26.02.1964
Sameinað þing: 46. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í D-deild Alþingistíðinda. (2329)
101. mál, bann gegn tilraunum með kjarnorkuvopn
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það er aðeins út af þeim umr., sem hér hafa orðið í sambandi við þessa brtt., að ég vil taka fram, að Framsfl. hefur tekið afstöðu gegn því, að hér verði leyfð kjarnorkuvopn, verði staðsett kjarnorkuvopn. Á síðasta flokksþingi var samþykkt hér að lútandi orðuð þannig, að Framsfl. lýsir sig andvígan því, að hér á landi sé leyfð staðsetning kjarnorkuvopna. Af þessu leiðir, að ég vil mæla með því, að þessi till., sem hér liggur fyrir, verði samþykkt þó að það megi kannske eitthvað setja út á orðalag hennar, þá er meginstefnan í till. sú sama og kemur fram í þessari samþykkt Framsfl. og mæli ég því með henni.