21.04.1964
Neðri deild: 82. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í C-deild Alþingistíðinda. (2258)
142. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Davíð Ólafsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, á þskj. 256, er komið frá Ed. og fjallar um það að breyta núgildandi lögum um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti á þann hátt, að bannaðar verði dragnótaveiðar í Faxaflóa. Mér þykir rétt, þar sem hér er um að ræða ekki veigalítið mál og ég vildi mega segja mjög þýðingarmikið mál, sem snertir mikið okkar stefnu alla í fiskveiðimálum, nú þegar við þessa 1. umr. málsins í þessari hv. d. að gera nokkra grein fyrir afstöðu minni til þessa frv., ef það mætti verða til þess að upplýsa ýmis atriði, sem ég tel máli skipta, áður en málið fer lengra í meðförum þessarar hv. deildar.
Dragnótaveiðar hafa verið lengi stundaðar hér við land, í áratugi fyrir síðustu heimsstyrjöld. Þá voru hér stundaðar dragnótaveiðar í vaxandi mæli. Þá voru líka stundaðar hér veiðar með botnvörpu, einnig í vaxandi mæli. Allar þessar veiðar með þessum botnveiðafærum voru stundaðar á öllu svæðinu hér við strendur Íslands upp að þáv. landhelgislínu, sem var 3 mílur, og línan dregin meðfram ströndinni og fylgdi strandlinunni alla leið umhverfis landið, nema þar sem firðir og flóar voru mínna en 10 mílur að breidd. Þannig var um það að ræða, að þessar botnveiðar voru stundaðar á öllu svæðinu upp að 3 mílunum, að því undanteknu þó, að dragnótaveiðar voru ekki stundaðar allt árið um kring, heldur var það einn eða tvo mánuði á ári, sem dragnótaveiðar voru ekki leyfðar. Þá var það einnig, að þessar veiðar, dragnótaveiðarnar og togveiðarnar, voru stundaðar með veiðarfærum, sem voru að einu leyti mjög ólík því, sem nú tíðkast með þessum sömu veiðarfærum, þ.e. a. s. að möskvinn í botnvörpunni og dragnótinni var smáriðinn, það var 70—80 mm möskvi, kannske mínni. Það voru engin ákvæði um lágmarksstærð möskva þá. Nú er þetta breytt. Síðan 1954 er fyrirskipuð hér við land lágmarksstærð möskva, sem nam frá 1954 110 mm, þ.e.a.s. það er stækkun um 70-80% frá því, sem áður var, og nú frá mánaðamótunum maí-júní n.k. stækkar möskvinn í botnvörpunni upp í 120 mm. Og í raun og veru er möskvinn í dragnótinni kominn upp í sömu stærð, eða 120 mm, með því að ákvæðin um möskvastærð eru þannig, að 110 mm miðast við sísal og harðan hamp, en það jafngildir 120 mm möskva í þeim vörpum, sem búnar eru til úr gerviefnum, en allar dragnætur, sem notaðar eru hér við land, eru nú búnar til úr slíku efni.
Það hefur ýmislegt fleira breytzt frá því, sem var fyrir stríð. Þá voru eins og ég gat um áðan, stundaðar þessar veiðar upp að 3 mílum, sem miðuðust aðeins við strandlengjuna. Árið 1950 var breytt til fyrir Norðurlandi og dregnar beinar grunnlinur og 4 mílur frá þeim grunnlínum. Þá hurfu allir togararnir út fyrir þá línu. Árið 1952 var svo það sama gert umhverfis allt landið. Það voru dregnar beinar grunnlinur og 4 mílur út frá því. Þá voru jafnframt bannaðar allar dragnótaveiðar innan þessarar 4 mílna landhelgi, sem jafngilti því, að allar dragnótaveiðar lögðust niður. Það var talið með öllu ófært að stunda dragnótaveiðar á svæðinu utan 4 mílna frá beinum grunnlínum, og þær lögðust algerlega niður, og þeim aðilum, sem höfðu byggt afkomu sína á dragnótaveiðum, var bætt þetta að nokkru úr fiskimálasjóði, bætt tapið á veiðarfærunum eða það tjón, sem þeir urðu fyrir við það að láta leggja veiðarfærin til hliðar eða skipta um veiðarfæri. Það var að vísu ekki nema að nokkru leyti bætt, en þó viðurkennt, að þarna var um að ræða tjón, sem því opinbera bæri að bæta.
