13.02.1964
Neðri deild: 56. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í C-deild Alþingistíðinda. (2054)
127. mál, efnahagsmál
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Þegar kaupgjaldsmál hafa verið til umr., hefur það jafnan borið á góma, að kauphækkanir vinnandi fólks í landinu séu orsök allra erfiðleika í efnahagsmálum þjóðarinnar. Og ég fæ ekki betur séð en í viðreisnarlöggjöfinni svokölluðu frá 1960 hafi það átt að vera einn meginþátturinn í því að koma á jafnvægi, heilbrigðu efnahagslífi og velferðarríki á Íslandi að slíta kaupgjaldið úr sambandi við verðlagið. Nú eru liðin 4 ár síðan, og menn sjá árangurinn, hver hann er. Þarf ég ekki að rekja í einstökum atriðum, hvernig nú er komið. En mönnum verður sumum hverjum tíðrætt um það, að allt sé þetta af einni rót runnið, þ.e. þeirri, að kaupgjaldshækkanir hafi orðið þjóðinni til stórskaða. Mönnum, sumum hverjum, hefur meira að segja verið gjarnt á að flokka kaupgjaldshækkanir í tvo flokka, sem þeir kalla raunhæfar kjarabætur og óraunhæfar kjarabætur. Það er að vísu dálítið óljóst, eftir hvaða lögmáli þetta fer, en mér reiknast svo til, að allar kauphækkanir frá því í marz 1960 séu taldar óraunhæfar nema ein, en hún sé raunhæf kjarabót, og skal ég koma að því seinna. Það er a.m.k. ómaksins vert að gera sér grein fyrir því, hvort þessar kauphækkanir fólks eru ástæðulausar, hvort þær séu bara til þess gerðar að koma ríkisstj. út á kaldan klaka, efnahagskerfi þjóðarinnar í öngþveiti o.s.frv. eða af hvaða ástæðum þær eru til orðnar.
Í marz 1960, þegar þessi lög voru sett, var vísitala verðlagsins 101 stig. Þá bað hæstv. ríkisst,j. um frið, frið til að framkvæma viðreisnarstefnuna, það yrði aðeins í bili, sem einhver smávegis kjaraskerðing kæmi kannske til greina, og ef ég man rétt, held ég, að það hafi verið sagt í bæklingnum „Viðreisn“, að þetta yrði kannske 3% og kannske ekki neitt. Verkalýðsstéttirnar í landinu urðu við þessum óskum stjórnarvaldanna, að vera ekki með kaupkröfur fyrst í stað, og það var meira en dagur eða vika, sem stéttirnar héldu þennan frið. Það liðu sem sé 15 mánuðir frá þessari löggjöf, að kaupgjaldið var slitíð úr sambandi við verðlagið, og þar til menn fóru út í kaupdeilur. Það var frá því í marz 1960 og þar til í júní 1961, sem fólkið í landinu sætti sig við þessa viðreisn og beið eftir kjarabótunum og velmeguninni. Það verður því aldrei sakað um það, fólkið, að í upphafi þessa tímabils hafi það verið því að kenna, að verðhækkanir urðu. Og ári áður, réttu ári áður, höfðu þessir sömu flokkar lækkað kaup með lögum. En sú bót var þó í máli með þeirri ráðstöfun, að verðlag var líka lækkað og vísitala verðlagsins hækkaði ekki það ár, vegna þess að þetta var látíð haldast í hendur, enda var þá kaupgjaldið t tengslum við vísitöluna.
