstjórninni.
Þessi hv. þm. lauk ræðu sinni með því að vitna í afar spakleg ummæli, sem afar spakur maður hafi haft yfir á örlagastundu. Spaki maðurinn var auðvitað hann sjálfur. Hann segist hafa sagt 1960 út af ráðstöfunum, sem viðreisnarstjórnin gerði: Svona ráðstafanir er ekki hægt að gera. Hvernig halda menn, að áhrifin verði? Ekkert er til hættulegra en að gera slíkar ráðstafanir. Slíkt hlýtur að stórauka vandann.
Þetta voru spakmælin, og hann var svo hrifinn af þeim, að hann endurtók þau núna. Ég ætla að fá þau hjá honum orðrétt, helzt í fallegum ramma, hafa á skrifborðinu mínu til minnis um gamla vináttu okkar og samstarf. En ég verð nú að segja eins og er, að það er einmitt af því, að hann er búinn að kalla svo oft: „úlfur, úlfur“, þessi maður, að menn ern hættir að trúa honum. Hann sagði þetta 1960, og hann hefur alltaf verið meira og minna að segja þetta. Þetta segir hann alltaf um allar ráðstafanir, sem eru gerðar, þegar hann ekki er í stjórn, og nú segir hann orðrétt alveg það sama: Slíkar ráðstafanir hljóta að stóranka vandann.
Hvað er það svo, sem hefur skeð á þessum 4 árum, frá því að spakmælin voru sögð og þar til þau voru enn einu sinni endurtekin hér í dag? Ég minni á, að þegar við tókum við, þá var Ísland í augum umheimsins eins og vanmetakind. Við höfðum hvergi lánstraust og við áttum hvergi eyri til umráða. Nú er þó svo komið, að Ísland nýtur trausts og virðingar og hefur sterka aðstöðu í umheiminum. Þeir sjóðir, sem óheillastefna vinstri stjórnarinnar hafði sett slagbrand fyrir, hafa opnazt á víða gátt að nýju, og jafnvel sjálfur Londonmarkaðurinn, sem þó er talinn einn viðkvæmasti lánamarkaður veraldarinnar, hefur einnig opnazt íslendingum. Þetta hefur m.a. áunnizt. Jafnframt hefur sparifé þjóðarinnar tvöfaldazt, erlendir sjóðir hafa breytzt þannig, að í stað þess, að bankarnir skulduðu 218 millj., vora sjóðirnir um síðustu mánaðamót, ef ég man rétt, 1080 millj. Jafnvægið hefur haldizt í 4 ár. Þjóðin hefur aldref búið við jafngóð kjör og þessi árin. Hún hefur aldrei grætt meira, hún hefur aldrei veitt sér meira, og hún hefur aldrei lagt upp meira. Þetta hefur áunnizt, og um þetta er það, sem hv. þm, sagði: Slíkt athæfi hlýtur að stóranka vandann.
Hitt er svo rétt, að þessi úrræði, sem við höfum beitt, hafa ekki verið og eru ekki ætluð fyrir eilífðina frekar en nein önnur mannleg ráð, og það skal ég einnig játa, að í bili á þjóðin við vissan vanda að etja, sem hún þó vel ræður við, ef hún vill leggja hönd að því. En það er náttúrlega örðugt að ráða við það, ef reyndir og vitibornir menn leggjast á eina sveif um það margir að reyna að æsa fólk til andstöðu gegn þeim ráðstöfunum, sem þó eru nauðsynlegar fyrir þjóðarheildina og þó umfram allt fyrir þá, sem verst eru settir í lífsbaráttunni.
Ég ætlaði mér nú ekki að hafa þessi orð mörg og skal þá ekki heldur gera það. Ég vil aðeins segja það út af því, sem hv. b. þm. Austf. (Ljós) sagði, að eins og ástatt var, þá var ekki auðið að tryggja tilgang þessa frv. nema einmitt með því að miða við það, hvenær frv. væri lagt fram á Alþingi.