Það var á þessum árum, fyrir 1952, sem við hófum raunverulega baráttuna um okkar landhelgi, og þeir sigrar, sem unnust á árunum 1950 —1952, höfðu, eins og ég gat um, þá þýðingu að koma öllum togurunum út fyrir 4 mílna landhelgi, hundruðum erlendra togara, sem stundað höfðu veiðar áratugum saman upp að 3 mílum, og jafnframt að útiloka dragnótina. Eitt af okkar megintækjum í þeirri baráttu, sem við háðum um landhelgina á þessum árum, var lagt okkur í hendur af okkar vísindamönnum. Vopnin voru smiðuð og þau dugðu okkur betur en nokkuð annað í baráttu okkar fyrir stækkun landhelginnar. Þeir lögðu fram greinagóð gögn um það, hvaða áhrif botnvörpuveiðarnar höfðu haft á ýmsum svæðum við landið með þeim tækjum, sem notuð höfðu verið, og þetta álit eða þessar skýrslur fiskifræðinga okkar voru þau vopn, sem dugðu okkur bezt í þessari baráttu. Alveg það sama skeði 1958. Það var búið þá áður árum saman að sýna fram á það með vísindalegum rökum, að okkur væri brýn nauðsyn á því að færa út tandhelgi okkar, og það er ekki nokkur vafi á því, að þau rök, sem vísindamenn okkar fengu okkur þá í hendur til þess að berjast fyrir okkar málstað, vorn hin þýðingarmestu. Eftir 1958, þegar þeim áfanga var náð, sem þá var ákveðið, fara menn meira að gera sér grein fyrir því og hugsa um það, hvernig við eigum að nýta þá landhelgi, sem við höfðum þá slegið eignarhaldi okkar á. Mönnum var þá orðið ljóst, að allt það, sem áunnizt hafði, var náttúrlega fyrst og fremst til þess, að við gætum nýtt betur eða notað betur þá fiskistofna, sem eru hér við landið. Við höfðum slegið eign okkar á stór hafsvæði, þar sem þessir fiskistofnar hrygna og vaxa upp og lifa, og okkur var ljóst frá byrjun, að það fylgdi þessu sú skylda að nýta þessa fiskistofna þannig, að ná mætti af þeim sem mestum arði. Við vorum bókstaflega skyldugir til að gera það, því að annars voru það engin rök hjá okkur, að við þyrftum að fá þessa útfærslu, við þyrftum að fá þessar friðanir, sem því fylgdu, ef við gátum ekki notað það, sem við vorum að friða af fiskistofnum fyrir útlendingum og fyrir okkar veiðum líka að nokkru leyti. Menn fóru að leita að leiðum til þess að framkvæma þetta. Það var leitað álits vísindamanna aftur, og niðurstaðan af því varð, að farið var að hugsa um að leyfa dragnótaveiðar innan 12 mílna landhelginnar. Mönnum sýndist, að vissir fiskistofnar hefðu þá þegar eftír 1958, fiskistofnar, sem höfðu notíð friðunar allt frá árinu 1950 að sumu leyti og 1952 í enn þá ríkara mæli, vaxið það mikið, að óhætt væri að gera nú tilraun með það að auka veiðarnar á þeim og það yrði bezt gert með því að leyfa dragnótaveiðar innan landhelginnar, en þó undir vísindalegu eftirliti, þannig að fylgzt væri mjög náið með því, hvaða áhrif slíkar veiðar hefðu. Það voru svo á þingi 1960 sett lögin, sem bera heitíð: „Um takmarkað leyfi til dragnótaveiði í fiskveiðilandhelgi íslands undir vísindalegu eftirliti“.