Þegar svo þessi stefna er tekin upp í kaupgjaldsmálunum, er verðlagið ekki lengur í sömu skorðum, enda var ekki við því að búast, þegar samfara þessari ráðstöfun kom gífurleg gengislækkun, söluskattarnir, vaxtahækkanirnar og margt fleira af sama tagi. Ég er ekki í nokkrum vafa, hvað var meint með þessu. Þetta var það, sem kallað var þá af hálfu stjórnarvaldanna að stöðva verðbólguna. Það átti að stöðva verðbólguna með dýrtíð. Það átti að hindra það, að menn gætu lagt út í framkvæmdir, með því að gera þær svo dýrar, að þeim væri það ómögulegt. Og auðvitað hefur þetta borið sinn árangur, þ.e.a.s. hjá þeim, sem ekki höfðu mjög rúman aðgang að lánsfé og voru ekki á háum launum, einstaklingarnir, til þess að geta lagt í framkvæmdir. Eftir 15 mánaða tímabil hefur vísitala verðlagsins hækkað um 17 stig eða hér um bil nákvæmlega 17%. En fólkið beið og það gerði ekki neitt, það var ekki með neinar kröfur. Þessi 17 stiga hækkun verður aldrei færð á reikning vinnustéttanna í landinu. Þessi 17 stiga hækkun þýðir sem svarar 8400 kr. útgjaldaaukningu hjá vísitölufjölskyldu á einu ári. 17 stiga hækkunin er um 8400 kr. skattur eða ef við viljum heldur kalla það hreinlega 8400 kr. kauplækkun á 15 mánuðum.
Þá gat fólkið ekki þolað við lengur, og er það skiljanlegt, að það hafi þurft einhverjar bætur eftir þetta fyrsta spor viðreisnarinnar, sem tók 15 mánuði. Jú, þá kom til vinnudeilu og loks kauphækkunar, sem nam 10—11%. En þessari kjarabót eða réttara sagt þessari lítilfjörlegu kauphækkun var mætt með nýrri gengislækkun. Svo mikið þurfti víð. Þó nam þessi kauphækkun hjá verkamanni yfir árið ekki nema sem svaraði 4970 kr. miðað við Dagsbrúnarkaup. Til þess að bæta kjaraskerðingu, sem nam um 8400 kr. á einu ári, átti verkamaðurinn að fá 4970 kr. hækkun á kaupinu sínu yfir árið, miðað við dagvinnu. Samt var þessu mætt með gengislækkun.
Svo kemur næsta tímabil. Það eru 12 mánuðir, það er frá því í júní 1961 og þangað til í júní 1962. Verðlagshækkanirnar halda áfram. Það bætast 15 stig við vísitölu verðlagsins á þessum 12 mánuðum, hlutfallslega heldur meira en fyrra tímabilið. Þessi hækkun á þessum 12 mánuðum nam sem svaraði 7300 kr. skatti á vísitölufjölskylduna. Átti nú fólk að fara að gera kröfur um einhverjar bætur gegn þessu? Auðvitað komst það ekki hjá því. Fjölskyldurnar lifðu ekki á kaupinu, ef þær áttu að taka á sig svona byrðar bótalaust. Og þá fæst aftur kauphækkun, sem var svipuð hinni fyrri, nam sem svarar 4900 kr. á verkamannskaup yfir árið, til þess að mæta síðari hækkuninni, sem var 7300 kr. Þannig ern verkamennirnir alltaf á eftir og fá ekki nema part af hverri hækkun, sem orðin er á undan.
En þá hefði kannske mátt búast við þriðju gengislækkuninni, því að það hlaut þó að vera glapræði að hækka kaup þetta vor eins og vorið áður og þurfa eftir sömu rökum að dæma að framkvæma nýja gengislækkun. En það var ekki gert. Það var látið staðar numið í gengislækkunarleiknum, hvort sem það hefur verið af því, að þá var ekki ár til kosninga, eða það hefur verið eitthvað annað, sem hefur valdið. En áfram heldur vísitala verðlagsins að hækka. Frá því í júní 1962 og þar til í janúar 1963, eða á 7 mánuðum, hækkar hún um 12 stig. Þetta hafði hún þó farið hraðast, um 12 stig á 7 mánuðum. Það fer ekki hjá því, að menn taki eftir því, að skriðurinn er smátt og smátt að aukast. 17 stig á fyrstu 15 mánuðunum, 15 stig á næstu 12 og 12 stig á 7 mánuðum. En þá gerist það, að í jan. 1963 koma menn sér saman um kauphækkanir án nokkurrar deilu, án nokkurra uppsagna á samningum, án þess að skrifaður væri einn einasti stafur. Það var svo að segja þegjandi samkomulag að greiða 5% kauphækkun. Allir töldu þetta sjálfsagt, alveg sjálfsagt, og það minntist ekki einn einasti maður á það, að þetta kynni að valda verðhækkun. Það var engin hætta á ferðum. Þarna var nefnilega „raunhæf“ kjarabót á ferðinni, en þá voru ekki heldur nema 4 mánuðir til kosninga.
