24.10.1963
Efri deild: 5. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 881 í C-deild Alþingistíðinda. (2203)
30. mál, almannatryggingar
Flm. (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Fyrir forgöngumönnum almannatrygginga hér á landi vakti það í upphafi, að allar bætur almannatrygginga skyldu fullnægja almennum lágmarksþörfum. Ég skal ekki segja um, hvort þessu marki hafi nokkru sinni verið náð, en það er víst, að oft hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að stefna að þessu marki, að bæturnar fullnægðu almennum lágmarksþörfum. Þannig get ég nefnt, að í júlí 1958 skipaði þáv. ráðh. tryggingamála nefnd til þess að endurskoða vissa þætti trygginganna í því skyni, eins og það er orðað, að hlutur lifeyrisþeganna yrði bættur, og árið eftir, í febr. 1959, setti þáv. félmrh. aðra nefnd á laggirnar og skyldi hún endurskoða aðra þætti sömu laga með hækkun bóta fyrir augum. Vafataust var ráðstafana af þessu tagi þörf á þeim tíma, því að bætur almannatrygginga hafa aldrei og a.m.k. ekki þá verið á því stigi, sem fyrir brautryðjendum trygginganna vakti í upphafi. Báðar þessar nefndir, skipaðar 1958 og 1959, skiluðu áliti, og á grundvelli tillagna þeirra voru sett lög snemma árs 1960. Þessi lög fjölluðu fyrst og fremst um hækkun bóta almannatrygginga og var byggt á grundveili till. fyrrgreindra nefnda. Í lögunum fólst veruleg hækkun bóta yfirleitt frá því, sem var, og var jafnvel farið fram úr því, sem nefndirnar höfðu lagt til og þorað að vona. Með þessari hækkun, sem gerð var í marz 1960, skyldi hlutur lífeyrisþeganna bættur og, að því er lýst var yfir, þar að auki verndaður fyrir áföllum af völdum komandi viðreisnar. En þetta fór allt á annan veg, eins og reynslan sýndi síðar. Útreikningar hæstv. ríkisstj. í upphafi viðreisnar reyndust markleysa í þessu efni eins og fleirum, þegar til kastanna kom. Verndin, sem veita átti bótaþegunum í upphafi, varð einskis virði, þegar til kom, og ekki nóg með það, heldur hröpuðu bæturnar óðfluga niður fyrir það, sem áðurnefndar nefndir höfðu lagt til. Þannig hefur síðan í marz 1960 linnulaust verið gengið á hlut bótaþega almannatrygginganna. Þetta er ekki einungis fullyrðing stjórnarandstæðings, heldur hefur sjáif hæstv. ríkisstj. viðurkennt í verki þennan gang málanna.
Það var ekki liðið nema eitt ár frá setningu l. 1960, þegar hæstv. ríkisstj. varð að ganga inn á nokkra lagfæringu bótafjárhæðanna vegna mikillar dýrtíðaraukningar. Á sömu leið fór árið 1962 og í þriðja sinn nú á þessu ári, í apríl s.l. Í þessum hækkunaraðgerðum hæstv. ríkisstj., þótt skrefstuttar væru, felst að sjálfsögðu viðurkenning hennar á því fjárhagslega afhroði, sem lífeyrisþegar hafa beðið, allt frá því að viðreisnin tók að segja til sín í reyndinni. Tryggingabætur almannatrygginga, greiddar í peningum, voru síðast auknar í júní 1962. Hækkunin var þá mjög óveruleg, aðeins 7%, og það sem verra var, hún náði ekki til nærri allra bóta eða yfirleitt ekki til annarra bóta en elli- og örorkulífeyris. Allar aðrar bótategundir hafa því staðið í stað síðan á miðju ári 1961, og á meðan hefur dýrtíðin geisað, farið hamförum, eins og öllum er kunnugt. Nauðsynjar almennings hafa samkv. vísitölu hækkað í verði um 30 stig síðan í júlí 1962 og um 45 stig síðan á miðju ári 1961. Af þessu má marka, hvert stefnir með tryggingabæturnar. Þær eru nú á góðri leið með að verða svo að segja að engu. Á meðan matvörur, fatnaður, ljós og hiti og öll þjónusta hækkar í verði til jafnaðar um 38%, haldast flestar bætur tryggingalaganna óbreyttar, og engin tegund þeirra hefur hækkað nú á annað ár, enda þótt dýrtíðin hafi á sama tíma aukizt um 23%.
