14.04.1964
Neðri deild: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í C-deild Alþingistíðinda. (2155)

202. mál, vinnuvernd

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það hlýtur fleiri þm. en mér að hafa þótt nokkuð forvitnilegt að sjá og lesa þetta frv. um vinnuvernd o.fl., sem hv. 5. þm. Vestf. hefur lagt hér fram á hv. Alþingi, sérstaklega þegar það er haft í huga, að þessi hv. þm. er jafnframt forseti stærstu launþegasamtaka hér á landi, einnig þegar haft er í huga, að þingkjörin nefnd, sem kjörin var á sínum tíma eftir samhljóða samþykktri þáltill. í Sþ., hefur unnið að framkvæmd þeirrar þáltill. nú um nokkurra missira skeið. Sérstaklega þótti mér forvitnilegt að sjá þetta frv., þar eð ég á sæti í þessari nefnd. Af skiljanlegum ástæðum er ekki tækifæri nú, eftir að þetta frv. er a.m.k. fyrir mjög stuttu komið t mínar hendur, að ræða það efnislega, en það eru þó nokkur atriði í frv., eins og það kemur fram, sérstaklega í sambandi við II. kafla þess, um vinnutíma og vinnutilhögun, sem ég mundi vilja fara nokkrum orðum um og jafnvel að leggja nokkrar spurningar fyrir hv. flm. og biðja hann um nánari skýringar þar á.

Ef litið er á II. kafla frv., um vinnutíma og vinnutilhögun, þá má sjá í 3. gr. frv., að í byrjun gr. er talað um verkamenn, orðast á þá leið, að maður, sem lokið hefur 8 stunda vinnudegi, og í framhaldi af því er talað um samfelldan hvíldartíma verkamanns. Er það hugsun flm., að þetta frv. nái aðeins yfir þá, sem við í daglegu tali köllum verkamenn, eða er það hugsun flm., að þetta nái jafnframt yfir aðra launþega þjóðfélagsins, og má þá t.d. benda á bílstjóra, benda á iðnaðarmenn og einnig afgreiðslufólk í verzlunum, sem hefur eftir sínum samningum annan vinnutíma, dagvinnutíma, heldur en með þessu frv. er slegið föstu, að eigi að vera frá kl. 8 að morgni til 17 að degi? Einnig veit ég, að skiptar skoðanir verða um þá tíma, sem hér eru settir fram í 3. gr., og um framkvæmd yfir- og næturvinnutíma.

Ég heyrði það á framsöguræðu hv. flm., að hann er alveg á sama máli og við, sem sæti eigum í hinni svokölluðu vinnutímanefnd, í afstöðu sinni til útflutningsframleiðslunnar. Við höfum verið þeirrar skoðunar, að það megi sem minnst gera í sambandi við löggjöf, sem við höfum helzt hallazt að að þyrfti að setja um þetta efni, og það er ekki annað hægt. Um leið og ég minnist á, að við höfum hallazt á þá skoðun, að löggjöf þyrfti að setja, þá kemur margt í þessu frv. kunnuglega fyrir sjónir, sérstaklega þegar höfð eru í huga norsku lögin um vinnuvernd, sem við í vinnutímanefnd, eins og ég sé að hv. flm. hefur gert, höfum aðallega hallað okkur að og talið, að á beinagrind þeirrar löggjafar ættum við að byggja okkar lög um vinnuvernd, sem ég er sammála hv. flm. um að sé orðið tímabært að við gerum hér á landi. En eins og ég vildi segja, þá vorum við allir sammála í nefndinni um, eins og ég heyri að hv. flm, er, að það megi ekki setja neinar þær hömlur á útflutningsframleiðslu okkar, sem valdi því, að t.d. afli skemmist eða hann verði ekki unninn.

Eitt atriði er í sambandi við þessa skoðun, sem mig langar líka til þess að fá upplýsingar um. Með þeirri orðanna hljóðan, sem er í frv. nú, er ekki annað að sjá, ef miðað er við 300 almenna vinnudaga á ári, en verkamaður, sem vinnur í fiskiðnaði og viðkomandi stéttarfélag hefur samninga við atvinnurekendur um að leyfa yfir- og helgidagavinnu í þessari atvinnugrein, þá geti hinn sami verkamaður unnið allt að 3400 vinnustundum á ári. Þetta finnst mér nokkuð mikið. En þá er auðvitað miðað við, að það sé unnið 12 tíma á hverjum vinnudegi. Þetta vitum við, að er ekki framkvæmt svo hjá okkur. Í skýrslum vinnutímanefndar hefur komið í tjós, að í fiskiðnaðinum eftir árið, þá minnir mig, að hæsta vinnustundatala, sem þar hafi komið fram, sé um 2800 vinnustundir. En hitt ber að hafa í huga, að í þessari atvinnugrein getur vinnutíminn orðið lengri en hér er gert ráð fyrir að leyfa á ákveðnum dögum, en jafnað sig út í þessari tölu yfir lengra tímabil eða eitt ár. Ég er t.d. ekki enn búinn að gera mér grein fyrir, ef þetta frv. yrði samþ. óbreytt, hvernig þetta mundi verka á síldariðnað okkar, síldarsöltun og annað þess konar, og ég er ekki heldur búinn að gera upp hug minn um það, hvort ekki sé betra í sambandi við fiskiðnað okkar að gera ráð fyrir lengra tímabili, t.d. allt að ársfjórðungi, jafnvel enn lengra, þegar talað er um hámarksvinnutíma verkafólks í þessari grein, en ekki miða við vikuna, þótt um hámarksákvæði á dag verði að ræða. En þetta eru atriði, sem sjálfsagt verða athuguð, ekki aðeins í þingnefnd, heldur og hjá þeirri n., sem vinnur að rannsókn þessara mála.

