10.03.1964
Efri deild: 58. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 966 í C-deild Alþingistíðinda. (2284)

182. mál, stækkun Mosfellshrepps í Kjósarsýslu

Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. Frá landfræðilegu sjónarmiði má heita, að Kjalarneshreppur sé klofinn í tvennt. Fjallshryggur, svonefndar Kleifar, skerst þvert í gegnum hreppinn næstum í sjó fram. Af þessu leiðir, að þeir, sem búa austan megin við hinar svonefndu Kleifar, eru mjög sundurskildir frá hinum, sem búa í hreppnum vestan megin við Kleifarnar. Samskipti íbúanna á þessum tveimur svæðum í Kjalarneshreppi eru í rauninni lítil önnur en þau, sem af þeirri staðreynd leiðir, að að forminu til heyra íbúarnir til einu og sama sveitarfélagi. Hreppsbúar austan Kleifa hafa svo til öll eða langsamlega mest sín félagslegu viðskipti, ekki við sveitunga sína, heldur við íbúa nágrannahreppsins, Mosfellshrepps. Þannig er það t.d. og hefur lengi verið, að íbúar í Kjalarneshreppi austau Kleifa eiga ekkí kirkjusókn í Kjalarneshreppi, heldur í Mosfellshreppi. Íbúar í Kjalarneshreppi austan Kleifa eru ekki í sameiginlegu búnaðarfélagi með öðrum íbúum síns sveitarfélags, heldur eru íbúar austan Kleifanna meðlimir í búnaðarfélagi Mosfellshrepps. Ungmennafélagar í Kjalarneshreppi eru heldur ekki allir í einu og sama ungmennafélagi. Þeir, sem austan Kleifanna búa, eru félagar í Ungmennafélagi Mosfellshrepps. Sama máli gegnir um kvenfélagið. Konurnar í Kjalarneshreppi eru ekki saman um sitt kvenfélag, heldur eru konurnar í austurhluta hreppsins meðlimir í Kvenfélagi Mosfellshrepps. Um barnafræðsluna gildir nokkuð svipað, þannig að börn úr austurhluta Kjalarneshrepps hafa gjarnan sótt og stundað skóla, ekki á Klébergi í sínu sveitarfélagi, heldur í Mosfellshreppi. Og þannig mætti lengi upp telja.

Af þessum eðlilegu landfræðilegu ástæðum hefur félagslíf Kjalarnesbúa í raun og veru verið klofið í tvennt, þannig að íbúar austan Kleifanna hafa sitt félagslíf í samfélagi með Mosfellssveitarmönnum, en ekki með sínum sveitarfélögum í Kjalarneshreppi.

Þessi staðreynd hefur leitt til þess, að íbúar austan Kleifa í Kjalarneshreppi hafa lengi fundið fyrir því, að hreppaskiptingin væri þarna með nokkuð óeðlilegum hætti. Þeir hafa verið þeirrar skoðunar, að það væri eðlilegt, að þeir tilheyrðu því sveitarfélagi, sem þeir hafa sín félagslegu samskipti yfirleitt við. Þessi skoðun leiddi til þess, að á s.l. ári óskuðu íbúar austurhluta Kjalarneshrepps eftir því, að flutt yrði frv. hér á hv. Alþingi þess efnis, að austurhluti Kjalarneshrepps yrði sameinaður Mosfellssveit. Samkv. ósk þessara íbúa flutti ég frv. um þetta á síðasta Alþingi í þeirri d., sem ég þá átti sæti, hv. Nd. Frv. var þá vísað til allshn. til athugunar. Ég beindi því til n., þegar málið var til 1. umr., að eðlilegt væri að leita umsagnar hreppsnefndar Kjalarneshrepps, Mosfellshrepps og sýslunefndar um frv. í heild. Hv, allshn. Nd. gerði þetta, en umsagnirnar bárust ekki fyrr en svo seint, að ekki var tími til að afgreiða málið úr nefnd fyrir þinglok á s.l. ári. Ég hef því samkv. endurnýjaðri ósk nú tekið frv. upp á ný og borið það fram hér í þessari hv. deild.

Ég vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. Í skrifstofu Alþingis liggja fyrir þær umsagnir, sem borizt hafa um frv. frá þeim aðilum, sem leitað var til. Ég vil enga dul á það draga, að hreppsnefnd Kjalarneshrepps lagðist gegn þessu frv. og mótmælir því, að það verði samþykkt. Hreppsnefnd Mosfellshrepps hins vegar lýsir því yfir, að hún hafi ekkert við það að athuga, að þessi breyting verði gerð á hreppaskipaninni. Sýslunefnd Kjósarsýslu hins vegar leiðir hjá sér að taka afstöðu til málsins, en leggur áherzlu á, að íbúar Kjalarneshrepps komi sér saman um lausn þess og niðurstöðu. Þrátt fyrir þessar umsagnir er það eindregin ósk þeirra, sem voru hvatamenn þess, að ég bar frv. fram í fyrra, að frv. verði nú flutt á ný.

Eins og menn sjá, miðar frv. að því að fullnægja þarna ósk talsverðs hluta íbúa Kjalarneshrepps, ósk, sem fram er komin vegna þess, að landfræðileg staðreynd hefur löngum slitið þá úr félagslegu sambandi við sína sveitunga, landfræðileg staðreynd, sem leiðir til þess, að eðlilegt sé að taka tillit til þessara íbúa Kjalarneshrepps um það, að þeir fái að vera í sveitarfélagi með þeim grönnum sinum, sem þeir eiga og hafa átt miklu meiri samleið með heldur en

öðrum íbúum Kjalarneshrepps. Það er rétt, að við þetta minnkar Kjalarneshreppur, og það kunna að verða einhverjir erfiðleikar fyrir Kjalarneshrepp í framtíðinni, ef þessi breyting nær fram að ganga. Ég hygg þó, að þetta skipti ekki svo ýkjamiklu máli. Erfiðleikarnir eru þegar til staðar, og ég hef áður oft og mörgum sinnum bent á, að það væri fullkomlega til athugunar, hvort ekki væri heppilegust lausn á þessu máli, að sá hluti Kjalarneshrepps, sem vestan Kleifanna liggur, hygði til nánara sambýlis við Kjósarhrepp, sem liggur þarna enn norðar og vestar. En allir þessir hlutir verða að sjálfsögðu athugaðir í sambandi við frv.

Ég vil leyfa mér að endurtaka till. mína um, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.