13.04.1964
Efri deild: 67. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í C-deild Alþingistíðinda. (2251)
142. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Fram. (Jón Árnason):
Herra forseti. Það voru aðeins nokkur orð út af ræðu hv. 6. þm. Sunnl., Helga Bergs. Það kom reyndar ekkert nýtt fram í þessu máli, sem áður hefur ekki komið við umr. um dragnótina, og eins og hann skýrði frá gangi þessa máls í sjútvn., var það alveg rétt. Hins vegar skýrði ég honum frá niðurstöðu n., áður en við endanlega skiluðum nál., og að þar væri skýrt frá því, að hann hefði ekki verið viðstaddur, og taldi hann, að hann væri samþykkur, að nál. væri afgreitt þannig, og ekkert við það að athuga.
Þau rök, sem hér komu fram að þessu sinni og oft hafa reyndar verið dregin fram áður, að slíkt frv. sem þetta sé óþarft, vegna þess að lögin gera ráð fyrir því, að sveitarstjórnir og ýmsir fleiri aðilar geti haft hér á þau áhrif, að það geti ráðið úrslitum um, hvort dragnótaveiði kemur til framkvæmda eða ekki, við þetta er það að athuga, að það er mjög hæpið að hafa þennan hátt á, vegna þess að þeir, sem eiga síðan að ákveða um þetta, tel,ja mikinn vanda á höndum, hvernig eigi að meta þau atkv., sem til falla hverju sinni, hvort eigi að taka bara heildartöluna, sem kemur af með- eða mótatkv. hverju sinni, ellegar hvort eigi að ráða mismunandi t.d. atkv. frá bæjarstjórn Reykjavíkur, bæjarstjórn Kópavogs eða bæjarstjórn Akraness, svo að nefnd séu hér nokkur atriði. Og eins líka eru útgerðarfélög og fiskvinnslustöðvar, það er gert ráð fyrir, að allir þessir aðilar greiði atkv. um það, hvort þeir séu með eða móti dragnótaveiðunum, og síðan á rn. að skera úr um það. Þrátt fyrir andmæli frá mörgum á þessu veiðisvæði, hefur niðurstaðan orðið sú, sem raun ber vitni, að dragnótaveiðarnar hafa verið leyfðar hér í Faxaflóa.
Eins og ég gat um í minni framsöguræðu og aftur við 2. umr. málsins, er grundvöllurinn undir þeim rökum, sem voru upphaflega fyrir því að leyfa dragnótaveiðarnar, algerlega fallinn, álít ég, með tilliti til þess, hve kolinn er lítill hluti af heildarmagninu, sem um er að ræða, að nýttur sé úr dragnótinni. í þessu sambandi þykir mér rétt t.d. að geta þess, að á miðju seinasta sumri eða um 15. ágúst komu tilkynningar í útvarpinu til íslenzkra skipa og þar segir m. a.:
„Erfiðlega gengur að selja frystan kola úr landinu, og hafa frystihús á vegum Sambandsins forðazt kolakaup af fremsta megni, og nemur framleiðsla þeirra nú tæpum 300 lestum á móti 1150 lestum á sama tíma á árinu áður. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna reynir einnig að takmarka framleiðslu á frystum kola.“
Þar fyrir utan, þó að þetta væri ekki fyrir hendi, þessar upplýsingar, sem koma frá seinasta fundi um örðugleikana að hagnýta og koma í verð þessum verðmæta fiski, sem okkur var talið nauðsynlegt að hagnýta og lægi í miklu ríkari mæli en raun varð á, þegar veiðarnar fóru að koma til framkvæmda, álít ég, að það sé líka einn þáttur í því, sem gerir þetta ekki eins nauðsynlegt, og það er sú staðreynd, að meginhlutinn af þeim afla, sem dragnótabátarnir fá, er bolfiskur, sem ætti að vera hægt að ná til með veiðarfærum, sem ekki eru jafnskaðleg uppfæðingnum í Faxaflóa og dragnótin er. Það sagði svo í grg. frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, með leyfi forseta:
„Aðalrökin fyrir því, að dragnótaveiði skyldi leyfð í Faxaflóa, voru þau, að vegna friðunar flóans væri orðið þar mjög mikið af flatfiski, lúðu og kola, og óverjandi væri að hagnýta sér ekki betur þau sjávarföng en gert var með smátækum veiðarfærum þeirra smábáta, sem stunduðu þessi mið til mikils gagns fyrir fjölda manna, þar til dragnótaveiðin var leyfð. Dragnótin var leyfð og skyldi rekin undir ströngu eftirliti eða vísindalegri smás,já, en óþarft er að fjölyrða um það. Það kom brátt í ljós, að skakkar reyndust áætlanir eða fullyrðingar um flatfiskmagnið, því að hann reyndist minnstur hluti aflans og hvergi nærri sá, sem búizt var við og leyfisveitingin mun hafa verið byggð á“
Í lok grg. segir, að það sé „viðurkennt, að Faxaflói sé mikil og góð uppeldisstöð fyrir ungfisk, og með það sem aðalorsök fengum við hann friðaðan fyrir ágengni annarra þjóða. Með það í huga ber oss ekki hvað sízt að vernda hann fyrir hvers konar rányrkju, og þegar nú er sýnt, hvert stefnir með dragnótina í þessum efnum, vill Farmanna- og fiskimannasamband Íslands stuðla að því, að veiðar með dragnót séu bannaðar í Faxaflóa, svo að ungviðið fái þar næði til uppvaxtar, eins og friðun flóans var í upphafi byggð á.“
Þetta er mjög í sama anda og aðrar greinargerðir, sem borizt hafa, bæði frá sjómönnum á Akranesi og frá hreppsnefnd í Gerðahreppi. Í dag var verið að skýra frá því, að erindi hefði verið lagt hér fram í þinginu frá bæjarráði Kópavogs, sem gengur mjög í sömu átt, áskorun til þingsins um að samþykkja þetta frv.
Ég tel, að það séu mjög miklir annmarkar á því að vera með framkvæmd í sambandi við dragnótaveiðarnar með þeim hætti að leita eftir atkv. ýmissa fyrirtækja, hvort heldur það eru útgerðarmannafélög, sjómannafélög, hreppsnefndir eða bæjarstjórnir, vegna þess að ég álit, að það sé mikið spursmál, við hvaða fyrirtæki á þá að takmarka þessa atkvgr., og það geti oltið mjög á ýmsu um það, hvort rétt niðurstaða verður fundin hverju sinni eða ekki. Ég vænti því, að hv. d. sé sama sinnis og hún var hér við 2. umr. málsins og greiði götu frv, og samþykki það.