17.04.1964
Neðri deild: 80. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í C-deild Alþingistíðinda. (2029)
102. mál, menntaskólar
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Á dagskrá þessa fundar eru þrjú frv. um menntaskóla. Hafa þau verið á dagskrá einu sinni áður öll þrjú og voru þá nokkuð rædd. Að vísu voru þær umr. aðeins um eitt þeirra, um Menntaskólann í Reykjavík, en hv. frsm. meiri hl, menntmn. ræddi öll frv. í einu lagi þá, og sé ég ekkert við það að athuga, því að þessi mál eru það skyld. Sérstaklega má segja það um tvö þeirra, menntaskóla á Vestfjörðum og menntaskóla á Austurlandi, að þar er um algerðar hliðstæður að ræða. Ég mun því að þessu sinni ræða aðallega um þau tvö frv., um menntaskóla á Eiðum og menntaskóla á Ísafirði, sem eru á dagskrá fundarins, þótt aðeins sé þetta eina mál nú tekið fyrir af eðlilegum ástæðum.
Það hefur aldrei verið neitt ágreiningsmál, að skólum þeim, sem veita almenna fræðslu, skuli dreift svo um landið, að æskufólk eigi sem auðveldast með að hagnýta sér þá. Þetta gildir ekki aðeins nm skóla skyldunámsins. Engu síður gildir þetta um þá skóla, sem taka við ungmennum að skyldunáminu loknu, og auðvitað er þetta talið sjálfsagt mannréttindamál, að skólum, sem veita almenna menntun, sé dreift svo, að landsmenn hafi sem jöfnust not af þeim. Það gegnir nokkru öðru máli um sérskóla, sem undirbúa nemendur undir ákveðin störf eða embætti. Hvern þann skóla sækir að sjálfsögðu ekki nema sá takmarkaði hópur nemenda, sem ætlar að búa sig undir það starf eða þá sérgrein, sem skólinn kennir. Af þeim ástæðum er það, að það er ekki til í landinu t.d. nema einn sjómannaskóli, einn vélstjóraskóli, einn kennaraskóli, tveir bændaskólar o.s.frv. En menntaskólar eru ekki sérskólar.
Þeir taka við nemendum úr hvaða skólum sem þeir koma, ef þeir hafa tilskilda menntun, Ijúka tilskildu prófi, þ.e. fullnægja inntökuskilyrðum menntaskóla.
Ég verð að segja það, að þeirri þjóð, sem um aldir hefur verið viðfræg fyrir bókmenntir sínar, ferst ekki að hindra æskufólk sitt á menntabraut. Menntaskólar eru því nauðsynlegir, þeir eru ómissandi, og á engan hátt má að mínum dómi torvelda ungmennum að sækja þá, ef þau hafa getu og vilja til þess að stunda þar nám. Það er af þessum ástæðum, sem við í minni hl. menntmn. leggjum áherzlu á að dreifa menntaskólum um landið, eftir því sem kostur og aðstaða leyfir, dreifa þeim svo, að æskufólk eigi sem jafnasta aðstöðu til þess að stunda menntaskólanám, hvar í landinu sem það býr.
Þróunin hefur verið í þessa átt á undanförnum áratugum, en gengið hægara en svo, að það verði við það unað lengur. Lengi var menntaskólinn aðeins einn, þ.e.a.s. hér í Reykjavík. Fyrir hér um bil 35 árum fengu Norðlendingar sinn menntaskóla og ekki alveg átakalaust. Síðar fær verzlunarskólinn réttindi til að útskrifa stúdenta. Þá fá Sunnlendingar sinn menntaskóla að Laugarvatni. Og síðast kemur í röðinni kennaraskólinn, sem fékk réttindi til að útskrifa stúdenta með löggjöf frá siðasta þingi. En tveir landshlutar, Vestfirðir og Austurland, hafa enn ekki fengið óskum sínu m fullnægt um menntaskóla hjá sér. Þessir landshlutar hafa þó ekki síður rétt til slíkra menntastofnana en hinir landshlutarnir, sem fyrir löngu hafa fengið þessa skóla hjá sér, og verði það hindrað á einn eða annan hátt að stofnsetja menntaskóla í þessum landshlutum, lit ég svo á, að æskufólki þessara byggðarlaga sé gerður óréttur. Þá er aðstaða þeirra ungmenna gerð verri en annarra.