En af því að ég minntist á vinnuverndarlögin í Noregi, vil ég geta þess í sambandi við ákvæði þessa frv. um, að vinnan, hin almenna dagvinna, sé á milli kl. 8 og 17, að um þetta eru miklu rýmri ákvæði í norsku l. Þar er sem sagt gefin heimild til að skila sinni ákveðnu, föstu dagvinnu á lengra tímabili en hér er gert ráð fyrir. Og ég held, að það væri mjög skynsamlegt af okkur að hafa það svo. Hins vegar tók flm. það fram, að hann í sambandi við þetta atriði miðaði við þá almennu venju, sem væri í samningum verkalýðsfélaga.

Í 9. gr. frv. er gert ráð fyrir, að almennur vinnutími á viku styttist árlega um 1 klst. og verði 43 stundir á viku að 5 árum liðnum, og það er gert ráð fyrir, að lög þessi taki gildi um næstu áramót, minnir mig. Það má. segja sem svo, að það væri kannske ekki og sé ekki ástæða til að láta það sjást í þessari löggjöf eða láta það koma fram í þessari löggjöf, hvernig eigi að gera þetta raunhæft. En flm. benti réttilega á í sambandi við styttingu úr 48 tímum í 45 stundir á viku á sínum tíma í Noregi, að öllum bæri saman um það, bæði atvinnurekendum og launþegum, að þessi stytting hefði ekki haft í för með sér neina framleiðsluskerðingu, og það er þetta atriði, sem við höfum fram til þessa aðallega unnið að í hinni svokölluðu vinnutímanefnd, en við vorum strax í byrjun okkar starfs sammála um, að lagaákvæði þess efnis, að vinnutíminn ætti að styttast um einhvern ákveðinn fjölda, væru óraunhæf, nema um leið væru tryggð sömu framleiðsluafköst þjóðarinnar, í það minnsta sömu framleiðsluverðmæti og við upphaf styttingarinnar. Því hefur okkar aðalvinna gengið út á það að skapa grundvöll fyrir aukna framleiðni í hinum ýmsu atvinnugreinum þjóðarinnar, og eins og þm. sjálfsagt muna, þá er það starf svo langt komið, að Alþingi ákvað við afgreiðslu síðustu fjárl. að veita nú þegar á þriðju millj. kr. til þess að kenna fulltrúum atvinnugreina og atvinnusamtaka það, sem með þarf í hagræðingarmálum, og gera þessum samtökum kleift að koma upp hagræðingardeildum innan sinna vébanda til þess að vinna að framkvæmd þessara mála. Ég er enn þeirrar skoðunar, að það sé óraunhæft að fara út í slíka lagasetningu, nema tryggt sé, að að þessu sé unnið samvizkusamlega og heils hugar, og því er ég kannske ánægðastur yfir þeim orðum flm., sem komu fram í niðurlagi ræðu hans, að það væru allir á þessu landi sammála nú um að vinna að þessum málum heils hugar, og ég vildi gjarnan hafa mælt þau orð, sem hann mælti hér í niðurlagi sinnar ræðu í þessu sambandi. Að vísu hef ég oft sagt þau áður, bæði innan hans samtaka og annars staðar. Ég minnist þess hins vegar, að það hefur oft verið bratt fyrir fótinn að fá áheyrn um þau mál, og því fagna ég því enn frekar, að hann skuli vera kominn á þessa skoðun, að þetta sé hægt í þessu þjóðfélagi, og að allir aðilar og þ. á m. þeir, sem hann er í forsvari fyrir, séu sammála um að framkvæma þetta.

Það er eitt atriði enn, sem mig langar til þess að spyrja flm. um, og það er um, hvort í þeim tímum, sem hann tekur fram í frv. í sambandi við bæði hinn almenna vinnutíma eða vikuvinnutímann sérstaklega og eins í sambandi við vikuvinnutímann að 5 árum liðnum, — hvort hann reikni í þessum stundafjölda með því, sem kallað er kaffitími. En um þetta atriði var á sínum tíma mikill ágreiningur í Noregi, þegar þar var verið að vinna að styttingu vinnutímans, og ég veit, að fleirum en mér þykir forvitnilegt að fá að heyra það frá hv. þm., sem jafnframt er forseti Atþýðusambandsins, hvort kaffitímarnir séu innan þessara tímamarka eða ekki.

Það eru ekki fleiri atriði, sem mig langar á þessu stigi að fá upplýsingar um, utan eitt, sem er kannske ekki það þýðingarminnsta. í 24. gr. frv., í kaflanum um vinnuvernd barna og unglinga, eru ákvæði um, að atvinnurekandi eigi að halda skrá um tegund vinnu og vinnutíma barna og unglinga, sem hann hefur í vinnu. Mig langar að lokum að spyrja hv. flm., hverjir eigi að sjá um og fylgjast með vinnutíma verkamanna, eftir að þessi lög öðlast gildi og lagahömlur eru komnar á um, hve lengi þeir megi vinna.