12.03.1964
Neðri deild: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í C-deild Alþingistíðinda. (1942)
34. mál, áætlunarráð ríkisins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Þetta frv. hefur farið að þessu sinni nefndarlaust til 2. umr., og það þýðir, að það kemur til kasta hv. þm. nú að taka afstöðu til þess. Þetta frv. eða frv. svipað þessu hefur nokkrum sinnum áður verið rætt hér á Alþ., venjulegast stöðvazt í n., en nú fer þannig, að það verður óhjákvæmilegt, að menn taki afstöðu til þess, hvort menn ætla að samþykkja það, breyta því eða fella. Og ég álít það mjög gott, því að það er alveg nauðsynlegt, að það komi hreint fram, hvernig menn standa gagnvart slíkum frv. sem þessu. Hér er satt að segja bæði í deildum og ekki sízt í Sþ. fullt af till., sem allar saman miða að því að setja niður n. til þess að fara að athuga hin og þessi sérstöku svið. Það eru till, um að fara að athuga, hvað marga tæknimenntaða menn við þurfum. Það eru till. um að fara að athuga, og var jafnvel samþykkt nú áðan á fundi í Sþ., hvaða iðnað við þurfum að setja niður í ákveðnum þorpum á landinu, og annað slíkt. Og það eru öðru hverju till. um að útbúa alls konar áætlanir um ýmis sérstök svið þjóðarbúskapar. Það eru til jafnvel 10 ára áætlanir um túnrækt og 10 ára áætlanir um alls konar framkvæmdir á vissum sviðum, jafnvel um vegagerð og annað slíkt. En það, sem vantar algerlega og gerir óhugsandi að láta þessar áætlanir raunverulega standast, er áætlun um þjóðarbúskapinn í heild, þannig að þarna sé eitthvert samræmi á milli. Það er svo mikið kák, sem verið er að gera á mörgum þessum sviðum, á meðan verið er að setja niður einhverja óskanefnd frá þingínu, sem á að útbúa einhvern óskalista um einhvern óskaiðnað í einhverjum þorpum, en svo á bara þessi nefnd að starfa í 2-3 ár, leggja þetta svo fyrir ríkisstj. og ekkert meira. En það, sem þarf í þessum efnum, er nefnd, sem hefur ákveðið vald, sem tekur tillit til allra svíða þjóðfélagsins, leggur síðan álit sitt fyrir ríkisstj. og ríkisstj. fyrir Alþ., og síðan séu það lög, að Seðlabankinn og fjárfestingarstofnanirnar vinni að því að framkvæma þá áætlun, sem gerð hefur verið.
Það er ákaflega nauðsynlegt, að einstakir þm. og einstakir flokkar taki endanlega sina afstöðu í þessu máll. Þetta er prinsip-mál, sem er ekki hægt að komast fram hjá í stjórnmálum Íslands. Stjórnmál Íslands eru fyrst og fremst efnahagsmál. Stjórnin á Íslandi er fyrst og fremst stjórn á efnahag landsins. Þegar hæstv. ríkisstj. byrjaði sína göngu, lýsti hún því yfir, að hún ætlaði að láta afskiptalaust, hvernig verkamenn og atvinnurekendur semdu. Hún þverbraut þessa reglu sína frá upphafi og hefur haldið áfram að brjóta hana síðan og hefur viðurkennt í reyndinni, að þetta sé gersamlega óhugsandi. Það er þannig viðurkennt af núv. ríkisstj., að þær hugmyndir, sem hún var með í upphafi, að láta afskiptalaust, hvað gerðist í efnahagsmálunum, hvernig gengi með samninga milli atvinnurekenda og verkamanna, hvort allt atvinnulif í landinu stöðvaðist og það væri engin atvinna rekin, það hefur sýnt sig, að hæstv. ríkisstj. treystir sér ekki til að framfylgja svona stefnu enda eru þetta 100 ára gamlar teoríur, sem heil öld er búin að fordæma í praksís, þannig að þarna er um það að ræða, hvort menn vilja taka afleiðingunum, draga réttar ályktanir út frá staðreyndunum, sem við þeim blasa, og taka upp þá stjórn á atvinnulífinu í þjóðfélaginu, að ríkið verði að skipta sér af þessu, en ekki með einhverju smákáki að vera að setja smánefndir til að athuga með smáiðnað og slíkt, heldur sístarfandi n., sem athugar málin í heild.
