04.11.1963
Neðri deild: 11. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (1826)
56. mál, launamál o.fl.
Frsm. minni hl. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. þd. hefur ekki getað orðið sammála um afstöðu sina til þessa frv., sem hér er til umr., frv. um launamál o. fl. Meiri hl. n., það eru stuðningsmenn hæstv. ríkisstj., leggur til, að frv. verði samþykkt óbreytt, og við höfum nú hlýtt á frsm. meiri hl. gera grein fyrir þeirri afstöðu. ég legg hins vegar ásamt hv. 1. þm. Norðurl. v. fram nál., þar sem lagt er til, að frv. verði fellt, og skal ég nú leyfa mér að rökstyðja þá afstöðu okkar að nokkru.
Allmiklar umr. hafa þegar farið fram í þessari hv. d. um þetta frv., og því er ekki þörf á því, að ég gerist langorður, en það eru þó nokkur atriði í þessu sambandi, sem mig langar til þess að minnast hér á.
Að undanförnu hefur hæstv. ríkisstj. boðað, að nýjar ráðstafanir væru væntanlegar af hennar hálfu til úrlausnar því óheillaástandi, sem viðurkennt er að ríki í efnahagsmálum þjóðarinnar. Og hér eru þá fyrstu bjargráð hæstv. ríkisstj. á ferðinni, síðan þjóðin endurkaus hana til trúnaðarstarfanna, og verður tæplega
sagt, að rösklega sé riðið úr hlaði. Það frv., sem hér er til umr., gengur út á það að banna kauphækkanir til n. k. áramóta, og í aths. frv. segir, að það sé borið fram til þess, að Alþingi og ríkisstj, gefist tóm til að undirbúa þær aðgerðir í efnahagsmálunum, sem nauðsynlegar séu til varanlegri lausnar vandamálanna, eins og þar segir. Þá segir enn fremur í aths., að á undanförnum dögum og vikum hafi þeir atburðir orðið, sem óhjákvæmilega kalli á svipaðar ráðstafanir og þær, sem hér eigi að gera. Flutningur þessa frv., rökstuðningur þess og þær afleiðingar, sem lögfesting þess mundi hafa, gefur tilefni til þess að staldra hér ofurlítið við og rifja upp gang þessara mála um nokkurt skeið.
Þegar hæstv. ríkisstj. kom til valda á árinu 1959, birti hún stefnuyfirlýsingar sínar. Þær stefnuyfirlýsingar voru svo áréttaðar, ekki hvað sízt með flutningi frv. um efnahagsmál, sem lagt var fyrir hv. Alþingi 1959—60. Í aths. með því stjfrv. er stefnan áréttuð og henni lýst. Þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Í stefnuyfirlýsingu þeirri, sem ríkisstj. birti, þegar hún tók við völdum í nóvembermánuði s.1., taldi hún það höfuðverkefni sitt að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll: Og enn fremur: „Er það megintilgangur þeirrar stefnubreytingar, sem ríkisstj. leggur til, að framleiðslustörfum og viðskiptalifi landsmanna sé skapaður traustari, varanlegri og heilbrigðari grundvöllur en atvinnuvegirnir hafa átt við að búa undanfarin ár: Og enn segir þar: „Það er stefna ríkisstj., að það sé og eigi að vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör.“
Þegar þetta efnahagsmálafrv. var til afgreiðslu á Alþingi, var því fylgt úr hlaði og hæstv. forsrh. hafði þá framsögu um þetta efni. Í þeirri ræðu sagði hann m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Hins vegar eru engin ákvæði nm að lögbinda grunnkaup, enda telur ríkisstj., að það eigi að vera hlutverk samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör.“
Í sömu ræðu segir hann það vera höfuðtilgang allra þessara aðgerða að leitast við að krefjast þeirra einu fórna af þjóðinni, sem með öllu eru óumflýjanlegar til að sporna gegn atvinnuleysinu, og gæta þess jafnframt gaumgæfilega, að þeim verði alls ekki íþyngt, sem minnst hafa burðarþolið.