Er maður sér heiti þessara laga, getur maður ekki skilið annað en hér sé um að ræða tilrann til að hefja veiðar, sem ættu að byggjast á því, að haft væri með þeim vísindalegt eftirlit, og framkvæmd þeirra og framhald ætti að miðast við það, hvort slíkt vísindalegt eftirlit komist að þeirri niðurstöðu, að það væri óhætt eða ekki, allt út frá því sjónarmiði að hagnýta fiskistofnana þannig, að þeir gæfu sem mestan arð, án þess að þeir yrðu ofveiddir. Það þýðir náttúrlega, að ef fiskistofuarnir eiga að gefa sem mestan arð, verði þeir ekki ofveiddir, heldur hæfilega veiddir, til þess að ná úr þeim sem mestum arði. Á þessum lögum voru þó mjög áberandi gallar. Þar er öðrum þræði byggt á vísindalegum grunni, eins og ég sagði áðan, að heiti laganna gæfi tilefni til að ætla. Hins vegar er það ekki nema við fyrstu sýn. Raunverulegt ákvörðunarvald um það, hvort dragnótaveiðar skuli leyfðar, er nefnilega alls ekki í höndum vísindamanna, heldur í höndum — mér liggur við að segja óteljandi eða ótölulegra mismunandi aðila hingað og þangað í landinu. Það er látíð í hendur sveitarstjórna, það er látíð í hendur, eins og segir í lögunum, ,,annarra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta á viðkomandi veiði svæði“, sem þýðir raunverulega þeirra, sem veiða fiskinn, þeirra, sem vinna fískinn. Það þýðir sem sé: félagssamtaka þeirra, sem veiða fiskinn, félagssamtaka þeirra, sem vinna fiskinn, það eru sem sé verkalýðsfélögin, sjómannafélögin, félagssamtaka þeirra, sem taka fiskinn til vinnslu, þ.e. vinnslustöðvanna, eða einstakra vinnslustöðva á svæðunum o.s.frv. Það er sem sé þarna um að ræða hundruð aðila í landinu, sem lögin raunverulega fyrirskipa, að skuli spurðir um álit á því, hvort dragnótaveiðar skuli leyfðar, alveg án tillits til þess, hvað kemur í ljós við rannsóknir, vísindalegar rannsóknir á því, hvort dragnótaveiðarnar séu æskilegar eða ekki. Þetta leiðir til þess óhjákvæmilega, að á framkvæmd laganna hlýtur alltaf að verða allmikið handahóf. Það er alveg óhjákvæmilegt. Þegar þessir aðilar fara að meta það, hvort þeir eigi að mæla með því eða móti því að leyfa dragnótaveiðar úti fyrir einhverjum einstökum landshluta eða jafnvel í einhverjum flóa eða firði, þá eru mörg sjónarmið, sem koma til greina, sem eiga í raun og veru ekkert skylt við það, hvort óhætt sé að leyfa þar dragnótaveiðar með tilliti til fiskistofnanna. Það getur komið til greina, að þarna á þessu svæði stundi kannske bátar einhverjar aðrar veiðar og þeir telji sér ekki henta, að það komi þar annað veiðarfæri inn á svipað eða sama svæði. Það geta komið til greina ýmis atriði í atvinnuástandi á stöðunum o.s.frv., sem raunverulega á ekkert skylt við það, hvort heppilegt sé eða hentugt eða rétt að leyfa eða banna dragnótaveiðar. Þannig verður þetta, eins og ég sagði, meira og mínna handahófskennt, hvernig framkvæmd þessara laga verður, að því er tekur til þess, hvort leyfa skuli eða banna dragnótaveiðarnar. Þetta tel ég vera mjög mikinn ágalla á lögunum, og vissulega ber að harma það, að á sínum tíma skuli hafa verið farið inn á þessa leið, um leið og var þó gengið inn á það sjónarmið að leyfa dragnótaveiðar undir vísindalegu eftirliti.
Nú hefur maður mjög oft heyrt það, allt síðan 1960, að menn hafa rætt um það sín á milli, hvernig væri með þetta vísindalega eftirlit. Menn hafa oft og tíðum viljað gera litið úr því, að það væri nokkurt eftirlit þar, þetta væri bara til þess að sýnast og lítils virði og þess vegna væri ekkert á því byggjandi. Menn gera sér ekki grein fyrir því oft, að slíkt vísindalegt eftirlit byggist náttúrlega fyrst og fremst á því eða felst í því, að fiskifræðingarnir fylgjast með veiðinni samkvæmt sýnishornum, sem þeir taka úr veiðinni, samkvæmt sýnishornum, sem þeir taka úr þeim fiski, sem veiðist. Þeir fylgjast með því, hvernig árgangarnir eru, hvað mikið endurheimtist af merktum fiskum, og öðru þess háttar, sem þýðingu hefur, þegar þeir fara að meta, hvað stofnarnir þola. Þegar á að fara að meta það, hvort einhverjar veiðar séu æskilegar eða ekki út frá þessu sjónarmiði, þá þýðir það raunverulega, að það tekur langan tíma, það þarf nokkur ár, áður en hægt er að segja um það með nokkurri vissu, hvort einhverjar veiðar séu æskilegar eða ekki æskilegar út frá því sjónarmiði, sem ég gat um áðan, að ná hámarksarði úr fiskistofnunum. Þetta hafa menn oft ekki viljað viðurkenna eða menn hafa ekki áttað sig á þessu, og út frá því hafa þeir rætt um vísindalegt eftirlit og talið það lítils virði. En ég mundi segja, að lögin frá 1960 séu dæmi um það, hvernig ekki á að setja reglur um fiskveiðar, þar sem þar eru sett inn í lögin ákvæði, sem algerlega stangast hvort á við annað, þar sem annars vegar er gengið út frá því að miða við vísindalegt eftirlit og hins vegar gengið út frá því að láta aðila, sem hafa ekki möguleika á því að meta eða dæma út frá því sjónarmiði, ráða um það, hvort veiðarnar skuli leyfðar.
