09.11.1963
Efri deild: 14. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (1865)

56. mál, launamál o.fl.

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég tel ekki efni til né heppilegt, að frekari umr. fari nú fram um þetta mál. Ástæður til þess eru þær, að viðræður hafa farið fram milli fulltrúa ríkisstj. annars vegar og forustumanna úr verkalýðssamtökunum hins vegar, og hafa þær borið þann árangur í fyrsta lagi, að miðstjórn A.S.Í. og landsnefnd verkalýðsfélaganna hafa samþykkt að mæla með því við þau verkalýðsfélög, sem boðað hafa eða hafið vinnustöðvanir, að þau fresti þeim til 10. des. n.k. Í öðru lagi, að afgreiðslu þessa frv. verði frestað í jafnlangan tíma. Í þriðja lagi, að samningaviðræður um kjaramálin verði teknar upp nú þegar.

Þar sem það hefur alltaf verið meginstefna verkalýðshreyfingarinnar, að samningaleiðin yrði farin, og svo er komið eins og ég áður sagði, telur þingflokkur Alþb. farsælast, að frekari deilur um frv. hér á hv. Alþingi verði látnar niður falla, meðan framangreindur gagnkvæmur frestur varir.