Hér er allur þorri þm. fulltrúar fyrir þau kjördæmi, sem eru utan Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis. Þeir hafa áhyggjur út af því, hvernig það gangi með fólksflóttann frá þessum kjördæmum, vegna þess að það er staðreynd, að öll byggð landsins er að dragast til Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis. Ég skal nú minna á þessa þróun, hvernig hún hefur verið frá því 1901, svo að það standi alveg ljóslifandi fyrir mönnum, hvernig hún hefur gengið til.
Árið 1901, með leyfi hæstv. forseta, þá var á Suðvesturlandi, það þýðir í Gullbringu- og Kjósar- allt að Dalasýslu, ég tek Vesturlandið með, 21795 menn, 21 þús. menn rúmlega. Þar eru núna 115150. Á Vestfjörðum voru 1901 12481 maður. Þar eru núna, 1962, 10 530. Það er um 2000 færra en það var aldamótaárið. Á Norðurlandi voru árið 1901 20 249 menn, þar eru núna, 1962, 30834, m.ö.o.: það hefur orðið fjölgun um 50%. Það er á Norðurlandi, þar sem þó er um að ræða allþéttbýlt svæði við Akureyri og Eyjafjörð. Á Austurlandi voru árið 1901 10634 menn, þar eru núna, 1962, 10 664 menn. Það er 30 mönnum fleira en var um aldamótin, eftir 60 ár. Á Suðurlandi voru árið 1901 13 311 menn, þar eru núna 16 300. En alls hefur í landinu breytingin orðið sú, að 1901 var íbúatala landsins 78470 en var núna 1962 183478. Og það, sem sýnir enn þá betur, hvað þetta hefur þjappazt saman, er, að af þessum fjölda eru í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, sem stundum er farið að kalla Stór-Reykjavík, 89 631 manns, eða ef Seltjarnarnes og Garðahreppur væri talið þarna með, þá er nákvæmlega helmingur íbúanna, rúm 90 þúsund, á þessu litla svæði, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi og Garðahreppi. í Gullbringu- og Kjósarsýslu með þessum stöðum, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Keflavik, eru 102 800 manns.
Hvernig stendur á þessari gerbyltingu, sem orðið hefur í landinu? Við verðum að gá að því, að frá upphafi landsbyggðar, þ.e. í 1000 ár, helzt þetta hlutfall á milli landsfjórðunga tiltölulega óbreytt. Það er tiltölulega litil breyting frá því, að við höfum fyrsta manntal á Íslandi, frá því um 1100 og til 1901. Eingöngu frá 1901 fer þetta að gerbreytast. Er þetta eitthvert alveg sérstakt íslenzkt vandamál, sem eingöngu kemur upp hérna, og eitthvert óyndi, sem hefur gripið menn úti í þeim dreifðu byggðum landsins, sem veldur því, að menn sækja núna allt í einu hingað suður? Nei, það er ekki það. Það er ákveðið þjóðfélagslegt fyrirbrigði, sem þarna hefur gerzt. Auðvaldsskipulagið hefur nefnilega komið upp á Íslandi. Auðvaldsskipulagið hefur skapazt. Það þýðir, að fjármagnið í þjóðfélaginu er orðið það, sem fyrst og fremst ræður því, hvar atvinnutækin eru sett niður, því að miðstöðin fyrir fjármagnið í landinu hefur verið fyrst og fremst Reykjavík. Þar hefur myndazt vísirinn að borgarastétt í upphafi. Við gullkistu Faxaflóans finnur þessi borgarastétt, að aðalmöguleikarnir eru fyrir hana til þess að græða. Sá gróði, sem myndast, verður fyrst og fremst hér. Þeir menn, sem ákveða, í hvað sé lagt af fyrirtækjum, eru hér, og þeir leggja þetta í fyrirtæki hér í kringum sig. Það þýðir m.