Ég kem að því hér á eftir að ræða svolítið nánar um álit vísindamannanna eftir þann tíma, sem liðinn er frá því, að fyrst var farið að stunda dragnótaveiðar hér við land á nýjan leik árið 1960.
Fyrsta árið, sem dragnótaveiðarnar voru stundaðar, — það var árið 1960, — hófust þær seint vegna þess, að lögin voru ekki sett fyrr en 3. júní 1960 og það tók nokkurn tíma að koma í gang þeim athugunum, sem gera þurfti og gera þarf á hverju ári samkv. 1., athugun á því, hvaða álit menn hefðu á því víðs vegar um landið, þeir aðilar, sem spyrja ætti, hvort veiðarnar skyldu leyfðar eða ekki. Ég hef hér tölur fyrir 3 ár um veiðar með dragnót í Faxaflóa. Það er nú það svæði, sem hér er rætt um, og svo á öllu landinu, en það er nokkuð misjafnt, hvar veiðarnar hafa verið stundaðar á þessum árum. Fyrsta árið, 1960, voru veiðarnar aðallega við Vestmannaeyjar og í Faxaflóa, lítið utan þeirra svæða. Þá voru veiddar við Faxaflóa um 5700 lestir alls, en á öllu landinu tæplega 10000 lestir. Þetta jókst á árinu 1961, þá var aflinn í Faxaflóa, — og þegar ég tala um aflann í Faxaflóa í þessu sambandi, á ég við það, sem hefur komið á land í veiðistöðvunum við Faxaflóa, og geng þá út frá því, að sá afli sé að öllu eða a.m.k. að verulegu leyti veiddur á Faxaflóasvæðinu, en vera má þó, að eitthvað meira hafi veiðzt á Faxaflóasvæðinu, þó að því hafi verið landað annars staðar, en um það liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar, — árið 1961 var aflinn í Faxaflóa um 7600 lestir, en aflinn á öllu landinu í dragnót var það ár tæplega 17000 lestir. Árið 1962 var aflinn í Faxaflóa 11300 lestir, á öllu landinu tæplega 20000 lestir. Því miður liggja ekki fyrir enn þá tölur um dragnótaaflann frá 1963, en þá varð hann töluvert minni að því er virtist í Faxaflóa en hann hafði verið árin þar áður, þar sem hann hafði nað hámarki á þessum 3 árum, en annars staðar er mér ekki fullkunnugt um það enn þá, hvernig það hefur komið út. Þær fisktegundir, sem aðallega veiðast í dragnótina, eru þorskur, ýsa og flatfiskur, og á það við alls staðar við landíð, en mest af flatfiskinum veiðist þó greintlega í Faxaflóa, og hefur það verið svo öll árin og sérstaklega þó 1962, að um eða yfir helmingur skarkolaaflans hefur verið í Faxaflóa og hitt að mestu við Vestmannaeyjar og eitthvað á Breiðafirði. Það er alveg ljóst, að einasta veiðarfæri, sem hægt er að veiða skarkola með að nokkru magni og aðrar flatfisktegundir, einnig þykkvalúru, sem veiðist einnig við Vestmannaeyjar, allur þykkvalúrnaflinn kemur frá Vestmannaeyjum,-eina veiðarfærið, sem hægt er að ná þessum tegundum með, er dragnótin. Þessar fisktegundir voru mjög lítið veiddar á okkar skipum hér við land, þegar engin dragnótaveiði var stunduð, og má heita, að útlendu togararnir hafi þá verið þeir einu, sem veiddu sem nokkru nam af flatfiski hér á þeim árum. Sama yrði upp á teningnum aftur, ef bannaðar yrðu hér dragnótaveiðar í Faxaflóa, þar sem meginhluti af flatfiskinum hefur veiðzt, sérstaklega af skarkolanum. Sá fiskur mundi annað tveggja deyja drottni sínum hér við landið innan landhelgislínunnar eða, eins og hann gerir alltaf nokkuð, ganga út fyrir línuna, sérstaklega fyrir Vesturlandi og Vestfjörðum, og vera veiddur þar af útlendum togurum, sem alltaf sækjast mjög eftir því að ná í þennan flatfisk.
Um ýsuna gildir þetta ekki alveg eins, en þó að nokkru leyti, því að það er greinilegt, að ýsustofninn hefur aukizt mjög mikið hér við land á undanförnum árum. Ýsuafli í dragnót hefur verið verulegur, og það er ekki hægt að ætla, að þeim afla hefði verið hægt að ná nema að litlu leyti í önnur veiðarfæri, ekki á þessum tíma, þ.e. a. s. á sumrin, þegar dragnótaveiðarnar eru leyfðar. Ýsuveiði hefur hins vegar verið mikil núna í vetur, aðallega í þorsknót, sem kallað er, og þær veiðar eru að sjáifsögðu stundaðar innan landhelgíslinunnar, oft á grunnu vatni.
