02.12.1963
Efri deild: 19. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
69. mál, Lífeyrissjóður barnakennara
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. fjmrh. fyrir frv. því, sem hér liggur fyrir, og í grg. frv., þá er aðalefni frv., ef að lögum verður, það að samræma ákvæði um lífeyrissjóð barnakennara þeirri löggjöf, sem sett var hér á hv. Alþ. á s.l. vori um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Í sambandi við lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna geta vitanlega komið fram mörg álitamál, en hvað sem því líður, getur tæpast verið ágreiningur um það, að ákvæði laga um lífeyrissjóð barnakennara hljóti eðlilega að verða á hverjum tíma í samræmi við hin almennu lög um lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Út frá þessu sjónarmiði fyrst og fremst hefur fjhn., eins og álit hennar á þskj. 96 ber með sér, orðið sammála um að leggja til., að þetta frv. verði samþ. óbreytt.