16.03.1964
Neðri deild: 69. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (1945)

34. mál, áætlunarráð ríkisins

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Mér finnst þetta mál, sem hér er til umr., vera það athyglisvert, að það sé rétt, að fleiri segi þar nokkuð um en hv. flm. Auk þess hefur hv. flm. gerzt hér í ræðustólnum sagnfræðingur með slíkum hætti,að mér finnst rétt að gera nokkrar aths. við það.

Það má segja, að í þeim málum, sem hér ræðir um; séu nú uppi þrjár meginstefnur í heiminum. Ein stefnan er sú, sem má sérstaklega kenna við Bandaríkin, þar sem þessir hlutir eru látnir vera nokkurn veginn skipulagslausir. Það er svo annað kerfið, sem haft er í sósíalistísku löndunum, þar sem fylgt er mjög ströngum áætlunarbúskap, og svo í þriðja lagi það kerfi, sem Norðurlönd hafa sérstaklega fylgt, þar sem reynt er að fara bil beggja í þessum efnum, þar sem stuðzt er að vissu leyti við áætlunarkerfi, en þó án þess að það þrengi óeðlilega að hinu frjálsa framtaki einstaklinga og félagssamtaka. Og ég held, að það leiki ekki neitt á tveimur tungum, að það kerfi, sem hefur gefizt bezt í þessum efnum og farsælast hefur reynzt, sé það, sem Norðurlönd hafa búið við.

Eins og réttilega kom fram hjá hv. flm., hefur það skipulagsleysi, sem hefur ríkt í þessum efnum í Bandaríkjunum, hvergi nærri gefizt vel, þó að þar hafi orðið mikill árangur á ýmsum sviðum, en þar hafa alls konar misfellur átt sér stað, sem kemur m.a. fram í því, að mitt í öllum þeim allsnægtum, sem þar eru, eru þar í landinu stórar atvinnuleysiseyjar, ef svo mætti að orði komast, sem stafa af því, að þar hefur ekki verið haft nægilegt skipulag á fjárfestingu og framkvæmdum í landinu. Ef við aftur á móti gefum svo gaum að hinu stranga áætlunarkerfi sósialistísku landanna, sjáum við fljótt mjög ljóslega, að þar hafa oft og tíðum stórkostleg mistök átt sér stað, vegna þess að skipulagið hefur verið of strangt, áætlanir stundum reynzt alrangar. Ég minnist þess t.d. í þessu sambandi, sem ég heyrði um nýlega í einu landi austantjalds, þar sem ég ferðaðist um, Austur-Þýzkalandi, þar var sú áætlun gerð fyrir nokkrum árum, að þeir réðust í það samkv. sínu áætlunarkerfi að byggja mikla flugvélaverksmiðju, flugvélaiðnaðurinn átti að verða mikill iðnaður í landi þeirra, og þeir lögðu í þetta stórkostlega fjármuni, en niðurstaðan varð sú, að þeir töldu þetta hins vegar ekki heppilegt og hafa alveg hætt þessum iðnaði, og er þarna að sjálfsögðu sóað stórkostlegum fjármunum. Annað dæmi, sem er kannske enn þá kunnara í þessum efnum, er það, hvernig rússneska ríkisstj. réðst í það fyrir nokkrum árum að taka land til ræktunar, sem talið var vafasamt að væri hæft til ræktunar, og lagði stórkostlega fjármuni í þessar framkvæmdir, en lét aftur á móti aðrar aðgerðir á landbúnaðarsviðinu eiga sig. Nú hefur niðurstaðan orðið sú eða er að verða sú, að þeir eru að hætta við ræktun þessa lands að mestu eða öllu leyti, en snúa sér hins vegar í staðinn að öðrum framkvæmdum á sviði landbúnaðarins, sem voru áður látnar mæta afgangi, og hefur þetta orðið til stórfelldrar truflunar á þeirra atvinnulífi, sem á sinn þátt í því m.a., að þeir hafa orðið á þessu ári að flytja inn stórkostlega mikið af landbúnaðarvörum, sem þeir höfðu ekki áður þurft og þeir hefðu sennilega ekki þurft að gera, ef áætlunarkerfið hefði ekki verið svona strangt hjá þeim og þeir ráðizt í rangar aðgerðir á sínum tíma.

