18.12.1963
Efri deild: 29. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í B-deild Alþingistíðinda. (213)

103. mál, náttúruvernd

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ef hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur sérstakan áhuga á því að fá upplýsingar um störf náttúruverndarráðs og náttúruverndarnefndar, t.d. um hvað marga þjóðvanga þau hafi ákveðið, þá er mér bæði ljúft og skylt að upplýsa hv. þm. um það. En þá vildi ég mjög gjarnan að þær upplýsingar birtist öllum þingheimi á þann venjulega hátt, sem slíkum upplýsingum er komið á framfæri, þ.e. að fá að svara um það fyrirspurn í sameinuðu þingi frá hv. þm. Það er ekki venja við umræður um lagafrv. að nota þær umræður sem tilefni til þess að æskja skýrslna frá ráðherrum, jafnvel þó að um mikilvæg mál sé að ræða eins og þau, sem hv. þm. nefndi í ræðu sinni. Þingsköp sjá fyrir því, að þm. hafi tækifæri til þess að æskja upplýsinga af ráðherrum, í kaflanum um þingsköp, og ég lýsi hér með yfir, að mér er sérstök ánægja að því að svara fyrirspurn frá hv. 3. þm. Norðurl. v. um þetta efni ef hún er fram borin á tilskilinn hátt, og skal gera mér far um að veita sem ýtarlegastar upplýsingar.

Hv. þm. sagðist ekki skilja, hverja nauð ræki til þess, eins og hann kallaði það, að knýja þetta frv. gegnum Alþ. á síðustu dögum þingsins. Hv. Nd. var afar fljót að gera sér grein fyrir eðli þessa máls, og hv. n. í Nd. var sömuleiðis mjög fljót að gera sér grein fyrir flóknu eðli þess. Hún afgr. málið á einum fundi. Hv. Nd. afgr. málið við þrjár umr. samhljóða á tveim dögum. Ég vil ekki trúa á menntmn. hv. Ed., að það þurfi að taka hana miklu lengri tíma að gera sér grein fyrir eðli þessa frv., og enn síður vil ég trúa því á hv. Ed., að það þurfi að taka hana mjög langan tíma að gera sér grein fyrir eðli málsins og taka afstöðu til þess, annaðhvort með því að samþykkja frv. eða með því að fella það. Ég ber fyllsta traust til hv. Ed. um það, að hún geti verið fljót að átta sig á eðli þessa máls og taka afstöðu til þess, jákvæða eða neikvæða.

Varðandi það eina, sem nýtt kom fram í seinni ræðu hv. þm., sem var það, hvaða nauð ræki til þess að afgreiða þetta mál fyrir jól, vil ég upplýsa nokkur atriði. Ég skal gjarnan játa, að ég hefði getað greint frá þeim fyrr, t.d. í framsögu, þá að það sé ef til vill ekki venja að geta slíkra atriða í framsögu. Fyrst ég gerði það ekki þá, skal ég með ánægju segja það nú, þó að þessi atriði eigi kannske frekar heima sem upplýsinga.r gagnvart nefnd. En ástæða þess, að það er nauðsynlegt að afgreiða þetta mál nú fyrir nýár, er sú, að fyrir náttúruverndarráði liggur einmitt nú eitt mál, sem nauðsynlegt er að taka afstöðu til strax. En ráðið hefur ekki, þ.e. hinir 6 nefndarmenn, sem nú starfa í ráðinu síðan formaður sagði af sér, hafa ekki viljað taka afstöðu til þessa máls, án þess að nýr formaður sé skipaður. Það er þetta, sem rekur á eftir skipun formannsins. Það mál, sem ég á hér við, er spurningin um það, hvort gera eigi Skaftafell í Öræfum að þjóðgarði. Erlendir aðilar, þ.e.a.s. alþjóðasamtök til náttúrufriðunar, hafa kynnt sér það mál og boðið fram fjárframlag í því skyni, að Skaftafell í Öræfum verði friðað. Þetta mál liggur nú fyrir náttúruverndarráði til athugunar, og frekari meðferð þess þar bíður eftir formannsskipuninni. Ég hef óskað eftir því, að náttúruverndarráð hraðaði meðferð þessa máls, og hér er um stórmál að ræða, þó að frv. sé lítilfjörlegt og einfalt mál. Það þarf að svara tilboði þessara alþjóðasamtaka, tilboði þeirra um fjárframlag til stuðnings þessari merku hugmynd, en það er ekki hægt að taka formlega afstöðu til tilboðs hinna erlendu alþjóðasamtaka, fyrr en náttúruverndarráð er fullskipað. (Gripið fram í: Hver er varaformaðurinn?) Logi Einarsson. En náttúruverndarráð hefur ekki óskað þess að fjalla um málið með varaformanni, heldur vill fá nýjan formann, þegar um málið er fjallað. Það finnst mér eðlileg afstaða af hálfu ráðsins.

Og nú vona ég, að mér hafi tekizt að skýra það fyrir hv. 3, þm. Norðurl. v., hvers vegna málið er flutt, þó að svo seint á þinginu sé, og hvers vegna ég hef óskað mjög eindregið eftir því, að hv. Ed. afgreiði málið nú fyrir jól. Ég hygg, að þessar upplýsingar hafi verið látnar í té hv. n. í hv. Nd. Slíkt hefði eflaust átt sér stað í n. hér í hv. Ed. Fyrst hv. 3. þm. Norðurl. v. er svo áhugasamur um málið yfirleitt, hef ég ekki á móti því að láta alla hv. Ed. fá þessar skýringar, sem aðeins n. í Nd. fékk. Er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt, að Ed. sé sýndur svolítill aukasómi umfram hv. Nd., sem einhvers konar uppbót á það, að þurft hefur því miður að ætlast til þess af hv. Ed., að hún fjallaði um þetta mál á kvöldfundi.