20.02.1964
Neðri deild: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í C-deild Alþingistíðinda. (2116)
157. mál, virkjun Svartár í Skagafirði
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Í tilefni af þessari fsp. vil ég aðeins segja það, að það liggur ljóst fyrir, að það er mögulegt að safna nægilega miklu vatni í Laxárvirkjun, til þess að þar fáist hæfileg orka til landsvirkjunar. En samkv. því, sem sérfróðir menn segja, er talið, að það muni verða ærið kostnaðarsamt, og þegar það verður borið saman við Dettifoss og Þjórsá, er hætt við, að samanburðurinn verði ekki Laxá í vil. Og mér þykir sjálfsagt í tilefni af þessari fsp. að svara því svo, að sérfróðir menn athugi það vel, áður en tekin væri ákvörðun um landsvirkjun, hvort Laxá kæmi til greina. Það tekur vitanlega talsvert langan tíma, ef ætti að vinna það nákvæmlega, en það getur vel verið, að það tæki ekki langan tíma að svara því, hvort Laxá kæmi til greina, þegar borið væri saman við Dettifoss og Þjórsá, og mér finnst, að samanburður á því þurfi að liggja fyrir, því að verði horfið að því ráði að virkja stórt á einum stað, sem við köllum landsvirkjun, verður vitanlega að taka það, sem er hagstæðast og bezt, og ekki ganga fram hjá Laxá, ef það lægi fyrir, að hún væri hagstæðust.