ö.o.: út frá einkasjónarmiði fjármagnsráðendanna eða auðmannanna, ef við viljum segja svo, auðfyrirtækjanna, þá er ákveðið, hvernig og hvar fyrirtækin skuli byggð og hvaða fyrirtæki. Það þýðir m.ö.o. að það þjappast saman atvinnulífið á þessu litla svæði út frá sjónarmiði þeirra, sem ráða fjármagninu. Það er blint lögmál peninganna, sem veldur því, að atvinnutækin eru reist þarna, og þar sem atvinnutækin eru reist, þangað flytur fólkið. Þessi þróun hélt áfram, t.d. var hún alveg augljós hvað snerti togarana. Þegar Ísland átti 30—40 togara, voru þeir svo að segja allir í Reykjavík og Hafnarfirði. Það voru, ef ég man rétt, 1—2 á Patreksfirði. Það var ekki fyrr en eftir 1944, þ.e. í tíð nýsköpunarstjórnarinnar, að gerð var tilraun til þess að koma upp stórútgerð, togaraútgerð, annars staðar á Íslandi en á þessum stöðum. Þess vegna er greinilegt, að það, sem veldur þessum fólksflótta og þessari gerbreytingu og gerbyltingu á búsetunni í landinu, er sjálft auðvaldsskipulagið á Íslandi, það er sjálft það blinda lögmál peninganna, sem þarna er að verki. Hvernig getum við breytt þessu? Getum við breytt þessu með því að setja niður eina litla nefnd til þess að athuga um iðnaðinn fyrir nokkur kauptún? Getum við breytt þessu með því, að það sé samþykkt þáltill. hérna, eins og nýlega var verið að ræða, og það sé falið að tala við nokkrar sýslunefndir úti á landi og það sé falið að tala við stjórn atvinnubótasjóðs og svo gleymist kannske að senda bréf til hans, það sé talað við Framkvæmdabankann, gleymist nú kannske að senda bréf til hans, og þannig sé þessu breytt? Nei, það er óhugsandi, og við skulum horfast í augu við það. Það þýðir ekkert fyrir þá menn, sem vilja telja sig fulltrúa dreifbýlisins og vilja reyna að viðhalda því, eins og íslenzku þjóðlífi er nauðsynlegt, að gera það með öðrum ráðum en þeim að taka að sér að stjórna straum fjármagnsins í þjóðfélaginu, ráða, hvert fjármagninu er beint, taka þessi yfirráð af einstaklingunum. Þeir mega eiga þetta eftir sem áður, það er ekki verið að taka neitt eignarnámi hjá þeim, en það er þjóðfélagið sem slíkt, sem verður að ráða því, hvar þetta skuli sett niður, hvar fyrirtækin skuli reist. Að vísu verður náttúrlega þjóðfélagsheildin að taka tillit til, hvað praktískt er í þessum efnum. En sannleikurinn er sá, að það er ekki praktískt fyrir þjóðarheildina, að þetta gangi eins og það hefur gengið.
Ég spurði, hvort þetta væri sérstakt íslenzkt fyrirbrigði. Það er það ekki. Þetta er almennt fyrirbrigði í hverju einasta landi, þar sem auðvaldsskipulagið hefur rutt sér til rúms, og þar er blint lögmál peninganna, þar sem það hefur fengið að ráða. Ég skal taka dæmi, sem ég hef ofur lítið sett mig inn í viðvíkjandi Tékkóslóvakíu. Þegar auðvaldsskipulagið kom upp í Tékkóslóvakíu, gerðist sú þróun þar, að af þeim tveim ríkjum eða löndum sem hún samanstendur af núna, gamla Bæheimi og Slóvakíu, varð sá gamli Bæheimur miðstöðin fyrir iðnaðinn. Allur iðnaður dróst þangað. Mennirnir, sem réðu fjármagninu, voru búsettir þar, og smám saman fór það svo; að fólkinu í Slóvakíu fækkaði. Slóvakía var eins konar dreifbýli, eins og við mundum kalla það. Bæheimur varð meira og meira iðnaðarland. Eftir að áætlunarbúskapur var tekinn