Hæstv. viðskmrh. talaði einnig við þessa sömu umr. og sagði m.a., með leyfi forseta: „Meginefni heildartill. ríkisstj. er því annars vegar að leggja traustan grundvöll að heilbrigðu atvinnu- og viðskiptalífi og hins vegar að endurskipta þjóðartekjunum þannig, að byrðarnar, sem bera verður í bráð vegna endurskipulagningar efnahagskerfisins, dreifist af fyllsta réttlæti á þjóðfélagsþegnana. Þetta er sumpart alger þjóðarnauðsyn og sumpart fyllsta réttlætismál:
Þegar efnahagsmálafrv, kom úr athugun hjá hv. fjhn. Nd. 1960, sagði frsm. meiri hl. þeirrar nefndar m.a.: „Okkar markmið er frelsi, þeirra“ — og þá átti hann við stjórnarandstæðinga „markmið eru ríkisafskipti. Milli þessara markmiða og leiða á þjóðin að velja.“
Þessar voru yfirlýsingarnar. í kosningabaráttunni á s.l. vori gengu hv. frambjóðendur stjórnarflokkanna enn hnakkakerrtir fram til bardaga og lýstu því með miklum glæsibrag, hve þar væri um samhent lið að ræða og að nú í fyrsta skipti í marga áratugi a.m.k. vissi fólk í raun og sannleika, hvað það væri að kjósa. Kjósið okkur, sögðu þeir, kjósið áframhaldandi viðreisn. Allt skal verða framvegis eins og hingað til. Og enn sem fyrr var það ótakmarkað viðskiptafrelsi, sem var ein aðalskrautfjöðrin, nægur gjaldeyrir skyldi vera til allra hluta, allir skyldu geta haldið áfram að fá lán erlendis eftir vild o.s.frv. Þá var samningum um kaup og kjör ekki heldur gleymt. Allt skyldi verða frjálst í þeim efnum. Það er verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að ákveða þau mál. Ríkisstj. mun engin afskipti hafa af þeim.
Við, sem vorum í framboði fyrir Framsfl. í síðustu kosningum, sögðum frá því, að ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar væri hvergi nærri eins glæsilegt og talsmenn stjórnarflokkanna vildu vera láta, og við færðum fram mörg rök og þung þessu máli okkar til stuðnings. Því var af hálfu stuðningsmanna stjórnarflokkanna svarað þannig, að málflutningur okkar var kallaður ósannindi, rök okkar falsrök. Og út á þann málflutning héldu stjórnarflokkarnir meiri hl. sínum í kosningunum.
Eftir kosningar hefur hins vegar brugðið svo við, að ráðamenn stjórnarflokkanna eru sjálfir farnir að tala um það, að ekki sé allt sem sýnist í glæsiheimi íslenzkra efnahagsmála. Þeir eru jafnvel farnir að tala um mikinn vanda og heita á þegnskap landsmanna til að þola harðleiknar ráðstafanir og skírskota til dómgreindar þjóðarinnar. Og byrjað er að gera ráðstafanir, sem miða að því að draga úr hinu ótakmarkaða frelsi. Nú eru ekki sömu lýsingarorðin notuð og gert var í vor, heldur allt önnur. Um það efni er skemmst að minnast þeirra lýsinga, sem ríkisstj. gaf við 1. umr, hér í hv. þd. Þær lýsingar voru þannig, í stuttu máli, að innflutningur hefur vaxið of mikið, gjaldeyrisjöfnuður fer stórlega versnandi, bankarnir hafa lánað allt of mikið út, og í júnímánuði voru þeir aðvaraðir og það ítrekað í september með ströngum viðurlögum, ef út af væri brugðið.
Það er óheillaþróun í launamálum, er nú sagt, eins og segir í aths. frv.: ,Að undanförnu hefur skapazt misræmi í efnahagslífinu vegna launakapphlaups milli starfshópa og víxlhækkana kaupgjalds og verðlags: Neyzla og fjárfesting er meiri en framleiðslan. Það er of mikið framkvæmt. Sparifjáraukning er minnkandi, lánsfjáreftirspurnin er vaxandi, og horfur ern á því, að gjaldeyrisvarasjóður minnki þrátt fyrir hækkandi verð á útflutningsvörum. Þetta eru þær lýsingar, sem nú eru gefnar á ástandinu, eftir þennan 41/2 mánuð, sem liðnir eru, síðan kosið var, og þá var ástandinn lýst með öðrum hætti, eins og ég hef hér nokkuð rakið.
