24.04.1964
Neðri deild: 83. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 866 í C-deild Alþingistíðinda. (2172)
216. mál, hafnargerðir
Flm. (Gísli Guðmundason):
Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 479, sem ég hef leyft mér að flytja ásamt 6 hv. þm. í þessari hv. d., fjallar um hækkun ríkisframlags til hafnargerða. Lög þau, sem nú gilda um hafnargerðir og lendingarbætur, fjalla um mörg efni, sem varða hafnir og framkvæmdir í þeim, en í þessu frv. er aðeins lagt til, að gerð verði sérstök ákvörðun um efnisatriði varðandi fjármál hafnanna. Og það er gert ráð fyrir því, að ákvæði þessa frv., ef að lögum verða, verði eins konar bráðabirgðalöggjöf um þessi efni, þangað til sett verður ný heildarlögg,jöf um þessi mál.
Í l. þeim, sem ég nefndi áðan og eru nr. 29 frá 23. apríl 1946, um hafnargerðir og lendingarbætur, eins og það er orðað, eru taldir upp 113 hafnarstaðir, þar sem gert er ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram fé til hafnarframkvæmda. Það er þó ekki svo, að ríkissjóður hafi í reyndinni lagt fram fé til framkvæmda á öllum þessum 113 stöðum. Á allmörgum stöðum hefur aldrei til hafnarframkvæmda komið, þó að þeir staðir séu teknir upp í hafnarlög, og e.t.v. ekki líkur til, að til þeirra komi a, m. k. nú alveg á næstunni. Ég ætla, að samkvæmt gögnum, sem fyrir lágu í árslok 1960, hafi ríkissjóður um það leyti verið búinn að leggja fé fram til framkvæmda á 90 af þessum 113 stöðum eða því sem næst, sums staðar að vísu mjög lágar upphæðir, þar sem hefur verið um mjög litlar framkvæmdir að ræða. Það getur verið, að þarna hafi orðið einhverjar breytingar á síðan 1960 í árslok, þannig að lagt hafi verið fram fé til einhverra staða síðan, sem ekki hefur verið lagt fram fé til áður, en ég hygg, að þar sé þó ekki um mikla breytingu að ræða.
Í 1. um hafnargerðir og lendingarbætur eru þessir 113 staðir flokkaðir í tvennt. Á 35 stöðum eru kallaðar hafnir og hafnargerðir, en á 78 stöðum lendingarbætur. Þarna er ekki í rauninni um eðlismun að ræða í framkvæmdum, og á sumum þeim stöðum, sem taldir eru til lendingarbóta, hefur verið framkvæmt eins mikið eða meira en á sumum þeim, sem taldir eru til hafna. En í l. eru ákvæði um nokkru hærra ríkisframlag til lendingarbótanna, á meðan samanlagður kostnaður við framkvæmd þeirra fer ekki fram úr ákveðinni upphæð, sem í l. er 1 millj. og 600 þús. kr. Reglurnar eru þær samkv. gildandi 1., að ríkissjóður greiðir 40% af framkvæmdakostnaðinum nema við lendingarbætur, á meðan framkvæmdir þar ekki fara fram úr 1600 þús. kr., þar greiðir hann 50% af kostnaðinum. En yfirleitt er þarna nm að ræða nú orðíð greiðslu 40% kostnaðar úr ríkissjóði, því að þar sem um verulegar framkvæmdir er að ræða, er kostnaðurinn kominn fram úr 1600 þús. kr. Jafnframt er í l. ákvæði um, að ríkisstj. sé heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að ábyrgjast þann hluta kostnaðarins, sem umfram er ríkisframlagið, ef hafnarsjóðirnir eða sveitarfélögin, sem standa bak við þá, taka slík lán, og mun sú heimild yfirleitt hafa verið notuð.