upp og sósfalismi komst á í Tékkóslóvakíu, var ákveðið að breyta þessu. Það eru stórkostleg vatnsföll t.d. í Slóvakíu, ákaflega ódýrt rafmagn, sem þar er hægt að fá, og alveg jafngott að reka þar ýmiss konar iðnað og í Bæheimi, svo framarlega sem verið er að taka tillit til þess, að það sé heppilegt að byggja allt landið. Þess vegna hefur orðið gerbreyting í Tékkóslóvakíu, þannig að Slóvakía er nú aftur að byggjast upp, vegna þess að það hafa verið reist mjög stór raforkuver, mjög stórar verksmiðjur í sambandi við þau og þjóðfélagsheildin sjálf stjórnar því, hvernig þróunin skuli vera í þessum efnum. Lönd eins og England hafa staðið frammi fyrir þessu sama. Þar hefur það verið þannig, að svæði, sem við mundum kannske kalla dreifbýlissvæði, hafa verið svo að segja að missa allt fólk burt, eymdarsvæði, þar sem fólkið hefur skort atvinnu, þar sem það hefur verið að veslast upp, en hefur hins vegar hangið áfram við íbúðir, sem það átti, og annað slíkt. Og það er sama fyrirbrigðið sem við þekkjum hérna heima núna líka og verkar eins og ánauð, bændaánauðin í gamla daga. Hvað gerir brezka stjórnin? Hún gerir sérstakar ráðstafanir við þessu. Meira að segja, við skulum bara taka dæmi af Bandarfkjunum, því landi, sem einna minnst hefur viljað skipta sér af þessum hlutum, við skulum taka dæmi af tíma Roosevelts, þegar alveg sérstaklega stórkostlegar ráðstafanir eru gerðar í þessu efni. Eitt af þeim fyrirtækjum, sem frægast var í Bandaríkjunum á þeim tíma, Tennessee Valley, og það sérstaka áætlunarráð, sem sett var viðvíkjandi Tennessee-dalnum, það stóra raforkuver og þau miklu iðjuver vora byggð upp til þess að ráða og ákveða, hvernig búsetan í landinu skyldi vera, og láta ekki bara blint brask auðmannastéttarinnar og sérstaklega auðmannanna í Wall Street ráða því, hvernig Bandaríkin byggðust.
Þetta fyrirbrigði, sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi,er þess vegna ekkert sérstakt íslenzkt fyrirbrigði, heldur almennt fyrirbrigði, sem alls staðar fylgir í kjölfar auðvaldsskipulagsins, hvar sem það kemur upp. Og við þessu er aðeins eitt ráð til. Það er, að þjóðfélagsheildin taki það sjálf í sínar hendur að ákveða, hvert fólksstraumurinn skuli liggja, ekki með neinum ánauðarlögum eða neinu slíku; heldur með því að taka að sér að stjórna, hvert fjármagnið fer, hvar fjármagnið skuli fyrst og fremst sett í fyrirtækin. Og þetta er orðin okkur alveg lífsnauðsyn. Satt að segja er okkur þetta ekki aðeins lífsnauðsyn vegna þess, að við viljum ráða búsetunni á landinu, vegna þess að við viljum ekki láta svo og svo stóra hluta af föðurlandi okkar fara í eyði. Þetta er okkur líka nauðsyn til þess að geta haft dálítið skipulag á atvinnurekstri okkar. Við tölum um að koma upp t.d. iðngreinum hér og þar, og það getur verið og er alveg tvímælalaust nauðsynlegt. En við þurfum um leið að hugsa um það, að ef við erum t.d. að setja slíkar iðngreinar fyrir innanlandsmarkað, er markaðurinn á Íslandi ekkert sérstaklega mikill, og það er ákaflega ópraktískt af okkur að setja niður t.d. á kannske 5—10 stöðum á landinu verksmiðjur, sem allar saman framleiða það sama, ef ein þeirra gæti afkastað því öllu saman. Ég skal taka dæmi.