Okkur var auðvitað vel ljóst frá öndverðu, að samningar voru lausir 15. október. En í öndverðu var maður að gera sér einhverjar vonir um það, að fyrir lægi álit kjararannsóknarnefndar. Það kann að hafa verið óréttmæt bjartsýni, svo viðurhlutamikið sem hennar starf er. Og ég vil ekki eiga neinn þátt í því að gera á hendur henni neinar ósanngjarnar kröfur. Ég hygg, að ef vel er á málum haldið, þá megi þessi háttur, sem nú er á hafður, þ.e.a.s. viðræður við sama borð milli aðila, leiða til farsældar fyrir þjóðina. Ég tel varhugavert að gera of háar kröfur á hendur kjararannsóknarnefndinni, er gætu gert henni örðugt fyrir um framtíðarstörf.
Ræðu þessa hv. þm. hef ég að mörgu leyti svarað, bæði með frumræðu minni og því, sem ég hef hér sagt um ræðu hv. 1. þm. Austf. (EystJ). Hans heilræði voru, að það ætti að afnema söluskattinn, það ætti að afnema tolla á þörfum útflutningsframleiðslunnar, helzt ekki flytja inn bíla. Ég veit ekki, hvort hann hefur gert sér grein fyrir, hvað í þessu felst. Söluskattur er áætlaður í fjárl. 1964 327 millj. Að sönnu fær jöfnunarsjóður sveitarfélaga 65 millj., en ríkissjóðshlutinn er þá 262 millj. Gjald af bifreiðum, sem átti nú helzt ekki að flytja inn, er 66 millj. Þetta eru 328 millj. Og síðan átti að lækka tolla yfirleitt og afnema loks tolla af þörfum útflutningsframleiðslunnar. Ég hefði gaman af að vita, hvaða skattstofna hv. þm. hugsar sér helzt til að bæta ríkissjóði hallann.
Ég skal svo aðeins víkja örfáum orðum að hv. 5. þm. Vestf. (HV). Hann sagði, að verkalýðsleiðtogarnir hefðu rætt við mig í einlægni um þessi mál, en mér hefðu hins vegar verið svik í huga. Hann orðaði þetta ekki alveg svona sterkt og hefur náttúrlega ekki heldur meint þetta, því að ég hygg, að báðir aðilar hafi ræðzt við í fullri einlægni, og ég veit fyrir mitt leyti, að mér voru engin svik í huga, enda voru mín lokaorð við þessa menn, að ég treysti því, að hvað sem þeir heyrðu um úrræði af minni hendi, þá mundu þeir ekki telja það nein brigðmæli við þá. Það er alveg rétt, að þeir buðu mér 7–10 daga frest; og mér fannst undir niðri, að ég gæti kannske lengt þann frest í 12–14 daga. En eins og ég áðan sagði, þá taldi ég þann frest of skamman, enda minni ég þennan hv. þm. á, að sjálfum sér ætlaði hann ekki 10–12 daga, heldur 4 mánuði, þegar hann lækkaði kaupið og batt það svo með lögum í 4 mánuði. Það skiptir ekki höfuðmáli í þessu sambandi, að hv. þm. sagði, að gengislækkun sú, sem framkvæmd var 1960, hefði verið mesta gengislækkun í sögu þjóðarinnar. Ég hygg, að hann viti betur. Gengislækkunin 1960 var frá 20 upp í 34%, en 1960 og 1958, í bæði þessi skipti, var gengislækkunin um 40%. En auk þess leyfi ég mér að minna á það, að gengislækkunin 1960 var ekki gengislækkun viðreisnarstjórnarinnar. Viðreisnarstjórnin lét aðeins sérfróða menn meta vinstri krónuna, hvers virði hún væri, og sérfræðingarnir, erlendir sem innlendir, töldu, að rétt væri að hafa 42 kr. í dollar. Við ákváðum hins vegar að viðurkenna ekki meira verðfali en 38 kr. Þetta var þess vegna úttekt á vinstristjórnarkrónunni, þetta mikla verðfall, sem hv. þm. var að tala um, og hann getur þá átt við sjálfan sig um það, ef hann endilega vill halda því fram, að þetta sé versta og mesta gengisfallið, sem þekkt sé með þjóðinni.