Það sést greinilega af þessu og mörgu fleira, sem fram kom við 1. umr. þessa máls, að jafnvel ríkisstjórnin sjálf lítur alvarlegum augum á ástandið; sem stefna hennar hefur skapað. Það er enn fremur ljóst af þessu, að hæstv. ríkisstj. hefur mistekizt það algerlega, sem hún taldi höfuðverkefni sitt og ég gat um í upphafi minnar ræðu. Hún kvaðst ætla að koma atvinnulífi þjóðarinnar á traustan og heilbrigðan grundvöll. Það hefur ekki tekizt. Hún kvaðst ætla að stöðva verðbólguna og halda dýrtíðinni í skefjum. Efndirnar hafa ekki orðið þær, heldur þvert á móti, að dýrtíðin hefur stóraukizt og verðbólgan leikur lausum hala. Hún sagðist ætla að hafa vextina þannig, að hægt væri að fullnægja eðlilegri eftirspurn eftir lánsfé án strangrar skömmtunar. En lánastofnanirnar hafa aldrei verið fjær því en nú að fullnægja eftirspurn þrátt fyrir hina háu vexti, sem eru búnir að vera hér í gildi á fimmta ár. Og hæstv. ríkisstj. sagði, að það skyldi vera verkefni launþegasamtaka og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör. Hverjar eru efndir þessa loforðs? Þær eru það frv., sem hér er flutt, um að banna kauphækkanir.
Þegar málflutningur stjórnmálaflokkanna fyrir kosningarnar í vor er því skoðaður í ljósi þeirra staðreynda, sem fram hafa komið síðan, þá er allt auðveldara um að átta sig á því, hvað rétt er, hver þá hefði rétt fyrir sér, hverra rök það væru, sem falsrök mættu kallast. Sannleikurinn er sá, að það hefur frá upphafi legið nokkuð ljóst fyrir, hvert viðreisnarstefnan mundi leiða, og ég hygg nú, að það sé nokkuð langt síðan núv. hæstv. ráðh. sáu, að þjóðarskútan mundi fara að hallast ískyggilega alveg á næstunni. Ég hygg, að þeir séu nokkuð margir, sem bjuggust við alvarlegum tíðindum strax í fyrra, sérstaklega að því er snertir gjaldeyrismálin, og það var fyrst og fremst óvenjumikill sjávarafli og þá síldarafli alveg sérstaklega á árinu 1962, sem bjargaði því, að allt gat flotið eins og það gerði fram yfir kosningarnar 1963. En þrátt fyrir góðan afla á þessu ári og hækkandi verðlag útflutningsframleiðslunnar er mjög skipt um til hins verra með afkomuna, eins og hæstv. ráðh. hafa sjálfir lýst, og dreg ég þær lýsingar ekki í efa. Þar tala þeir, sem gerst mega vita, og þetta sannar auðvitað fyrst og fremst það, sem við framsóknarmenn hófum haldið fram nm fánýti viðreisnarinnar til lausnar efnahagsvandamálum Íslendinga.
Ein meginástæðan fyrir þeirri lögbindingu, sem hér er ráðgerð, er talin vera sú, að með henni eigi að veita Alþingi og hæstv. ríkisstj. tóm til þess að athuga þessi mál og finna á þeim varanlega lausn. Ég held, að alveg sé tilgangslaust að halda því fram, að ekki hafi unnizt tími til að leita að færum leiðum út úr efnahagsógöngunum. Nú er þegar liðinn 41/2 mánuður, því að það var um miðjan júní s.1., sem gert var samkomulag við verkalýðssamtökin, sem gilti til 15. okt. s.1., og ekkert hefur nú gerzt enn. En þann 41/2 mánuð, sem liðinn er síðan þeir bráðabirgðasamningar voru gerðir, hefði mátt nota betur og hefði átt að nota betur en gert var til nýrrar samningagerðar. Auk þess var, eins og ég hef nokkuð rakið, augljóst þegar alllöngu fyrir kosningar, hvert stefndi. Einnig þann tíma hefði mátt nota og hefði átt að nota til þess að átta sig á þeim leiðum, sem taldar voru færar til lausnar efnahagsvandamálunum, því að sú þróun, sem orðið hefur í kaupgjaldsmálunum, er í rauninni ekkert öðruvísi en búast mátti við löngu áður. Það helzta, sem gerzt hefur, er það, að kjaradómur hefur birt úrskurð sinn um laun opinberra starfsmanna. Sá úrskurður er þó engan veginn hærri en búast mátti við að hann yrði, strax og báðir aðilar höfðu lagt fram sínar kröfur og sinar till. Því er alveg óhugsandi annað en hæstv. ríkisstj. hljóti að hafa gert ráð fyrir einhverjum svipuðum hækkunum, að kjaradómurinn mundi komast að svipaðri niðurstöðu, þegar hún gerði úttekt á verkum sínum í lok síðasta kjörtímabils og þegar hún framkvæmdi mat sitt á næstu framtíð. Samt var, eins og allir muna, hennar dómur algerlega ótvíræður. Það er bjart framundan, stóð í blöðunum fyrir kosningarnar, ekkert að óttast. Nú kveður hins vegar við allt annan tón. „Að undanförnu hefur skapazt misræmi í efnahagslífinu vegna launakapphlaups milli starfshópa og víxlhækkana kaupgjalds og verðlags," eins og svo hógværlega er komizt að orði í aths. með lagafrv. því, sem hér er til umr.