Það þarf að koma jafnvægi á viðar en í atvinnu og efnahagsmálum í landinu. Það þarf einnig að koma því á í menningarmálum. Frv. um menntaskóla Vestfirðinga og menntaskóla Austurlands stefna að þessu jafnvægi. Ég hef heyrt þeim andmælum hreyft gegn menntaskóla á Ísafirði, að gagnfræðaskólanum þar hafi verið heimiluð undirbúningsdeild til menntaskólanáms, en nemendur reynzt fáir, nú fyrir nokkrum árum. Þetta sannar lítið um þörf Vestfirðinga fyrir menntaskóla. Nemendum, sem ætla sér að stunda menntaskólanám, finnst ekkert aðgengilegt að fara að byrja í einhverri undirbúningsdeild, þegar þeir hafa fulla ástæðu til að ætla, að hún verði aldrei annað en undirbúningsdeild, þegar ekki bólar á því, ég vil segja bólar ekki á nokkrum vilja til að stofna menntaskóla þar. Þessum nemendum finnst auðvitað eðlilegra og æskilegra að hefja námið í þeim menntaskóla, þar sem þeir ætla að nema og þeir ætla að ljúka námi, en koma þar inn í miðjum klíðum.
En menntaskólar hafa þýðingu fyrir byggðarlög að fleira leyti en aðeins til þess að mennta nemendurna. Líf fólksins í þeim héruðum, sem hafa menntastofnun sem menntaskóla, verður nokkru fjölbreyttara, bjartara, ég vil segja glæsilegra. Trú fólksins á héraðið verður meiri, félagsleg samskipti verða þarna meiri. Fólkið unir sér betur í héraðinu og nágrannahéruðum, þegar það sér, að það þarf ekki að sækja alla hluti í aðra landsfjórðunga.
Meiri hl. menntmn. leggur til, að þessu frv. verði vísað til hæstv. ríkisstj. í trausti þess, að hún láti athuga ýtarlega framtíð arþörf þjóðarinnar fyrir menntaskóla, eins og það er orðað í nál., og ekkert verði til sparað að tryggja nægilegan skólakost á því sviði. Þannig rökstyðja þeir till. sína. Nú er mér ekki ljóst, hvernig þessi þörf fyrir menntaskóla verður rannsökuð eða athuguð. Á að kanna það, hversu margír umsækjendur eru um menntaskólana í landinu, t.d. á þessu ári? Þetta er ósköp auðvelt verk og fljótgert, en slík könnun sannar ekki neitt. Það sannar ekki neitt, þó að birtar séu tölur t.d. frá Vestfjörðum um það, hve margir hafi sótt um menntaskóla þaðan, eins og hæstv. ráðh. var að gera hér áðan. Hvað vita menn um það; hvað hefðu sótt margir um menntaskóla á Ísafirði, ef hann hefði verið kominn? Það má þó nærri geta, að aðstöðumunurinn hefur einhver áhrif á það, hve margir taka landspróf og hve margir sækja svo um menntaskóla, ef þeir geta gengið í menntaskóla í sínu eigin héraði. Alveg sama er að segja t.d. um Austurland. En hvað á þá að athuga eða rannsaka? Jú, það er sagt í nál., að það eigi að athuga framtíð arþörf þjóðarinnar fyrir menntaskóla. Hver vill taka að sér að rannsaka þetta og birta um það niðurstöður, sem hann getur rökstutt? Við skulum hugsa okkur, að slíkur úrskurður eða slík rannsókn leiddi til þeirrar niðurstöðu hjá rannsóknarnefnd, að það sé orðið óþarflega mikið af stúdentum í landinu og þar með óþarflega mikið kannske af háskólalærðum mönnum í einhverri fræðigrein, — ég segi þetta sem hugsanlegan möguleika; — hver vill þá loka menntaskólunum fyrir nemendum, þó að þetta yrði niðurstaðan? Vill nokkur taka að sér að segja við nemanda: Þú færð ekki inngöngu í menntaskóla, af því að það er orðið svo mikið af háskólalærðu mönnum í ákveðinni fræðigrein? — Ég trúi því a.m.k., að það mundi enginn taka þetta að sér. Nei, að rannsaka þörf þjóðarinnar fyrir menntaskóla held ég að sé erfitt verk. Á að ætla nokkrum manni að segja við umsækjanda um menntaskóla: Þjóðin hefur ekki þörf fyrir menntun þína? — Ég lít svo á, að þjóðinni beri siðferðileg skylda til að sjá þeim ungmennum sínum fyrir menntaskólum, sem vilja stunda þar nám. Enginn annar mælikvarði á þetta á að vera til. En það þarf að gera meira. Það þarf að dreifa þessum menntaskólum þannig um landið, að sem jöfnust verði aðstaða unglinganna til að stunda þetta nám. Það er af þessum ástæðum, sem við í minni hl. menntmn. leggjum áherzlu á að fá samþykkt frv. öll, sem hér eru á dagskrá í dag, því að þótt frv. yrðu samþykkt, gerum við okkur ljóst, og það gera sjálfsagt allir, að það tekur sinn tíma að koma upp þeim byggingum, sem til þess þarf að fullnægja ákvæðum l. um þessa nýju menntaskóla.