Það er einnig mikill galli, að sá háttur hefur verið tekinn upp síðari árin, að tryggingabætur greiddar í peningum hækki misjafnt og sitt á hvað. Eitt árið eru þessar bæturnar hækkaðar lítillega og annað árið hinar. Þetta hefur orðið til þess að skapa mikið misrétti meðal bótaþega. Eins og ég tók fram áðan, hækkaði örorku- og ellilífeyrir um 7% á árinu 1962, en þá urðu engar aðrar bætur hækkunar aðnjótandi. Með nýju l., sem taka gildi eftir næstu áramót, hækka aðeins þær bætur, sem mest hafa orðið útundan til þessa og nú eru orðnar nærri því að engu. Ellilífeyrir, örorkulífeyrir og raunar fleiri bótategundir eiga frá næstu áramótum að standa algerlega óbreyttar eða jafnvel lækka að krónutölu frá því, sem nú er og verið hefur síðan á miðju ári 1962. En þá hækkaði þessi lífeyrir, elli- og örorkulífeyrir, um ein 7%. Þessi háttur er vansæmandi, því að hann getur ekki verið gerður í öðru en blekkingaskyni við almenning. Bótahækkun er boðuð hástöfum, en um það þagað, að hækkunin nær hverju sinni aðeins til nokkurs hluta lífeyristegunda. Þannig má segja, að hálfgildings brögðum sé beitt til þess að hafa af lífeyrisþegunum eða a.m.k. draga á langinn réttmætar kjarabætur þeirra.
Sú regla hefur gilt að gera bótaþegum trygginganna einhverja úrlausn, um leið og opinberir starfsmenn hafa fengið kauphækkun. Nú hafa þeir á þessu ári hlotið verulega launahækkun, ef litið er á heildina, og er talið, að hún nemi að meðaltali 45%. Þessa síðustu kjarabót hafa lífeyrisþegarnir enn ekki hlotið, hvorki allir né nokkur hluti þeirra. Spurningin er því, hve lengi þeir verða látnir bíða, en um þessa hluti heyri ég litt talað enn sem komið er, og sízt heyrast raddir um þetta efni úr stjórnarherbúðunum.
Lífeyrir almannatrygginga á að vera þannig, eins og ég tók fram áðan, að hann fullnægi lágmarksþörfum þess, sem nýtur hans. Þessi er krafa allra þeirra, sem tryggingunum vilja vel. Það hefur oltið á ýmsu að nálgast þetta mark, en aldrei hygg ég, að við höfum staðið fjær þessu marki en nú á þessum haustmánuðum. Ef litið er á framfærslukostnað vísitölufjölskyldunnar, er óhugsandi, að öryrki eða gamalmenni komist af með mínna en 30 þús. kr. á ári, og það því aðeins, að hann njóti óvenjugóðra kjara hvað húsnæði snertir. Fullur lífeyrir er nú rúmar 18 þús., og vantar þá samkv, þessu nærri 12 þús. kr. á, að brýnustu þörfum sé fullnægt. Ef lífeyrisþegi verður einhverra hluta vegna að dveljast í stofnun, þá kostar dvöl hans þar a.m.k. 4000 kr. á mánuði. Upp í þann kostnað á hann kröfu til mánaðarlegs lífeyris, sem nemur rúmum 1500 kr. Mismuninn verður hann að fá einhvern veginn bónarleiðina, sé hann ekki þeim mun efnaðri sjálfur.
Það er hugsanlegt að miða lífeyrisupphæð við eitthvað annað en hað, sem ég nú hef gert. T.d. er ekki óalgengt, að bætur trygginga séu miðaðar við dagvinnukaup verkamanna. Í Danmörku og Svíþjóð var lífeyrir einstaklings fyrir fáeinum árum um þriðjungur verkamannalauna. Ef sama hlutfall ætti að gilda hér á landi nú, þyrfti ellilífeyrir að hækka um sem svarar 30%. Ég tek það fram, að eins og nú er háttað hér, er þessi samanburður mjög svo hæpinn vegna þess, hve óhæfilega lágt verkamannakaupið er hér á landi um þessar mundir, svo að raunverulega þyrfti ellilífeyrir og örorkulífeyrir og aðrar bætur að hækka miklu meira en um 30% til þess að teljast l/3 hluti af sómasamlegu verkamannakaupi.