Nú er það svo, að kostnaður við hafnarframkvæmdir, eins og þær nú tíðkast, er mjög mikill, ef um verulegar framkvæmdir er að ræða. Og það hefur sýnt sig, að hafnarsjóðirnir eða sveitarfélögin, sem þar eiga hlut að máli, hafa átt mjög örðugt með að standa straum af þeim lánum, sem tekin hafa verið með ríkisábyrgð til framkvæmdanna. Þetta er öllum hv. þm. kunnugt. Mjög víða, kannske víðast, hafa hafnarsjóðir ekki getað, þegar orðið var um miklar upphæðir að ræða, greitt nema þá að einhverju leyti vexti og afborganir af þeim lánum, sem ríkissjóður hefur tekið ábyrgð á, og hefur ríkissjóður þá orðið að borga af lánunum. Og þetta er líka mjög skiljanlegt, þegar þess er gætt, að hafnarframkvæmdirnar eru yfirleitt við það miðaðar, að útgerð og annað atvinnulíf eflist á þeim stöðum, þar sem framkvæmdirnar eru, og að hafnarsjóðirnir hafi þá tekjur af meiri umferð um höfnina síðar meir heldur en þeir nú hafa, og þessar tekjur eru náttúrlega engan veginn komnar til notkunar, meðan höfn er í smíðum, sums staðar á byrjunarstigi og víðast engan veginn fullgerð. Þessar skuldir við ríkissjóð vegna greiðslu á vöxtum og afborgunum á ríkisábyrgðarlánum hafa svo safnazt saman sem skuldir hafnars,jóðanna eða sveitarfélaganna við ríkissjóð, og nú fyrir skömmu var gerð tilraun til þess að gera upp þessar skuldir, um það leyti sem l. um ríkisábyrgðasjóð voru sett. Það, sem þá gerðist, mun yfirleitt hafa verið það, að farið var yfir skuldalista hafnanna, og þar sem mikið hafði safnazt og greiðslugetan var talin lítil, þá var víða ákveðið að gefa eftir einhvern hluta af
skuldunum, en hafnarsjóðirnir að öðru leyti látnir gefa út ný skuldabréf til greiðslu á því, sem ekki var strikað út. Hér er í raun og veru ekki um verulega breytingu að ræða. Hafnir þær, sem hafa ekki getað staðið straum af lánum áður, geta sjálfsagt ekki frekar staðið straum af hinum nýju skuldabréfum, og greiðslugetan í sambandi við ný lán, sem tekin hafa verið síðan til næstu framkvæmda, er auðvitað einnig takmörkuð. Þá hefur verið farið nokkuð inn á þá leið, enda heimilað samkv. l. um ríkisábyrgðir, að taka upp í þessar greiðslur meiri eða minni hluta af því tillagi, sem hlutaðeigandi sveitarfélög áttu að fá af söluskatti. Ríkið hefur tekið það undir sjálft sig til greiðslu á þessum skuldum. Ég veit ekki, hvað mikið hefur verið að þessu gert, en ég veit, að nokkuð hefur verið að því gert. Og það verður í raun og veru að teljast ekki alls kostar æskileg aðgerð, því að sveitarfélögunum var að sjálfsögðu ætlaður þessi hluti af söluskattinum til að standa straum af almennum þörfum, ekki þessum fremur en öðrum. En við örðugleika hafnargerðanna við að standa undir ríkisábyrgðarlánunum bætist svo það, að ríkissjóður hefur ekki haft tök á að standa skil á sínum hluta af hafnargerðarkostnaðinum jafnóðum, og þá hafa safnazt skuldir til bráðabirgða, sem engin ríkisábyrgð er fyrir, en bráðabirgðalán tekin á einn eða annan hátt út á væntanlegt lögboðið ríkisframlag. Að vísu er jafnan gert ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði að fullu sitt framlag, og öðru hverju hafa verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess við afgreiðslu fjárlaga að minnka skuld ríkissjóðs við hafnarsjóðina, sem af þessu stafar. En eigi að síður eykur þetta enn á erfiðleika hafnarsjóðanna, að ríkið skuli ekki geta greitt ,jafnóðum framlag sitt, eins og lög standa til. Nú er það auðvitað svo, að sá möguleiki er náttúrlega fyrir hendi, án tillits til hafnarlaganna eða ákvæða í þeim, að koma afgreiðslu fjárlaga í það horf, að ekki standi á greiðslu ríkisframlagsins, og þyrfti það auðvitað að verða og þarf að verða, jafnvel þó að til þess þyrfti að fara inn á þá leið, að ríkissjóður tæki eitthvað af lánum til þess