10.10.1963
Neðri deild: 0. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (23)

Kosning forseta og skrifara

Forseti (JóhH):

Ég vil leyfa mér að þakka það traust, sem mér hefur verið sýnt að kjósa mig sem forseta þessarar hv. d., og um leið vildi ég mega láta í ljós þá ósk, að milli allra hv. þm. og forseta megi ríkja góður samhugur og gott samstarf til þess að greiða fyrir afgreiðslu þeirra mörgu mála og vafalaust merkilegu, sem fyrir þessa hv. d. verða lögð, og hún megi fara fram með góðu skipulagi og góðri reglu.

Forseti lét næst fara fram kosningu fyrsta varaforseta. Kosinn var

Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl., með 21 atkv. — Halldór E. Sigurðsson, 3. þm. Vesturl., hlaut 1 atkv., en 18 seðlar voru auðir.

Annar varaforseti var kosinn

Jónas G. Rafnar. 2. þm. Norðurl. e., með 21 atkv. — Halldór E. Sigurðsson hlaut 1 atkv., en 17 seðlar voru auðir.

Þessu næst voru kosnir skrifarar deildarinnar, að viðhafðri hlutfallskosningu. Fram komu tveir listar. Á A-lista var Matthías Bjarnason, á B-lista Sigurvin Einarsson. Samkv. því lýsti forseti yfir, að kjörnir væru án atkvgr.:

Matthías Bjarnason, 11. landsk. þm., og Sigurvin Einarsson. 3. þm. Vestf.