Það var nýlega veríð að reisa á Akranesi verksmiðju til þess að framleiða íslenzka nælonsokka. Nú skulum við hugsa okkur og við skulum vona, að það fyrirtæki gangi vel. Ég efast ekki um, að það muni vera ákaflega mikið sjálfvirkt, það muni vera hægt að mjög miklu leyti að framleiða í því, — ég tala ekki um a.m.k. 8 tíma vinnu, a.m.k. tveggja vakta vinnu, — kannske meginið af þeim silkisokkum, sem okkar íslenzka kvenfólk þarf á að halda. Nú skulum við segja, að þetta fyrirtæki gangi vel og það vilji t.d. ýmsir aðrir fara að setja upp svona fyrirtæki og það væri alveg frjálst að kaupa inn vélar og allt til þess, það væru sett ein 4—5 fyrirtæki á stofn í þessari grein. Hver mundi afleiðingin verða, ef eitt fyrirtæki gæti fullnægt markaðinum? Jú, afleiðingin mundi venjulega verða sú, að ekkert af þessum fyrirtækjum bæri sig og sokkarnir, sem framleiddir eru í hverju þeirra, yrðu miklu, miklu dýrari en þeir þyrftu að verða. M.ö.o.: við stæðum frammi fyrir afleiðingunum af því skipulagsleysi, sem mundi gera vöruna miklu dýrari og gersamlega ósamkeppnisfæra. Það þýðir m.ö.o., að þegar við erum að hugsa um að koma upp verulegum íslenzkum iðnaði hjá okkur, þurfum við um leið að taka tillit til þess, hvað er hagkvæmt frá þjóðhagslegu sjónarmiði. E.t.v. hefði verið miklu heppilegra fyrir okkur að setja svona verksmiðjur ekki upp á Akranesi, þar sem okkur vantar venjulega vinnufólk, starfsfólk við fiskinn, heldur kannske — við skulum segja — norður á Skagaströnd, Blönduósi, einhvers staðar, þar sem er frekar lítil vinna. Og hvað snertir flutningskostnaðinn til þeirra staða á landinu, þar sem þessi vara selst mest, eins og í Reykjavík, Reykjanesi eða þar, munar það náttúrlega ekki nokkrum sköpuðum hlut, þegar um svona vöru er að ræða. Það munar miklu t.d. með sement, þegar verksmiðja er sett niður á Akranesi, sem framleiðir sement. Ég býst við, að flutningskostnaðurinn frá Akranesi á því sementi, sem notað er í Reykjavík, bara munurinn á því, mundi borga slíka verksmiðju á 2—3 áratugum. Það er þá ópraktískt að setja hana þar. Þegar við því hugsum um þann iðnað, sem við viljum reisa, þurfum við að hafa fyrirhyggju um, hvað sé praktískt í þessum efnum. Það þýðir, að þjóðfélagsheildin þarf að hafa völd yfir þessu. Ég efast ekki um, að ef það er t.d. allt of mikið í einni grein á Íslandi, muni menn annaðhvort koma og fara að biðja um einhverja sérstaka vernd frá Alþingi, tollvernd, eða t.d. um það, að ekki sé veitt innflutningsleyfi fyrir einhverju slíku. Menn koma alltaf fyrr eða seinna og biðja um einhverja vernd í slíku. Það hefur líka verið þannig á sumum sviðum, að við höfum sett niður allt of margar verksmiðjur í sömu greininni. Ég skal taka dæmi af smjörlíkisverksmiðjunum hérna í Reykjavík. Ég held, að það hafi verið settar niður fjórar smjörlíkisverksmiðjur hérna í Reykjavík, þegar ein smjörlíkisverksmiðja gat framleitt allt saman. Það þýddi, að smjörlíkið varð miklu, miklu dýrara en það þurfti að vera. Hver hefur orðið afleiðingin á því sviði? Eigendur smjörlíkisverksmiðjanna sáu, að þetta var ákaflega ópraktískt, að hafa fjórar smjörlíkisverksmiðjur, en vildu hins vegar allir vera eigendur eftir sem áður. Og hvað komu þeir sér saman um? Jú, þeir komu sér saman um, að í einni verksmiðjunni skyldi allt smjörlíkið vera framleitt, sama smjörlíkið, en pakkað inn í fjórar mismunandi pakkningar, vegna þess að það er náttúrlega miklu, miklu ódýrara, þegar smjörlíki er sent út, ef það eru send 5—10 kg til eins smákaupmanns, að það sé sent í einu, hvort sem það heitir Ásgarður, Blái borðinn eða eitthvað annað, þótt það sé allt saman sama smjörlíkið, en í mismunandi umbúðum. Þannig taka kapítalistarnir sig til á vissum sviðum og taka að skipuleggja, en þá venjulega með því að halda öllum þeim kostnaði, sem þarna er, við og láta síðan ríkið borga alla þá styrki, sem það á að borga með smjörlíkisgerðunum. M.