21.04.1964
Neðri deild: 82. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í C-deild Alþingistíðinda. (2264)

142. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi

Axel Jónsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég ætla ekki að ræða þetta efnislega. Mér hefur þótt liggja að því í ræðum einstakra þm., að það væri jafnvel óviðurkvæmilegt, að gerðar væru breyt. á l. um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti, að gerðar væru breytingar á þessum lögum, ef það gengi að einhverju leyti í mótsögn við álit fiskifræðinga. Ég lít ekki svo á. Þegar um er að ræða lög, sem kveða svo á, að það skuli leitað umsagnar eða álits fjöldamargra aðila, sveitarstjórna og annarra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta, þá finnst mér ekki óeðlilegt, þó að hér á hinu háa Alþ. sé einnig fjallað um þetta mál. Ef löggjöfin gerði ráð fyrir því, — og það er út af fyrir sig sjónarmið, sem vissulega er hægt að taka undir, — að vísindamennirnir segðu algerlega til um þetta, væri hægt að halda þessu fram. En miðað við það, hvernig þau lög, sem hér um ræðir, eru úr garði gerð, þar sem kveðið er á, að leita skuli álits svo og svo margra aðila í þessu efni, að þá gerir maður ráð fyrir, að taka eigi tillit til álits þessara manna, jafnvel þó að það gangi að einhverju leyti í berhögg við álit fiskifræðinga, þá er það alls ekki óeðlilegt, fyrst svona er um hnútana búið, að þessum málum sé hreyft hér. Ég er ekki svo kunnugur, að ég viti, hvert er álit þeirra aðila, sem um getur í 1. gr. að leita eigi til, ég vil segja frá Snæfellsnesi og til Reykjaness. Ég veit um nokkra í því efni, og það mun sjálfsagt upplýsast hér við seinni umræður málsins, hvernig þeir aðilar eru stemmdir í því máli.

Ég vildi aðeins varpa þessu fram, vegna þess að 3. þm. Vestf. vakti einmitt athygli á því, að innan ramma laganna, eins og þau eru nú, getur farið svo, að ekki sé hægt að opna Faxaflóa fyrir dragnótaveiði, hvað svo sem okkar fiskifræðingar segja.