Varðandi gengislækkunina 1961, sem nokkrir þm. hafa hér gert að umræðuefni, vil ég aðeins minna á það, sem ég áðan sagði, að þá var kauphækkunin frá 13–19%, eða um 15% að meðaltali. Þá hafði togaraútgerðin verið rekin með halla árum saman og aldrei verr en einmitt seinustu árin. Síldarvertíðin 1960 hafði brugðizt og vorvertíðin 1961 var léleg. Hverjum heilvita manni, sem þekkti til málanna, gat dottið í hug, að þessi atvinnurekstur gæti allt í einu bætt á sig 13–19% kauphækkun? Þessir samningar, sem þá voru gerðir, voru ekki samningar um kauphækkanir. Það voru samningar um krónulækkun. Það hlutu allir menn að sjá, sem á þetta mál litu og nokkra þekkingu höfðu á atvinnulífi þjóðarinnar, að slík kauphækkun hlaut að leiða til gengislækkunar.
Hv. þm. sagði: Ríkisstj. þorir ekki að nýju að framkvæma gengislækkun. — Ég held, að hann eigi að hafa það, sem sannara er: Ríkisstj. vill ekki gengislækkun. En það er þjóðin, en ekki stjórnin, sem að lokum ræður, m.a. hann.
Svona til að skemmta fólki á pöllunum sagði hann áðan, að vaxtahækkunin, þessi hroðalega vaxtahækkun, hefði verið gerð bara fyrir braskarana. Hverjir eru þessir braskarar, sem hann segir, að hirði allan gróðann? Hverjir eru þessir ógurlegu gróðamenn? Eru það útgerðarmenn? Eru það iðnrekendurnir? Ég spyr t.d. hv. 1. þm. Austf.: Er iðnrekstur Sambandsins, sem er mjög vel rekinn, stórkostlegt gróðafyrirtæki? Eru það kaupmennirnir? Ég spyr enn fremur hv. 1. þm. Austf.: Græðir verzlunin, sem hann er kunnugastur og er víst varaform. fyrir, Sambandið og kaupfélög þess, óhóflega? Og ef það er rétt, að þau græði óhóflega, hvernig stendur þá á því, að einmitt sambandskaupfélögin eru í fararbroddi um að heimta afnám allra verðlagsákvarðana, ekki til þess að draga úr gróðanum, ekki til þess að lækka verðið, heldur til að auka gróðann og hækka verðið? Það er ósköp hægt að vera hér með fullyrðingar um þennan braskaralýð, sem græði. En ég vil, að þessir menn bendi á þessa braskara, sem þeir ævinlega eru að telja krónurnar í handraðanum hjá.
Það þarf enginn að ætla, að núv. ríkisstj., fremur en nokkur önnur ríkisstj., telji eftir það, sem fólkið ber úr býtum, og þá allra sízt sæti það á nokkurri ríkisstj. að telja aurana ofan í þá lægst launuðu. En hitt er staðreynd, að engin þjóð telur sig geta staðið undir 20–30% kauphækkun á hverju ári. Og ég vil nú leyfa mér að spyrja hv. þm., sem hér hafa andmælt því, sem við ráðh. höfum sagt, hvort þeir geti bent á nokkra þjóð, sem telji sér fært að standa undir slíkum kauphækkunum, án þess að til verðfellingar gjaldmiðils þeirra hljóti að leiða.