Ein af rauðustu rósunum í hnappagati viðreisnarinnar á sínum tíma var stöðvun dýrtíðarinnar, og lengi vel var því haldið fram, að sú stöðvun hefði tekizt, þótt tölur bentu til annars. Nú er því raunar alveg hætt, og þetta glæsilega fyrirheit hefur eins og svo mörg önnur hlotið sinn örlagadóm, m.a. í aths. með lagafrv. og ræðum hæstv. ráðh. Það var ekki vonum fyrr, að sú staðreynd væri viðurkennd, því að sjaldan eða aldrei mun önnur eins dýrtíðarholskefla hafa gengið yfir landið og í tíð núverandi valdhafa. Þetta er alveg ljóst og raunar alveg viðurkennt, en til frekari glöggvunar vil ég aðeins rekja, hvernig sú þróun hefur orðið, í örstuttu máli.
Verðgildi íslenzkra peninga hefur rýrnað mjög mikið á valdatíma núv. ríkisstj. Hún byrjaði á því að framkvæma óhóflega mikla gengislækkun snemma á árinu 1960, og í kjölfar hennar fylgdu alls konar aðrar ráðstafanir, sem stórlega juku dýrtíðina í landinu. Þá voru stórhækkaðir vextir, sem síðan hafa hvílt eins og mara á atvinnufyrirtækjunum og á öllum, sem þurfa lánsfé til nauðsynlegra framkvæmda. Þá voru hækkaðir tollar til ríkissjóðs. Og þá var settur á nýr söluskattur, miklu hærri en áður hafði þekkzt. Þær álögur, sem áður fóru í útflutningssjóð, voru tekjur í ríkissjóð, í stað þess að láta þær falla niður, um leið og lögin um sjóðinn voru felld úr gildi.
Móti þessu komu fjölskyldubæturnar, en þær sögðu auðvitað lítið á móti þessum ósköpum öllum. Skattar, tollar og önnur innflutningsgjöld eru í fjárlfrv. fyrir árið 1964 áætluð þrisvar sinnum hærri en þau voru 1958.
Í þeirri grg. um lagafrv. um efnahagsmál, sem ég gat um áðan, 1960, var sagt; að hækkun framfærslukostnaðar vegna gengisbreytingarinnar yrði aðeins 3%. Síðan þetta var útgefið, hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað, ekki um 3%, heldur um 44%. Þó er þess að gæta, að framfærslukostnaður er miklu meiri hjá öllum þeim. sem þurft hafa að byggja eða eignast húsnæði, keypt eða byggt hús á síðustu árum, því að eftir skýrslum hagstofunnar hefur byggingarkostnaðurinn á tímabilinu, þ.e. frá febr. 1960 til júní 1963, hækkað um 38,6%, en í vísitölu framfærslukostnaðar er hækkun húsnæðiskostnaðar á sama tímabili aðeins talin 8,5%.
Síðan þessi gengislækkun og þessar ráðstafanir árið 1960 voru gerðar, hafa svo, eins og kunnugt er, margvíslegar ráðstafanir aðrar komið til, þ. á m. gengislækkunin 1961, sem ég mun leyfa mér að víkja örlítið að síðar.
Nú er gefið í skyn og látið líta svo út, að aðalorsök þess, hvernig komið er, sé sú, hvernig fólkið hafi hagað sér, það hafi gripið um sig kaupæði í landinu vegna ótta við nýja gengisfellingu, eins og mig minnir að ég hafi heyrt þetta orðað hér á hv. Alþingi nú ekki alls fyrir löngu. Eins og ég hef áður sagt, tel ég, að vandinn eigi miklu dýpri rætur en þetta, en þó má viðurkenna, að þessi ummæli séu ekki algerlega ástæðulaus. En ef svo væri, mundi þá ekki fróðlegt að athuga það aðeins, hvaða orsakir gætu aðallega legið til þess, að fólk hefur óttazt þær aðgerðir af hálfu valdhafanna, að þeir mundu grípa til nýrrar gengislækkunar. Við athugun á því gæti svo farið, að mönnum yrði nokkuð hugsað til þeirra atburða, sem gerðust sumarið 1961, þegar samningar höfðu tekizt milli verkalýðsfélaganna og fyrst Vinnumálasambands samvinnufélaganna og síðar Vinnuveitendasambands Íslands um hóflega hækkun kaups, lága kauphækkun væri vist nær að segja, þegar borið er saman við það, sem síðar hefur orðið, og vinnufriður tryggður til lengri tíma en venjulega hefur tíðkazt. Þessa samninga, sem voru algerlega frjálsir, algerlega í anda stefnu hæstv. valdhafa, gerðir með frjálsum samningum milli launþegasamtakanna og atvinnuveitendasamtakanna og hefðu tryggt vinnufrið í landinu í tvö ár með óverulegum kauphækkunum, notaði ríkisstj. sem ástæðu til þess að fella gengið. Ég veit, að innihald þessara samninga er öllum hv. alþm. í fersku minni, en til glöggvunar vil ég samt leyfa mér að rif,ja upp í örstuttu máli, hvað það var, sem samið var um, og hver þróun launamálanna var um þetta leyti.