Hæstv. menntmrh. ræddi þetta mál hér áðan. Hann las hér upp nokkrar tölur frá fræðslumálaskrifstofunni um, hversu fáir þar hefðu tekið landspróf, hversu fáir þar sótt um menntaskótavist o.s.frv. Ég hef áður bent á, að það er ekkert á þessum tölum að byggja. Þær sanna ekki neitt og þess vegna geta þær ekki ráðið neinu um úrslit í svona máli. Þar að auki eru þessi skrif fræðslumátastjóra 4 ára gömul. Þau eru frá 1960. Ég er ekki að segja, að honum hafi neitt snúizt hugur að vera á móti menntaskólum á Vestfjörðum og Austurlandi. Það getur vel verið, að hann sé alveg sama sinnis enn. En tölurnar, sem hann er að birta, eru lítils virði. En hver er skoðun hæstv. menntmrh. þá í málinu? Vill hann raunverulega, að menntaskólar rísi upp í þessum tveimúr landshlutum t.d. , sem ég hef rætt nú um, eða vill hann það ekki? Hann hefur réttilega bent á sívaxandi fjölda þeirra ungmenna, sem sækja um menntaskólavist, og ég hef fengið upplýsingar um, að stúdentum muni hafa fjölgað á 7 s.l. árum um 100%. Já, ég var að spyrja hæstv. menntmrh.: Vill hann þá raunverulega mæta þessum sívaxandi hóp ungmenna, sem sækja um menntaskólanám, t.d. með því að koma upp þessum menntaskólum á Austurlandi og Vestfjörðum, eða vill hann það ekki? Ég tel mig hafa fengið nokkra hugmynd um það, hvað hann vill í þessu efni, og hann hafi sagt það sæmilega skýrt í ræðu sinni hér áðan. Hann segir, að það hafi engum umsækjanda um menntaskóla verið neitað um inntöku hér í menntaskóla Reykjavíkur, sem hafi haft til þess tilskilin próf, og efast ég ekki um, að hann segi þetta rétt. En hann skýrði aftur á móti frá því, að þetta væri nokkuð öðruvísi á Laugarvatni og á Akureyri og það kæmi til af því, að heimavistir þessara skóla gætu ekki tekið nema takmarkaðan hóp, svo að það er þá alltaf einhver hópur, ég skal ekki segja hve stór, sem fær ekki inntöku í menntaskóla, þótt hann hafi til þess tilskilið nám. Það liggur þá fyrir. Hugmyndir hæstv. menntmrh. um það, hvernig eigi að bæta úr skólarými fyrir væntanlega menntaskólanemendur á næstunni, eru þær, eins og hann tók fram áðan, að stækka menntaskólann gamla hér í Reykjavík, og það mun standa yfir núna, og að með tímanum, ég veit ekki, hvenær hann hugsar sér það, mætti gjarnan koma annar menntaskóli í Reykjavík en ekki núna skilst mér, ekki fara að samþykkja frv., sem liggur fyrir. Loks að stækka heimavistir Menntaskólans á Laugarvatni og Menntaskólans á Akureyri. Þetta eru hans hugmyndir. Og hvað fær maður þá út úr þessu? Ég get ekkert fengið annað en það, að þetta eigi allt að ganga a.m.k. fyrir því að byggja menntaskóla á Austurlandi eða Vestf jörðum. Mér er ómögulegt að skilja þetta á annan veg. Þetta á að ganga fyrir.
Mér er alveg ljóst, að hæstv. menntmrh. vill sannarlega, að nemendur, sem sækja um menntaskólavist, komist í þá skóla. Hann vill það. Hann er meira að segja alls ekki á móti því, að menn stundi þar nám, sem þá langar til, í þessum merku menntastofnunum. En gerir hann sér ekki grein fyrir því, ef allir þeir á Austurlandi og Vestfjörðum, sem hugsa sér að stunda menntaskólanám, verða annaðhvort að fara hingað til Reykjavíkur eða í hina menntaskólana, ef þeir komast þar inn, að það hafi einhver áhrif á það, hve margir þaðan geta stundað þetta nám? Þetta held ég, að sé þó nokkurn veginn ljóst. Ég er sannarlega ekki að hafa á móti því, að stækkaður
sé Menntaskólinn í Reykjavík, og auðvitað er ég, eins og ég hef sýnt fram á í nál., meðmæltur því, að stofnaður sé annar menntaskóli í Reykjavík. Ég er ekki heldur að hafa á móti því, að stækkaður sé Menntaskólinn á Laugarvatni eða heimavistin þar og á Akureyri. En ég hef á móti því að ætla sér að halda tveimur landshlutum svona utan við, eins og mér virtist koma fram í ræðu hæstv. ráðh., en það kalla ég, að hann vilji, ef allar þessar framkvæmdir eiga að ganga á undan og ekkí má samþykkja frv. um skóla í þessum landhlutum, fyrr en kannske því öllu er lokið.