26.02.1964
Sameinað þing: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (2315)
66. mál, kal í túnum o.fl.
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Eins og kemur fram í nál. hv. allshn. og raunar í framsöguræðu frsm. n., hafði n. sent nokkrum stofnunum mál þetta til umsagnar og þær allar gefið jákvæð svör. Og á þeim álitum hefur svo hv. allshn. byggt sínar till., sem hér liggja fyrir. Ég vil fyrir hönd okkar flm. þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu málsins og vona, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að láta framkvæma sem allra fyrst það, sem í till. felst.