Þessi dæmi, sem ég hef nú nefnt, sýna það, að kerfi skipulagsleysisins, sem búið hefur verið við í Bandaríkjunum, er óheppilegt. Á sama hátt hefur kerfi hinna ströngu áætlunarframkvæmda, eins og í sósíalistísku löndunum, líka reynzt óheppilegt, en það kerfi hefur tvímælalaust reynzt bezt, sem hefur reynt að þræða þarna mitt á milli, styðjast á vissan hátt við áætlunarbúskap, en skerða þó ekki óeðlilega framtak einstaklinga og félagssamtaka, eins og gert hefur verið á Norðurlöndum. Það hefur án efa gefizt langbezt, og það er það kerfi, sem við eigum tvímælalaust að fylgja hér á landi.

Hvað afstöðu flokkanna hér á landi snertir, hygg ég, að það megi lýsa henni í stórum dráttum á þann veg, að Sjálfstfl. hallast fyrst og fremst að hinu ameríska kerfi, Alþb., sem svo kallar sig, vill fylgja hinu stranga áætlunarkerfi sósíalistísku landanna, en aftur á móti hygg ég, að það megi frekar segja um Framsfl. og Alþfl., að þeir vilji fylgja svipuðum háttum í þessum efnum og átt hafa sér stað á Norðurlöndum, og að því eigum við tvímælalaust að snúa okkur.

Ég skal svo láta þennan inngang nægja sem almennt yfirlit í þessum efnum, en snúa mér að sagnfræði hv. flm. Og hann fór langt aftur í tímann í þeim efnum eða a.m.k. ein 20—30 ár, og ég skal þá gjarnan gera það einnig.

Ég held, að ef við lítum yfir þetta tímabil, sem hann minntist á, eða allt frá 1930, séu það 4 ár, sem skera sig úr, þar sem sérstaklega hefur verið reynt að fylgja því, sem hefur mátt kalla áætlunarbúskap, án þess þó að honum væri beinlínis komið fram formlega. En þessi ár eru árin 1934-1938, þegar stjórn Alþfl. og Framsfl. sat að völdum. Þá var með margvislegum hætti reynt að halda uppi skipulegum framkvæmdum og fjárfestingaraðgerðum, sem báru mjög verulegan árangur, þrátt fyrir það þó að þá væru að ýmsu leyti erfiðari aðstæður en nokkru sinni fyrr og síðar, vegna þess að þá var enn þá barizt við afleiðingar heimskreppunnar. Á þessum árum t.d. var að mjög verulegu leyti byggður upp síldariðnaðurinn, sem síðan hefur verið mikil undirstaða í þjóðarbúskapnum. Á sama hátt var á þessum árum byggður upp hraðfrystihúsaiðnaðurinn, sem einnig hefur síðan verið stór þáttur í íslenzkum þjóðarbúskap. Og þetta hvort tveggja var gert með mjög skipulegum aðgerðum af hálfu ríkisstj. og banka og annarra aðila á þessum tíma„ enda starfaði þá sérstök nefnd, sem bar nafnið Rauðka, til þess að vinna að skipulagningu þessara mála. Það var einnig á þessum árum, sem unnið var að rannsóknum á byggingu sementsverksmiðju og áburðarverksmiðju, og þær rannsóknir urðu síðan grundvöllur þess, að ráðizt var í þessar framkvæmdir. Ég skal ekki rekja þetta nánar að þessu sinni, en ég held, að það sé óhætt að segja, að hvað snertir það, sem kalla má áætlunarbúskap, séu það þessi 4 ár á undanförnu 20—30 ára tímabili, sem einkenna sig mest að því leyti, að þá hafi verið reynt að stjórna á þann hátt að hafa sem bezta skipulagningu á fjárfestingunni. Það má líka jafnframt rifja það upp í þessu sambandi, að á þessum árum var byggt tiltölulega meira af verkamannabústöðum og á vegum samvinnubyggingarfélaganna en nokkru sinni fyrr og þannig reynt að leysa húsnæðismálin á skipulagðan hátt. Ég hygg, að ef samstarf þessara flokka hefði haldizt, mundi þessi þróun einnig hafa haldizt.