Í októbermánuði 1958 var dagvinnukaup verkamanna hér í Reykjavík kr. 21.85 á klst. Í marz 1959, skömmu eftir að ríkisstj. Alþfl. kom til valda, var tímakaupið hins vegar lækkað í kr. 20.67, og það hélzt óbreytt í rúmlega tvö ár. Með þeim samningum við verkalýðsfélögin, sem ég gat um áðan að samvinnufélögin höfðu forgöngu um og Vinnuveitendasambandið samþykkti stuttu síðar, í júní 1961, hækkaði tímakaupið upp í kr. 22.74 á klst. Á þeim nærri þremur árum, sem liðið höfðu frá því í okt. 1958, hafði þá kaupið hækkað með þessum samningum um 4.1%. Ég held, að óhætt sé að segja, að þessari kauphækkun, sem þarna var samið um, hafi því verið mjög í hóf stillt, og í þeim samningum var, eins og ég áðan sagði, lagður grundvöllur að góðum vinnufriði næstu árin: Þetta voru þeir samningar, sem nú er sagt og raunar alla tíð síðan að hafi verið orsök þess, að nauðsynlegt var að lækka gengið sumarið 1961.
Þeir menn, sem muna þessar aðgerðir og fylgdust með því, að kaupið nú á þessu ári hefur í mörgum starfshópum hækkað miklu meira en það gerði 1961 og að verðlagið er á hraðri leið upp úr öllu valdi, — þeir hafa kannske talið sig hafa ástæðu til þess að búast við svipuðu svari frá hæstv. ríkisstj. og hún gaf af minna tilefni sumarið 1961, þ.e. gengislækkun. Þetta er þó, þegar allt kemur til alls, sama hæstv. ríkisstj., sömu hæstv. ráðh., sama yfirlýsta stjórnarstefnan, — eða er ekki svo?
Því hefur verið haldið fram hér í þessum umr., að ákvæði þessa frv. um launabindingar væru ekkert nýmæli í íslenzkri löggjöf, þótt þau yrðu samþ. Hafa í því sambandi verið nefnd ýmis lög um efnahagsráðstafanir allt frá árinu 1939 og fram á valdaskeið vinstri stjórnarinnar. Ég skal ekki hætta mér út í samanburð á þessum tilvikum við það, sem hér er á ferðinni, það munu sjálfsagt aðrir gera, sem þessum málum eru kunnugri og lengur hafa átt sæti hér á hv. Alþingi. En ég hygg þó, og það er mín skoðun, að þessi tilvik séu á engan hátt sambærileg við það, sem hér er verið að gera. Ég hygg, að hér sé gengið lengra en nokkru sinni fyrr í þá átt að svipta verkalýðsfélögin samningafrelsi sínu, og ég hygg, að það sé einsdæmi, sem hér stendur til. Og við það bætist svo, að aliar vinnustöðvanir félaganna í því skyni að koma fram lagfæringum á kjörum sínum skulu vera ólöglegar, ekki aðeins þær, sem framkvæmdar kunna að verða á gildistíma laganna, heldur einnig þær, sem stofnað er til, áður en frv. verður að lögum.
En hvernig sem um þetta er, þá er annað, sem er ekki síður alvarlegt, og það er það, að ekki er hægt að skilja ummæli hæstv. ráðh. hér öðruvísi en svo, að hér eigi að fara inn á alveg nýja braut, þar sem líkur benda til þess, að lausn hæstv. ríkisstj. á efnahagsvandamálunum sé einmitt sú að halda áfram að hafa kaupið bundið, einnig eftir að gildistíma þessa frv. lýkur, ef að lögum verður.