Ég get vísað til þess, sem hæstv. dómsmrh. sagði um kjaradóminn. Þetta er nú eitt af því fáa, kjaradómurinn, sem allt Alþingi var sammála um, a.m.k. enginn greiddi atkv. á móti, þegar það endanlega var afgreitt, og eins og hæstv. dómsmrh. sagði, þá er ágreiningurinn við Alþb.- mennina fyrst ag fremst nm það, að þeir töldu ekki nógu vel gert við þá menn, sem þarna tóku launabætur. Hitt er svo hjákátlegt, að ætla að nota það sem ádeilu á ríkisstj., þó að Alþingi samþykki lög um, að gerðardómur eigi að ákveða kaup starfsmanna ríkisins, ef ekki geti orðið samkomulag nm það. Þetta kemur ríkisstj. ekkert meira við en hverjum öðrum þm., sem átti hlut að því að samþykkja það eða láta það á örlagastundu afskiptalaust með því að sitja hjá, vegna þess að þeir vildu meiri kjarabætur. Og hitt er alveg rétt, sem hæstv. dómsmrh. tók fram, að kröfurnar, sem þá voru gerðar undir forustu framsóknarmannsins, vorn nm Það, að þessir hálaunamenn fengju 33 þús., en ekki 19 900 kr. á mánuði, sem þeir að lokum fengu. Ádeila manna um þetta á ríkisstj. er ádeila á þá sjálfa. Ríkisstj. á engan annan eða meiri hlut að þessu en þeir. Menn geta svo deilt nm, hvort kjaradómurinn hafi kveðið of fast að og ákveðið of hátt kaup mönnum til handa, og ég get ekki neitað því, að mér hefur fundizt það. Mér datt það ekki í hug, að niðurstaða kjaradóma yrði þessi, mér datt það ekki í hug. Og ég viðurkenni fyllilega, að þessi dómur hefur traflað margan annan launþega og ýtt undir auknar kröfur. Það viðurkenni ég fyllilega og tel þetta þess vegna miður farið. En það eru til leiðir til að draga úr því misræmi, sem skapazt hefur. Ríkisstj. hefur það mál allt til athugunar, og hygg ég, að það þurfi ekki að líða langt, þar til frekari skýralur geta borizt af því, sem þar er um að ræða.
Ég hafði gaman af því, þegar hæstv. dómsmrh. var að lýsa athæfi hv. 5. þm. Vestf., þegar hann var ráðh. Ég hafði gaman af að hugleiða ummæli hans um það hroðalega athæfi og þá glæpsamlegu starfsemi, eins og hann kallar það, sem núv. ríkisstj. hefur gert sig seka um að hans mati með því að fara fram á frest í tvo mánuði, og mér þótti ánægjulegt að heyra ummæli dómsmrh. um, hvað þessi maður hefði álitið, þegar hann var í sömu aðstöðu eða líkri og við erum núna og var ráðh. Mér fannst svipurinn á þessum hv. þm. vera ekki út af eins skemmilegur og áðan, þegar hann stóð hér á ræðupallinum sjálfur og deildi á ríkisstj.
Ég endurtek svo að lokum aðeins það, sem ég sagði í dag, að frá sjónarmiði ríkisstj. er kjarni málsins sá, að það er okkar mat, að ef menn vilja, þá sé auðið að bæta hag þeirra lægst launuðu og varðveita verðgildi krónunnar. Það er hins vegar staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að ef allar stéttir halda fast við kröfur sínar, þá er krónan þar með fallin, og afleiðingin verður sú, að lægst launuðu mennirnir bera skarðastan hlut frá borði og verða verr settir eftir en áður. Ég vona þrátt fyrir þau ummæli, sem hér hafa fallið að alþm. vilji með viðræðum um þetta mál innan þings og utan, þegar á hólminn kemur, reyna að stuðla að því að varðveita krónuna. Og ég segi enn sem fyrr, að einkum og sérstaklega finnst mér eðlilegt að gera þær kröfur á hendur þeim mönnum, sem sérstaklega eru settir til þess að gæta hags þeirra lægst launuðu.