En í tilefni af því, sem hv. flm. var hér að rifja upp um afstöðu annarra flokka og áhrif þeirra á þróun í þessum efnum, finnst mér ekki úr vegi í þessu sambandi að rifja það upp, hver var meginástæðan til þess, að þetta samstarf hélt ekki áfram. Meginástæðan var sú, að á þessum árum kom hinn svokallaði Kommúnistaflokkur til sögunnar. Hann veikti Alþfl. svo mikið, að það var ekki hægt að halda þessu samstarfi áfram. Hins vegar voru starfshættir Kommúnistaflokksins á þeim árum þannig, að samstarf við hann var þá útilokað. En tvímælalaust var það klofningsstarf Kommúnistaflokksins á þessum árum, sem eyðilagði þá samvinnu, sem hér hafði átt sér stað og vildi þróunina í mjög heilbrigða átt í þessum efnum, og það má þess vegna fyrst og fremst skrifast á reikning þeirra, að ekki varð áframhald á því starfi, sem unnið var á árunum 1934-1938 og þá var lagður grundvöllur að og áreiðanlega hefði reynzt heppilegur þjóðinni og hollur, ef hann hefði getað haldizt áfram.

Næst finnst mér svo rétt að víkja að því, að hinn óvenjulega mikli gróði, sem þjóðinni hlotnaðist á stríðsárunum, lagði grundvöll að því, að hér yrði hægt að byggja upp efnahagslíf á skipulagslegan hátt og nokkuð öruggum grundvelli. Í samræmi við það fluttu framsóknarmenn á þingi haustið 1942 till. þá, sem ég leyfi mér nú að lesa, með leyfi hæstv. forseta. Hún hét: „Till. til þál. um undirbúning verklegra framkvæmda eftir styrjöldina og endurskoðun á skipulagi stóratvinnurekstrar í landinu“ — og till. hljóðar á þessa leið:

„Alþingi ályktar að kjósa 5 manna mþn. til að gera áætlanir og till. um framkvæmdir í landinu, þegar stríðinu lýkur og herinn hverfur á brott. í till. verði að því stefnt, að þær framkvæmdir, sem veita skulu atvinnu fyrst í stað, verði jafnframt undirstaða að aukningu atvinnurekstrar og framleiðslu í landinu. N. skal enn fremur gera till, um fyrirkomulag á stóratvinnurekstri í landinu og afskipti ríkisvaldsins af þeim málum. Lögð verði áherzla á, að skipulag atvinnurekstrarins tryggi sem bezt, að stórfyrirtækin séu rekin með almenningshag fyrir augum og þeir, sem að honum vinna, beri úr býtum endurgjald fyrir störf sín í samræmi við afkomu atvinnurekstrarins. N. er heimilt að taka sér til aðstoðar sérfróða menn í einstökum verkefnum, sem henni eru falin til meðferðar í till. þessari. Kostnaður við nefndarstörfin greiðist úr ríkissjóði:

Þessi till. ber það mjög glöggt með sér, að það, sem vakti fyrir framsóknarmönnum á. þessum tíma, haustið 1942, var að taka upp eins konar áætlunarbúskap, a.m.k. hvað alla fjárfestingu snerti í landinu á næstu árum í því augnamiði, að stríðsgróðinn hagnýttist þjóðinni sem bezt. Þessi till. framsóknarmanna fékk góðar undirtektir á Alþingi og var samþykkt þar samhljóða, og í framhaldi af henni var sett á laggirnar sérstök mþn., eins og till. gerði ráð fyrir, sem hóf skipulegan undirbúning að því verkefni, sem henni var falið að vinna að, og þegar komið var fram á árið 1944, var þegar orðinn verulegur árangur af starfi n., þar eð hún var búin að afla margvislegra upplýsinga, þó að hún hins vegar ætti eftir að ganga frá skipulögðum áætlunum í þessum efnum. En haustið 1944 er störfum n. skyndilega hætt. Og hvers vegna var störfum n. hætt þá? Þeim var hætt vegna þess, að þá kom til valda ný ríkisstj. í landinu, hin svokallaða nýsköpunarstjórn. Og þar átti ekki Alþb., heldur fyrirrennari þess, Sósfl., ekki óverulega þátttöku, og það var ekki sízt að ráðum hans, sem þessi nefnd var lögð niður. Í staðinn var sett á laggirnar ný nefnd, sem átti að vísu að gera enn þá meira og var kölluð nýbyggingarráð, og þetta nýbyggingarráð átti að semja 5 ára áætlun um nýsköpun atvinnulífsins í landinu. í þessu ráði átti sæti sá hv. þm., sem talaði hér næst á undan mér. Hann átti sæti í þessu ráði hátt á þriðja ár. Hvað var það, sem þetta ráð gerði? Samdi það kannske ekki þessa 5 ára áætlun? Það hefði maður mátt halda af þeirri ræðu, sem hv. flm. hélt hér áðan. Nei, frá nýbyggingarráði kom engin áætlun, ekki nein 5 ára áætlun og ekki neins konar áætlun. En það gerðist hins vegar á þessum tíma, sem þetta ráð sat að völdum og þessi ríkisstj. sat að völdum, að það hefur aldrei ríkt meira skipulagsleysi í efnahagsmálum þjóðarinnar og fjárfestingarmálum þjóðarinnar en einmitt þá. Eftir þetta tveggja ára tímabil, sem þessi stjórn sat að völdum, sem þóttist sérstaklega ætla að vinna eftir skipulögðum áætlunum að sínum framkvæmdum, var ástandið þannig, að það var búið að. eyða öllum hinum mikla stríðsgróða, sem áður hafði safnazt, án þess að nokkur raunveruleg og skipulagsleg uppbygging hefði átt sér stað, ef undan á að skilja kaup þeirra togara, sem þá var samið um. Það var ekki ráðizt í neinar stórar raforkuframkvæmdir á þessum árum eða stríðsgróðinn notaður til þess. Það var ekki ráðizt í að byggja neinar stórar verksmiðjur eins og sementsverksmiðjuna eða áburðarverksmiðjuna á þessum árum. Þá var mjög takmarkað unnið að ræktun í sveitum landsins og uppbyggingu þar. Og það var sáralítið unnið að skipulagðri lausn á íbúðabyggingamálum í kaupstöðunum, því að ég get ekki kallað það lausn, sem átti sér stað á þessum tíma, að hermannabraggarnir voru gerðir að eins konar verkamannabústöðum.