ö.o.: fyrr eða seinna kemur alltaf til kasta ríkisins í þessum efnum. Annaðhvort er það látið borga, látið setja tollvernd eða látið setja upp innflutningshöft eða annað slíkt til þess að vernda þennan iðnað. Það þýðir m.ö.o., að það er alveg óhjákvæmilegur hlutur í svona litlu þjóðfélagi eins og okkar, að reynt sé frá upphafi að skipuleggja þetta. Menn hefðu kannske um tíma sagt á vissu skeiði í þróun þjóðfélags okkar: Það er nú um að gera að lofa einstaklingsframtakinu að njóta sín sem bezt. Það er atvinnuleysi, og það er um að gera að fá að setja upp sem flestar verksmiðjur, það veitir atvinnu. — Sá tími er til allrar hamingju a.m.k. ekki lengur nú, a.m.k. hjá öllum þorra landsbúa. Ég tek sem dæmi, að við höfum núna 14 súkkulaði- og sælgætisverksmiðjur í landinu. Ég efast ekki um,að t.d. ein þeirra gæti framleitt allt það súkkulaði og sælgæti, sem menn þurfa. Ég hef séð sjálfur verksmiðju hér í Reykjavík t.d. vélar, sem framleiða karamellur, sem eigendurnir sögðu okkur um leið, þegar þm. einu sinni skoðuðu þetta, að gætu framleitt á mjög skömmum tíma allar þær karamellur, sem Íslendingar þyrftu. Ég efast hins vegar ekki um, að það muni vera til mörg sett af karamelluvélum og öðru slíku í sælgætisverksmiðjunum á Íslandi. M.ö.o. skipulagsleysið í iðnaði okkar er þannig, að við verjum að óþörfu húsnæði, mannkrafti, vélakosti og öllu slíku í framleiðslu, sem er hreinasta vitleysa að verja mannkrafti og húsnæði og vélum i. Við gætum komizt af með kannske 1—2 verksmiðjur í grein, þar sem við höfum kannske 10—20 nú.
Nú hefur verið hafður sá háttur á á undanförnum árum, að þegar kaupið hefur verið hækkað, t.d. í þessum iðnaði, hafa þessir iðnrekendur farið fram á að fá að hækka vöruna hjá sér. Og menn hafa barizt fyrir því, meira að segja í verðlagsnefndum, að þetta fengist. Þetta er hrein vitleysa. Þetta á ekki að gerast. Þegar iðnrekendur semja við verkafólk sitt um að hækka kaup, eiga þeir þar með að bera það sjálfir og þeir þeirra, sem standa ekki undir því, eiga að fá að fara á hausinn. Það þýðir, að það fækkar þá í þessari
iðngrein, það verða 1—2 verksmiðjur eftir, og þær geta framkvæmt sinn rekstur ódýrara en áður var. Ég býst við, að víða yrði það þannig hér á Íslandi, að það yrði kannske ein verksmiðja, sem yrði í einstaklingsrekstri, og ein verksmiðja, sem væri í samvinnurekstri, og ég held, að það væri ekki nema gott, að þær tvær fengju að keppa sín á milli, en hefðu um leið þann fullkomnasta útbúnað hver um sig til þess að geta staðið í þeirri samkeppni, en væru ekki allar saman með lélegan útbúnað og ópraktískan rekstur og stæðu svo saman um það í verðlagsnefndunum að heimta af almenningi að fá að hækka verðið á sinni vöru eins og núna er, gera samsæri gagnvart almenningi um að hækka í sífellu verðlagið á vörunum og taka aldrei að sér að skipuleggja reksturinn betur og sýna, hvaða vit er í því að kunna að stjórna sinum atvinnurekstri. Það er þess vegna lífsnauðsyn fyrir íslenzkt atvinnulif, ef ekki á annars vegar að halda áfram þessi ægilegi fólksflótti, sem nú, frá því að kapítalisminn byrjaði hér á Íslandi um aldamótin, hefur einkennt Ísland, það, að meginhluti allrar byggðar dregst saman á þetta litla svæði, sem einu sinni var einn eða tveir hreppar, og hins vegar, ef á að vera hægt að koma almennilegu skipulagi á íslenzkan iðnað. Ég á ekki aðeins við það, sem hægt er að kalla íslenzkan iðnað í þrengri merkingu, þar sem framleitt er fyrir innanlandsmarkað. Ég á líka við þann iðnað, sem framleiðir fyrir erlendan markað. Ég hef áður komið að því hér og skal ekki endurtaka það nú, að bara t.d. á því litla svæði eins og frá Sandgerði til Reykjavíkur eru 17 hraðfrystihús. Okkur væri þörf á, að þar væri stærri rekstur og praktískari rekstur. Ég held þess vegna, að rökin, sem liggja fyrir því, að þarna þurfi að breyta um stefnu og taka upp heildarstjórn á þjóðarbúskap okkar og fyrst og fremst heildarstjórn á fjárfestingunni, séu það sterk rök, að móti þeim verði ekki staðið nema með því að berja höfðinu við steininn og rota sig með því að lokum.