Nú liggja fyrir skýrslur eða álit frá fiskifræðingum okkar um dragnótaveiðarnar og áhrif þeirra. Því miður hefur hv. sjútvn. Ed. ekki séð ástæðu til að taka upp í sitt nál. þá umsögn frá fiskideild atvinnudeildar háskólans, sem barst um þetta frv., en vísað í þess stað í umsögn frá árinu 1963, eða fyrir einu ári, þegar enn lágu ekki fyrir mörg af þeim gögnum, sem nú liggja fyrir um dragnótaveiðarnar. Vegna þessa tel ég rétt að rekja hér að nokkru það, sem vísindamenn okkar segja nú um áhrif dragnótaveiðanna, bæði í áliti sínu til sjútvn. Ed. og eins í mjög merkilegri grein, sem forstjóri fiskideildar, Jón Jónsson, hefur nýlega ritað í tímaritíð Ægi um áhrif dragnótaveiða á ýsu- og þorskstofnana hér víð land. Í grein þessari rekur Jón vísindalega með tölum og myndum, hvernig þessar veiðar hafa gengið, hvernig þorskveiðarnar hafa verið, hvað hefur verið veitt í dragnót, hvernig ýsuveiðarnar hafa verið o.s.frv., og dregur af því ýmsar ályktanir, og ég vildi leyfa mér að tilfæra hér nokkuð af því, sem hann segir, með leyfi hæstv. forseta. Hann segir svo í upphafi þessarar greinar:
„Frá því að dragnótaveiði var leyfð aftur í íslenzkri landhelgi árið 1960, hafa orðið miklar umr. manna á milli um þessa veiðiaðferð, og hefur menn greint mjög á um, hver áhrif hún hefði á íslenzku fiskistofnana. Andstæðingar dragnótar finna þessu veiðarfæri flest til foráttu. Dragnótin á að eyðileggja gróðurinn í botninum, hún á að fæla burt fisk eða spilla veiði á annan hátt, og hún á að eyðileggja ungviði nytjafiskanna.“
Og enn segir svo:
„Það álit fiskimanna, að dragnót og botnvarpa eyðileggi gróður botnsins, er byggt á misskilningi. Hinn raunverulegi gróður á botninum, þang og þari, nær ekki lengra niður en 30-40 metra, vegna þess að geisla sólarinnar gætir ekki dýpra, og allir, sem til þekkja, vita, að fiskveiðar með botnvörpu og dragnót eru ekki stundaðar í þessu gróðurbelti. Það, sem fiskimenn nefna gróður, eru hins vegar dýr af ýmsu tagi, smádýr úr flokki kóralla og marglyttna, sem oft lifa saman í búum, er mynda greinar og jafnvel stærri hríslur. Þessi dýr hafa sáralitla þýðingu, ef þá nokkra, sem fiskafæða. Þau dýr, sem lifa á sand- og leirbotni og þýðingu hafa fyrir nytjafiska okkar, eru t.d. alls konar skeldýr, kúskel, tigulskel o.fl. Þessum skeljum er engin hætta búin af dragnótaveiðinni. Þær eru venjulega niðri í leirnum, og verður fiskurinn því að róta upp til þess að ná þeim, og kemur dragnótin honum þar til hjálpar, að svo miklu leyti sem hún rótar upp botninum. Aðrar dýrategundir, sem lifa á botninum og þýðingu hafa sem fiskafæða, eru t.d. alls konar slöngustjörnur, krabbadýr og margar tegundir af ormum, og má hiklaust fullyrða, að þessum dýrum sé engin hætta búin af dragnótinni.“
Þetta segir í greininni um dragnótina og botngróðurinn. Um dragnótina og ungviðið er hér einnig stuttur kafli, sem ég vildi leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir svo:
„Að dragnótin sé hættuleg fyrir ungviði fiskanna, hefur verið ein veigamesta mótbáran gegn þessu veiðarfæri. Það er rétt, að með lítilli möskvastærð er hægt að veiða mjög mikið af smáfiski í dragnót og botnvörpu. En með því að hafa möskvastærðina nógu stóra, er hægt að hlífa smáfiskinum. Mjög yfirgripsmiklar rannsóknir, bæði hér við land og annars staðar, hafa sýnt, að náið samhengi er á milli stærðar þess fisks, sem fæst í botnvörpu og dragnót, og möskvastærðarinnar. Hefur þetta verið vísindalega sannað, svo að ekki verður um villzt.“