Hér við 1. umr. í þessari hv. deild um þetta mál bar hv. 1. þm. Austf. (EystJ) fram áskorun til ríkisstj. um það, að hún lýsti því yfir skýrt og afdráttarlaust, að eftir 31. des. 1963 skyldi kaup og kjör ákveðin með frjálsum samningum milli verkalýðsfélaganna og atvinnurekendanna í samræmi við skýlausar yfirlýsingar og hátíðleg loforð hæstv. ríkisstj. frá því í upphafi stjórnarferils sins. Þessu svaraði hæstv. forsrh. svo við 1. umr., að ekkert vit væri í að lýsa þessu yfir, meðan málið er í rannsókn, og taldi, að óvarlegt væri að fullyrða nokkuð á þessu stigi, og auðvitað vill hann, sem rétt er, ekki fullyrða neitt, sem hann er ekki alveg hárviss um að geta staðið við. En þetta sýnir, að hæstv. ríkisstj. treystir sér a.m.k. ekki til að útiloka þann möguleika, að þessum málum verði eftir áramót ráðið til lykta með lagaboðum til frambúðar.
Samkvæmt þessu virðast því sterkar líkur benda til þess, að með þessu lagafrv. sé aðeins fyrsta sporið stigið á langri göngu mikilla aðgerða, — aðgerða, sem eru nýmæli í samskiptum verkalýðsins og ríkisstj. á Íslandi, og því væri enn meiri ástæða til fyrir hv. þm. að staldra við, áður en þeir rétta upp hönd til samþykktar því frv., sem hér er til umr., heldur en jafnvel í fljótu bragði kann að virðast.
Að mínum dómi er mjög varhugavert að byggja framtíðarlausn efnahagsvandamálanna á því að svipta launþegana samningsrétti sínum og verkfallsrétti. Þessi réttur, að hafa sjálfir íhlutunarrétt um kaup sitt og kjör og þar með um lífsafkomu sína, er ein af þeim dýrmætustu réttindum, sem verkalýðshreyfingin hefur aflað sér á áratuga og árhundraða löngu baráttuskeiði, og þau eru ekki aðeins ein þau dýrmætustu, heldur einnig og ekki síður ein þau dýrkeyptustu. Það ætti að vera óþarfi að rifja það upp hér, hvaða baráttu það hefur kostað verkalýðinn að komast þangað, sem hann stendur í dag, að hafa þau réttindi, sem hann hefur nú til þessa íhlutunarréttar. Sú saga er öllum kunn, enda er hún snar þáttur í sjálfri mannkynssögunni. Meira að segja hér á okkar landi kostaði sigur verkalýðshreyfingarinnar fórnir og baráttu við þeirra tíma atvinnurekendur, og vorum við þó alllangt á eftir frændþjóðum okkar í næsta nágrenni að koma þessum sjálfsögðu mannréttindum á hér, og hefði því mátt segja, að brautin hefði átt að vera greiðfærari, þar sem aðrir voru búnir að varða veginn, og sjálfsagt hefur hún líka verið það. Samt kostaði það mikla baráttu og miklar fórnir.
Þess vegna tel ég það vægast sagt mjög ólíklegt, að verkalýðssamtökin muni baráttulaust láta taka þessi réttindi af sér, og miðað við samtakamátt verkalýðshreyfingarinnar, eins og hann er nú, þá held ég, að það sé óráðlegt, mjög óráðlegt fyrir nokkra ríkisstj. að reyna að gera það, enda eru viðbrögðin þegar að nokkru komin í ljós. Hvaðanæva drífa að fregnir af mótmælum verkalýðsfélaganna við þeirri lagasetningu, sem hér er ráðgerð. Hæstv. forseti las hér áðan upp langa skrá yfir þau félög, sem sent hafa Alþingi mótmæli sin, og mörg voru komin áður. E.t.v. eiga fleiri eftir að koma. Ég tel það sennilegt. Og svo almenn er andstaðan gegn þessu ráði, að það eru ekki einungis þau verkalýðsfélög, sem stjórnarandstaðan hefur meiri hlutann i, sem senda inn mótmæli, heldur eru það einnig og ekkert síður þau félög, sem vitað er að fram til þessa a.m.k. hafa ekki átt í neinum útistöðum við ríkisstj. og hafa stutt hana með ráðum og dáð, svo sem eins og þau mótmæli, sem borizt hafa frá fulltrúaráði verkalýðsfélaganna hér í Reykjavík, Iðju, félagi verksmiðjufólks, Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur, Landssambandi ísl. verzlunarmanna, svo að aðeins fáein og þau stærstu séu nefnd. Þessi félög, sem hafa viljað veita hæstv. ríkisstj. allan þann starfsfrið, sem þau hafa átt yfir að ráða, jafnvel stundum gengið lengra í því en almennir félagsmenn í þeim félögum hafa talið rétt að gera, þau hafa samt núna séð síg knúin til þess að senda hv. Alþingi mótmæli sin við þessari fyrirhuguðu lagasetningu.