að standa straum af sínum framlögum. En jafnvel þó að afgreiðslu fjárlaga væri komið í það horf, að ríkissjóður gæti greitt ,jafnóðum þessi 40 eða 50%, venjulega 40% af hafnargerðarkostnaðinum, þá nægir það ekki. Öllum þorra hafnarsjóðanna eða sveitarfélaganna er sem sé ofviða að standa straum af lánum, sem nema 60% af framkvæmdakostnaði. Og það er meðal annars af þeim ástæðum, sem ég nefndi áðan, að hafnirnar eru flestar í smiðum og ekki farnar að hafa þær tekjur, sem gera verður ráð fyrir eða menn hafa a.m.k. von um að þær hafi síðar. Þess vegna er hætt við því og nokkurn veginn víst, að ef ekki er að gert, þá endurtekur sig hin sama saga, að hafnirnar geta ekki sjálfar staðið straum af vöxtum og afborgunum af lánum, sem ríkið er í ábyrgð fyrir, og ríkið verður þá að borga af lánunum, að svo miklu leyti sem ekki er gripið til þessa mjög svo óæskilega úrræðis, að taka af söluskattshluta sveitarfélaganna upp í þessar greiðslur. Þessar greiðslur lenda því að meira eða mínna leyti á ríkissjóði, ef þessar framkvæmdir eiga að halda áfram með eðlilegum hætti, og fara vaxandi, eins og þær þurfa að gera, en með fremur leiðinlegum hætti og nokkuð tilviljanakennt, því að vera má, þó að ég sé því ekki nægilega kunnugur til þess að geta um það dæmt, að sumar sveitarstjórnir leggi e.t.v. harðar að sér en aðrar eða að sínum gjaldendum til þess að reyna að standa í skilum með greiðslur af þessum lánum, enda þótt þeim sé það ofviða og takist ekki í raun og veru. Þess vegna er það, sem við flm. viljum leggja til nú, að hér verði gerð breyting á og að framlag ríkisins verði beinlínis hækkað með l. mjög verulega frá því, sem það er nú. Og mætti þá vænta, að eitthvað dragi úr því a.m.k., að hafnarsjóðirnir eða sveitarfélögin gætu ekki staðið straum af lánunum.
Nú er það svo, að fyrir nokkrum árum, eða árið 1958, að ég ætla, fól Alþingi ríkisstj. að láta fara fram endurskoðun á 1. um hafnargerðir og lendingarbætur svo og á l. um hafnarbótasjóð og enn fremur að láta gera framkvæmdaáætlun til 10 ára um hafnargerð hér á landi. Þetta verk var unnið á sínum tíma. Það var af ríkisstj. falið sérstakri n., sem þá var starfandi, atvinnutækjanefnd, í samráði við vitamálast,jóra að vinna þetta verk, og frv. til nýrra laga um hafnargerðir var afhent hæstv. ríkisstj. haustíð 1961 ásamt þeirri áætlun, sem gert hafði verið ráð fyrir í þál. Síðan hefur þetta mál, þ.e. a.s. frv. til nýrra hafnarlaga, verið í athugun hjá ríkisstj., og við flm. þessa frv. höfum ekki haft af því neinar spurnir, að í ráði sé að leggja frv. til nýrra hafnarlaga fyrir þetta þing. Nú er það auðvitað svo, eins og ég sagði áðan, að hafnarlögin eru allumfangsmikil löggjöf, sem tekur til fjölda atriða, og má segja, að það sé ekki óeðlilegt, að ríkisstj. ætli sér nokkuð langan tíma til athugunar, áður en hún leggur frv, til slíkrar löggjafar fyrir Alþingi, þótt sú undirbúningsvinna hafi raunar verið unnin, sem ég nefndi hér áðan. Við höfum ekki, flm. þessa frv., viljað færast það í fang að flytja hér frv. til nýrra hafnarlaga. En við teljum, að það þoli nú ekki lengri bið að gera breytingar á ákvæðunum um hluta ríkisins í framkvæmdakostnaði. Það er raunar fleira, sem ekki þolir langa bið. T.d. þyrfti einnig í löggjöf að sjá betur fyrir möguleikum hafnanna til þess að afla sér lána, en ekki hafa þá möguleika eins tilviljunarkennda og þeir nú eru. En við höfum samt ekki lagt í það að taka inn í frv, okkar ákvæði um öflun lánsfjár til hafnanna, viljum hins vegar fastlega væntá þess, að þegar að því kemur, að ríkisstj. leggur fram frv. um þessi mál, þá muni það ásamt öðru fjalla um þetta efni. En við höfum takmarkað efni þessa frv. við þetta atriði eitt, sem ég nefndi áðan, þ.e.a.s. hluta ríkisins í framkvæmdakostnaði.