Svo rekur hann hér mjög ýtarlega þessar vísindalegu rannsóknir og til hvaða niðurstöðu þær hafa leitt. Ég mun ekki fara nánar út í það hér að rekja það, sem um það segir. En síðar í greininni segir svo um áhrif dragnótaveiði á ýsu- og þorskstofnana, og er það mjög fróðlegt einmitt í því sambandi, sem hér er um að ræða, í sambandi við þetta frv., — þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Árið 1962 var þorskveiðin í dragnót 3500 tonn, slægt með haus, og nam því 1.97% af heildarþorskveiði Íslendinga það ár. Sama ár var ýsuaflinn í dragnót 7964 tonn, og var það 18.3% af heildarýsuaflanum. Við skulum nú reyna að gera hér nokkra grein fyrir áhrifum dragnótaveiðanna á báða þessa fiskistofna. Árið 1962 fengust um 2/3 hlutar dragnótaaflans af þorski á báta úr verstöðvum við Faxaflóa, og er ástæða til að ætla, að mestur hluti aflans komi frá þessu svæði. Meðaltal endurheimta af þorski merktum í Faxaflóa á árunum 1954—1959 var 9%, en úr merkingum, sem gerðar voru árin 1960 og 1961, eða eftir að dragnót var leyfð, hafa fengizt 18% aftur. Gefur þetta nokkra vísbendingu um aukið álag á þennan stofn, og er um helmingur endurheimtanna frá dragnótabátum. Ekki gefa þessar tölur þó til kynna, að of mikið sé tekið úr stofninum“
Í niðurlagi greinarinnar eru svo niðurstöður höfundar. Þar segir svo, með leyfi hæstv: forseta: „Í stuttu máli má því segja, að hingað til hefur ekkert það komið fram í viðbrögðum þorsk og ýsustofnanna gagnvart dragnótaveiðinni, er bendi til þess, að þeim sé meiri hætta búin af þessari veiðiaðferð en öðrum veiðum. Við verðum að nýta þessa fiskistofna, svo sem þeir framast þola. Við höfum ekki ráð á því að láta fiskinn verða ellidauðan eða lenda í höndum útlendinga, af því að við tökum hann ekki sjálfir. Það er ástæða til að benda á, að sóknin í fiskistofna okkar á grunnmiðum er í dag á engan hátt sambærileg við það, sem var áður en landhelgin var færð út og útlendir togarar stunduðu veiðar inn að 3 mílum. Samkv. skýrslum Faxaflóanefndarinnar, sem vann að rannsóknum á fiskistofnunum fyrir seinustu heimsstyrjöld, var heildarsókn enskra togara einna í Faxaflóa að meðaltali tæplega 21 þús. togtímar á ári auk allra annarra togara, er veiðar stunduðu í flóanum. Og þá voru heldur engin fastmótuð ákvæði um lágmarksmöskvastærð, og togskipin rótuðu því upp miklu af smáfiski.“
Þetta segir í grein Jóns Jónssonar um áhrif dragnótaveiði á ýsu- og þorskstofnana hér við land, og þykir mér það mjög athyglisvert einmitt með tilliti til þessa frv. og þeirrar grg., sem því fylgir, þar sem reynt er að leiða rök að því, að dragnótaveiðin sé mjög hættuleg fyrir fiskveiðar í Faxaflóa.
Í umsögn fiskideildar um þetta frv., sem beðið var um af hv. sjútvn. Ed., kemur fram að nokkru það sama, sem ég rakti hér úr grein Jóns Jónssonar, og sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka það. En nokkur atriði eru það þó, sem vert er að vekja athygli á. Þar segir svo m.a., með leyfi hæstv. forseta, þar sem rætt er um sveiflur í árgöngunum :
„Sveiflur í einstökum árgöngum í ýsustofninum eru miklar og geta því haft staðbundin áhrif á aflamagnið. Virðast þær koma jafnt fram á svæðum, þar sem dragnótaveiði er stunduð og þar sem hún er bönnuð. Samanburður á aflamagni á togtíma í Faxaflóa, Eyjafirði og Skjálfanda síðan árið 1955 sýnir líka sveiflur frá ári til árs.“ En í Faxaflóa hafa verið leyfðar dragnótaveiðar frá árinu 1960. Í Eyjafirði og Skjálfanda hafa ekki verið stundaðar dragnótaveiðar síðan árið 1950. Þrátt fyrir það koma fram sömu sveiflurnar í ýsustofninum á öllum þessum svæðum, þannig að það er ekki hægt að sjá, að dragnótaveiðin sem slík hér í Faxaflóa hafi haft nokkur áhrif á viðgang ýsustofnsins.
