05.11.1963
Neðri deild: 12. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í C-deild Alþingistíðinda. (1847)

56. mál, launamál o.fl.

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég skal heita hæstv. forseta því, að ég mun ekki þreyta hann lengi, því að nokkuð er nú á kvöldið liðið og sjáanlegt er, að margir eru farnir að þreytast á þessum umr. En það eru tvö atriði, sem komu fram í framsöguræðu hv. frsm, meiri hl. fjhn. í gær, sem ég vil ekki láta ómótmælt, áður en þetta mál fer héðan út úr hv. deild.

Fyrra atriðið, sem hv. frsm. vék að, var það, að öðruvísi væri nú stjórnarandstaða en verið hafði á vinstristjórnarárunum. Þá hefði stjórnarandstaðan farið betur að og heiðarlegar en núv. stjórnarandstaða. Í tilefni af þessu vil ég minna þennan hv. þm. og aðra á, sem hafa sömu skoðun, að á þeim árum buðu atvinnurekendurnir kauphækkun, eins og gert var í Iðju, þar sem sjálfstæðismenn réðu ríkjum. Ég vil líka minna þá á flugmannaverkfallið, farmannaverkfallið, og ég vil líka minna þá á það, að þá var fulltrúi þeirra, Jóhann Sigurðsson, sendur inn í verkamannafélagið Dagsbrún til þess að skamma kommana fyrir aðgerðaleysi í kaupgjaldsmálum, getuleysi þeirra og úrræðaleysi og aðgerðaleysi var í alla staði óþolandi samkv. frásögn þessa manns. Ég vil líka minna þá á, að sömu mennirnir, sem nú verða að greiða atkv, með frv, hæstv. ríkisstj., ef það á að ná fram að ganga, neituðu þá um að geyma rétt á Alþýðusambandsþingi, sem þá var farið fram á, eins og tveir af núv. þm. hv. stjórnarflokka. Er gott, að þeir muni eftir þessu við atkvgr. nú.

Annað atriði, sem þessi hv. þm. vék að, frsm. meiri hl. fjhn., var það, að hér ætti að gera heiðarlega tilraun til þess að stöðva dýrtíðina. Í tilefni að þessu vil ég spyr,ja þennan hv. þm.: Er það stöðvun á dýrtiðinni, þótt kauphækkun verði frestað í 2 mánuði? Það er áreiðanlegt, að það verður ekki komizt fram hjá þeirri kauphækkun hjá þeim stéttum, sem eiga eftir að fá leiðréttingu á kaupi sínu og kjörum til samræmis við aðrar stéttir. Það verður ekki komizt fram hjá þeirri kauphækkun, þótt það takist að tefja það um einhvern tíma, og það á ekki heldur að komast fram hjá því, að fólk hafi það kaup í þessu landi, að það geti með skikkanlegum vinnudegi unnið fyrir þurftartekjum sínum.

Í öðru lagi vil ég spyrja: Er það heiðarlegt að neita skrifstofu- og verzlunarfólki h,já samvinnufélögum og einkafyrirtækjum um þá kauphækkun, sem hliðstæðum ríkisstarfsmönnum hefur verið ákveðin af hlutlausum dómi? Nei, það er ekki heldur heiðarlegt.

Í þriðja lagi vil ég spyrja: Er það heiðarlegt að krefjast þess, að þeir, sem lægst launin hafa, fórni vegna hugsanlegrar stöðvunar verðbólgu launahækkun sinni, þegar þeir, sem hæst laun hafa, hafa fengið launahækkanir 50–100%? Það er ekki heldur heiðarlegt. Ég vil enn fremur spyrja: Er það heiðarlegt að heimta fátæka mannsins eina lamb, samnings- og verkfallsréttinn, til hugsanlegrar verðstöðvunar, sem svo gæti einnig brugðizt? Nei það er ekki heldur heiðarlegt. Og ef þannig á að fara að vinna að því að stöðva verðbólgu landsins, þá á ekki að tala um heiðarleika í sambandi við þá framkvæmd. Þetta frv. er hvorki sanngjarnt né heiðarlegt.

Ef hæstv. ríkisstj. vill vera heiðarleg, á hún að viðurkenna úrræðaleysi og getuleysi sítt. Þá á hún að viðurkenna það, að hún blekkti þjóðina í kosningunum í vor, og á því að leggja málin fyrir þjóðina aftur. Það eitt er heiðarlegt.