Því held ég, að það sé ekki ofmælt, þótt ráð sé fyrir því gert, að þessi breyting muni kosta mikla baráttu, og; ég held, að það væri ráðlegt fyrir þá, sem með völdin fara, að gera sér grein fyrir því og hugsa sig betur um, áður en áfram er haldið á þeirri braut.
Fúslega skal ég viðurkenna, að það er sjálfsagt margt, sem þarf að lagfæra viðkomandi þessum málum. Það er t.d. ekki gott, að samningar einstakra stéttarfélaga skuli gerðir til mislangs tíma, skuli ekki renna út á sama tíma. Það mundi tryggja vinnufrið í landinu til mikilla muna, ef hægt yrði að koma þeirri tilhögun á, að allir samningar eða sem allra flestir væru lausir á sama tíma. Með heildarsamningum sem allra flestra starfshópa mundi fást gott yfirlit um það, hvað sanngjarnt væri, að hver bæri úr býtum hlutfallslega af því, sem til skiptanna kann að vera þá og þá, og draga úr þeim óheillavænlega samanburði, sem vissulega einkennir um of þessi mál hjá okkur. Þar með mundi draga úr launakapphlaupi milli starfshópa, svo að enn séu notuð orðin úr aths. lagafrv. En ég tel, að stefna verði að þessu marki með frjálsum samningum við verkalýðssamtökin, en ekki með valdboðum, ekki með kaupbindingu. Þær ráðstafanir, sem hér er verið að undirbúa, eru ekki til þess fallnar að auka líkurnar fyrir góðum árangri af þeim samningaviðræðum, sem boðaðar eru og fram eiga að fara í kjölfar þessarar lagasetningar. Ég held þvert á móti.
Hér hefur verið sagt við fyrri umr. þessa máls, að meginorsök þess greiðsluhalla, sem nú er orðinn á viðskiptunum við aðrar þjóðir, sé of mikil neyzla og of mikil fjárfesting einstaklinga, og þessi of mikla neyzla og of mikla fjárfesting á fyrst og fremst að vera hækkuðum taunum að kenna. Jafnframt var hér sagt, hæstv. viðskmrh. sagði hér við 1. umr., sem rétt er, að breytingar hafi orðið á tekjuhlutföllum í þjóðfélaginu, þannig að raunverulegar tekjur þeirra tekjuhærri hafi vaxið og að launajöfnuður sé hér minni en verið hefur. Þessi'. lýsing er vissulega alveg rétt. Og hæstv. viðskmrh. bætti því við: Þeir láglaunuðu hafa dregizt svo aftur úr, að sérstakar ráðstafanir þarf að gera. — Og hverjar eru svo þær sérstöku ráðstafanir, sem hæstv. ríkisstj. ætlar sér að gera til að leysa úr þessum knýjandi vanda? Þær liggja nú hér fyrir í formi þessa frv., sem hér er til umr., að banna með lögum, að þetta fólk geti fengið nokkra leiðréttingu sinna mála í næstu tvo mánuði a.m.k. Eftir að þetta er orðið að lögum, þá er það ólöglegt að láta t.d. verkamanninn njóta þess, þótt vel gangi í atvinnurekstrinum. Sá vinnuveitandi, sem gerði sig sekan um sifkan glæp, mundi umsvifalaust vera látinn sæta refsingu. Það á sem sagt að lögfesta það ástand, að fyrir 8 stunda vinnudag alta virka daga fái verkamaður 67 200 kr. árslaun, á sama tíma sem opinberar skýrslur sýna, að hann þarf 95 496.85 kr., sem er lágmark til þess að lifa af, og það dugir honum
aðeins, ef hann hefur orðið þess happs aðnjótandi, að hæstv. ríkisstj. hafi tekizt að útvega honum húsnæði fyrir aðeins 922 kr. á mánuði, en það er sú upphæð, sem hinir vísu feður áætla húsnæðiskostnaðinn í vísitöluútreikningum sínum. Sé hins vegar reiknað með raunverulegum húsnæðiskostnaði, eins og vitanlega allir verða að gera, þá ber enn þá miklu meira á milli. Þetta á að lögfesta, á sama tíma sem laun ýmissa annarra stétta eru ákveðin mjög há, 250 þús. kr. og þar yfir. Þetta þykir mér vont réttlæti og einkennileg framkvæmd þeirra loforða, sem gefin voru í upphafi valdatímabils hæstv. ríkisstj., þ. á m. og ekki sízt þess, sem ég gat um hér áðan, að til stóð að endurskipta þjóðartekjunum þannig, að byrðarnar, sem bera verður í bráð vegna endurskipulagningar efnahagskerfisins, dreifist af fyllsta réttlæti á þjóðfélagsþegnana.