Við leggjum til í frv. á þskj. 479, að framlag ríkisins til tiltekinna framkvæmda, sem þar eru nefndar, verði hækkað úr 40-50%, eða 40%, eins og yfirleitt er nú í reynd, upp í 65% af kostnaði, þannig að ríkissjóður taki að sér, ef frv. verður að lögum, 25% af framkvæmdakostnaði umfram það, sem það nú greiðir. Þessar framkvæmdir, sem frv. fjallar um, eru samkv. 1. gr. hafnargarðar, þ.e. a. s. öldubrjótar, bátakvíar, ein afgreiðslubryggja í hverri höfn með allt að 150 m legukanti, dýpkun á siglingaleið í hafnarmynni og að bryggju hafnarsjóðs, og enn fremur til fyrstu framkvæmda á hverjum stað, á meðan ekki er varið til þeirra meira fé en 3 millj. kr. Þetta siðasta ákvæði, sem ég nefndi, er í raun og veru sniðið eftir núv. ákvæðum um lendingarbætur. Þessar framkvæmdir, sem nú hafa verið taldar, eru þær hafnarframkvæmdir, sem yfirleitt eru bráðnauðsynlegastar á hverjum stað og .jafnframt dýrastar, þar sem eru sjálfir hafnargarðarnir, sem mjög víða þarf að byggja eða víðast hvar, þó ekki alveg alls staðar, til þess að mynda skjól gegn hafsjó, og bátakvíar, sem þarf að gera víða inni í höfnunum þrátt fyrir aðalhafnargarðana eða öldubrjótana til þess að skapa skjól fyrir fiskibátana í hverri höfn, enn fremur aðalafgreiðslubryggja staðarins og nauðsynle5ustu dýpkanir, en allvíða þarf að dýpka hafnir og innsiglingu hafna, og sums staðar er það ein aðalframkvæmdin, þ.e.a.s. dýpkunin, en það fer mjög eftir staðháttum á hverjum stað. Fyrir utan þetta er að sjálfsögðu í höfnum um ýmsar aðrar framkvæmdir að ræða, sem eru ekki teknar hér upp, og bíður þá síðari tíma að kveða nánar á um framlög til þeirra. En þetta eru þær framkvæmdirnar, sem yfirleitt skiptir mestu máli, að hægt sé að koma upp víðast hvar, og jafnframt eru dýrastar.
Í samræmi við þessi ákvæði 1. gr. leggjum við til í 2. gr., að ákvæðin um ríkisábyrgðina breytist með tilliti til þess, að hluti ríkisins hækkar, og er það aðeins eðlileg afleiðing af hinu fyrra.
Það má segja, að ekki sé mjög langt síðan hafnargerð hófst hér á landi. Það er ekki fyrr en á 19. öld, að byggð tekur yfirleitt að færast í það horf, sem nú er á verzlunarstöðum og sjávarþorpum. Hin nýju sjávarþorp urðu þá jafnframt verzlunarstaðir fyrir þá, sem þar bjuggu, og næsta nágrenni, þótt aðrir staðir væru betur settir sem aðalverzlunarmiðstöðvar í héraðinu og héldu áfram að vera það. En í þessum gömlu verzlunarstöðum víðs vegar um land var líka oftast frá ómunatíð einhver útgerð eða þá að til hennar var stofnað, jafnhliða því sem byggð óx, oft í sambandi við verzlunina. Elztu mannvirki í höfnum hér á landi voru að sjálfsögðu aðallega miðuð við afgreiðslu flutningaskipa. Enda var þeim mannvirkjum í þann tíð einkum komið upp á vegum hlutaðeigandi verzlana, sem fluttu vörur að og frá landinu. Þá voru viða byggðar trébryggjur, sem uppskipunarbátar og á einstaka stað flutningaskipin sjálf gátu lagzt við, og eru vist víða ekki glöggar sögur af því, hvenær slíkar bryggjur hafa fyrst verið byggðar, en eflaust hefur það verið mjög snemma. Víða notuðust menn þó lengi við lausabryggjur, sem dregnar voru á land, þegar afgreiðslu skipa var lokið. En þar sem hvorki var föst bryggja né lausabryggja, var ekki um annað að ræða fyrr á tímum en vaða með vörurnar milli báts og lands og með það, sem flytja þurfti frá landi, hvort sem var svokölluð vara eða fiskurinn úr sjónum, nema þar sem svo hagaði til, að aðdjúpt var og hægt að leggja bát við klöpp. Það er ekki fyrr en vélknúin fiskiskip koma til sögunnar upp úr síðustu aldamótum, að byrjað er að hugsa fyrir hafnarmannvirkjum í þágu fiskveiðanna sérstaklega, en þá var sums staðar byrjað að koma upp bryggjum á vegum útgerðarfyrirtækja.