Þetta var nú árangurinn af þessari áætlun, sem átti að koma hjá nýsköpunarstjórninni og hefði mátt ætla að hefði verið einhver önnur en þetta af þeim orðum, sem hv. 3. þm. Reykv. lét falla hér áðan. Nei, sannleikurinn er sá, að ef nokkurn tíma hafa átt sér stað' svik í sambandi við þessi áætlunarmál og áætlunarbúskap, var það einmitt á þessum árum og þessu tímabili, þegar Sósfl. réð hvað mestu og hv. flm., 3. þm. Reykv., var einn aðalmaðurinn, sem átti að sjá um framkvæmdirnar í þessum efnum. Ég held, að þegar þetta er athugað, farist þessum hv. þm. alveg sérstaklega illa að vera að skjóta geiri að Framsfl. fyrir það, hvernig hann hefur haldið á, hver afstaða hans hefur verið til þessara mála og hvaða verk liggja eftir hann á þessu sviði. Það liggur sem sagt hér fyrir alveg skjalfest og greinilega í þingtíðindunum, að Framsfl. átti frumkvæði að því strax á árinu 1942, að reynt er að nota stríðsgróðann til skipulagslegrar upphyggingar og eðlilegrar fjárfestingar í landinu, en þetta verk var einmitt eyðilagt af nýsköpunarstjórninni, sem Sósfl. var einn aðalflokkurinn í og þar sem hv. 3. þm. Reykv. réð hvað mestu.

Síðan þetta gerðist, er það rétt hjá hv. 3. þm. Reykv., að það hefur ekki tekizt að koma á því, sem hægt er að kalla áætlunarbúskap eða skipulagðri fjárfestingu, og hv. 3. þm. Reykvíkinga veit ofur vel, hvaða ástæða liggur þar mest til grundvallar. Það er vegna þess, að allan þann tíma síðan, að undanskildum vinstristjórnarárunum, sem ég mun koma sérstaklega að, hefur Sjálfstfl. átt aðild að ríkisstj., og Sjálfstfl. er mótfallinn því, að slíkur háttur verði á hafður, og hefur að sjálfsögðu beitt áhrifum sinum til þess og virðist halda áfram að gera það.

Skiptir engu máli, hvaða flokkar það eru, sem eiga sæti í stjórn með honum, í sambandi við það.

En hver er meginástæðan til þess, að Sjálfstfl. hefur haft aðstöðu til þess að sitja í stjórn allan þennan tíma? Meginástæðan, sem hefur átt sinn þátt í því, að hér hafa verið aðrir stjórnarhættir en annars staðar á Norðurlöndum, er tvímælalaust fyrst og fremst sú, hve kommúnistaflokkurinn hefur verið sterkur, og það klofningsstarf, sem hann hefur unnið í þjóðfélaginu, hefur gefið Sjálfstfl, þá sterku valdaaðstöðu, sem hann hefur haft á þessum tíma, og beint í framhaldi af því skal ég minnast á það, sem hv. þm. sagði um vinstri stjórnina.

Hvers vegna var það, sem vinstri stjórnin framkvæmdi ekki fyrirheit sitt um áætlunarbúskap og ýmis önnur loforð, sem hún gaf? Það var vegna þess, hve stuttur valdaferill vinstri stjórnarinnar var, og það var vegna þeirrar óeiningar, sem ríkti innbyrðis hjá þeim flokkum, sem að vinstri stjórninni stóðu. Það byrjaði nefnilega með því, fljótlega eftir að vinstri stjórnin kom til valda, að áhrifamiklir menn í stjórnarflokkunum og áhrifamesti maðurinn í Alþb, byrjaði á því að vinna á móti ríkisstj. Það gerðist t.d. hér á Alþingi vorið 1958; þegar verið var að afgreiða efnahagslög, að valdamesti leiðtogi Alþb. gekk í lið með stjórnarandstöðunni og greiddi atkv. gegn till. vinstri stjórnarinnar. Ég hygg, að hv. 3. þm. Reykv. minnist þess, hver þessi valdamikli maður Alþb. var, sem greiddi þá atkv. á móti flokksbræðrum sínum og með Sjálfstfl. gegn vinstri stj. Og nokkrum vikum seinna gerðist svo það, að þessi sami hv. þm., sem hefur hvað eftir annað játað það opinberlega og hælt sér af, gekk til liðs við Bjarna Benediktsson í verkföllum, sem höfðu fyrst og fremst þann tilgang að steypa vinstri stjórninni, eins og líka reyndin varð. Og það er óskóp skiljanlegt, að stjórn, sem þannig þarf að berjast við ágreining í sínum eigin röðum, er meira og minna sundurþykk, getur litið framkvæmt af þeim málum, sem hún hefur tekizt á hendur að framkvæma. Tími þeirra manna, sem veita slíkri stjórn forstöðu, fer fyrst og fremst í það að reyna að halda stjórninni saman og lifa frá degi til dags, eins og reyndin varð um vinstri stjórnina, vegna þess, hvernig ástatt var innan Alþb. Þetta er meginástæðan til þess, að vinstri stjórninni tókst ekki að vinna að þessu máli fremur en ýmsum ágætum málum, sem hún hafði ásett sér að vinna að. Það var þessi ágreiningur, sem átti alveg sérstaklega rætur að rekja til hv. 3, þm. Reykv., eins og ég hef nú minnzt á. Þetta er meginskýringin á því, vegna hvers ekki var hægt að leysa þetta verkefni á vinstristjórnarárunum frekar en ýmis önnur, sem nauðsynlegt hefði verið að vinna að.

