20.02.1964
Neðri deild: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í C-deild Alþingistíðinda. (2107)

157. mál, virkjun Svartár í Skagafirði

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er aðeins í tilefni af því, sem hv. 3. þm. Norðurl. e. sagði áðan um, að það lægi ekki fyrir, hvernig bezt yrði fyrir komið að rafvæða ýmsar byggðir norðanlands. Þá vil ég upplýsa það, sem ég held að allir hv. þm. viti, að rannsókn hefur farið fram á því, hvaða skilyrði Dettifoss hefur til stórvirkjunar og fleiri virkjanir. Raforkumálastjórnin hefur látíð fara fram og gert samanburð á hinum ýmsu virkjunum, sem til greina geta komið. Það má nefna á Norðurlandi Dettifoss, Laxá í Þingeyjarsýslu og Svartá í Skagafjarðarsýslu. Athugun hefur farið fram á þessu, og það liggja fyrir tölur um það, hvað hvert virkjað kw. kostar á hinum einstöku stöðum. Og það er alveg rétt, sem hv. þm. upplýsti hér áðan, að í stórvirkjunum verður hvert virkjað kw. miklu ódýrara en í hinum smærri.

Hér sunnanlands hafa farið fram athuganir við Búrfell, Hveragerði og víðar, og liggur einnig fyrir, hver kostnaður er á hverju kw. á þeim stöðum. Það hefur einnig verið athugað á Austurlandi með virkjun Lagarfoss, og þannig mætti lengi telja. Þá er spurningin þessi: Á að virkja tiltölulega smáar virkjanir viða, eða á að virkja á einum stað stóra virkjun og dreifa rafmagninu með linum víðs vegar um landið? Það eru þessar spurningar, sem við verðum ákveðið að svara á þessu þingi, og það má ekki dragast lengur. Það verður að leggja fram frv. á þessu þingi og móta stefnuna, og það er verk Alþingis að kveða endanlega á um það, hver leið verður farin í þessum efnum. Það er reikningsdæmi, sem verður að liggja fyrir og hv. alþm. að taka svo sinar ákvarðanir um það, á hvern hátt verður heppilegast að taka þessi mál. Allir landsmenn eiga að fá nægilega raforku, og vitanlega þarf að taka á þeim málum þannig, að það verði sem hagkvæmast fyrir hin einstöku byggðarlög og fyrir þjóðarheildina.

Mér finnst eðlilegt, að hv. alþm. Norðurl. v. flytji frv. eins og þetta, sem hér er um að ræða. Og það er áreiðanlega þess virði að athuga það, hvort virkjun í Svartá kemur til greina. En eins og upplýst er, er vitanlega hvert virkjað kw. í Svartá miklu dýrara en í hinum stærri virkjunum. Og þá er það reikningsdæmi, hvort hentugra er fyrir Skagfirðinga og Húnvetninga, sem gætu notíð góðs af þessu, að það sé virkjað í Svartá eða raforkan verði leidd frá stærri virkjunum til þessara byggðarlaga.

Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta mál að svo stöddu, en ég vil leggja áherzlu á það, að á þessu þingi þarf að taka ákvörðun um það, hvort virkjað verður tiltölulega stórt á einum stað eða hvort smærri virkjanir verða byggðar í hinum ýmsu héruðum, því að það er ekkert spursmál um það og það eru allir alþm. sammála um, að raforkuna verða landsmenn að fá og á þessu þingi verður að taka ákvörðun um, hvaða stefna á að verða ráðandi til þess að uppfylla þessar eðlilegu kröfur landsmanna.