Þá eru þessar ráðstafanir að mínum dómi sérstaklega harðleiknar gagnvart verzlunarfólki. Verzlunarfólk hefur í marga mánuði búizt við því, svo að segja á hverjum degi, að nýir samningar um laun þess sæju dagsins ljós. Forustumenn þeirra samtaka hafa hvergi dregið úr því, að leiðréttingar muni fást, og þeirra tal um það efni lét þeim mun betur í eyrum sem alkunna var, að þar voru í þeim félögum við völd þeir menn, sem fólk hélt að treysta mætti, að þeir vissu, hvað þeir mættu sín, vegna sambands sins við hæstv. ríkisstj. Þessir forustumenn þessara samtaka hafa æ ofan í æ lýst því yfir, að ekki kæmi annað til greina en verzlunarfólk fengi góða leiðréttingu sinna mála, og hafa talað um háar prósentur í því sambandi.
Þessi aðferð gagnvart verzlunarfólkinu verður sérstaklega óhagstæð því, þegar hún er skoðuð í ljósi þeirrar staðreyndar, að hinn 3. júlí s.l. kvað kjaradómur upp úrskurð um laun opinberra starfsmanna. Þar var metið af hlutlausum dómurum, hvað væru hæfilegar launagreiðslur til ríkisstarfsmanna. Að sjálfsögðu hafa þeir, dómararnir, ákveðið launin m.a. með hliðsjón af gildi krónunnar tilkaupa á lífsnauðsynjum um þær mundir, sem dómurinn var kveðinn upp. En eftir að laun skrifstofumanna hjá ríkisstofnunum og verzlunarfólks h,já ríkisverzlunum hafa verið ákveðin með þessum hætti, væri þá ekki eðlilegt, að einkafyrirtækin fengju á sama hátt að gera sínu fólki sams konar úrlausn? Það finnst mér. En það finnst ekki hæstv. ríkisstj. Hún ákveður þess í stað, að laun þessa fólks megi ekki hækka, þ.e. eftir að þetta frv. er orðið að lögum, bannar einkafyrirtækjum að greiða sínu verzlunar- og skrifstofufólki sömu laun og ríkisstarfsmenn fá fyrir sömu vinnu. Þetta er einkennileg framkvæmd, og ég hygg, að hún sé óvenjuleg og mundi óviða geta átt sér stað annars staðar en hér.
Okkur, sem stöndum að því nál., sem ég er hér að greina frá, mér og hv. 1. þm. Norðurl. v. (SkG), finnst, að þar sem sjávarafli hefur verið meiri hér á landi síðustu árin en nokkru sinni áður og þar sem vitað er og viðurkennt, að sala á útflutningsvörum gengur mjög greiðlega og verð þeirra er hækkandi, – okkur finnst, að í slíku árferði ætti að vera hægt að borga fólki viðunandi laun, og okkur finnst, að sé það ekki mögulegt, þá hljóti menn að verða að draga þá ályktun, að stjórnin á málefnum þjóðarinnar sé öðruvísi en hún ætti að vera.
Í stað þeirrar lögfestingar á kaupi, sem hér er stefnt að, teljum við, að fara beri samningaleiðina. Það er óhjákvæmilegt að bæta kjör verkamanna og annars láglaunafólks, og ráðstafanir þarf að gera til þess að tryggja það, að atvinnufyrirtækin geti borgað hærra kaup. Til þess eru ýmsar leiðir, og talsmenn Framsfl. hafa bent á nokkrar þeirra, m.a. hér við þessar umr., og ég skal ekki endurtaka það. Ég skal aðeins leggja áherzlu á,að það þarf að taka vísindi og tækni í auknum mæli í þjónustu atvinnuveganna og gera þeim á þann hátt kleift að auka framleiðsluna og bera hærra kaup, auka þannig þjóðartekjurnar.
Við teljum, að mikill fjöldi manna sé með þessari lagasetningu, sem ráðgerð er, beittur rangindum, ef frv. verður að lögum, og að sú aðferð, sem þar er viðhöfð, muni torvelda og tefja fyrir sanngjarnri lausn í kaupgjaldsmálunum. Þess vegna er það niðurstaða okkar og till. í nái., að lagafrv. verði fellt.