Á þessari öld hefur þróunin hins vegar orðið sú, að segja má, að nú séu fiskihafnir efst á dagskrá, þegar rætt er um hafnarmál hér á landi, eins og glöggt kemur fram í ályktun Atþingis frá 1958, sem ég nefndi áðan. Sú áætlun,, sem Alþingi stofnaði til 1958, er raunar ekki fyrsta áætlunin um hafnargerð hér á landi. Hinn 12. ágúst 1915, eða fyrir 48 árum, var á Alþingi samþ. svo hljóðandi þál., með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á landsstjórnina að láta hafnarverkfróðan mann á næstu árum skoða leiðir og lendingar í helztu verstöðum landsins eða í nánd við þá, þar sem fiskveiðar eru reknar haust og vetur, hvort það er á smáum eða stórum bátum, og gera kostnaðaráætlanir um hafnargerðir og lendingarbætur á þeim stöðum. Rannsóknir þessar skulu fara fram í samráði við Fiskifélag Íslands og samkv. áliti þess um, hvar arðsamast er og þýðingarmest fyrir fiskveiðar vorar, að hafnir séu gerðar eða lendingarbætur.“
Það var árið 1915 eða fyrir nálega fimm tugum ára nú að telja.
Eftir að lokið var byggingu hafnargarða og hafskipabryggju í Reykjavík, en þær framkvæmdir áttu sér stað á árunum 1913—1917, var danskur verkfræðingur, sem hafði verið yfirverkfræðingur þar, Kirk að nafni, ráðinn til þess af ríkisstj. að framkvæma rannsókn þá og áætlunargerð, sem gert var ráð fyrir í þáltill. Kirk verkfræðingur vann að þessari rannsókn árin 1918 og 1919, aðallega á sumrin, og fór í því skyni víða um land og athugaði hafnarstæði, eftir því sem voru tök á í þann tíð. Athugun hans tók til 42 staða. Þessi útlendi maður lézt, áður en honum hafði unnizt tími til að ganga frá áliti sínu nema að nokkru leyti, en þá var öðrum verkfræðingi, sem síðar var hér lengi vita og hafnarmálastjóri, falið að semja skýrslu um málið, og sú skýrsla var prentuð árið 1922 og er því til. Hún tekur til 49 staða. Þessari skýrslu fylgdu uppdrættir af 20 stöðum, enn fremur yfirlit svokallað, samið á vegum Fiskifélagsins, um helztu verstöðvar Íslands 1918 og útdráttur úr skýrslu Bjarna Sæmundssonar fiskifræðings um fiskirannsóknir við Reykjanes. Það var ekki fyrr en þessi áætlun hafði verið birt og raunar ekki fyrr en alllöngu síðar, sem hafnargerð hófst almennt hér á landi.