Þá skal ég nú taka fyrir afstöðu hinna einstöku stjórnmálaflokka gagnvart þessu atriði á undanförnum árum. Ég skal fyrst taka Sjálfstfl. Sjálfstfl. hefur verið sá flokkur, sem af öllum stjórnmálaflokkum hefur staðið mest á móti þessu atriði. Hann lýsti sig á þeim árum, sem t.d. sá gamli Alþfl. fyrir 1930 hóf baráttuna fyrir þessu, algerlega andvígan þessu og algerlega andvigan öllum þeim afskiptum, sem gengu eitthvað í þessa átt, og þegar stjórn Frams. og Alþfl. var mynduð hér á Íslandi 1934, sem sérstaklega átti einmitt að vinna að þessum hlutum, neitaði Sjálfstfl. að taka þátt í þeirri nefnd, skipulagsnefnd atvinnumála, sem þá var sett, einmitt vegna andstöðu sinnar gegn þessu. Ég man einnig eftir því 1947, þegar stjórn undir forsæti Stefáns Jóh. Stefánssonar tók við og lýsti því yfir með l. um fjárhagsráð, að hún ætlaði sér að koma á áætlunarbúskap á Íslandi, þá lýsti einmitt núv. hæstv. forsrh. yfir þvert ofan í orð forsrh., Stefáns Jóh. Stefánssonar, að það mundi nú kannske ekki verða eins mikið úr framkvæmdunum og stæði í inngangsgreininni í l. um fjárhagsráð. Og það sýndi sig líka, að í reyndinni var það allt saman eyðilagt, sem forsrh. þá hafði lýst yfir að væri tilgangur Alþfl. með þeirri löggjöf. Sjálfstfl. gaf síðan , þegar hann myndaði núv. ríkisstj., yfirlýsingu um, að það væri stefna hans að láta á sviði efnahagslífsins þá aðila, sem þar væru aðalöflin, verkamenn annars vegar og atvinnurekendur hins vegar, eigast við og Sjálfstfl. hefur þverbrotið þetta prinsip, þverbrotið þessa yfirlýsingu allan tímann síðan.
Ég held þess vegna, að ef Sjálfstfl. vili nokkuð átta sig á þeim staðreyndum, sem hann sjálfur hefur staðið að núna í 3 ár, sé kominn tími fyrir þann flokk endanlega að yfirgefa allar yfirlýsingar um, að efnahagslifið geti gengið í þjóðfélaginu, án þess að á því sé heildarstjórn, fyrst og fremst á fjárfestingu þess. Afskiptaleysið af efnahagslífinu er óframkvæmanlegur hlutur á Íslandi. Það er óðs manns æði af nokkurri ríkisstj. að láta sér detta slíkt í hug, og hver ríkisstj., sem gefur yfirlýsingar um það, eins og núv. hæstv. ríkisstj. hefur gert, mun fara á rassinn með það og hefur þegar gert það. Þeir hafa flutt hvert frv. á fætur öðru einmitt um efnahagsmál, um styrki, um uppbætur, um afskipti, um ákvörðun um deilur á milli atvinnurekenda og verkamanna, um hvernig megi semja, banna að semja og ákveða allt mögulegt annað slíkt. Þessi stefna Sjálfstfl. hefur því beðið algert skipbrot, er algerlega gjaldþrota, og það þarf Sjálfstfl, að þora að horfast í augu við sem stærsti flokkur þjóðarinnar, að það er alveg óþolandi skortur á raunsæi að sjá ekki, að svona getur þetta ekki gengið áfram. Á einu sviði segist þessi flokkur nú hafa farið dálítið inn á þetta, og við munum eftir, að það var fyrir síðustu kosningar gefin út bók um þjóðhagsáætlun. Þar með var með vörunum verið að tæpa á því af hálfu Sjálfstfl., að hann gæti hugsað sér eitthvað í þessa áttina. En um hvað var sú þjóðhagsáætlun? Sú þjóðhagsáætlun var fyrst og fremst um þann þátt, sem ríkið á í framkvæmdum á Íslandi, um, hvernig þeim þætti skyldi hagað, en ekkert um, hvað gera