Enn fremur segir hér, með leyfi hæstv. forseta: „Meðaltal af endurheimtum af ýsu, merktri í Faxaflóa, var 4.3% á tímabilinu 1953-1959. Frá merkingum, sem gerðar voru árið 1960, hafa fengizt 5.1% og jafnmikið úr merkingum frá árinu 1961. Hins vegar hefur hlutur erlendra veiðiskipa í endurheimtunum lækkað mjög. Á árunum 1953-1959 komu 17.3% af endurheimtum af ýsu merktri í Faxaflóa frá útlendingum, en frá merkingum á árinu 1961 aðeins 3.4%.“
Og enn segir hér:
„Hér skal ekki farið frekar út í þær rannsóknir, sem gerðar hafa verið á ýsustofninum í Faxaflóa og annars staðar við landið, en í stuttu máli má segja, að þær gefi ekki til kynna, að ýsustofninum sé hætta búin af núverandi sókn.“
Um skarkolaveiðina gildir hið sama. Þar er niðurstaðan sú eins og hér segir, með leyfi hæstv. forseta: „Þau gögn, sem fyrir hendi eru, benda ekki til þess, að skarkolastofninum sé hætta búin af núverandi sókn: Og loks segir í niðurlagi umsagnarinnar með sérstakri tilvísun til þessa frv., með leyfi hæstv. forseta: „Af því, sem vitað er um ástand þorsk-, ýsu- og skarkolastofnanna hér við land, telur fiskideildin ekki ástæðu til þess að banna dragnótaveiði í Faxaflóa:
Ég hef þá rakið hér nokkuð álit fiskifræðinga okkar á því, hvaða áhrif dragnótaveiðarnar hafi á þessa tvo einna helztu fiskistofna, sem fiskveiður okkar byggjast á, þ.e. þorsk og ýsu, tvo helztu fiskistofna af okkar botnfiskum auk flatfisksins, og það kemur sem sé greinilega í ljós, að það er álit þeirra, að dragnótaveiðarnar hafi ekki þau áhrif á þær veiðar, að nokkur ástæða sé til þess að banna þær í Faxaflóa eða raunar annars staðar. En eins og ég gat um áðan, koma fram, þegar menn segja álit sitt á dragnótaveiðunum, þ.e. a. s. leikmenn, ýmis sjónarmið, og það er ábyggilegt, að eitt af þeim vandamálum, sem hafa ekki litið að segja, þegar menn fara að meta, hvort leyfðar skuli dragnótaveiðar, er það, sem alls staðar kemur fram, þar sem mismunandi veiðarfæri eru notuð á sömu slóðum á sama tíma til að ná sama fiski, en þar er um að ræða árekstra á milli veiðarfæra. Þetta er að vísu ekki sérstaklega áberandi á sumum þeim svæðum, sem dragnótaveiðarnar eru stundaðar á, og þó kemur það fyrir á sumum þeim svæðum, t.d. hér í Faxaflóa, þar sem bátar hafa stundað handfæraveiðar, línuveiðar og e.t.v. netaveiðar á sumrin og haustin, á sama tíma og dragnótaveiðin er leyfð. En þá ber að geta þess, að allt frá því að dragnótaveiði var leyfð hér í Faxaflóa 1960, hafa veruleg svæði innan flóans jafnan verið lokuð fyrir dragnótinni og reynt á þann hátt að hliðra nokkuð til fyrir öðrum veiðarfærum, þannig að komizt yrði hjá árekstrum. Þetta hefur að sjálfsögðu leitt til þess, að athafnasvið dragnótabátanna hefur verið mjög miklu minna en ella hefði orðið og valdið þeim erfiðleikum við veiðar þeirra. En þetta vandamál, sem ég minntist á í sambandi við mismunandi veiðarfæri, sem notuð eru á sömu slóðum á sama tíma til að ná sama fiski, er þó miklu alvarlegra á öðrum tímum og öðrum svæðum, og á ég þar víð sérstaklega á vetrarvertíðinni, þar sem um er að ræða veiðar með linu, með netum og með nót og með botnvörpu. Þetta er vandamál, sem mönnum hefur lengi verið ljóst að var fyrir hendi, en hefur farið vaxandi. Það er orðið erfiðara viðfangs, eftir því sem veiðarnar hafa aukizt, eftir því sem bátunum hefur fjölgað, eftir því sem bátarnir hafa stækkað og eftir því sem veiðitækninni hefur fleygt fram. Það hefur verið reynt að gera nokkrar ráðstafanir til þess að hindra slíka árekstra á milli línuveiða og netaveiða hér í Faxaftóa eða út af Faxaflóa með því að hafa viss svæði lokuð, þannig að væri óheimilt að leggja þar net fram að vissum tíma á vetrarvertíð nú í 2 ár, en það er náttúrlega mjög takmarkað gagn, sem slíkt gerir fyrir línuveiðarnar, og