22.01.1964
Sameinað þing: 35. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í D-deild Alþingistíðinda. (2356)
45. mál, geðveikralög
Flm. (Alfreð Gíslason):
Herra forseti. Þessi till. fjallar um setningu löggjafar um geðveikramál. Ég hef á tveim undanfarandi þingum flutt till. sama efnis, en í hvorugt skiptið fékk málið afgreiðslu.
Eins og kunnugt er, eigum við enga samfellda löggjöf um geðveikramál til hér á landi og höfum aldrei átt. Þetta er í mótsetningu við það, sem gengur og gerist hjá öðrum menningarþjóðum, einkum okkar nágrannaþjóðum. Meðal þeirra allra er til meira eða minna ýtarleg löggjöf um geðveikramál, og margar nágrannaþjóðir okkar hafa lagt stolt sitt í að vanda sem mest til þessarar löggjafar. Eins og kunnugt er, eru geðveikramálin meðal þeirra heilbrigðismála, sem hvað viðkvæmust eru og mikilsverðust í þjóðfélaginu. Það er þess vegna furða, að ekki skuli fyrir löngu komin löggjöf, samfelld löggjöf, um þessi mál. Þetta veldur svo að segja daglega margs konar erfiðleikum. Það veldur valdhöfunum erfiðleikum, það veldur læknum erfiðleikum, og það veldur sjúklingum og þeirra aðstandendum erfiðleikum, að ekki skuli vera til sem fullkomnust lög um þessi mál. Vistun sjúklinga á geðveikrahæli, dvöl þeirra þar, dvalarlengd og brautskráning geðsjúklinga af spítölum eru mjög viðkvæm mál, sem þörf er á að fastar og ákveðnar reglur gildi um, þannig að ekki fari á milli mála, hver sé réttur þeirra aðila, sem hér koma við sögu, og hver skylda. Eins og sakir standa nú, er þetta mjög óljóst. Hver er t.d. skylda yfirvalda gagnvart þessum sjúklingum, hver er skylda aðstandenda þessara sjúklinga og hver er skylda lækna og þeirra réttur? Um þetta og annað þessu líkt eru engar ákveðnar reglur til hér á landi. Og þetta veldur ekki aðeins, eins og ég sagði áðan, þeim aðilum, sem að þessum málum vinna, ýmiss konar örðugleikum, heldur getur þetta og hefur valdið stjórnarvöldunum óþægindum og kostnaði. Það hefur sem sagt komið fyrir oftar en einu sinni hér á landi og Það einmitt á siðari árum, að málsókn hefur farið fram vegna skorts á lagaákvæðum. Fyrrv. sjúklingar hafa lögsótt viðkomandi spítala og fengið sér dæmdar skaðabætur eingöngu vegna þess, að ekki eru til lagaákvæði um Þessi viðkvæmu og mikilsverðu mál.
Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta mál, en ég treysti því, að hv. n., sem væntanlega fær till. til meðferðar, athugi það og afgreiði á þessu þingi.
Herra forseti. Ég legg svo til, að þessari umr verði frestað og till. vísað til hv. allshn.