skyldi viðvíkjandi þeirri fjárfestingu, sem einkaatvinnurekendurnir og aðrir hafa með að gera. Hvað gerist svo núna á fyrsta þingi eftir þessar kosningar, eftir að þjóðhagsáætlunin hefur verið gefin út og verið send út um allt land og notuð sem mikið plagg í kosningunum? Þá gerist það, að samþykkt er ein ósköp lítil grein, sem smokkað er inn í önnur lög um, að álit, sem snertir framkvæmdir ríkisins, allt, sem sé á fjárl. um framkvæmdir ríkisins, það megi draga úr því, það megi fella það niður og það megi breyta því rétt eins og ríkisstj. þóknast. M.ö.o.: því litla, sem þjóðhagsáætlunin var um í upphafi, sem gefin var út fyrir kosningar, er hægt að breyta núna á eftir. Og af hverju neyðist þingmeirihl. hérna til þess að gefa svona yfirlýsingu þvert ofan í sina þjóðhagsáætlun og gera svona ráðstafanir? Jú, vegna þess að hann tekur eftir því, að sá þáttur þjóðarbúskaparins, sem einstaklingarnir, einkaatvinnurekendurnir hafa með að gera, verður utan við alla áætlunina, og hann reyndist svo fyrirferðarmikill að áliti hæstv. ríkisstj., að það var nauðsynlegt, að ríkið færi að skera niður af sínum þætti þess vegna.
M.ö.o.: vegna þess að það hafði ekki verið hugsað um að skipuleggja þann þátt þjóðarbúskaparins, sem einkaatvinnurekendurnir hafa með að gera, varð að fara að kollvarpa á eftir þeirri áætlun, sem gerð hafði verið um þann hluta, sem ríkisbúskapurinn var. Þetta sýndi, að það er óhugsandi að ætla að starfa að þjóðarbúskap á Íslandi öðruvísi en að gera áætlun um leið um ríkisbúskapinn og um þann hluta þjóðarbúskaparins, sem hinir einstöku atvinnurekendur hafa með að gera. Heildarstjórn á þjóðarbúskapnum, heildaráætlun um þjóðarbúskapinn og sérstaklega fjárfestinguna er í þessu efni alveg óhjákvæmileg.
Ég held þess vegna, að Sjálfstfl. hafi rekið sig svo á í þessum málum, að hann ætti nú að fara að sjá, að þarna verður að breyta til. Hann hefur í ýmsum yfirlýsingum farið inn á þetta, viðurkennt þetta í orði, en á ákaflega bágt með að losa sig við sinar aldargömlu kenningar, sem kenndar voru á sínum tíma, fyrir 100 árum, við Manchester, að losa sig við þær í framkvæmd.
Þá er það í öðru lagi Framsfl. Um hann gegnir dálitið öðru máli í þessum efnum. Hann hefur ekki frá upphafi verið algerður andstæðingur. Þessara áætlana í orði. Hins vegar er nokkuð annað upp á teningnum, þegar farið er að athuga framkvæmdir hans. Og það liggur fyrir frá hálfu framsóknarmanna nú till. hér í þinginu, mjög eftirtektarverð till., sem hv. 6. þm. Sunnl. og fleiri framsóknarmenn fluttu hérna, um að auka í þjóðhagsáætluninni hagvaxtarprósentuna, og um þá till. urðu allmiklar umr. hér. M.a. fór hæstv. menntmrh. mjög ýtarlega inn á þá till. og hélt mjög merkilega ræðu í því sambandi, en síðan hefur það mál ekki verið tekið á dagskrá, þannig að þær umr. gætu haldið áfram. En í sambandi við þær umr. hélt frsm., hv. 6. þm. Sunnl., ræðu, þar sem hann rakti nokkuð afstöðu Framsóknar í þessum efnum. (Forseti: Ég bið hv. þm. afsökunar, en forseti er knúinn til þess að slíta nú fundi og vildi því beina þeim tilmælum til hv. þm., að hann geri nú hlé á ræðu sinni, ef hann má.) Ég skal gera það. [Frh.]