Ég held, að ég láti þessi atriði nægja til að svara því, sem kom fram hjá hv. 3. þm. Reykv., flm. þessa frv., og snerti fortíðina í þessum efnum. Ég held nefnilega, að, niðurstaðan verði sú, þegar maður rifjar þessa sögu upp, að þá sé það hvorki Framsfl. né Alþfl., sem eigi mesta sök á því, að ekki hefur verið hægt að halda uppi skipulögðum áætlunarbúskap eða vinna samkv. heilbrigðum áætlunarbúskap hér á undanförnum árum. Það eru fyrst og fremst Alþb. og Sósfl., sem hafa átt þátt í því með ýmsum hætti. Það var þessi aðili, sem raunverulega eyðilagði það samstarf milli Alþfl. og Framsfl., sem var hér á árunum 1934-38 og hefði haldið áfram, ef Kommúnistaflokkurinn hefði ekki komið til sögunnar. Það var þetta klofningsstarf Alþb., sem að vísu kallaði sig þá Sósfl., sem gerði Alþfl. svo veikan, að hann var ekki fær um að vera aðili að þessu samstarfi. Og það var nýsköpunarstjórnin sæla, sem kom í veg fyrir það, að framkvæmd yrði sú till. Framsfl. að nota stríðsgróðann til heilbrigðrar og eðlilegrar uppbyggingar. Og það voru óróaöflin í Alþb. á sinum tíma, sem áttu meginþátt í því að gera vinstri stjórnina óstarfhæfa, eins og ég nú hef lýst. Þar að auki er það líka vitanlegt, að ef Alþb. fengi aðstöðu til þess að fylgja fram þeirri stefnu, sem það leggur megináherzlu á í þessum efnum, er erfitt að vinna með því, vegna þess að það leggur vitanlega mesta áherzlu á að fylgja sams konar áætlunarbúskap í þessum efnum og fylgt er í sósíalistísku ríkjunum og hefur langt frá því gefizt vel, eins og ég hef rakið hér áður. Og frá þeirri stefnu verður það að sjálfsögðu að víkja, ef það á einhvern tíma að verða starfhæfur aðili í þessum efnum. En það er vitanlegt mál, a.m.k. eins og stakir standa enn, að það eru mjög sterk öfl í Alþb., sem sjá enga fyrirmynd og vilja engum öðrum fyrirmyndum fylgja en þeim, sem blasa við augum fyrir austan tjald og eiga ekki við þar nema að mjög takmörkuðu leyti og eiga þó enn þá síður við hér.

Ég held, að ég láti þetta nægja að sinni til að svara þeim atriðum, sem komu fram hjá hv. flm., hv: 3, þm. Reykv., en mér fannst málið vera það merkilegt, að það væri rétt að segja um það nokkur orð, og jafnframt yrði ekki komizt hjá því að leiðrétta ýmsar skekkjur, sem hefðu komið fram í þeirri sagnfræði, sem hann hélt hér fram.