Ég skal nú ekki orðlengja þetta miklu meira. Það er sama, frá hvaða hlið núv. bótafjárhæðir almannatrygginga eru skoðaðar, alla vega eru þær þegar orðnar langt á eftir í kapphlaupinu við dýrtíðina. Þær eru orðnar svo lágar, að ekki verður við unað lengur. Þetta er skoðun okkar flm. þessa frv., eins og raunar allra annarra, sem á málin líta sanngjörnum augum. Bæturnar verða hið allra fyrsta að hækka að krónutölu og það verulega, ef halda á í horfinu kaupmætti þeirra. Hvað hækkun þessa snertir, leggjum við til, að hliðsjón sé höfð af þeim kjarabótum, sem starfsmönnum ríkisins voru úrskurðaðar, enda er þá einnig um leið stuðzt við ýmiss konar annan samanburð, eins og ég hef þegar greint frá. Samkv. frv. okkar eiga bótafjárhæðir núgildandi tryggingalaga að hækka frá 1. júlí um 40% og greiðast þannig til ársloka. Eftir áramótin skulu bótafjárhæðirnar, eins og þær eru ákveðnar í nýju lögunum, sem þá ganga í gildi, hækka um sama hundraðshluta, 40%, enda eru þær hinar sömu og nú gilda, að undanskildum þeim bótum, sem langlægstar eru að tiltölu nú og orðið hafa útundan lengi við fyrri hækkanir. Loks gerir frv. ráð fyrir verðtryggingu bótanna frá 1. jan. 1964, þannig að dýrtíðaraukning, sem verða kann frá októberbyrjun nú, nái ekki að rýra til muna kaupmátt bótafjárins eftirleiðis.
Verðtrygging tryggingabóta hefur oft verið rædd hér á undanförnum þingum í hv. Ed., og ég þarf ekki að fjölyrða mikið um hana. Oft hefur verið móti henni mælt af þeim sökum, að gilda yrði hið sama um bætur almannatrygginga og um kaupgjald almennt í landinu. Þessu hef ég alltaf mótmælt. Ég tel, að hér sé um tvennt ólíkt og ósambærilegt að ræða. Ég tel, að verðtrygging ellilífeyris, örorkulífeyris, barnalífeyris, sjúkradagpeninga, slysabóta og annarra bóta tryggingalaganna eigi ekkert skylt við vísitölutryggingu atvinnutekna. Ég vil benda á þetta sérstaklega þeim, sem sjá rautt, ef minnzt er á tengingu kaupgjalds við vísitölu. Það er allt annað að mínum dómi. Ég tel, að verðtryggingin sé í þessu efni sérstaklega nauðsynleg vegna þess, að lifeyrir trygginganna er mjög naumt skammtaður, eins og allir munu viðurkenna. Lífeyririnn er svo naumt skammtaður, að í engu má þar missa. Þess vegna tel ég það óhæfu, að hann sé að staðaldri hafður verðbólgu og dýrtíð að leiksoppi. Að lokum skal ég í sambandi við verðtrygginguna benda á, að verðtrygging þeirra er ekki aðeins mannúðarmál og réttlætismál gagnvart þeim þjóðfélagsþegnum, sem verst eru settir. Slík verðtrygging er einnig stjórnvöldunum að mínum dómi mikið hagkvæmnismál. Það hlýtur að vera þeim og verða þeim til léttis, að þessar bætur breytist að krónutölu sjáifkrafa í hlutfalli við dýrtíð. Þá þurfa stjórnvöldin ekki að vera að burðast með lagasetningu á lagasetningu ofan, en reynslan sýnir bezt, að í því efni er þeim ekki alltaf hægt um vik. Ég vil þess vegna enn þá einu sinni hér í hv. d. beina þeim tilmælum til allra hv. þdm., að þeir endurskoði gaumgæfilega hug sinn um afstöðuna til verðtryggingabóta almannatrygginga.
Að svo mæltu læt ég máli mínu lokið. Herra forseti. Ég legg til, að frv. verði vísa til 2. umr. og til hv. heilbr.- og félmn.