26.11.1963
Neðri deild: 20. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (1983)
67. mál, strandferðaskip fyrir siglingaleiðina Vestmannaeyjar - Þorlákshöfn
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil taka það fram, að við Alþb. menn styðjum það frv., sem hér er flutt af tveimur hv. framsóknarmönnum um smíði á nýju strandferðaskipi fyrir siglingaleiðina Vestmannaeyjar—Þorlákshöfn.
Eins og hér hefur fram komið, var á síðasta þingi flutt hér shlj. frv. þessu, og 1. flm. þess var þá Karl Guðjónsson, þáv. 6. þm. Sunnl. Okkur er það ljóst, að það er orðin knýjandi nauðsyn á því, að ráðizt verði í þær framkvæmdir, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., því að það ástand, sem Vestmanneyingar og aðrir þeir, sem á samgöngum þurfa að halda þangað út eiga við að búa, er löngu orðið ófullnægjandi. Ég verð því að segja, að mér þykir það mjög miður að heyra, að hv. 3. þm. Sunnl., sem hér var að ljúka við ræðu sína og er sjálfur heimamaður í Vestmannaeyjum, skuli hika við það að lýsa yfir fullu fylgi sínu við það frv., sem hér liggur fyrir, og skuli enn bera því við, að hann telji, að þetta mál þurfi að athugast nánar, það þurfi meiri athugunar við en enn hafi farið fram o.s.frv. Ég ætla þó, að till. um þetta efni eigi engum manni frá Vestmannaeyjum að koma að óvörum. Ég hygg, að þeir hafi fyllilega gert sér ljóst og fundið á undanförnum árum, hvað var að gerast í þessum málum, og þeir hafi sannarlega hugleitt það, hver voru helztu úrræðin. Auk þess hefur svo þetta mál, eins og hér hefur fram komið, legið fyrir Alþingi fyrr en nú, og hvað er það í þessu máli, sem ekki hefur gefizt tími til þess að athuga? Hvað er það í þessu máli, sem gerir menn enn þá óákveðna um afstöðu til þess? Það er skoðun okkar Alþb.-manna, sem um þetta mál höfum rætt nokkrum sinnum hér áður, að það sé búið að eyða of löngum tíma í það að taka ákvörðun í þessu máli, því að það er gersamlega ljóst, hvað til stendur. Hafnargerðin í Þorlákshöfn er þegar komin á þann rekspöl, að allar líkur eru til þess, að það skip, sem hér er verið að gera ráð fyrir að útvega Vestmanneyingum, komi seinna en aðstæður þar fyllilega leyfa, til þess að afgreiðsla skipsins geti verið með eðlilegum hætti. Auk þess hefði svo sem ekki, jafnvel þó að skipið hefði orðið aðeins á undan hafnargerðinni, ekki mikið sakað, því að fleiri leiðir voru til með samgöngur á milli en leiðin upp í Þorlákshöfn.
Ég vil nú vænta þess, að hv. 3. þm. Sunnl., sem ég efast ekkert um að gerir sér fulla grein fyrir þörf þessa máls, noti þá aðstöðu, sem hann hefur í sínum flokki, til þess einmitt að beita sér fyrir því, að málið verði leyst á þeim grundvelli, sem hér er lagt til, sem er eina rétta leiðin í samgöngumálum á sjó á milli Vestmannaeyja og lands. Hitt þykir mér svo öllu lakara að heyra frá þessum hv. þm., þegar þetta nauðsynjamál er rætt, að helzta leið hans út úr vandanum nú virðist vera sú að ganga á kröpp kjör þeirra á Hornafirði og taka af þeim þær litlu samgöngur, sem þeir hafa nú með Herjólfi, en þeir áttu á sínum tíma sameiginlegt mál með Vestmanneyingum, þegar Herjólfur var keyptur, og skipið var keypt handa báðum þessum aðilum. Enginn vafi er á því, að það, að málefni fleiri en Vestmanneyinga einna voru leyst á sínum tíma, þegar ráðizt var í kaupin á Herjólfi, hafði sitt að segja um að flýta ákvörðun málsins þá. Hornfirðingar eru illa settir í samgöngumálum og mega sízt við því, að þeirra hlutur sé skertur í þessum efnum. Og það er líka mikill misskilningur að halda, að það sé einhver lausn á vandamálum þeirra Vestmanneyinga að taka þessar fáu ferðir skipsins af þeim Hornfirðingum og beina skipinu eingöngu í ferðir á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Slíkt yrði aðeins mjög lítilvæg bót fyrir þá Vestmanneyinga, en leysti þeirra vanda í litlu. Hitt er það, sem máli skiptir, að taka ákvörðun um það, að byggja skuli skip af nauðsynlegri stærð í ferðirnar milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, sem sé þannig útbúið, að það þjóni því verkefni, sem þarna þarf óhjákvæmilega að leysa, bæði varðandi fólksflutninga og flutninga á farartækjum og varningi.
Ég efast ekkert um, að það, sem hér kom fram hjá hv. 3. þm. Sunnl. um samgöngusögu þeirra Vestmanneyinga, hefur verið rétt rakið. Svipaða sögu gæti ég sagt einnig um samgöngumál okkar á Austurlandi og þeirra Hornfirðinga o.fl. En slíkt kemur lítið við því málefni, sem hér er um að ræða. Aðalatriði málsins er að fá stjórnarvöld landsins til þess að taka ákvörðun um það að efna til framkvæmda. Það er aðalatriðið. Það eru ekki uppi neinar deilur um það, hvað skuli gera, heldur um það, hvenær skuli gera það, sem öllum er ljóst að þarf að gera.
Ég lýk svo þessum orðum mínum með því að lýsa því yfir, að við Alþb.-menn styðjum þetta frv. allir sem einn, og ég vil leyfa mér að skora alveg sérstaklega á 3. þm. Sunnl., sem ég veit að getur ráðið úrslitum um það, hvað gert verður í þessu máli, að endurskoða afstöðu sína, sem hér kom fram, og taka nú ákveðna afstöðu til þess að mæla með framgangi frv. í þeim búningi, sem það er.