18.12.1963
Sameinað þing: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í D-deild Alþingistíðinda. (2310)
66. mál, kal í túnum o.fl.
Flm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Till. svipuð Þessari var flutt á síðasta Alþingi, en náði þá ekki endanlegri afgreiðslu hér á hv. Alþingi. Þess vegna höfum við flm. viljað freista þess að leggja þetta mál fram að nýju í trausti þess, að Alþingi taki það nú til endanlegrar afgreiðslu.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að túnræktin er sá efnahagslegi grundvöllur, sem afkoma bændastéttarinnar í landinu byggist öðru fremur á. Bregðist túngróðurinn eða minnki töðufengurinn, eru miklir erfiðleikar á næsta leiti. Þetta hefur þrásinnis endurtekið sig í gegnum aldanna raðir, og síðast bar sumarið 1962 þess ljósan vott, hvað töðufengurinn getur minnkað, ef tíðarfarið er gróðrinum óhagstætt, eins og þá var í stórum hluta landsins. Og þá var talið, að kalskemmdir einar í túnum mundu hafa valdið því, að töðufengurinn var 1/6 hluta minni en þá tvö árin næst á undan og tapið, sem af því hlauzt, var reiknað sem næst 60—80 millj. kr.
Ég ætla mér ekki að fjölyrða hér um þessa till., en ég tel, að þessar staðreyndir, sem ég hef hér nefnt, sýni glögglega, hversu mikils virði er að geta aflað sér nægrar bekkingar og upplýsingar með rannsóknarstarfsemi til þess að fyrirbyggja, ef þess er kostur, að bændastéttin og þjóðfélagið verði fyrir jafnmiklum skaða og ég hef hér drepið á. En till. þessi hljóðar þannig, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um það við atvinnudeild Háskóla Íslands, landbúnaðardeild, að sérfræðingar hennar í jarðrækt einbeiti sér að rannsóknum á orsökum kals í túnum. Rannsóknunum sé m.a. beint að eftirfarandi atriðum:
1) Að hve miklu leyti má rekja orsakir kals til veðurfarsáhrifa, svo sem snjóa- og svellalaga, og við hvaða aðstæður kal myndast af þeim sökum.
2) Hvort eðlisfræðilegt ástand jarðvegsins, jarðvinnsluaðferðir, þurrkunarásigkomulag ræktunar, haust- og vetrarvatnsstaða í jarðvegi hafa áhrif í sambandi við kalhættu.
3) Hvort misnotkun áburðar, svo sem stórir skammtar köfnunarefnis, og áburðartími, t.d. áburðargjöf seint á sumri milli slátta, eigi sinn þátt í auknum kalskemmdum.
4) Hvort notkun túnanna, svo sem haustbeit og sláttur síðsumars og að hausti, auki kalhættu.
5) Rannsókn á þoli stofna, sem notaðir eru í fræblöndur.
Jafnframt verði í tilraunastöðvum gerðar ræktunartilraunir til að leita að þeirri ræktunaraðferð, svo sem varðandi jarðvinnslu, grastegundir og meðferð landsins, sem bezt standist gegn kalinu.
Að framkvæmd lokinni, sem kostuð verði með sérstöku fjárframlagi til landbúnaðardeildarinnar, séu gefnar út niðurstöður rannsóknanna og leiðbeiningar byggðar á þeim.“
Ég vil taka það fram til að fyrirbyggja misskilning, að það eru rannsóknir á þessu sviði nú, en atvinnudeildin hefur takmörkuð fjárráð til að sinna þessum verkefnum, því að þar eru eins og á fjölmörgum öðrum sviðum ótæmandi rannsóknarverkefni. En hér er svo ráð fyrir gert í þessari till., að þessum verkefnum sé sinnt með sérstökum fjárframlögum, sem ríkið veitir í þessu skyni, þannig að ekki þarf að tefja aðrar þær rannsóknir, sem fyrir eru, vegna þessara rannsókna.
Ég vænti þess, að þótt till. þessi kunni að kosta nokkur fjárútlát úr ríkissjóði nú að sinni, þá muni, þegar tímar líða, það fjármagn margborga sig fyrir þjóðarheildina síðar meir. Ég vænti þess, að skilningur hv. alþm. á máli þessu verði góður og málið verði vel til lykta leitt á þessu þingi.
Ég legg til, að till. þessari verði vísað til hv.
allshn. að lokinni umr. þessari, þar sem ákveðin er ein umræða.