Í þeirri áætlun, sem gerð var árið 1961, ætla ég, að hafi verið gert ráð fyrir hafnarmannvirkjum á nokkru færri stöðum en ríkið hefur lagt fé til fyrr og síðar. Þörfin fyrir hafnargerð er mjög víða, bæði vegna verzlunarinnar, flutninga á sjó og þó einnig og kannske fyrst og fremst a.m.k. mjög víða vegna fiskveiðanna. Það er talið í opinberum skýrslum, að sjávarafli síðustu ára hafi verið lagður á land á rúmlega 60 stöðum í öllum landshlutum. Segja má, að þessar fiskihafnir séu álíka margar í landsfjórðungunum, en þó er þar nokkur munur á. Eitt helzta skilyrðið til þess, að hægt sé að stunda fiskveiðar hvar sem er, er það, að skipin, sem stunda veiðarnar, hvort sem þau eru stór eða smá, hafi viðhlítandi höfn. Og á því byggjast vaxtarmöguleikar margra þeirra þéttbýlisstaða eða flestra, sem risið hafa við sjóinn, að viðhlítandi hafnargerð verði lokið. Og vöxtur byggðarlaganna í heild byggist mjög á þessu, ekki aðeins sjávarplássanna, heldur einnig strjálbýlisins í kring. Þessi sjávarpláss mynda yfirleitt hina svokölluðu þéttbýliskjarna, sem nú tíðkast mjög að tala um í sambandi við þróun landsbyggðar, og er einmitt mikið um það talað um þessar mundir, að landið skiptist með eðlilegum hætti í svo og svo mörg þróunarsvæði og að í hverju þróunarsvæði þurfi að vera þéttbýliskjarni. Í seinni tíð hafa að vísu risið ýmis þorp alllangt frá sjó, t.d. á krossgötum sums staðar, og má gera ráð fyrir, að slíkum þorpum, sem þá mundu einnig teljast þéttbýliskjarnar, fjölgi. En fyrst um sinn munu það fyrst og fremst verða þessir bæir og þorp við sjóinn, sem verða þéttbýliskjarnar byggðarlaganna eða héraðanna eða þróunarsvæðanna eða hvað við viljum kalla það. Og allir þessir staðir byggjast á því fyrst og fremst um þessar mundir og þeirra vaxtarmöguleikar, að þar verði viðhlítandi höfn. En við vitum vel, að alhliða er þannig ástatt í verstöðvum t.d., að þegar verulega vond veður gerir af vissri átt, þá er skjólið í höfninni ekki meira en það, að fiskimennirnir geta ekki yfirgefið skip sin, þegar að landi er komið, til þess að hvílast á heimilum sínum milli róðra, heldur verða þeir að vera um borð í skipunum og hafa vélar í gangi til þess að vera til taks, ef hætta er á ferð. Það er ekki fýsilegt að búa við slíkt fyrir þá, sem það þurfa að gera. Og sem betur fer er það ekki alls staðar svo, en of víða og sums staðar á stöðum, þar sem um mikla útgerð er að ræða.
Ég veit það, og við gerum okkur það ljóst, flm., að í sumum sjávarplássum hér við land veltur framtíð byggðarinnar áreiðanlega mjög á því, hvort þar getur orðið um að ræða á næstu árum verulegar hafnarframkvæmdir. Ef ekki getur úr því orðið og ef menn sjá ekki hilla undir þær á næstunni og möguleika til þess að ráðast í þær, flytur fólkið burt úr þessum sjávarplássum og þar standa aðeins eftir sveitabæirnir, sem þar voru í öndverðu, eða engin mannabyggð. Það er því áreiðanlegt, að það er mikil þörf á því að gefa þessu máli fullan gaum, hvernig sem á það er litið , hvort sem litið er á það út frá brýnni þörf þeirra, sem sjóinn stunda í dag á einstökum stöðum, eða út frá landsbyggðar- og jafnvægissjónarmiðum. Gerð hafna, nægilega margra, víðs vegar á ströndum landsins, nægilega góðra hafna, er eitt öruggasta ráðið til þess að stuðla að viðhaldi og eflingu landsbyggðar hér á landi.
Með þessum orðum skal ég svo láta máli mínu lokið, en ég vil mega vænta þess fyrir hönd okkar flm., að þessu máli verði tekið með skilningi af hv. alþm. og hæstv. ríkisstj. og að menn geti á það fallizt, þótt það kosti nokkurt fé, að því er virðist í fljótu bragði, að gera þessa bráðabirgðabreytingu, sem kalla mætti, á hafnarlögunum, þangað til tími hefur unnizt til þess að ganga frá hafnarlöggjöf í heild. Og ég vil endurtaka það, sem ég ræddi hér um áðan, að ég geri ráð fyrir því, að í raun og veru, svo framarlega sem hafnargerð á að halda áfram með eðlilegum hætti, sé hér ekki um að ræða verulega útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð, heldur fyrst og fremst, að í staðinn fyrir það fé, sem hann nú greiðir sem vexti og afborganir af lánum, sem komin eru í vanskil, greiði hann þegar frá öndverðu stærri hluta af stofnkostnaði hinna einstöku hafna.
Ég leyfi mér svo að leggja til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.