20.12.1963
Efri deild: 33. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (195)

95. mál, vegalög

Helgi Bergs:

Herra forseti. Ég skal nú ekki fara mörgum orðum um þetta mál að þessu sinni, en ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni yfir því, að hæstv. samgmrh. hefur nú enn á ný staðfest það, að fjárveitingar á 13. gr. fjárl. muni nema 47.1. millj. eins og gert er ráð fyrir í grg. frv.

Á þskj. 167 lagði ég fram við 2. umr. tvær brtt., sem ég tók aftur til 3. umr. við atkvgr. í gær. Í sambandi við fyrri lið þeirrar till. beindi ég nokkrum fsp. til hæstv. samgmrh. og óskaði eftir því, að hann léti í ljós skoðun sína á því, hvernig hann hygðist beita ákvæðum 95. gr. og í hvaða tilgangi þau hefðu verið þar sett. Hæstv. samgmrh. fór um þetta nokkrum orðum í ræðu sinni hér áðan og upplýsti, að þessi heimild hefði verið sett þarna fyrst og fremst með tilliti til Keflavíkurvegarins. Ég ræddi að vísu um það nokkrum orðum í gær, að það kynni að vera vafasamt að gera einn slíkan veg, sem er aðalsamgönguæð allmargra landsmanna við höfuðborgina, að tollvegi, þegar aðrir þurfa ekki að greiða fyrir umferð um tilsvarandi vegi, sem við vonumst nú eftir að verði víðar innan fárra ára. Á hinn bóginn lét ég þess einnig getið í gær, að ég væri ekki með þessari brtt. að taka afstöðu í grundvallaratriðum gegn hugmyndinni um vegtolla yfirleitt. Ástæðan til þess, að ég bar fram þessa brtt., var öllu frekar sú, að ég vildi fá tækifæri til þess að vekja athygli á því, sem þarna er um að ræða, og fá umsögn hæstv. samgmrh. um þau atriði og skoðanir hans og skýringar, og með því að hann hefur nú gefið hóflegar og skynsamlegar skýringar á þessari grein og hvernig hann gerir ráð fyrir að henni verði beitt, mun ég eftir atvikum taka till. mína í fyrsta lið á þskj. 167 aftur.

Hins vegar liggur enn fyrir 2. liður till. minnar á þskj. 167, sem er um það, að bætt verði við ákvæði til bráðabirgða um það, að Alþingi kjósi á árinu 1965 mþn. til að endurskoða þessi lög í samráði við vegamálastjóra, en till. þessi var einnig flutt í Nd., af hv. 3. þm. Norðurl. e. Ég leiddi að því nokkur rök í gær, að ástæða væri til þess, að Alþingi gerði þegar í stað ráð fyrir því, að þessi lög yrðu fljótlega endurskoðuð. í ræðu sinni hér í gær gerði hv. 8. landsk. þm. þetta nokkuð að umræðuefni og taldi ekki ástæðu til þess að samþykkja þessa till. og færði fram sem eina af sínum ástæðum fyrir því það, að í henni fælist vantraust á þá nefnd, sem hefði undirbúið þetta frv. Þetta var nú næsta einkennileg röksemdafærsla og alveg sérstaklega þegar þess er gætt, að ég hafði í ræðu minni farið lofsamlegum orðum um undirbúning málsins og frágang frv. Ég get ekki fallizt á að taka slíka röksemdafærslu til greina og finnst hún í hæsta máta einkennileg. Ég mundi vilja beina því til hv. 8. landsk. af því tilefni, hvort honum finnist það þá ekki líka vantraust á þá nefnd, sem undirbjó þetta frv., að Alþingi sé yfirleitt að rýna nokkuð í það í staðinn fyrir að renna því gegnum sex umr. án þess að skoða það. Auðvitað er það Alþingi, en ekki n., sem ber ábyrgð á þeim l., sem það er að afgreiða, og Alþ. verður að taka sjálft afstöðu til þeirra á eigin ábyrgð, en ekki á ábyrgð þeirra manna, sem málið hafa. undirbúið.

Skal ég svo ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni, en mæli með samþykkt brtt. minnar í 2. lið á þskj. 167 og samþykkt frv. að öðru leyti.