Nú eru ýmsir menn þeirrar skoðunar, að stjórnarvöld geti haft eitthvert vald á því, hvað mikill hluti af kauphækkun þurfi að koma inn í verðlagið, það hafi sýnt sig öli tímabilin á undan, að verðlagið hækkaði miklu meira og jafnvel helmingi meira en svaraði kauphækkunum. En svo kom þessi „raunhæfa“ kauphækkun, og hún kom inn í verðlagið, en hún náði þó ekki nærri því, sem kaupið hækkaði. Kaupið hækkaði þarna yfir árið hjá verkamanni sem svarar 3000 kr., en verðhækkanirnar námu ekki nema sem svaraði 1800 kr. fyrir vísitölufjölskyldu yfir árið. Hvernig á þessu stendur, er mér ekki fyllilega ljóst, en ég held, að það hljóti að liggja í því, að þarna hafi stjórnarvöldin haft fullan hug á að láta ekki verðlagið hækka nema hóflega þrátt fyrir kauphækkun, þvert á móti hinu, sem gerzt hafði í öllum kauphækkunum þar á undan. Á næstu 5 mán., frá því í jan. 1963 þar til í júní 1963, bætast þó ekki nema 4 vísitölustig við. Ég held, að það verði ekki dregið í neinn efa, að þarna hefur komið til fullur vilji stjórnarvalda til að gæta þess, að verðhækkanir yrðu sem allra minnstar þrátt fyrir kauphækkanirnar, og svo kynni að hafa mátt gera í hinum tilfellunum líka, þó að það væri ekki gert.
Þá er næsta tímabil, sem ég víl nefna, það er frá því í júní 1963 þar til í des. 1963. Á þessum 6 mán. keyrði alveg um þverbak. Þá var metið sett í verðhækkunum. Á 6 mán. hækkar vísitala verðlagsins um 17 stig. Þetta samsvarar um 8400 kr. skatti yfir árið á vísitölufjölskyldu, en kauphækkunin, sem fékkst þarna í júní, nam þó ekki nema u.þ.b. 4700 kr. handa verkamanni yfir árið.
Sé nú tímabilið tekið í heild frá því í marz 1960 og þar til í desemberbyrjun 1963, eða 45 mán., þá hafa verðhækkanirnar orðið um 65% eða vísitala verðlagsins hækkað úr 101 stigi í 166. Og hækkanirnar hafa numið samkvæmt skýrslum hagstofunnar sem svarar 31600 kr. á vísitölufjölskyldu yfir árið. En allar kauphækkanirnar á sama tímabili hafa hjá verkamanni ekki numið nema sem svarar 17 600 kr. á ári. Þetta er útkoman hjá launafólkinu yfir viðreisnartímabilið allt, eins og ég hef nú lýst. Hvernig er svo hægt að halda því fram enn, að allt sé verkafólkinu að kenna, allt sé launahækkununum að kenna? Ég held, að þessi dæmi, sem ég hef hér sýnt fram á og eru tekin upp úr skýrslum hagstofunnar, sýni það, að aldrei verður hægt með nokkrum rökum að saka launafólk um, að það hafi spennt upp dýrtíðina eins og hún hefur orðið. Í nauðvörn hefur það orðið að fá einhverjar bætur vegna vaxandi dýrtíð ar, en aldrei fengið nema sem svarar helmingnum af hækkununum.