þó mundi ég segja, að nokkurt gagn hafi af því orðið. Hér er um að ræða vandamál, sem við hljótum að verða að snúa okkur að því að reyna að leysa, og þar verður að ráða sama sjónarmiðið eins og ég gat um í upphafi í sambandi við dragnótaveiðar og raunar allar fiskveiðar. Við verðum að miða við það að ná í fiskinn á sem ódýrastan hátt og að nýta eða ná hámarksarði af fiskistofnunum. Við megum ekki láta það henda okkur að stirðna í gömlum formum í sambandi við fiskveiðar okkar. Við megum ekki láta það henda okkur að halda dauðahaldi í veiðiaðferðir, þó að þær hafi gefizt okkur vel um langan aldur, ef ný tækni kemur og býður okkur nýja möguleika til þess að afla fisksins á ódýrari hátt, meira af fiski, og býður okkur möguleika til þess að nýta fiskistofnana betur en áður. Við höfum séð nú á undanförnum árum, hvílíka geysilega þýðingu ný tækni í síldveiðunum hefur haft, hvernig sú nýja tækni hefur fært okkur ótaldar milljónir eða hundruð milljóna í þjóðarbúið, af því að við kunnum að bregðast við fljótt, þegar sú tækni varð til, og notfæra okkur hana til hins ýtrasta. Þetta gefur okkur vísbendingu um það, hvað getur líka komið fyrir í öðrum veiðum, í þorskveiðunum. Það eru reyndar núna að gerast þar merkilegir hlutir, sem við sjáum ekki fyrir endann á enn þá. Það gefur okkur ákveðna vísbendingu um, að við eigum að vera mjög vakandi yfir öllum nýjungum og breytingum og ekki halda okkur dauðahaldi í gömlu formin, þegar við sjáum fram á það, að annað betra býðst. En það er ekki tækifæri til þess hér í sambandi við þetta frv. að ræða þetta mikla vandamál sérstaklega, en ég vildi þó ekki láta hjá liða að minnast á það hér, af því að það snertir þó að vissu leyti þetta vandamál dragnótaveiðanna.
Að lokum vildi ég svo segja þetta um það mál, sem hér er til umr.: Eins og ég gat um áðan, voru það okkar vísindalegu rannsóknir, sem stundaðar höfðu verið um áratugi, sem lögðu okkur í hendurnar þau vopn, sem bezt dugðu okkur í baráttunni fyrir stækkaðri landhelgi. Fiskirannsóknarmenn okkar hafa með starfi sínu unnið sér álit erlendis. Það reyndist svo alveg ótvírætt í okkar landhelgisbaráttu, að þeirra rök vógu þar mjög þungt. Og við munum vissulega í framtíðinni þurfa mjög á því að halda að nota þá í okkar baráttu. Það var, eins og ég gat um einnig áðan, spor í rétta átt að setja ákvæði í 1. um dragnótaveiðar, þannig að þær skyldu stundaðar undir vísindalegu eftirliti, þó hins vegar að önnur ákvæði drægju mjög úr gildi þess ákvæðis. Ef Alþingi nú skyldi ákveða, þvert ofan í álit okkar vísindamanna, að banna dragnótaveiðar hér í Faxaflóa, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, er ómögulegt annað en líta þannig á, að álit vísindamanna okkar sé til hliðar sett og starf þeirra að vissu leyti gert ómerkt, þar sem svo ótvírætt liggja fyrir þeirra skoðanir á þessu máli og byggðar og studdar vísindalegum rökum, sem ég ætla að erfitt sé að hrekja. Ég mundi halda, að það gæti orðið erfitt síðar meir, þegar okkur kemur til með að riða á því að tefla fram vísindalegum rökum þessara sömu vísindamanna eða þessarar sömu stofnunar, sem þarna er um að ræða, í okkar baráttu, og við getum varla vænzt þess, að aðrir taki álit þessara vísindamanna alvarlegar en við sjálfir mundum gera með því að samþ. þetta frv. þvert ofan í þeirra vel rökstudda álit.
Ég læt svo þessu lokið. Eins og ég sagði í upphafi máls míns, vildi ég ekki láta hjá líða að
láta þessi sjónarmið koma fram hér þegar við 1. umr. málsins hér í þessari hv. d., svo að menn gætu kynnzt þeim sjónarmiðum, og jafnframt vildi ég kynna þær skoðanir eða það álit, sem vísindamenn okkar hafa sett fram í þessu efni, sem ég tel — og endurtek það — mjög mikils virði, að tekið verði tillit til einmitt í málum sem þessum.